Morgunblaðið - 04.09.2020, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2020
VINNINGASKRÁ
205 9156 19866 29383 43305 53436 60512 70440
234 9159 20786 29429 43541 53700 61666 70493
679 9400 20946 29588 43874 53740 61947 70638
682 10334 21054 29743 44029 53838 62005 71087
837 10591 21763 30040 44414 53967 62021 71108
1264 10633 22383 31499 44415 54104 62492 71704
1312 11307 22467 31830 44562 54115 62638 72003
1617 11324 23029 31934 45069 54332 63058 72123
2090 11629 23156 32697 45200 54552 63234 72400
2464 12541 23228 33011 45495 54616 63317 72788
2514 12688 23319 33139 45798 54711 63329 73045
2761 12710 23476 33696 45799 54779 63437 73369
2834 12718 23518 33965 45947 54961 63472 73974
2920 13536 23715 34717 46308 54989 63886 74231
3111 13541 23803 34845 47146 55064 64074 75326
3287 14239 23816 35256 47315 55246 64137 75352
3609 14434 23859 35352 47522 55358 64386 75366
3723 14700 24333 35796 47622 55407 64427 75545
3770 15392 24724 36345 47841 55692 64810 76760
3926 15700 24789 36434 48811 56379 65191 77049
4240 15704 25344 36725 48962 56595 65832 77213
4481 15796 25428 37089 49072 56623 65877 77284
4574 16097 25549 37514 49212 57034 66010 77433
4604 16186 26870 37517 50529 57849 66029 77778
4680 16194 27017 38182 50956 58087 66096 78252
4952 16201 27154 38828 51044 58292 66487 78955
5194 16277 27380 39371 51370 58343 66489 78967
5499 16709 27384 39747 51715 58924 66835 79148
5710 16996 27403 40129 51803 59622 67749 79196
6409 17174 27478 40371 51821 59645 67938 79313
6410 17573 27834 40621 51903 59733 67964 79723
6505 18774 27885 40704 52165 59820 68119
6563 18837 28195 40971 52181 59987 68288
8035 19571 28217 40992 52805 60057 68501
8856 19595 28824 41699 52871 60098 68871
8947 19638 29164 42884 53234 60400 69684
9121 19789 29218 43266 53355 60479 70079
46 14126 23235 32116 44566 53408 61963 72928
1441 15477 23525 33187 45199 54148 62675 73736
1871 15850 23947 34625 46005 55088 62826 74134
2411 16099 24040 35918 46513 55174 63761 74271
5067 16238 25080 36179 47708 55474 64136 75035
5336 16556 26362 36255 47812 55965 64362 75899
5434 16605 27152 40836 47843 55998 65170 76782
5880 17783 27223 43052 48558 56052 70019 79878
7960 17839 28705 43152 48605 56333 70404 79967
8268 18155 28903 43397 48900 57522 70549
8719 19768 31030 44092 49108 58603 72035
11092 19847 31052 44151 49432 60640 72375
12825 22604 31390 44487 52460 61952 72554
Næsti útdráttur fer fram 10., 17., 24. sept & 1. okt 2020
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
9665 10644 31482 37996 55556
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
3656 11852 23042 48351 52221 66766
4686 19029 27314 48398 52815 69535
7120 19214 28973 49430 63548 71239
11098 22108 39419 49539 65584 77571
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
5 1 9 5
18. útdráttur 3. september 2020
Að undanförnu hafa
vinnutillögur að nýju
hverfisskipulagi í
Breiðholti verið
kynntar. Í vinnu við
hverfisskipulag er
samráð við íbúa í
hverfum borgarinnar
í forgrunni.
Þessar vinnu-
tillögur hafa vakið at-
hygli og kröftug
skoðanaskipti. Athyglin sem hug-
myndirnar hafa fengið er ánægju-
leg því þær eru settar fram til að
fá fram viðbrögð frá íbúum, sem
best þekkja hverfin sín. Ábend-
ingar og athugasemdir frá íbúum
eru síðan notaðar til að lagfæra
tillögurnar áður en þær fara í hið
formlega kynningar- og samþykkt-
arferli sem skilgreint er í skipu-
lagslögum.
Langt samráðsferli
Samráð er lifandi ferli þar sem
leitast er við að fá fram sem flest
sjónarmið. Í hverfisskipulagi er
ýmsum aðferðum beitt til að fá
fram sjónarmið sem flestra íbúa á
sitt nærumhverfi. Mikilvægt
vinnuframlag kemur frá færum
skipulagsráðgjöfum sem valdir
voru í sérstöku forvali í upphafi
vinnunnar.
Vinna við hverfisskipulagið
hófst árið 2013 og er byggð á Að-
alskipulagi Reykjavíkur 2010-2030.
Þá var byrjað að greina stöðu og
visthæfi allra hverfa í borginni.
Þær niðurstöður voru síðan not-
aðar til að móta fyrstu tillögur um
úrbætur í hverfunum.
Í Breiðholti hófst samráðsferlið
2015 með samstarfi við alla hverf-
isskóla í Breiðholtinu með því að
nemendur í 6. bekk smíðuðu mód-
el af sínu hverfi. Einnig voru
haldnir samráðsfundir
með nemendum í FB.
Frá 2015 til 2017 tóku
fleiri hundruð nem-
endur í Breiðholti
þátt í þessari vinnu
sem nefnd er Skap-
andi samráð. Þessi
módel voru síðan not-
uð á íbúafundum til
að ræða stöðuna. Á
íbúafundunum voru
kynnt drög að fram-
tíðarsýn og íbúum
gefinn kostur á að
koma með eigin hugmyndir.
Allar hugmyndir hafa verið
skráðar í stafrænan kortagrunn
sem er birtur á heimasíðu hverf-
isskipulagsins. Drög að framtíð-
arsýn fyrir hverfin sem skipulags-
sérfræðingar mótuðu var rædd í
rýnihópafundum sem Gallup hélt
utan um. Til rýnifunda var boðað
með slembiúrtaki sem tryggði
jafna dreifingu þátttakenda eftir
aldri og kyni. Rétt er að nefna að
fjölda hugmynda skipulagssérfæð-
inga um nýtingu ákveðinna svæða,
meðal annars undir íbúðir, var
hafnað í rýnihópum og því ekki
teknar með í áframhaldandi til-
lögugerð. Niðurstöður rýnihópa
voru síðan notaðar til að móta
vinnutillögur að nýju hverf-
isskipulagi.
Það er afrakstur allrar þessarar
vinnu sem hefur verið til kynn-
ingar fyrir íbúum Breiðholts und-
anfarnar vikur á vefnum hverf-
isskipulag.is, með viðveru
starfsfólks umhverfis- og skipu-
lagssviðs í Mjódd og Gerðubergi, í
þremur kvöldgöngum um Breið-
holt og loks stórum fjarfundi sem
var streymt á netinu. Allir þessi
viðburðir voru öllum opnir og
þátttaka íbúa var feikilega góð.
Eins og svo algengt er þegar
kemur að skipulagi eru ýmis dæmi
um mál þar sem skoðanir eru
skiptar. Það liggur svo í hlutarins
eðli að lokaniðurstaða samráðs
getur ekki alltaf verið að allra
skapi.
Nýtt skipulagstæki
„En hvað er hverfisskipulag?“
kunna einhverjir að spyrja. Í
stuttu máli er hverfisskipulag
stefnumótun sem fjallar um
hvernig hverfin í borginni geta
þróast í framtíðinni þannig að þau
verði skemmtilegri, grænni og
betri fyrir alla. Hverfisskipulag er
líka verkfæri til að auðvelda íbú-
um að byggja við húsin sín og
gera breytingar. Það er verið að
færa íbúum meiri völd en áður var
yfir fasteignum sínum og lóðum.
Þar sem hverfisskipulag hefur
verið samþykkt geta íbúar með
einföldum hætti fengið heimild til
að stækka húsnæðið sitt með
litlum viðbyggingum, innréttað
aukaíbúðir eða breytt bílskúr í
litla íbúð. Með þeim hætti nýtast
innviðir betur, aldursdreifing í
hverfum verður jafnari og íbúa-
samsetning fjölbreyttari. Fólk sem
býr í stórum húsum getur skapað
sér leigutekjur og jafnvel búið
lengur í eignum sem annars væru
orðnar of stórar.
Kröftug skoðanaskipti um
hverfisskipulag í Breiðholti
Eftir Ævar
Harðarson »Mikil umræða hefur
verið um vinnu-
tillögu að nýju hverf-
isskipulag í Breiðholti
þar sem samráð við íbúa
og hagsmunaaðila í
Breiðholtinu er í for-
grunni.
Ævar Harðarson
Höfundur er deildarstjóri
Hverfisskipulags Reykjavíkur
og Ph.D. arkitekt.
aevar.hardarson@reykjavik.is
Menningarstofnanir
landsins hafa margar
orðið hart úti í CO-
VID-19-faraldrinum.
Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands er þar
engin undantekning.
Frá því að samko-
mubann gekk fyrst í
gildi á vordögum hef-
ur hljómsveitin þurft
að fella niður eða
fresta átta tónleikum
og nær ómögulegt er að segja
hvenær starfsemin kemst aftur í
eðlilegt horf. Þessi staða er ekki
góð fyrir þá fjölmörgu áheyrendur
sem vilja njóta menningar á Ak-
ureyri. Staðan er ekki síður alvar-
leg fyrir hljóðfæraleikara sem
ráðnir eru sem verktakar til
hljómsveitarinnar og verða af
tekjum sem þau hefðu annars get-
að reitt sig á.
Þegar einar dyr lokast
opnar aðrar
En þegar einar dyr lokast opn-
ast stundum aðrar. Það hefur
gerst varðandi sprotaverkefni
hljómsveitarinnar sem kallað er
SinfoniaNord og snýst um upp-
tökur á sinfónískri tónlist í Hofi.
Frá því að heimurinn fór í hæga-
gang í febrúar 2020
hefur Menningarfélag
Akureyrar, sem rekur
Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands, lagt allt
kapp á að efla Sinfon-
iaNord-verkefnið og
árangurinn hefur ver-
ið vonum framar. Frá
páskum hafa þannig
verið teknir upp tólf
alþjóðlegir titlar fyrir
norðan og verkefnið
velt hátt í 50 millj-
ónum króna. Það er
um tvöföld sú upphæð
sem hljómsveitin fær frá opinber-
um aðilum til að halda úti hefð-
bundinni tónleikadagskrá sinni.
Ný atvinnusinfóníu-
hljómsveit komin fram
Það er vissulega gleðiefni að
tekist hefur að fylla að einhverju
leyti það tóm sem COVID-19-
faraldurinn hefur skilið eftir í
starfsemi Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands en sýnir um leið mik-
ilvægi þess að stjórnvöld taki þátt
í starfsemi SN með myndarlegri
hætti en nú er. Sá árangur sem
SinfoniaNord-verkefnið hefur náð
í COVID-19-faraldrinum sýnir að
á Íslandi er í raun orðin til ný at-
vinnusinfóníuhljómsveit. Það færi
vel á því að hið opinbera nýtti nú
tækifærið og gæfi hljómsveitinni
færi á að skila til samfélagsins því
sem hún svo vel gæti gert ef stutt
væri við starfsemina með bara ör-
lítið myndarlegri hætti en gert er.
Þótt stuðningur við starfsemina
næmi ekki nema tíunda hluta þess
sem varið er til sambærilegra
verkefna á höfuðborgarsvæðinu
yrðu sennilega til á vegum Sinfón-
íuhljómsveitar Norðurlands allt að
30 ný störf utan höfuðborgarsvæð-
isins og þeim mun meira í menn-
ingarverðmætum. Það myndi einn-
ig gera hljómsveitinni kleift að
þróa sprotaverkefnið Sinfon-
iaNord enn frekar og skapa þann-
ig nýjar gjaldeyristekjur til fram-
tíðar fyrir Ísland allt.
Það getur allt gerst fyrir norð-
an!
SinfoniaNord – ljós í
myrkrinu hjá Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands
Eftir Þorvald Bjarn
Þorvaldsson » Sá árangur sem Sin-
foniaNord-verkefnið
hefur náð í COVID-19-
faraldrinum sýnir að á
Íslandi er í raun orðin
til ný atvinnusinfón-
íuhljómsveit.
Þorvaldur Bjarni
Þorvaldsson
Höfundur er tónlistarstjóri Menning-
arfélags Akureyrar og Sinfón-
íuhljómsveitar Norðurlands.
tod@mak.is
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?