Morgunblaðið - 04.09.2020, Side 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2020
var glæsileiki á stigi sem maður
tengir við kvikmyndastjörnur um
miðja 20. öld eða einfaldlega við
kóngafólk. Þessi sami glæsileiki
var einnig til staðar í þínum per-
sónuleika og í hjarta þínu. Þú
varst óþrjótandi uppspretta kær-
leiks, örlætis og vinsemdar. Ég
gæti endalaust þulið upp jákvæð
lýsingarorð til að lýsa þér, amma
mín.
Hvar sem þú ert, þá vona ég
að Barnaby sé stöðugt í gangi og
að súkkulaðimolarnir séu óþrjót-
andi.
Hvíldu í friði, elsku amma.
Ragnar Örn Arnarson
Clausen.
Nú hverfur sól í haf
og húmið kemur skjótt.
Ég lofa góðan Guð,
sem gefur dag og nótt,
minn vökudag, minn draum og nótt.
Kom, nótt, með náð og frið,
kom nær, minn faðir hár,
og legðu lyfstein þinn
við lífsins mein og sár,
allt mannsins böl, hvert brot og sár.
(Sigurbjörn Einarsson)
Góð vinkona til áratuga hefur
kvatt okkur um stund. Hún Þóra
var ótrúleg kona og við urðum öll
örlítið betri manneskjur fyrir að
eiga hana að vini.
Lífið fór þó ekki alltaf silki-
hönskum um hana, en alltaf stóð
hún keik og stóð af sér alla
storma.
Það var oft glatt á hjalla hjá
okkur þegar við hittumst og
skeggræddum hlutina fram á
nótt. Hún var aldursforsetinn í
hópnum, en við hin farin að
gleyma og þá var gott að geta
flett upp í Þóru, sem var stál-
minnug og fjölfróð.
Nú er rödd hennar þögnuð, en
hjól tímans snýst hratt og vissan
um að lífið er andartak af eilífð-
inni veitir þeim sem eftir standa
huggun. Sorg og söknuður
hreiðrar um sig í hjartanu svo
undan svíður, en fullvissan um að
hún lifir þar sem ljósið ekki deyr
hjálpar þeim sem misst hafa.
„Við hittumst í landinu,
þangað sem fuglasöngurinn fer
þegar hann hljóðnar.“
(Jökull Jakobsson)
Ásta og Hendrik (Binni).
Hún Þóra er einn stærsti per-
sónuleiki sem ég hef kynnst. Hún
var glæsileg í framgöngu og við-
mótið hennar var hlýtt og blítt en
máttugt. Allt frá okkar fyrstu
kynnum við kirkjukórsöng í
Lundúnum á níunda áratugnum
til vináttu hin síðari ár stækkaði
hún hvunndaginn, færði hann á
einhvern betri eða fallegri stað.
Galdur Þóru var mildin. Með
sínu brosi, vingjarnlegum svip-
brigðum, vel völdum orðum eða
þögninni þegar við átti sýndi hún
í senn styrk og mildi. Og æðru-
leysið var alltaf hennar förunaut-
ur.
Þóra var eins og hún var og
þannig kenndi hún mér allt um
mátt mildinnar. Fyrir það verð
ég ævinlega þakklátur.
Jóhanna og ég kveðjum góðan
vin með söknuði og sendum
Björgólfi og fjölskyldu innilegar
samúðaróskir við fráfall ein-
stakrar eiginkonu og ættmóður.
Ásgeir Friðgeirsson.
Það er sárt að kveðja mína
elskulegu vinkonu, Þóru. Hún
var einstök manneskja, jafn fal-
leg innan sem utan, hlýjan og við-
mótið svo eftir var tekið og inni-
leikinn ósvikinn. Æviárin voru
orðin nokkuð mörg, en það var
víðsfjarri að finna fyrir því. Hún
var alltaf til í allt, ef svo má að
orði komast.
Þær eru bjartar minningarnar
sem koma upp í hugann, allt frá
tjaldútilegum með krakkana í
gamla daga, samveru með fjöl-
skyldunum, matreiðslunám-
skeiða, puði okkar við frönskuna
hjá Alliance til tónleika- og leik-
húsferða á seinni árum.
Þóru var svo margt gott gefið.
Hún var létt í lund, æðrulaus,
trúuð, traust og velviljuð. Innri
styrkur hennar var mikill og hún
var þeirrar trúar að áföllin í líf-
inu, sem hún fór ekki varhluta af
frekar en við hin, væru til að læra
og styrkjast af.
Lífsgleði og lífsleikni voru ein-
kenni hennar í daglega lífinu. En
Þóra mín var ekki skaplaus og lét
í sér heyra ef réttlætiskennd
hennar var misboðið. Gestgjafi
var hún par excellence og ann-
álaður meistarakokkur. Minnist
ótal góðra og skemmtilegra
stunda hjá þeim Bjögga.
Með trega og þakklæti kveð ég
mína góðu vinkonu og óska henni
góðrar heimkomu í kosmósið sem
hún trúði á.
Elsku Bjöggi og fjölskylda öll,
ég og fjölskylda mín samhryggj-
umst og vottum ykkur innileg-
ustu samúð. Megi allar góðar
vættir vera með ykkur og nú
dveljum við með öllum góðu
minningunum.
Guðbjörg R. Jónsdóttir.
Við Þóra Hallgrímsson hitt-
umst fyrst í undirbúningsdeild
Verslunarskólans fyrir 75 árum
og urðum þann vetur sessunaut-
ar og góðar vinkonur. Þóra var
glæsileg ung stúlka, skemmtileg
og hlý.
Sumarið þar á eftir höfðum við
ekkert samband en ég hlakkaði
til að hitta hana aftur um haustið,
þegar við myndum hefja námið í
fyrsta bekk. En Þóra mætti ekki,
því hún var komin í annan skóla
einhvers staðar í útlöndum.
Svo liðu áratugir án þess að
við hittumst eða hefðum sam-
band.
Þá gerðist það fyrir nokkrum
árum, að við sem gamlar og lífs-
reyndar konur hittumst óvænt á
hárgreiðslustofunni Senter; – en
reyndar varð Þóra aldrei gömul –
hún var enn glæsileg kona, bar
höfuð hátt og hafði enn sitt fal-
lega bros og hlýja glampann í
augunum.
Þarna varð fagnaðarfundur og
það var bara rétt eins og að við
hefðum hist síðast í gær! – við
hlógum, eins og í gamla daga.
Eftir þetta hittumst við þarna
reglubundið. Við vorum sömu
dagana og á sama tíma hvor hjá
sínum hárgreiðslumeistaranum
en slepptum því aldrei að heilsast
og kveðjast og spjalla svolítið um
leið.
En síðast þegar ég mætti
þarna á hárgreiðslustofunni, þá
mætti Þóra ekki og ég saknaði
hennar – en hlakkaði líka til að
hitta hana næst; – en hún kom
ekki næst. Svo las ég fréttina um
andlát Þóru og ég er þakklát fyr-
ir þær góðu stundir sem við átt-
um saman bæði í æsku og elli.
Innilega votta ég Björgólfi og
fjölskyldunni samúð mína.
Sigríður Björnsdóttir.
Í dag kveðjum við dásamlega
manneskju. Þóra Hallgrímsson
var sui generis – einstök og fór
sínar eigin leiðir í níutíu ár, allt
frá barnæsku til hárrar elli. Bar-
næska og há elli – sagt er um
sum börn að þau séu fædd full-
orðin. En engan þekkti ég nema
Þóru, sem aldrei varð öldrun og
hrörnun að bráð, aldrei gömul,
hélt bara sínu striki, útgeislunin
jókst ef eitthvað var með árun-
um, hugurinn skýr, hún kunni að
eldast með reisn.
Alltaf eins og óumbreytanleg,
bar sig höfðinglega, glæsileg, lát-
laus, vönduð, smekkleg. Bylgj-
andi hárið sem rammaði inn fal-
legt andlitið. Þóra var einatt
þannig uppfærð að hún hefði
sómt sér hvar sem var og alltaf
smellpassað inn í aðstæður.
Útgeislunin einstök, töfrandi,
smitandi. Þannig var hún fyrir
örfáum vikum síðan að koma úr
hárgreiðslu hjá Svavari og fal-
legri en allar konurnar á stofunni
samanlagt, níræð plús. Stolt og
uppkomið barna„barnið“ að
sækja ömmu, fegurðin í sam-
skiptum þeirra djúp og einlæg.
Bein í baki, brosið töfrandi, negl-
urnar eldrauðar.
Kærkomið að hitta Þóru, ólýs-
anleg upplifun á þessum Covid-
tímum. Það var nefnilega ekkert
hversdags til þar sem Þóra var
annars vegar, því hún var sjálf
alltaf spari í öllu sínu látleysi,
þolinmæði og ró. Lífið tók kipp
við þennan litla óvænta fund, allt
virtist gott, geislar júlísólarinnar
urðu sterkari. Þóra hafði rétt enn
einu sinni galdrað hvunndaginn
burt.
Hún breiddi út faðminn sinn
til mín og ég fann hvernig hlýjan
streymdi frá henni. Fallega bros-
ið hennar bræddi allt og alla í
kringum hana og náði svo sann-
arlega til augnanna og hjartans.
Ég fann sterk áhrif af nærveru
hennar og íhugaði lengi eftir okk-
ar fund, hve einstakar þær
manneskjur eru sem stækka
aðra með nærveru sinni, umvefja
kærleika, smita af lífsgleði, hlýju
og húmor. Já, hún Þóra hafði svo
sannarlega mikil mótandi áhrif á
sitt eigið fólk og samferðamenn
alla. Hún hækkaði ekki róminn,
en nálægt henni urðu allir stillt-
ari, kurteisari og „dannaðri“ svo
slett sé úr dönsku að hefðar-
kvenna sið. Hún var blátt áfram
og æðrulaus og algjörlega laus
við fordóma og dómhörku.
Þóra var eins og margra hæða
hús, ævintýrakona á heimsmæli-
kvarða, en um leið mikil fjöl-
skyldumanneskja með fólkið sitt
í algjörum forgangi. Líf hennar
var svo viðburðaríkt, að sá hefði
fengið Oscarinn sem lagt hefði líf
hennar fram sem handrit í Holly-
wood.
Kvikmynd hefði ekki dugað til,
þáttaröð hið minnsta og fegurstu
konur þar vestra hefðu slegist
um hlutverk Þóru. Sú sem hlut-
verkið hreppti hefði þurft
margra mánaða þjálfun, í fallegu
framkomunni, kurteisinni og
þakklætinu sem henni var svo
tamt að sýna í hverju spori.
Þóru verður aldrei komið í
skilgreint hólf, hún var allt annað
en venjuleg. Líf hennar var lík-
ara rússíbana en dansi á rósum,
en hún lét ekkert buga sig, né
stíga sér til höfuðs.
Hvernig hún tókst á við áföll,
yrði erfitt að túlka í kvikmynd,
en væri efni í doktorsritgerð eina
eða tvær.
Við Kjartan þökkum Þóru ára-
tuga samleið og vináttu, biðjum
Guð að styrkja Björgólf og fjöl-
skyldu þeirra alla á þessum
miklu vegamótum.
Sigríður Ásdís Snævarr.
Þóra var gift honum Björgólfi
föðurbróður okkar og við minn-
umst hennar með djúpri þökk og
virðingu. Frá barnæsku var hún
stór hluti af fjölskyldulífinu og
gegnum tíðina hefur hún verið
okkur sannkölluð fyrirmynd og
haft mikil áhrif á okkur. Þóra var
glæsileg kona og mikill höfðingi
heim að sækja, matarboð hennar
eru ógleymanleg og með þeim
hætti að þar kynntumst við mat-
argerðarlist og framsetningu af
hæsta gæðaflokki, enda var Þóra
mikill fagurkeri. Aldrei var langt
í næstu súkkulaðiskál eða ís og
eftirréttirnir hennar vekja hjá
okkur ljúfar minningar. Mest var
þó vert um hitt, hversu blíð og
góð hún var sjálf við okkur,
hjálpsöm og raungóð, því rækt-
arsemi hennar við fjölskylduna
var einstök.
Þóra var víðsýn, jákvæð og
réttsýn. Aldrei heyrðum við
æðruorð frá henni, umkvartanir
eða neikvæðni og ævinlega stóð
hún með sínu fólki.
Þóra hafði mikil áhrif á okkur
öll og viðmót hennar og lífsvið-
horf munu skila sér áfram til
komandi kynslóða í fjölskyldum
okkar. Við kveðjum hana með
þakklæti og söknuði. Blessuð sé
minning Þóru Hallgrímsson.
Guðmundur, Guðjón,
Kristín og Úlfar.
✝ Gréta Guðjóns-dóttir fæddist á
Landamótum í
Vestmannaeyjum 6.
apríl 1938. Hún lést
á Dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu
Hraunbúðum 20.
júní 2020.
Foreldrar henn-
ar: Guðjón Ólafsson
frá Landamótum,
skipstjóri í Vest-
mannaeyjum, fæddur 30. janúar
1915, lést á Vífilsstöðum 4. maí
1992 og Sigríður Friðriksdóttir
húsfreyja, ættuð frá Ólafsfirði,
fædd 31. júní 1917, lést á Land-
spítalanum 27. febrúar 1995.
Sonur Grétu,
Guðjón Sig-
urbjörnsson, fædd-
ur í Vest-
mannaeyjum 22.
febrúar 1958, lést á
heimili sínu í Hafn-
arfirði 2. maí 2006.
Eftirlifandi
bróðir Grétu: Frið-
rik Ólafur Guð-
jónsson, fæddur á
Landamótum 4.
janúar 1948, kvæntur Sigrúnu
Birgit Sigurðardóttur, fædd í
Vestmannaeyjum 23. nóvember
1946.
Úför Grétu fór fram í kyrrþey
að eigin ósk.
Sigga amma og Gaui afi, for-
eldrar Grétu og Guðjón sonur
hennar taka örugglega opnum
örmum á móti henni, það verða
fagnaðarfundir í Sumarlandinu.
Hún þráði það heitt síðustu árin
að vera með þeim aftur, enda hafði
allt hennar líf snúist um þau. Ég
hef aldrei þekkt neinn sem hugsar
svona vel um foreldrana sína eins
og hún gerði. Reyndar gerði hún
líf okkar allra sem stóðum henni
næst betra og ánægjulegra. Hún
saknaði Guðjóns mikið þau fjórtán
ár sem hún lifði eftir andlát hans
og er mér ómögulegt að skilja
hvernig það er hægt að lifa það af.
En Gréta var einstök kona sem
vílaði ekkert fyrir sér. Reif sig upp
frá Eyjum, flutti suður og kom sér
vel fyrir í Hafnarfirði og starfaði
lengst af hjá Íslandsbanka og vá
hvað mér þótti smart að hún væri
bankamær.
Það ættu allir að fá að eiga eina
Grétu frænku, hjá henni fengum
við að baka, sulla og njóta. Allar
minningar með henni eru gæddar
svo miklum kærleika, það leyndi
sér ekki hvað hún elskaði mig
heitt og gaf mér endalausa um-
hyggju og hlýju. Faðmurinn sem
hún breiddi út hlýr og yndislegur.
Hún var alltaf kölluð Gréta á
Landó en það var lenska í Eyjum
að gefa öllum skemmtilegri nöfn
en fólk fékk í hefðbundinni skírn.
Hún var ein af þessum sterku og
sjálfstæðu konum sem svo sann-
arlega höfðu áhrif á mína lífssýn
og ég var svo stolt af henni. Þó hún
væri oftast ein þá var eins og hún
gæti allt sem hún vildi og ég veit
það í hjarta mínu í dag að ég lærði
margt af henni og tók hana mér til
fyrirmyndar.
Það var draumur einn að fá að
vera hjá Grétu, gista eða kíkja í
heimsókn. Heimilið var prýtt fal-
legum munum frá útlöndum.
Við dönsuðum saman við lögin
hans Presley sem ég hélt lengi vel
að væri vinur hennar, en hún tal-
aði um hann eins og hann hefði
verið í kaffi hjá henni í gær og ég
var ein augu og eyru. Love me
tender Love me sweet – var sung-
ið hátt, ég skildi ekki þá hvað orðin
þýddu, en þau áttu vel við því svo
sannarlega fékk ég að kynnast
skilyrðislausri ást og dillandi gleði
allt til síðasta dags.
Ég man hvað ég var upp með
mér að segja frá því í skólanum að
hún frænka mín fór með skipi til
Evrópu og það er sko heljarinnar
löng leið, mér fannst hún svo hug-
rökk og flott.
Börnin mín elskuðu Grétu sem
gaf þeim svo mikla ást.
Hún var alltaf í góðu skapi, það
var hægt að hlæja að henni og með
henni fram til síðasta dags. Hún
dásamaði starfsfólkið á Hraun-
búðum þar sem hún dvaldi síðustu
árin, taldi sig vera svo lánsama að
búa í svona lúxus og láta stjana við
sig.
Elsku Gréta, mínar hjartans
bestu þakkir fyrir allt.
Þín
Guðbjörg Ósk.
Meira: mbl.is/andlat
Gréta Guðjónsdóttir
Ég vil minnast
vinar míns, Halldórs
Þorbergssonar, eða
Dóra eins og hann var alltaf kall-
aður. Leiðir Dóra og Hilmars
Símonarsonar, föður míns, lágu
snemma saman. Dóri starfaði
sem málari hjá pabba en á þess-
um árum var mikil uppbygging
fyrir austan. Margar vinnuferðir
fóru þeir um Suðurfirði og víðar. Í
för með þeim voru stundum
Stebbi, Hreinn, Venni og Smári
ásamt mér. Í einni slíkri voru þeir
á Hornafirði að mála fjölbýlishús
á Silfurbraut þegar einn smiður
kom til þeirra og spyr: Hvað búa
margir á Norðfirði? Hilmar segir
að þar búi 1.780 manns. Þá spyr
smiðurinn: Hvað hafa fæðst mörg
börn á Norðfirði á þessu ári?
Hilmar telur þau upp fyrir smið-
inn sem síðan fer aftur til starfa.
Þá segir Dóri: Hilli! Þú telur bara
upp börn alþýðubandalagsfólks!
Síðan líta þeir hvor á annan og
hlæja.
Þegar Hilmar lá á Landspítal-
anum og ég var staddur hjá hon-
um heyrði ég rödd fram á gangi
segja: Er ekki Hilli Sím hér? Ég
stóð upp og sá að þar var kominn
Dóri, hans gamli vinur. Við tókum
tal saman og ég sagði honum
hvernig staðan væri með föður
minn. Við gengum svo inn í her-
Halldór Hilmar
Þorbergsson
✝ Halldór HilmarÞorbergsson
fæddist 21. júní
1944. Hann lést
hinn 23. ágúst
2020.
Útför hans fór
fram 31. ágúst
2020.
bergið til föður míns
og þeir horfðu hvor
á annan og tár
runnu. Sannir vinir
og félagar. Lífið er
fljótt að fara frá
okkur. Stundum er
gott að staldra við
og láta hugann reika
um liðna tíma. Ég
bið Guð að styrkja
Diddu og þeirra
börn. Nú er ferðin
hafin hjá Dóra. Ferðin sem bíður
okkar kristinna manna. Megi
Kristur veita styrk í sorg og gleði.
Thorvald Imsland.
Það var þungt og sárt símtalið
frá föður mínum þennan fallega
sunnudag. Tilefnið sárt, sorglegt
og litaði daginn og næstu daga.
Dóri var giftur móðursystur
minni og ómissandi hluti af lífi
okkar allra sem eigum rætur að
rekja til Skálateigs í Norðfirði.
Ætíð á sunnudögum komu allir
afkomendur saman hjá ömmu og
afa í Skálateigi.
Hvort sem tekin voru spil í
hönd eða rökrætt um enska eða
íslenska boltann, bíla, traktora
eða landsins gagn var Dóri ómiss-
andi hluti af þessum stóra og
samhenta hópi.
Það gat hitnað í kolum en aldr-
ei man ég eftir að Dóri hafi talað
illa um nokkurn mann. Það var
ekki hans háttur.
Dóri bjó yfir þessu jafnaðar-
geði sem prýðir góðan dreng.
Hafði gaman af fólki og leiddist
ekki góð saga. Með lúmskan húm-
or fyrir sjálfum sér og öðrum.
Aðaláhugamálið var íþróttir og
sérstaklega þó knattspyrnan, en
hann var vel liðtækur á sínum
yngri árum með Þrótti eins og
bræður hans. Þetta var í upphafi
gullaldar Þróttar, sem lengi lék í
næstefstu deild þrátt fyrir að-
stöðuleysi.
Seinna meir í gegnum börnin
og barnabörnin. Dóri var United-
maður í gegn. Það var og er fyr-
irgefið.
Fyrst og fremst var Dóri mikill
og góður faðir, afi og langafi og
ber hinn stóri hópur vott um það.
Dóri giftist móðursystur
minni, Valgerði Jónsdóttur,
Diddu í Skálateigi eða Diddu
Dóra eins og hún er oftast kölluð.
Dóri var oft kallaður Dóri Diddu
og segir það æði margt um þeirra
fallega samband.
Dóri og Didda hafa verið órjúf-
anlegur hluti af lífi okkar bræðra
allt okkar líf,
því leita margar og ljúfsárar
minningar á hugann síðustu daga.
Heimili þeirra hjóna var og er
ætíð opið fyrir okkur bræður.
Lengst af bjuggu þau í Miðstræti,
á einum besta stað í bænum, og
ber heimilið vott um natni og
haga hönd þeirra hjóna. Það verð-
ur því skrítið að koma austur og
pínu tómlegt þegar höfðingjans
nýtur ekki lengur við, en Mið-
strætið er alltaf einn fyrsti við-
komustaðurinn þegar austur er
komið.
Samt verður alltaf jafn ljúft að
koma til móðursystur minnar
enda er Didda einstök.
Missir Diddu, barnanna, afa-
og ömmubarna, langafa- og lang-
ömmubarna er sárastur. Einnig
eftirlifandi systkina Dóra.
Fráfallið ótímabært og skyndi-
legt.
Traustur og gegnheill drengur
góður hefur kvatt í bili.
Blessuð sé minning Halldórs
Hilmars Þorbergssonar.
Minningarnar ylja.
Davíð Heiðar Hansson.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og frænka,
INGIBJÖRG ÞURÍÐUR
RAGNARSDÓTTIR,
Álftahólum 4, Reykjavík,
lést 15. ágúst á deild 11 G Landspítala.
Jarðarför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu.
Michelle L. Whitehouse Robert W. Whitehouse, Jr
Kirsten E. Whitehouse Kyle R. Whitehouse
Eric S. Lusher Ashlea L. Lusher
Isabella L. Lusher Carter E. Lusher
Isaac S. Lusher Kolbrún Sigurbjörnsdóttir