Morgunblaðið - 04.09.2020, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2020
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Stóll á snúningsfæti
í ítölsku nautsleðri
75 cm á breidd
Verð frá 120.000 kr.
40 ára Edda Rut ólst
upp í Garðinum en
býr núna í Garðabæ.
Edda Rut er viðskipta-
fræðingur að mennt
og starfar sem fram-
kvæmdastjóri mann-
auðs- og samskipta-
sviðs Eimskips.
Maki: Tryggvi Björnsson framkvæmda-
stjóri, f. 1979.
Dætur: Sóley Birta, f. 2004, Katla, f.
2005, Ása Kristín, f. 2009 og Karen Lilja,
f. 2013.
Foreldrar: Björn Finnbogason, f. 1962,
rafvirki sem býr í Kópavogi. Gréta Þóra
Björgvinsdóttir, f. 1963. Hún starfar í Frí-
höfninni og býr í Njarðvík.
Edda Rut Björnsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú vildir helst vera einhvers staðar
annars staðar í ljúfum draumum. Njóttu
þess að eyða tíma með fjölskyldunni.
20. apríl - 20. maí
Naut Afstaða þín getur gert útslagið í
ákveðnu máli. Ekki láta það trufla þig þótt
ekki séu allir sammála þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú getur ekki breytt heiminum
og ættir að líta þér nær og koma jafnvægi
á eigið líf. Gefðu þér tíma til að meta það
sem þú hefur eignast.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú telur mikilvægt að bæta sam-
skipti þín við maka þinn. Umhyggja þín fyr-
ir sjálfum þér gefur þér sjálfstraust.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er margt sem gengur þér í hag-
inn þessa dagana. Raðaðu hlutunum í for-
gangsröð og einbeittu þér að einum hlut í
einu og þá fara hjólin að snúast.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Óþreyja hefur sínar góðu hliðar, svo
ekki láta hendur fallast ef þú hugsar þér til
hreyfings. Taktu þér tíma til að undirbúa
hvern dag.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur jákvæð áhrif á samstarfs-
menn þína með því að sýna þeim vinsemd
og umhyggju. Verkefni sem þú vinnur að
mun ganga einstaklega vel.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú veist hvaða stefnu á að
taka og þarft því að beina öðrum inn á
réttar brautir. Leggðu metnað þinn í að
vinna það vel sem þú tekur þér fyrir hend-
ur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú gætir ruglað saman minni
og stærri forgangsmálum í dag. Reyndu að
komast að því hvað þarfnast tafarlausrar
úrlausnar og gakktu svo ákveðinn til verks.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Samstarfsmaður þinn leitar til
þín með flókið mál til úrlausnar. Innsæi þitt
mun nýtast þér vel og brátt mun lausnin
liggja fyrir.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er óvenjumikill hraði á þér.
Ef þú þarft að vera í miklum samskiptum
við fólk er hætt við að þú bregðist óþarf-
lega harkalega við hlutunum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú munt hitta fólk sem hefur sömu
áhugamál og þú ef þú bregður þér oftar af
bæ. Þú ákveður að verja fé til breytinga og
lagfæringa á heimilinu.
H
örður Torfason fædd-
ist 4. september 1945
í Reykjavík og ólst
þar upp eins og eft-
irstríðsárabörn þess
tíma og var í sveit á sumrin. „Ég var
vestur í Ögri við Ísafjarðardjúp, í
Grímstungu í Vatnsdal og víðar.
Þetta var dýrmæt reynsla fyrir
borgarbarnið og maður lærði að
vinna í sveitinni.“ Hann segist líka
muna eftir að hafa farið á engin þar
sem slegið var með orfi og ljá. „Svo
má ekki gleyma mikilvægi þess að
læra að umgangast dýr. Maður fékk
til umráða hest yfir sumarið sem var
ábyrgðarhluti og kenndi mér mikið.“
Á mölinni gekk Hörður í Gagn-
fræðaskóla Austurbæjar og útskrif-
aðist þaðan árið 1966 frá verslunar-
deild. Þá var Hörður þegar byrjaður
að syngja, enda stóð hann fyrst á
sviði tólf ára gamall og flutti söngva
eftir sig. Hann fór í Leiklistarskóla
Þjóðleikhússins vorið 1970. „Leik-
listin hefur alltaf heillað mig, allt frá
því að ég var sjö ára gamall og sá
Ferðina til tunglsins í Þjóðleikhúsinu
og það má segja að ég hafi ekki farið
úr leikhúsinu síðan.“
Í apríl 1971 kom fyrsta plata
Harðar af 26 út, þar sem lög eins og
Ég leitaði blárra blóma, Þú ert sjálf-
ur Guðjón og Dagurinn kemur og
dagurinn fer urðu gífurlega vinsæl,
svo aðeins nokkur séu nefnd. Fram-
tíðin virtist björt hjá hinum unga
listamanni, hvort sem var í leiklist-
inni eða tónlistinni næstu árin. Síðan
kom hið fræga viðtal í Samúel 1.
ágúst 1975 þar sem þáttaskil urðu í
lífi Harðar. Eins og frægt er orðið
opinberaði Hörður samkynhneigð
sína í viðtalinu, fyrstur Íslendinga,
og segja má að það hafi verið eins og
sprengja á tímabili þar sem persónu-
leg málefni voru aldrei rædd upphátt
og samkynhneigðir voru ósýnilegur
hópur í samfélaginu. „Þetta var mjög
erfitt tímabil fyrir mig persónulega
og má segja að ég hafi hrökklast úr
landi árið 1977 og ég fór til Kaup-
mannahafnar.“ Viðtalið og þeir
erfiðleikar sem því fylgdu settu bar-
áttu samkynhneigðra í kastljósið og
sýndi þörfina fyrir viðurkenningu og
sjáanleika í samfélaginu og var
Hörður fremstur í því starfi fyrstu
árin. „Ég leit á það sem skyldu mína
að ljúka því verki sem ég hafði hafið
og nýtti reynslu mína sem leikstjóri
til að koma saman pólitísku baráttu-
afli fyrir samkynhneigða og linnti
ekki látum fyrr en mér tókst að
koma saman hópi sem ég svo skýrði
Samtökin 78 og má segja að það hafi
aðeins tekist vegna þess að ég fékk
til liðs við mig Guðna Baldursson
sem varð fyrsti formaður Samtak-
anna 78. Það var mikil gæfa að
Guðni skyldi vera fastráðinn hjá rík-
inu og eiga sína eigin íbúð. Þú sérð
um Reykjavík og ég sé um lands-
byggðina, sagði ég við Guðna og
lagði af stað í áratuga ferðalag um
landið með sýnileikann sem förunaut
og vin flytjandi sungnar og sagðar
sögur.
Hörður minnist þess að þegar
hann talaði við foreldra sína og sagði
þeim að hann væri samkynhneigður,
sem í þá daga var sagt að vera „öðru-
vísi“ og jafnvel glæpsamlegt, tóku
þau því vel. „Maður getur ekki verið
neitt annað en maður sjálfur og það
er aldrei rangt að elska,“ sögðu þau
við hann og segja má að þessi skila-
boð hafi litað allt líf Harðar. „Þetta
er sá boðskapur sem ég hef verið að
flytja til fólks án þess að vera að pre-
dika. Ég vil bara segja við fólk að
það eigi val. Þú þarft ekkert að leita
að sjálfum þér, því þú ert þú. Þegar
fólk segist vera að leita að sjálfu sér
finnst mér að það snúist oft um að
sætta sig við hver maður er.“ Svo
bendir hann líka á hvað það er mikil-
vægt að tala saman og ekki síst að
hlusta á aðra. „Það er þessi heim-
speki að ef þú virkilega hlustar á
aðra, þá heyrir þú í sjálfum þér.“
Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá
þessum upphafsdögum baráttu sam-
kynheigðra og núna 1. ágúst sl. gaf
Hörður Torfason leiksviðsmaður og söngvaskáld – 75 ára
Morgunblaðið/Kristinn
Tímamótaverk 75 sungnar sögur komu út 1. ágúst sl. en nafnið vísar í 75
ára afmæli Harðar og útgáfu viðtalsins fræga í Samúel fyrir 45 árum.
Maður getur ekki verið neitt
annað en maður sjálfur
Morgunblaðið/Kristinn
Söngvaskáld Hörður Torfason í Borgarleikhúsinu árið 2010 en hann hefur
haldið bæði vor- og hausttónleika áralega um áratuga skeið.
60 ára Gestur fædd-
ist á Akranesi, en
fluttist ungur til
Reykjavíkur en býr nú
á Höfn í Hornafirði.
Hann vinnur hjá KASK
flutningum í Horna-
firði. Gestur er for-
maður Golfklúbbs Hornafjarðar en einnig
er hann liðtækur briddsspilari.
Maki: Jóna Margrét Jóhannesdóttir, f.
1965, skrifstofumaður.
Börn: Anita f. 1982, Jóhannes f. 1988,
Rúnar Þór f. 1991 og Anna Lilja f. 1995.
Foreldrar: Halldór Grímsson, f. 1940, fv.
bóndi og Anna Lilja Gestsdóttir, f. 1941,
fv. starfsmaður á Elliheimilinu Grund.
Þau skildu.
Gestur Halldórsson
Til hamingju með daginn
Vinirnir Árni Geir
Ásgeirsson og Steinar
Orri Steingrímsson
gengu í hús í Fossvog-
inum, sungu og héldu
leikrit til þess að safna
fé til styrktar Rauða
krossinum. Þeir komu
með afraksturinn,
heilar 4.462 krónur, til
Rauða kross Íslands og
þökkum við þeim kær-
lega fyrir þeirra fram-
lag til góðgerðarmála.
Fjáröflun