Morgunblaðið - 04.09.2020, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2020
Við Fellsmúla | Sími: 585 2888
„FÓRSTU Í HÁRÍGRÆÐSLU?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... það að finnast
meðalið betra þegar
mamma gefur það.
ÉG ÓTTAST
EKKERT
NEMA ÞAÐ SEM ER
Á ÞESSUM LISTA
ÉG ER LÍKA HRÆDDUR
VIÐ LISTANN
VONANDI
ER ÉG Á
HONUM
TÓKI LÆKNIR ER Í FRÍI EN ÉG HEF HEYRT AÐ
AFLEYSINGALÆKNIRINN SÉ FRÁBÆR!
SEGÐU
AHHH
ÉG VEIT
EKKI …
SEGÐU
„ahhhh”
ÉG HELD AÐ
ÉG FRESTI
TÍMANUM!
OPNA MUNNINN
„EKKI LÁTA HANN SLÁ ÞIG ÚT AF
LAGINU. HANN HEFUR ALLTAF VERIÐ
SVONA ÖFUGSNÚINN.”
ÚT MEÐ
TUNGUNA
Hörður út bókina 75 sungnar sögur
en nafnið er vísun í birtingardag við-
talsins fræga í Samúel. „Ég hef tekið
saman af handahófi söngtexta og
upplifanir úr ferðum mínum sem far-
andsöngvaskáld um landið,“ segir
Hörður sem frá 1976 hélt árlega
haust- og vortónleika um áratuga
skeið. „Ég hef mest gaman af því að
halda uppi samtali við fólk og sýna
fjölbreytileika okkar mannfólksins.“
En hvernig skyldi Hörður ætla að
halda upp á daginn. „Ég ætla nú
bara að setjast með vinum mínum og
borða og hafa það gott. Það er ekkert
hægt að hafa neinar fjöldasamkomur
í þessu Covid-ástandi og þá er bara
að njóta þess sem maður hefur, fara í
göngutúra og njóta þess að vera til.“
Fjölskylda
Eiginmaður Harðar er Massimo
Santanicchia, f. 19.2. 1973 í Perugia á
Ítalíu, dósent og dagskrárstjóri í
arkitektúr í Listaháskóla Íslands.
Foreldrar hans eru Aldo Sant-
anicchia, f. 7. 4. 1942 og Galliana Gui-
lioni Nicoletti, f. 8.11. 1943. Þau eru
búsett í Perugia á Ítalíu.
Systkini Harðar eru Kristján
Karl, f. 26.1. 1944, bifreiðastjóri í
Reykjavík, Hjördís, f. 7.10. 1946,
fatahönnuður og saumakona í Hels-
ingborg, Benedikt Már, f. 22.12.
1948, matreiðslumaður og sjúkraliði
í Ósló, Magdalena, f. 13. 9. 1950,
danskennari og tryggingafulltrúi í
Kaupmannahöfn og Kristinn Örn, f.
11.4. 1960, kerfisfræðingur í Reykja-
vík.
Foreldrar Harðar eru Torfi Bene-
diktsson, f. 1.1. 1918, d. 2.1. 2013, vél-
virki frá Broddanesi í Kollafirði á
Ströndum og Anna Fanney Krist-
insdóttir, f. 17.7. 1924, d. 5.12. 2001,
þjónn í Reykjavík.
Hörður
Torfason
Anna Sigríður Þorfi nnsdóttir
húsfreyja í Skagafi rði
Kristján Halldór Jörgen Kristjánsson
vinnumaður í Danmörku
Kristinn Halldór Kristjánsson
vörubifreiðarstjóri í Reykjavík
Anna Fanney Kristinsdóttir
þjónn í Reykjavík
Karólína Jósepsdóttir
húsfreyja á Ísafi rði við
Skutulsfjörð
Ásdís Sigrún Kristjánsdóttir
húsfreyja á Ísafi rði
Jósep Sigmundsson
sjómaður á Ísafi rði
Herdís Pétursdóttir
húsfreyja á Snæfellsnesi
Jón Jónsson
bóndi í Helgafellssveit á
Snæfellsnesi
Magdalena Jónsdóttir
húsfreyja frá Katadal
í Þverárhreppi í
Húnavatnssýslu
Benedikt Friðriksson
bóndi og verkamaður á Felli í Fellshreppi í Strandasýslu
Ingibjörg Björnsdóttir
húsfreyja á Gestsstöðum
Friðrik Magnússon
bóndi á Gestsstöðum í Tungusveit í Strandasýslu
Úr frændgarði Harðar Torfasonar
Torfi Benediktsson
vélvirki Broddanesi á Kollafi rði á Ströndum
Þórarinn Eldjárn yrkir á Feisbókog kallar „Tungutönn“:
Íslensk tunga er engu lík,
ylhýr, römm og sönn.
Blæ- er hún svo brigðarík
að börnum vefst um tönn.
Á Boðnarmiði segir Kristján H.
Theodórsson: „Ekki bjart yfir ver-
öld?“:
Þokusúld og september,
siglum inní haustið.
Gangur lífsins líkur er,
leggur far í naustið.
Á miðvikudag var frétt um það í
Morgunblaðinu að Ólafur Ragnar
Grímsson, fyrrverandi forseti Ís-
lands, gæfi þann dag út hljóðbókina
Sögur handa Kára. Í inngangi bók-
arinnar segir Ólafur að Kári Stef-
ánsson hafi hringt í sig síðla kvölds
á liðnu ári og leitað ráða í glímu
sinni við kínversk yfirvöld. Sigurlín
Hermannsdóttir yrkir:
Á óvenjulegu ári
í ólgandi kórónufári
þylur Ólafur Ragnar
og útgáfu fagnar
er Kínasögur fær Kári.
Ármann Þorgrímsson segir, að
sér hafi verið bent á, af mestu hóg-
værð, að gæta orða sinna um okkar
besta fól:
Verð að gæta varúðar
virða mörkin hófsemdar
eru stundum upplognar
á þá bestu sögurnar.
Hallmundur Guðmundsson fer
með „Örlagaljóð“:
Þegar Rósmunda Friðný varð frjó
fór hún með Herjólf’ á sjó.
Þar ástríkur Baldur,
áhrifavaldur,
æddi að borðstokk og spjó.
En áður hafði Hallmundur hrært
í vísnabingnum:
Ennþá geymist mér í muna,
minningin um kærustuna
sem mér vakti fjör og funa,
fyrir neðan þvagblöðruna.
Björn Skúlason Eyjólfsstöðum
orti:
Betra er að fara stillt af stað,
steypist einhver þarna.
Skyldi ’ann hafa hálsbrotnað
helvítið að tarna?
Sigvalda Skagfirðingaskáldi var
gefið kaffi í sprungnum bolla:
Drottinn fyrir drykkinn holla,
dygðakonan, launi þér,
þó hann væri í brotnum bolla
brotlegum það hæfir mér.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Tungutönn og
sögur handa Kára