Morgunblaðið - 04.09.2020, Síða 26
BIKARKEPPNIN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Ríkjandi bikarmeistarar Selfoss
tryggðu sér í gær sæti í undan-
úrslitum Mjólkurbikars kvenna í
fótbolta með sterkum 1:0-sigri á
Íslandsmeisturum Vals á heima-
velli. Hólmfríður Magnúsdóttir
skoraði glæsilegt sigurmark á 75.
mínútu og tíu mínútum síðar varði
Kaylan Marckese víti frá Elínu
Mettu Jensen og tryggði Selfyss-
ingum sigur. Vann Selfoss einnig
leik liðanna í Meistarakeppni KSÍ í
byrjun tímabils og þá er Selfoss
eina liðið sem hefur unnið Breiða-
blik á tímabilinu. Selfossliðið er
gríðarlega vel mannað og virðist
loksins farið að sýna klærnar eftir
erfiða byrjun í sumar.
KR er sömuleiðis komið í undan-
úrslit eftir 2:1-sigur á FH í Hafn-
arfirði. KR tapaði fyrir Selfossi í
úrslitum á síðasta ári, en liðið er
aðeins einum leik frá því að komast
í úrslit annað árið í röð. Nöfnurnar
Katrín Ómarsdóttir og Katrín Ás-
björnsdóttir tryggðu KR-ingum
sigurinn og var sigurmark þeirrar
síðarnefndu tíu mínútum fyrir
leikslok einkar glæsilegt.
Öruggt hjá Blikum og Þór/KA
Þór/KA er þriðja liðið sem leikur
í undanúrslitum annað árið í röð
eftir 3:1-sigur á 1. deildarliði
Hauka á heimavelli. Hin banda-
ríska Vienna Behnke kom Haukum
yfir úr víti á 56. mínútu en þær
Arna Sif Ásgrímsdóttir, Berglind
Baldursdóttir og Hulda Karen
Ingvarsdóttir svöruðu fyrir Þór/
KA. Akureyrarliðið tapaði fyrir
KR í undanúrslitum á síðasta ári
og gæti fengið annað tækifæri til
að slá KR-inga úr leik, dragist liðin
saman. Varð KR síðast bikarmeist-
ari 2008 en Þór/KA hefur aldrei
orðið bikarmeistari.
Breiðablik varð síðasta liðið til
að tryggja sér sæti í undanúrslit-
unum en eins og við var að búast
unnu Blikar öruggan sigur á ÍA úr
1. deild á útivelli, 5:0. Agla María
Albertsdóttir gerði tvö mörk fyrir
Breiðablik og þær Rakel Hönnu-
dóttir, Sveindís Jane Jónsdóttir og
Vigdís Edda Friðriksdóttir komust
einnig á blað. Breiðablik varð síð-
ast bikarmeistari árið 2018 með
sigri á Stjörnunni í úrslitum.
Dregið verður í undanúrslit 10.
september, en á sama tíma verður
dregið í undanúrslit Mjólkurbikars
karla. Verða undanúrslitaleikirnir
spilaðir í byrjun nóvember og úr-
slitaleikurinn 6. nóvember.
Selfoss vann
meistaraslag
Þrjú af fjórum aftur í undanúrslit
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Mark Katrín Ómarsdóttir fagnar fyrsta marki leiksins á Kaplakrikavelli.
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2020
Mjólkurbikar kvenna
8-liða úrslit:
FH – KR.................................................... 1:2
Selfoss – Valur .......................................... 1:0
Þór/KA – Haukar ..................................... 3:1
ÍA – Breiðablik ......................................... 0:5
Lengjudeild kvenna
Keflavík – Fjölnir ..................................... 2:1
Augnablik – Tindastóll............................. 0:4
Staðan:
Tindastóll 11 9 1 1 30:5 28
Keflavík 11 7 3 1 31:12 24
Haukar 10 6 2 2 18:9 20
Grótta 11 5 4 2 15:12 19
Afturelding 10 4 3 3 14:13 15
Augnablik 10 3 3 4 14:23 12
ÍA 10 1 6 3 16:18 9
Víkingur R. 11 2 3 6 13:22 9
Fjölnir 11 1 1 9 5:23 4
Völsungur 9 1 0 8 5:24 3
4. deild karla D
Kría – Smári.............................................. 4:2
Mídas – Árborg....................................... 1:10
Staðan:
Kría 12 9 3 0 48:23 30
KH 11 8 1 2 37:16 25
Árborg 12 7 2 3 42:19 23
Smári 13 6 1 6 24:31 19
Hvíti riddarinn 12 6 0 6 31:26 18
KB 12 3 1 8 26:44 10
Hörður Í. 11 2 1 8 22:32 7
Mídas 13 1 3 9 19:58 6
Þjóðadeild UEFA
A-DEILD:
4. riðill:
Þýskaland – Spánn................................... 1:1
Úkraína – Sviss......................................... 2:1
B-DEILD
3. riðill:
Rússland – Serbía..................................... 3:1
Tyrkland – Ungverjaland........................ 0:1
B-DEILD:
4. riðill:
Búlgaría – Írland...................................... 1:1
Finnland – Wales...................................... 0:1
C-RIÐILL:
3. riðill:
Moldóva – Kósóvó .................................... 1:1
Slóvenía – Grikkland................................ 0:0
D-RIÐILL:
1. riðill:
Lettland – Andorra .................................. 0:0
Færeyjar – Malta ..................................... 3:2
NBA-deildin
Austurdeild:
Úrslitakeppni, 2. umferð:
Milwaukee – Miami .......................... 114:116
Staðan er 2:0 fyrir Miami.
Vesturdeild:
Úrslitakeppni, 1. umferð:
Houston – Oklahoma........................ 104:102
Houston vann 4:3.
Íþrótta- og ól-
ympíusamband
Íslands, ÍSÍ, út-
hlutaði í gær
rúmlega 150
milljónum króna
úr sértækum að-
gerðum vegna
áhrifa kórónu-
veirunnar, að
undangengnu
umsóknarferli.
Úthlutunin byggist á tillögum
vinnuhóps. Knattspyrnufélagið
Valur fékk langhæsta styrkinn eða
rúmlega 17 milljónir króna. Kefla-
vík fékk rétt tæplega 12 milljónir.
Haukar og Fimleikasamband Ís-
lands fengu rúmar 11 milljónir,
Stjarnan rúmar 9 milljónir og
Hestamannafélagið Geysir rúmar 8
milljónir. Þann 26. maí sl. var aug-
lýst eftir umsóknum vegna sér-
tækra aðgerða frá sambandsaðilum
og íþrótta- og ungmennafélögum
sem höfðu orðið fyrir tapi eða
tekjufalli vegna viðburða sem hætt
var við á vormánuðum, vegna kór-
ónuveirunnar. Til úthlutunar voru
eftirstöðvar fjárframlags ríkisins,
um það bil 150 milljónir króna.
ÍSÍ styrkti
félög um
150 milljónir
Líney Rut
Halldórsdóttir
KNATTSPYRNA
EM karla U21:
Víkingsvöllur: Ísland – Svíþjóð............16:30
Í KVÖLD!
ÞJÓÐADEILDIN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Það verður á brattann að sækja
fyrir íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu þegar liðið tekur á
móti Englandi í 2. riðli Þjóðadeild-
ar UEFA á
Laugardalsvelli
á morgun.
Ragnar Sig-
urðsson (94
landsleikir), Ar-
on Einar Gunn-
arsson (87 lands-
leikir), Jóhann
Berg Guðmunds-
son (75 lands-
leikir), Gylfi Þór
Sigurðsson (74
landsleikir) og Alfreð Finnbogason
(57 landsleikir) eru allir fjarver-
andi.
Aron Einar, Gylfi, Jóhann Berg
og Ragnar voru allir í byrjunarliði
íslenska liðsins sem vann frækinn
2:1-sigur gegn Englandi í sextán
liða úrslitum Evrópumótsins í
Frakklandi í Nice hinn 27. júní
2016.
Birkir Bjarnason (84 lands-
leikir), Kári Árnason (83 lands-
leikir), Ari Freyr Skúlason (72
landsleikir), Hannes Þór Hall-
dórsson (69 landsleikir), Kolbeinn
Sigþórsson (57 landsleikir) og Jón
Daði Böðvarsson (48 landsleikir)
voru einnig í byrjunarliði íslenska
liðsins í Nice en þeir eru allir í
landsliðshópi þjálfarans Eriks
Hamréns.
Birkir Már Sævarsson er hins
vegar ekki í hópnum en hann var
hægri bakvörður í títtnefndum leik
og hélt leikmönnum á borð við Ra-
heem Sterling og Marcus Ras-
hford niðri í Frakklandi.
Gömlu góðu gildin
Það verður að teljast ansi líklegt
að Hamrén leggi traust sitt á
reyndustu leikmenn liðsins gegn
Englandi en Emil Hallfreðsson (71
landsleikur) er einnig í hópnum og
mun að öllum líkindum byrja
gegn enskum á laugardaginn
kemur.
„Það segir sig alveg sjálft að
fjarvera þessara lykilmanna veik-
ir okkur,“ sagði Ólafur Ingi
Skúlason, fyrrverandi landsliðs-
maður í knattspyrnu og aðstoð-
arþjálfari Fylkis í efstu deild, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Gylfi og Jói hafa verið tveir af
okkar allra mikilvægustu leik-
mönnum fram á við undanfarin ár
og hefur sóknarleikur liðsins mik-
ið farið í gegnum þá tvo.
Aron og Raggi hafa svo verið
máttarstólparnir í varnarleiknum
þannig að við erum að missa fjóra
af okkar sterkustu leikmönnum á
undanförnum árum.
Alfreð hefur líka verið stór
hluti af liðinu á síðustu árum
þannig að það gefur augaleið að
við erum veikari núna en oft áð-
ur,“ bætti Ólafur við en miðju-
maðurinn á að baki 36 A-
landsleiki fyrir Ísland.
Ólafur Ingi á von á hörkuleik
gegn Englandi en enska liðið er
sem stendur í fjórða sæti FIFA-
listans.
„Ég held að aðalatriðið fyrir
okkur í þessu öllu saman sé að við
höldum í okkar gildi og það sem
við höfum verið að gera á und-
anförnum árum.
Hvort þjálfarateymið stillir upp
með 4-4-2 eða 4-2-3-1 þarf bara að
koma í ljós en ég reikna fastlega
með því að uppleggið verði svipað
og undanfarin ár: Verjast vel,
gera sem fæst mistök og sækja
svo hratt þegar tækifæri gefst.
Föstu leikatriðin verða okkur
áfram mikilvæg og við þurfum að
nýta þau eins vel og kostur er.
Að endingu þarf liðið svo að
verjast sem ein heild og vera
beinskeytt í öllum sínum sókn-
araðgerðum.“
Spennandi leikmenn í hópnum
Ólafur Ingi er spenntur fyrir
leiknum og segir mikilvægt að
leikmenn íslenska liðsins njóti þess
að mæta stærstu stjörnum ensku
úrvalsdeildarinnar.
„Það verður gaman að sjá
hvernig við munum stilla upp á
laugardaginn (morgun) og hvort
við munum sjá yngri leikmenn fá
tækifæri.
Það eru mjög spennandi leik-
menn í hópnum eins og Andri
Fannar Baldursson sem dæmi og
maður hefur lítið séð af honum.
Þetta verður ákveðið púsluspil
og hörkuvinna fyrir þjálfarana en
að sama skapi er þetta er virkilega
skemmtilegt verkefni fyrir lands-
liðið og leikmennina auðvitað að
taka þátt í,“ bætti Ólafur Ingi við.
Hörkuvinna fyrir þjálfara-
teymið fram að leiknum
Ólafur Ingi býst við svipuðu uppleggi hjá landsliðinu og undanfarin ár
Morgunblaðið/Eggert
Landliðsæfing Kolbeinn Sigþórsson á æfingu í vikunni. Síðast þegar liðin mættust skoraði hann sigurmarkið.
Ólafur Ingi
Skúlason