Morgunblaðið - 04.09.2020, Side 27
FÓTBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Landsliðsmarkvörðurinn í knatt-
spyrnu, Guðbjörg Gunnarsdóttir,
virðist vera að nálgast keppnisform,
sjö mánuðum eftir að hún ól tvíbura.
Lið hennar Djurgården greindi frá
því á samfélagmiðlum að Guðbjörgu
hafi verið teflt fram í leik með vara-
liðinu á dögunum.
„Ef ég á að vera alveg hreinskilin
þá fannst mér þetta frekar snemmt
að taka þátt í leik. Ég hef æft á fullu
með liðinu í rúmar tvær vikur en
fram að því var ég á markmanns-
æfingum og ráðfærði mig við sjúkra-
þjálfara,“ sagði Guðbjörg þegar
Morgunblaðið sló á þráðinn til hennar
í gær.
„Svo kom upp þessi staða þar sem
mér var boðið að spila leik með liði
sem er eins konar blanda af unglinga-
liði og varaliði. Þar eru leikmenn úr
unglingaliðinu en leikmenn sem ekki
taka þátt í síðasta leik aðalliðsins
spila þá næsta leik með þessu liði.
Þetta er einhvers konar millistig.
Þetta reyndist vera fínt fyrir mig
enda er annað að spila leik en að taka
þátt í æfingu. Ég hafði ekki búist við
því að ferlið myndi ganga svona fljótt
fyrir sig.“
Lagði hart að sér
Tvíburarnir komu í heiminn í lok
janúar. Guðbjörg segist ekki hafa
sett sér nákvæm markmið um hve-
nær hún myndi snúa aftur á völlinn.
Hún er nokkuð afslöppuð sem stend-
ur yfir því hvenær hún muni spila aft-
ur með aðalliði Djurgården. Hún
þurfi tíma til að komast í leikæfingu
þótt líkaminn hafi brugðist vel við æf-
ingum að undanförnu.
„Ég átti gott spjall við þjálfarann
fyrir um þremur vikum og sagði þá
að ég þyrfti fimm til sex vikur með
liðinu áður en ég gæti spilað. Mér
hefur gengið vel á æfingum og neist-
inn er til staðar. Eftir að hafa verið
frá þá hef ég gaman af æfingunum. Á
fyrstu æfingunni fannst mér ég
reyndar vera eins og flóðhestur en
svo hefur gengið betur og betur.
Krafturinn og snerpan er að koma
aftur og ég finn mun á mér í hverri
viku. Sá þáttur hefur gengið betur en
ég þorði að vona. Ég hef líka æft eins
og vitleysingur. Það var drulluerfitt
að fara nánast ósofin í ræktina. Ég
æfði líka vel á meðgöngunni og þetta
er allt að skila sér núna. Ég var í
ræktinni tveimur eða þremur dögum
fyrir fæðingu og til eru myndir af því.
Þá var ég auðvitað orðin risastór
enda ófrísk af tvíburum. Ég gerði
mitt allra besta til að vera eins vel á
mig komin líkamlega og mögulegt
var.“
Hvílist misjafnlega vel
Guðbjörg segir helsta vandamálið
hafa verið að fara á æfingar eftir
svefnlitlar nætur. Auk þess sé ekki
einfalt að fara frá tveimur litlum
börnum ef hún ætti til dæmis að spila
útileiki með Djurgården.
„Börnin eru svo lítil og kannski
þess vegna finnst mér ég ekki vera al-
veg tilbúin til að spila leikina. Sumar
nætur sef ég bara örfáa tíma. Mörg
sjö mánaða börn sofa nokkuð vel og
annað þeirra gerir það en hitt er svo-
lítið erfitt á næturna. Þetta er því
krefjandi. Í framhaldinu er líka ým-
islegt sem þarf að skoða. Um helgina
er leikur gegn Rosengård í Malmö
sem dæmi. Þá er æfing á laugardags-
morgni og síðan farið til Malmö. Þá
er ekki komið til baka fyrr en aðfara-
nótt mánudags. Ég er sem dæmi ekk-
ert í aðstöðu til að gera það þar sem
ég hafði ekki gert ráðstafanir. Ég
hafði ekki gert ráð fyrir því að nálg-
ast leikform svo fljótt og ég þarf því
að skoða hvað hægt sé að gera í
kringum útileikina. Staðan er því svo-
lítið erfið varðandi praktíska hluti en
það ánægjulega er að líkaminn er
góður og mér gengur vel á æfingum.“
Spurð um hvort félagið setji pressu
á hana að spila sem fyrst segir Guð-
björg það ekki vera.
„Nei nei. Ég held að þau séu bara í
sjokki yfir því hversu vel þetta hefur
gengið. Þau bjuggust ekki við því að
ég kæmi svona sterk inn. Kannski er
það vegna þess að það eru bara örfáir
sænskir leikmenn í deildinni sem
hafa eignast börn. Ef þjálfarinn vill
setja mig í liðið þá þurfum að ræða
það en það er auðvitað samkeppni í
liðinu,“ sagði Guðbjörg Gunn-
arsdóttir enn fremur í samtali við
Morgunblaðið.
Betra en ég þorði að vona
Guðbjörg Gunnarsdóttir nálgast keppnisform Er þó frekar afslöppuð yfir
gangi mála sem stendur Ekki alltaf auðvelt að æfa eftir svefnlitlar nætur
Morgunblaðið/Eggert
Í Laugardal Guðbjörg Gunnarsdóttir í markinu í leik gegn sigursælu liði Þýskalands.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 2020
Eitt
ogannað
Íslandsmeistarinn Guðrún Brá
Björgvinsdóttir fór vel af stað á Flum-
serberg Ladies Open-mótinu í Sviss.
Er mótið hluti af LET Access-
mótaröðinni. Guðrún lék á 69 höggum
eða þremur höggum undir pari og er í
fimmta sæti ásamt nokkrum öðrum
kylfingum, fjórum höggum frá Stinu
Resen frá Noregi sem er efst.
Körfuknattleiksmaðurinn Bjarni
Guðmann Jónsson er genginn í raðir
Hauka frá Skallagrími en Bjarni hefur
leikið með öllum yngri landsliðum Ís-
lands og er 21 árs gamall. Hann hefur
leikreynslu úr efstu deild með Skalla-
grími.
Körfuknattleiksdeild KR hefur sam-
ið við tvo af sínum reyndustu mönn-
um, Helga Má Magnússon og Jakob
Örn Sigurðarson, um að leika með lið-
inu á Íslandsmótinu í körfuknattleik í
vetur. Helgi og Jakob eru báðir 38 ára
gamlir og gera eins árs samning við
KR. Veigar Áki Hlynsson og Þorvaldur
Orri Árnason gerðu einnig nýja samn-
inga við KR. Veigar er 19 ára og Þor-
valdur 18 ára en þeir komu báðir við
sögu síðasta vetur. Í tilkynningu frá KR
er jafnframt tekið fram að lykilmenn-
irnir Brynjar Þór Björnsson, Matthías
Sigurðarson og Kristófer Acox séu
allir samningsbundir félaginu.
Knattspyrnudeild Gróttu og danski
leikmaðurinn Tobias Sørensen hafa
komist að samkomulagi um að leik-
maðurinn leiki með liðinu út leiktíðina
en hann kemur til Vejle í heimaland-
inu. Sørensen hefur leikið með U18 og
U19 ára landsliðum Dana og þá lék
hann með Vejle í dönsku 1. deildinni á
síðustu leiktíð. Sørensen getur bæði
leikið í vörninni og á miðjunni.
Handknattleiksmaðurinn ungi Arn-
ór Snær Óskarsson verður frá keppni
næstu vikurnar þar sem hann rist-
arbrotnaði á æfingu með Val um síð-
ustu helgi. Handbolti.is greindi frá.
Arnór, sem er tvítugur, hefur leikið
með yngri landsliðum Íslands síðustu
ár. Skoraði hann 23 mörk í 15 leikjum
með Val á síðustu leiktíð og hjálpaði
liðinu að verða deildarmeistari.
Svíinn Armand Duplantis átti næst-
hæsta utanhússstökk sögunnar í
stangarstökki er hann stökk 6,07
metra á Demantamóti í Sviss. Heims-
metið á Úkraínumaðurinn og goðsögn-
in Sergei Bubka.
Duplantis er aðeins tvítugur en hann á
sjálfur heimsmetið í stangarstökki
innanhúss, 6,18 metra, en hann setti
það í Skotlandi í febrúar. Hann fór
hæst 6,07 metra á mótinu í Sviss en
met Bubka er 6,14 metrar frá 1994.
Duplantis reyndi við 6,15 metrana en
án árangurs. Duplantis, oft þekktur
sem Mondo, setti heimsmetið innan-
húss í Póllandi í byrjun febrúar, stökk
6,17 metra en bætti það svo viku síðar
í Skotlandi. Hann fæddist í Bandaríkj-
unum en keppir fyrir hönd Svíþjóðar,
en móðir hans er þaðan.
Tindastóll er áfram með fjögurra
stiga forskot á toppi Lengjudeildar
kvenna í fótbolta eftir öruggan 4:0-
sigur á Augnabliki á útivelli í gær-
kvöld. Murielle Tiernan skoraði
tvennu fyrir Tindastól og er marka-
hæst í deildinni með 15 mörk. Tinda-
stóll er með 28 stig og átta stiga for-
skot á þriðja sætið þegar liðið á
aðeins sjö leiki eftir. Keflavík er í
öðru sæti með 24 stig eftir 2:1-sigur
á Fjölni á heimavelli. Paula Watnick
og Natasha Anasi skoruðu mörk
Keflavíkur. Haukar og Keflavík
mætast í stórleik í næstu umferð.
Toppliðið nálgast
úrvalsdeildina
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Toppsætið Tindastólskonur eru á
toppi Lengjudeildarinnar.
Þýskaland og Spánn skildu jöfn,
1:1, er liðin mættust í 1. umferð
Þjóðadeildar UEFA í fótbolta í gær-
kvöld. Timo Werner kom Þýska-
landi yfir á 51. mínútu en José Gayá
jafnaði í uppbótartíma og þar við
sat. Fyrrverandi FH-ingurinn
Brandur Olsen reyndist hetja Fær-
eyinga sem unnu 3:2-sigur á Möltu
á heimavelli. Skoraði hann sig-
urmarkið á lokamínútunni, þremur
mínútum eftir að Andreas Olsen
jafnaði í 2:2. Gunnar Nielsen mark-
vörður FH lék allan leikinn, eins og
Brandur.
Spánverjar jöfn-
uðu í blálokin
AFP
Jöfnunarmark José Gayá fagnar
jöfnunarmarkinu í gærkvöldi.
Ferðatilhögun og það sem henni fylgir liggur fyrir
hjá KR-ingum sem eru á leiðinni til Eistlands. Þar
mæta þeir Flora Tallinn í 2. umferð Evrópudeildar
karla í knattspyrnu.
„Leikurinn er á fimmtudegi. Við ætlum að fara
snemma út á miðvikudegi. Við förum í leiguflugi
með þotu sem flýgur beint til Tallinn. Leikið verð-
ur daginn eftir og við ætlum að vera komnir heim
fyrir miðnætti á fimmtudegi. Ferðalagið verður því
eins stutt og hægt er eða rúmur sólarhringur.
Þetta verður svipað og var hjá okkur í Skotlandi
hvað það varðar að við verðum lokaðir inni á hóteli.
Við tökum eina hæð á hótelinu. Ég reikna með að-
eins minna föruneyti í þessari ferð heldur en í Glas-
gow en við þurfum að fara í fimm daga vinnu-
sóttkví þegar við komum heim. Leikmenn okkar
þurfa að eiga skilningsríka vinnuveitendur í kring-
um þetta allt saman. Sjálfur er ég til dæmis að
velta fyrir mér hvort ég geti farið í sóttkví eða
sleppi því að fara í ferðina. Þeg-
ar árin líða reikna ég nú með
því að maður myndi sjá eftir því
að sjá ekki leikinn,“ sagði Páll
Kristjánsson, formaður knatt-
spyrnudeildar KR, þegar
Morgunblaðið ræddi við hann í
gær. Íslandsmeistararnir munu
ekki fara til og frá landinu eft-
irlitslaust því hópurinn sem fer
í ferðina verður skimaður fjór-
um sinnum.
„Við förum í skimun þremur dögum áður en við
förum út og þegar við lendum í Eistlandi. Einnig
þegar við komum aftur til landsins og loks fimm
dögum eftir heimkomu,“ sagði Páll en fer varlega í
yfirlýsingarnar varðandi möguleikana á að komast
áfram.
„Það er mikið undir. Miklir fjárhagslegir hags-
munir eru fólgnir í því að komast áfram og þær
upphæðir myndu skipta miklu máli fyrir félagið.
Flora Tallinn er ungt félag eða um það bil þrjátíu
ára gamalt. Liðið er sigursælt en deildin var auð-
vitað ekki stofnuð fyrr en eftir að Sovétríkin lið-
uðust í sundur. Engir erlendir leikmenn í liðinu hjá
Flora Tallinn. Aldurssamsetningin virkar sérstök
því leikmenn liðsins eru annað hvort ungir eða
komnir yfir þrítugt. Enginn leikmaður er á aldr-
inum 25 til 28 ára miðað upplýsingar sem ég sá,“
segir Páll en fyrir liggur að andstæðingur KR eða
Flora Tallinn í 3. umferð verði sigurvegarinn í leik
Linfield frá N-Írlandi og Floriana frá Möltu.
Ekki er óvarlegt að segja að félagslið frá þessum
þremur löndum séu yfirleitt svipuð að styrkleika
eða veikari en íslensk félagslið. Páll segir að menn
geti látið sig dreyma um að komast í 4. umferð en
KR-ingar hugsi að svo stöddu alfarið um leikinn í
Eistlandi. kris@mbl.is
KR-ingar fara í fjórar skimanir
Páll
Kristjánsson
Íslandsmeistararnir ferðast ekki eftirlitslaust til Eistlands Stoppa í rúman sólarhring