Morgunblaðið - 04.09.2020, Qupperneq 32
Inga Maren Rúnarsdóttir semur og dansar sólóverkið
Ævi sem Íslenski dansflokkurinn frumsýnir á Nýja sviði
Borgarleikhússins annað kvöld. „Okkar fyrsti andar-
dráttur, þar sem við erum glæný í þessum heimi, til
okkar síðustu útöndunar. Það er ævin. Oftast er hún
löng, stundum er hún styttri. Við förum okkar eigin
leið, hvert og eitt okkar, í okkar eigin vegferð, eigum
okkar eigin ævi,“ segir í lýsingu á verkinu Ævi. Búninga
og leikmynd hannar Júlíanna Lára Steingrímsdóttir og
tónlist er í höndum Ólafs Arnalds.
Ævi hjá Íslenska dansflokknum
Ljósmynd/Saga Sigurðardóttir
FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 248. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Ég átti gott spjall við þjálfarann fyrir um þremur vik-
um og sagði þá að ég þyrfti fimm til sex vikur með lið-
inu áður en ég gæti spilað. Mér hefur gengið vel á æf-
ingum og neistinn er til staðar. Eftir að hafa verið frá
þá hef ég gaman af æfingunum. Á fyrstu æfingunni
fannst mér ég reyndar vera eins og flóðhestur en svo
hefur gengið betur og betur,“ segir Guðbjörg Gunn-
arsdóttir, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, meðal
annars í samtali við Morgunblaðið í dag en hún hefur
nú æft með Djurgården í rúmar tvær vikur. »27
Neistinn til staðar hjá Guðbjörgu
eftir fjarveru frá boltanum
ÍÞRÓTTIR MENNING
gangur samtakanna sé að auka vin-
áttu og samvinnu. Mikil samskipti
séu milli félaga innanlands og utan.
Eiginkonur félagsmanna hafi stofnað
Ladies Circle að erlendri fyrirmynd
og gengið í alheimssamtökin. Eldri
félagar hafi haldið hópinn í þrengri
hópum eins og til dæmis Old Table og
allir félagar og hópar hafi haldið sam-
eiginlega árshátíð.
„RTÍ hefur ekki verið í sviðsljósi
fjölmiðla en sprenging á árshátíð
varð þó fréttaefni,“ segir Mats. Hann
rifjar upp að fyrir mörgum árum hafi
sænskir félagar gefið RTÍ litla fall-
byssu, sem hafi verið notuð við setn-
ingu árshátíða. Þegar skotin hafi
gengið til þurrðar hafi menn ekki dá-
ið ráðalausir heldur notað íslenska
uppskrift. „Þetta fór ekki eins og ætl-
að var; úr varð mikil sprenging og
brot skutust út um allt, meðal annars
í brjóst eins manns. Það varð honum
til lífs að brotið lenti á einkennis-
merki sem hann bar í keðju um háls-
inn. Maðurinn lá á gjörgæslu í
nokkra daga með skemmt milta, en
sem betur fer urðu engin eftirmál.
Sprengingunni fylgdi höggbylgja,
rafmagnið fór og salurinn myrkv-
aðist. Breskir gestir okkar héldu að
þetta væri hryðjuverkaárás og
skýldu sér undir borðum, en allt fór
betur en á horfðist.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Afmælisrit í tilefni þess að 50 ár eru
frá stofnun ungmennafélagsins
Round Table Ísland kemur væntan-
lega út á næsta ári, en vegna kórónu-
veirufaraldursins varð að hætta við
afmælisfagnað, sem félagsmenn og
gestir, meðal annars frá bróður-
klúbbum víðs vegar í heiminum, ætl-
uðu að sækja á morgun.
Mats Wibe Lund ljósmyndari var
helsti hvatamaður að stofnun hreyf-
ingarinnar hérlendis og kom félaginu
af stað, en Jóhannes Ragnarsson er
núverandi forseti. Mats segir að
skólafélagar sínir í menntaskóla í
Noregi hafi hvatt sig til þess að
stofna RTÍ. Þrír þeirra hafi komið til
landsins og verið sér innan handar
við stofnunina. „Ég hóaði saman tæp-
lega 20 manna hópi góðra manna á
kynningarfund og við stofnuðum fé-
lagið 5. september 1970.“
Neðri og efri gómur
Round Table er alþjóðlegur félags-
skapur 20-45 ára manna úr mismun-
andi starfsstéttum. „Mönnum er boð-
in innganga og vilji til dæmis tann-
læknir gerast meðlimur og annar
slíkur sé við borðið verður að finna
verkaskiptingu á milli þeirra. Annar
yrði þá tannlæknir fyrir efri góm og
hinn fyrir þann neðri,“ útskýrir Mats.
Hreyfingin á rætur að rekja til
ungra breskra rótarýfélaga sem
vildu óformlegri klúbb en hefðbund-
inn rótarýklúbb og létu verkin tala.
Mats segir að nær 2.000 manns hafi
komið við sögu RTÍ og nú séu um 250
manns í 16 klúbbum um allt land.
„Nú eru menn gildir félagar þar til
þeir verða 45 ára og geta komið á
fundi sem gestir eftir það en hafa
ekki atkvæðisrétt,“ rifjar Mats upp.
„Þegar ég hafði náð þessum háa
aldri, 40 árum, var mér ekið inn í
hjólastól á árshátíðinni 1977 til merk-
is um að ég væri orðinn of gamall og
væri á útleið. Það er eina skiptið sem
ég hef komið fram opinberlega í
hjólastól og tveimur árum síðar var
ég útnefndur fyrsti heiðursfélagi
Round Table Ísland.“
Mats leggur áherslu á að helsti til-
Bresku gestirnir leituðu
skjóls undir borðum
Ungmennafélagið Round Table Ísland á fullu í hálfa öld
Morgunblaðið/Eggert
Saga Mats Wibe Lund stóð að stofnun Round Table Ísland fyrir 50 árum.