Morgunblaðið - 12.09.2020, Blaðsíða 43
DÆGRADVÖL 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2020
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„EF ÉG FÆ GÓÐA EINKUNN ER ALDREI AÐ
VITA NEMA SAFARÍKT EPLI ENDI Í ÞÍNUM
HÖNDUM Á MORGUN.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... stundum að kunna að
meta framtakið.
ÉG ER SVO
SYFJAÐUR…
OG NÚ ER ÉG AFTUR
ORÐINN SYFJAÐUR
Í DAG ER „DEKRIÐ
VÍKING” dagurinn!
JÁ ER ÞAÐ? ÉG HEF
ALDREI HEYRT UM
HANN FYRR!
JA, ÞAÐ VAR BARA VERIÐ AÐ FINNA UPP
Á HONUM FYRIR FIMM MÍNÚTUM!
„ÞÚ ERT AÐ PLATA. ÞÚ VÆRIR LÖNGU
BÚINN AÐ STURTA MÉR NIÐUR EF ÞÚ
HEFÐIR EITTHVAÐ Á MIG.”
lagsstörfum, sem hófst strax í
menntaskóla og í HÍ var hann for-
maður Félags enskunema 1984-5,
formaður Félags sjónvarpsþýðenda
1987-1990 og einnig fyrsti formaður
Bandalags þýðenda og túlka 2004-
2009. Hann hefur verið í stjórn Rit-
höfundasambands Íslands, Stofnunar
Vigdísar Finnbogadóttur, Íbúa-
samtaka Laugardals og í stjórn Fé-
lags löggiltra dómtúlka og skjalaþýð-
enda. „Frá 2013 hef ég verið í
listahópnum Leiðangurinn á Töfra-
fjallið sem staðið hefur fyrir atburð-
um og sýningum á Ísafirði, í Hvera-
gerði og Reykjavík.“
Fjölskylda
Eiginkona Gauta er Sabine Les-
kopf borgarfulltrúi, f. 6.2. 1969. For-
eldrar hennar eru Hildegard Les-
kopf, f. 2.3. 1939, húsmóðir og Franz
Leskopf, f. 23.9. 1935, fyrrv. meðferð-
arfulltrúi. Börn Sabine og Gauta eru
Fjóla, f. 1996, listamaður í Berlín,
Jakob, f. 2000, nemi og Selma, f. 2003,
nemi. Fyrri kona Gauta var Þórkatla
Þórisdóttir, f. 9.4. 1951, kennari og fé-
lagsráðgjafi. Stjúpbörn Gauta með
Þórkötlu eru Ingibjörg Gylfadóttir, f.
1971, lyfjafræðingur í Hafnarfirði og
Þórey Ólöf Gylfadóttir, f. 1976, lektor
í Reykjavík.
Systkini Gauta eru Þorsteinn, f.
25.2. 1963, flugstjóri í Garðabæ,
Kristmann Egill, f. 4.9. 1965, rafvirki í
Reykjavík og Eiður Páll Sveinn, f.
24.2. 1968, áætlunarstjóri í Hafn-
arfirði.
Foreldrar Gauta eru Kristmann
Eiðsson, f. 27.5. 1936, kennari og þýð-
andi, og Kristín Þorsteinsdóttir, f.
13.5. 1938, d. 29.1. 2017, fv. ræst-
ingastjóri.
Gauti Kristmannsson
Kristín Árnadóttir
húsmóðir í Reykjavík
Páll Árnason
lögregluþjónn í Reykjavík
Kristín Pálsdóttir
bankamaður í Reykjavík
Kristín Þorsteinsdóttir
ræstingastjóri í Reykjavík
Þorsteinn V. Jónsson
bókari í Reykjavík
Ragnheiður Ingibjörg Sveinsdóttir
húsmóðir í Skrapatungu í
Húnavatnssýslu
Jón Helgason
bóndi í Skrapatungu
í Húnvatnssýslu
Kristborg Brynjólfsdóttir
húsmóðir á Búðum í Fáskrúðsfi rði
Sveinn Benediktsson
hreppstjóri á Búðum í
Fáskrúðsfi rði
Guðríður Sveinsdóttir
húsmóðir og organisti á
Búðum í Fáskrúðsfi rði
Eiður Albertsson
skólastjóri og oddviti á Búðum í Fáskrúðsfi rði
Ragnhildur Jónsdóttir
húsfreyja í Garði í
Fnjóskadal
Albert Finnbogason
bóndi og skipstjóri í Garði í Fnjóskadal
Úr frændgarði Gauta Kristmannssonar
Kristmann Eiðsson
kennari og þýðandi í Reykjavík
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Hann eflaust er umdeildur mað-
ur.
Aldrei sá litinn er glaður.
Á sviðinu sýndur án vonar.
Í sérhverra lífi margs konar.
Þetta svar barst frá brottfluttum
Skagfirðingi:
Dagur, Eggerts elsti son,
leit aldrei glaðan daginn
en eygði á Degi vonar von.
– Við Viggu Hauks er laginn.
Helgi Þorláksson sendi þessa
lausn:
Dagur stýrir borg með brag,
báðir lítum glaðan dag,
Dagur vonar í Iðnó var,
verða dagar margs konar.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Dagur er eflaust umdeildur maður.
Aldrei sá dagur er litinn glaður.
Drama á sviði er Dagur án vonar.
Dagar í lífinu eru margs konar.
Þá er limra:
Í partíi gleymdi frú Petra
að passa upp á tvo metra,
dauð hún datt niður
um daginn, því miður,
en farið hefur fé betra
Síðan kemur ný gáta eftir Guð-
mund nr. 45:
Bára kröpp við kletta hrín,
kaldur leitar fugl í var,
bliknar lauf og birta dvín,
bætist þó við gáturnar:
Vegarkafli vondur er.
Vart í lagi piltur sá.
Býsna vel hann bragðast mér.
Betri hliðin teljast má.
Páll Jónsson skáldi orti:
Fátækt ekki finnst mér baun
og foragt heims um grundir.
Þyngri að deyja reikna eg raun
reiði drottins undir.
Páll J. Árdal kvað:
Dauðinn kemur að kalla sitt,
að kveldi tekur að líða,
þegar hann segir „þitt er mitt“
þá mega allir hlýða.
Páll Vídalín orti:
Í dómarasæti seggurinn situr
svo sem aða í leirnum;
sé ég að halurinn sýnist vitur –
sér, en ekki fleirum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Dagur kemur eftir þennan
dag