Morgunblaðið - 12.09.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2020
Bankastræti 12 | sími 551 4007 | skartgripirogur.is
Armband
frá 14.900,-
Stórt men
7.900,-
Hálsmen
14.900,-
Eyrnalokkar
7.900,-
Hringur
18.900
Lítið men
23.900,-
Björn Bjarnason, fyrrverandidóms- og kirkjumálaráðherra,
ritaði ágæta ábendingu til kirkju-
þings á vef sinn í
gær. Þar sagði hann
að boðað hefði verið
að ræða og álykta á
kirkjuþingi „um
gjörbreytta stefnu í
útlendingamálum til
að opna landið enn
frekar fyrir farand-
fólki og flóttamönnum“. Á sama
tíma bærust fréttir frá Svíþjóð um
þáttaskil í útlendingaumræðum þar.
Í pistlinum segir Björn: „Yfirvöld íNoregi og Danmörku tóku fyrir
mörgum árum allt aðra stefnu í út-
lendingamálum en gert var í Sví-
þjóð. Þótt Norðmenn og Danir glími
víða við mikinn samfélagsvanda
vegna skorts á aðlögun aðkomu-
fólks að norsku og dönsku þjóðlífi
eru vandræðin fjarri því eins mikil
og í Svíþjóð.
Sænskir vinstrisinnar með jafn-
aðarmenn í fararbroddi hafa mark-
visst hafnað allri gagnrýni í þá veru
að stefna þeirra og félagsleg útgjöld
til útlendingamála ýti undir glæpi
og afbrot í Svíþjóð.“
Hann bendir á að á dögunumhafi orðið þáttaskil í um-
ræðunni um þessi mál í Svíþjóð þeg-
ar yfirmaður hjá lögreglunni upp-
lýsti um umfang erlendrar
glæpastarfsemi í landinu. Þetta hafi
orðið til þess að Stefan Löfven, for-
sætisráðherra jafnaðarmanna, hafi
sagt í sjónvarpi á miðvikudag að
þegar aðlögun nýbúa sé ekki við-
unandi sé ljóst að félagsleg spenna
myndist. Það sé ekki gott en hafi
gerst hjá Svíum.
Pistli sínum lýkur Björn á þessumorðum: „Á kirkjuþingi sem nú
stendur ættu biskupar að kynna sér
umræðurnar um þáttaskilin í Sví-
þjóð áður en þeir hvetja til þess að
fetað sé í fótspor þeirra.“
Björn Bjarnason
Ágæt ábending
til kirkjuþings
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Borgarfulltrúum í minnihluta borg-
arstjórnar og embættismönnum
borgarinnar ber ekki saman um
hversu mörg verslunarrými standa
auð við göngugötur í miðbænum.
Í umsögn umhverfis- og skipu-
lagssviðs við fyrirspurn Vigdísar
Hauksdóttur, áheyrnarfulltrúa Mið-
flokksins, sem birt var á fundi
skipulags- og samgönguráðs í vik-
unni, kemur fram að skv. lauslegri
talningu megi áætla að nýting rýma
sé almennt yfir 90%. Í sumar hafi
verið 79 rými í Bankastræti, Lauga-
vegi upp að Klapparstíg og Skóla-
vörðustíg upp að Bergstaðastræti
og þar af hafi sjö rými staðið tóm. Á
göngugötunni á Laugavegi frá
Klapparstíg og upp að Frakkastíg
hafi verið 45 rými í sumar og þar af
hafi fjögur rými staðið tóm. Í fyrra
hafi verið leyfð umferð á þessu
svæði og þá hafi eitt rými staðið
tómt. „Ástæður fyrir lokun versl-
unar- og þjónustuhúsnæðis við um-
ræddar götur geta helgast af mörg-
um þáttum, s.s. af því að viðkomandi
rými er að taka breytingum og/eða
nýr rekstur að taka við,“ segir í um-
sögninni.
Vigdísi þótti svarið sérkennilegt
og segir í bókun að það standist
enga skoðun að segja að sumarið
2020 hafi verið 7 tóm rými, hvað þá
að 4 rými standi auð frá Laugavegi
að Klapparstíg.
26 rými sögð laus
Samkvæmt talningu sem Miðbæj-
arfélagið í Reykjavík hafi gert hafi
verið 26 laus verslunarrými frá
Laugavegi 1 að Snorrabraut og hafi
þeim fjölgað enn meira síðustu vik-
ur. omfr@mbl.is
Ósammála um fjölda tómra rýma
Borgin segir nýtingu verslunarrýma á göngugötum almennt vera yfir 90%
Kolbrún Sævarsdóttir
héraðsdómari lést á
líknardeild Landspít-
alans 9. september sl.,
56 ára að aldri.
Kolbrún fæddist á
Selfossi 7. ágúst 1964.
Foreldrar hennar voru
Jónína Auðunsdóttir, f.
1945, d. 1997, og Sævar
Norbert Larsen, f.
1946, d. 2000. Hálf-
systkini Kolbrúnar
móðurmegin eru Stefán
og Eva Guðrún Gunn-
björnsbörn og föður-
megin Steinunn Mar-
grét, Jóhannes Arnar, Friðrik Rafn
og Linda Rut Larsen.
Kolbrún ólst upp á Selfossi til átta
ára aldurs en árið 1972 flutti fjöl-
skyldan til Reykjavíkur. Kolbrún
lauk stúdentsprófi frá Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti 1984. Á
menntaskólaárunum æfði hún frjáls-
ar íþróttir með ÍR og eignaðist þar
vinkonur sem hafa haldið hópinn síð-
an. Eftir stúdentspróf fór Kolbrún í
ársskiptinám til Bandaríkjanna en
hóf nám við lagadeild Háskóla Ís-
lands haustið 1985 og lauk cand. jur
prófi vorið 1990.
Eftir laganám vann Kolbrún hjá
borgarfógeta í tvö ár. Þá réð hún sig
til nýstofnaðs Héraðsdóms Reykja-
víkur sem fulltrúi en árið 1993 opnaði
hún lögmannsstofu. Kolbrún ákvað
síðan að fara í fram-
haldsnám og haustið
1995 skráði hún sig í
nám við Háskóla Ís-
lands og hélt í skipti-
nám til Kaupmanna-
hafnar. Kolbrún flutti
heim frá Kaupmanna-
höfn vorið 1997. Tók
hún þá til starfa hjá
fíkniefnadeild lögregl-
unnar í Reykjavík og
var þar fram í árs-
byrjun árið 2000 er hún
hóf störf sem fulltrúi
hjá ríkissaksóknara.
Kolbrún tók námsleyfi
haustið 2000 og nam alþjóðleg mann-
réttindi við Háskólann í Lundi. Hún
var skipuð saksóknari árið 2005.
Árið 2010 var Kolbrún settur hér-
aðsdómari við Héraðsdóm Reykja-
víkur og þann 1. mars 2012 var hún
skipuð í embættið. Á starfsferli sín-
um sinnti Kolbrún ýmsum trún-
aðarstörfum og kenndi við háskóla.
Hún tók sæti sem varadómari í
Hæstarétti árið 2017.
Sumarið 2012 greindist Kolbrún
með brjóstakrabbamein. Meðferðin
gekk vel og leit út fyrir að hún hefði
unnið bug á meininu. Í desember
2015 greindist hún á ný, og ljóst að
krabbameinið var þá búið að dreifa
sér. Við tók hörð barátta sem Kol-
brún tókst á við af æðruleysi og hug-
rekki til síðasta dags.
Andlát
Kolbrún Sævarsdóttir