Morgunblaðið - 12.09.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2020
www.kofaroghus.is - sími 553 1545
359.000 kr.
Tilboðsverð
518.000 kr.
Tilboðsverð
416.500 kr.
Tilboðsverð
34mm
34mm44mm
Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik
má finna á vef okkar
Afar einfalt er að
reisa húsin okka
r
Uppsetning teku
r aðeins einn da
g
BREKKA 34 - 9 fm
STAPI - 14,98 fm NAUST - 14,44 fm
25%
afsláttur
25%
afsláttur
30%
afsláttur
TILBOÐ Á GARÐHÚSUM!
(SÍÐUSTU HÚSIN 2020) VANTAR
ÞIGPLÁSS?
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Landsréttur hefur staðfest dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur um að hol-
lenskur karlmaður sæti fangelsi í sjö
ár fyrir að reyna ásamt öðrum manni
að smygla tæpum 38 kílóum af am-
fetamíni og tæpum 5 kílóum af kók-
aíni til landsins.
Fram kemur í dómi Landsréttar,
að samkvæmt matsgerð og fram-
burði verkefnastjóra hjá Rannsókn-
arstofu í lyfja- og eiturefnafræði
hefði mátt útbúa um 73,5 kg af am-
fetamíni með 12% styrkleika og 6,7
kg af kókaíni með 60% styrkleika úr
fíkniefnunum sem hald var lagt á.
Hollendingurinn, Heinz Bernhard
Sommer, kom ásamt rúmenskum fé-
laga sínum með ferjunni Norrænu í
fyrrasumar. Fíkniefnahundar gáfu
merki um fíkniefni í Austin Mini
Cooper-bifreið sem þeir komu á og
reyndust efnin hafa verið falin í sér-
útbúnu læstu hólfi undir farangurs-
geymslu bílsins. Sommer sagðist
vera ellilífeyrisþegi og fyrrverandi
bankastarfsmaður. Sagðist hann
ekki hafa vitað af fíkniefnunum í
bílnum heldur tekið að sér, gegn
greiðslu, að vera ökumaður fyrir
Rúmenann, sem hafi ætlað að dvelja
í fríi hér á landi. Þeir hafi þekkst lítið
en fram kom við rannsókn málsins
að þeir komu til Íslands í ágúst 2018 í
sama bíl og var tilgangur ferðarinn-
ar og ferðatilhögun með sama hætti.
Báðir voru mennirnir dæmdir í 7
ára fangelsi í héraði. Rúmeninn undi
dómnum en Landsréttur staðfesti í
gær dóminn yfir Sommer og taldi
sannað að hann hefði vitað af efn-
unum í bílnum.
Dæmdir í 7 ára fangelsi
fyrir fíkniefnasmygl
Hægt hefði verið að framleiða 80 kíló af fíkniefnum úr efnunum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ferja Mennirnir komu með Nor-
rænu og voru fíkniefnin falin í bíl.
Sjálfstæðisflokkurinn hyggst leggja
fram tillögu á borgarstjórnarfundi á
þriðjudag um að breyting verði gerð
á aðalskipulagi Reykjavíkurborgar
sem heimilar íbúabyggð á Keldum og
í Örfirisey. Samhliða því verði ráðist í
skipulagningu atvinnulóða á Keldum.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðis-
flokks, segir í samtali við Morgun-
blaðið að málið sé mikilvægt fyrir
hagsmuni almennings.
Í greinargerð Sjálfstæðisflokks
segir að meirihlutinn í borgarstjórn
gangi út frá því að hægt sé að koma
íbúabyggð sem nemi 4.000 íbúðum á
flugvallarsvæðinu í Vatnsmýrinni. Að
mati Sjálfstæðisflokks liggi þó fyrir
að ekkert verði byggt í Vatnsmýrinni
á næstu 10 til 20 árum enda hafi ekki
verið ákveðið hvar annað flugvallar-
stæði yrði staðsett. Enn fremur sé út-
lit fyrir að vegna efnahagslægðar í
kjölfar heimfaraldursins muni tæp-
lega verða ráðist í framkvæmdir við
lagningu nýs flugvallar, framkvæmd
sem oddviti Sjálf-
stæðisflokks segir
að muni kosta um
100 milljarða. Að
þessu gefnu sé
ljóst að gat upp á
4.000 íbúðir sé í
húsnæðisáætlun
borgarinnar en
hún gerir ráð fyr-
ir því að um 1.000
íbúðir verði byggðar á ári til ársins
2040.
Eyþór segir að við þessum bráða
húsnæðisskorti megi bregðast með
uppbyggingu íbúabyggðar í Örfirisey
og á Keldum. Á báðum stöðum sé
pláss fyrir rúmlega 2.000 íbúðir. Í Ör-
firisey verði fyrirhuguð byggð sem
muni hafa jákvæð áhrif á umferð inn-
an borgarinnar sökum nálægðar
hennar við verslun og þjónustu. Eins
og stendur er ekki leyfi til uppbygg-
ingar íbúabyggðar á svæðinu vegna
nálægðar við birgðastöð olíufélag-
anna. Samþykkt var á fundi borgar-
ráðs árið 2019 að umfang hennar yrði
minnkað um helming fyrir árið 2025.
Þá segir í tillögu Sjálfstæðisflokks
að uppbygging íbúabyggðar á Keld-
um og ekki síður uppbygging at-
vinnulóða muni koma á jafnvægi í
borginni. Bílaumferð til vesturs muni
minnka rísi atvinnuhúsnæði á Keld-
um. Horfa fulltrúar Sjálfstæðisflokks
þá aðallega til þess að stofnanir rík-
isins geti flutt starfsemi sína þangað.
Flótti stofnana síðustu ár úr borginni
sé staðreynd og nefndur er sérstak-
lega í tillögunni flutningur höfuð-
stöðva Íslandsbanka, Trygginga-
stofnunar og Sýslumannsins á höfuð-
borgarsvæðinu til annarra sveitar-
félaga.
Mistókst að svara eftirspurn
Eyþór segir í samtali við Morgun-
blaðið að borginni hafi mistekist að
svara eftirspurn. „Uppbygging íbúa-
byggðar á þessum tveimur svæðum
er gríðarlega mikilvæg fyrir almenn-
ing. Lagt er upp með í lífskjarasamn-
ingnum að tryggð verði húsnæðis-
uppbygging fyrir alla. Reykjavíkur-
borg verður að standa við sinn hluta
samningsins og byggja fleiri íbúðir,“
segir Eyþór.
Hann bætir við að með hlutdeildar-
lánum ríkisstjórnarinnar ætli stjórn-
völd sér að skapa eftirspurn eftir hús-
næði. „Og því verður borgin að vera á
tánum og stuðla að því að framboð sé
tryggt. Fólksfjölgun í Reykjavík er
undir landsmeðaltali og það er ein-
ungis vegna þess að ódýrara er að
byggja annars staðar. Eðlilega fer
fólk þangað þá. Vinstrimeirihlutinn
hefur aðallega einbeitt sér að bygg-
ingu lúxusíbúða og innleiðingu fé-
lagslegra ráðstafana. Við í Sjálfstæð-
isflokknum viljum frekar huga að
almenna markaðnum. Fólk á að geta
keypt sér húsnæði á viðráðanlegu
verði um alla Reykjavík.“
oddurth@mbl.is
„Gat“ upp á 4.000 íbúðir
Sjálfstæðismenn vilja byggja á Keldum og í Örfirisey Ekki verði byggt í Vatns-
mýrinni á næstunni Eyþór Arnalds segir flótta fólks og stofnana staðreynd
Eyþór Arnalds
Transkonan Veiga Grétarsdóttir
segir að viðmót fólks til sín hafi
breyst eftir að hún gekk í gegnum
kynleiðréttingarferli sitt, og að svo
virðist sem meira mark sé tekið á
henni þegar hún notar „gömlu
röddina“ sína í símann. Reynsla
transmanna sé einnig sú að meira
mark sé tekið á þeim.
Þannig hafi hún eitt sinn átt er-
indi við bifreiðaverkstæði og hringt
þangað til að forvitnast um við-
gerðir. Sá sem var til svars vildi
hins vegar lítið aðstoða þar til
Veiga sagði að hún hefði starfað
sem rennismiður í tuttugu ár. „Eft-
ir þetta kynni ég mig ekki og nota
bara gömlu röddina mína þegar ég
hringi í erindum sem þessum,“ seg-
ir Veiga m.a. í viðtalinu.
Heimildarmynd Óskars Páls
Sveinssonar um Veigu, Á móti
straumnum, verður frumsýnd í Há-
skólabíói 3. október næstkomandi,
og er rætt við hana í Sunnudags-
blaði Morgunblaðsins.
Betra að
beita „gömlu
röddinni“
Tilkynnt var í gær að ellefu ára
drengur hefði látist á heimili sínu í
Garðabæ á þriðjudaginn. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins er um að
ræða dreng á tólfta ári og lést hann af
völdum skotsárs á heimili sínu.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
vildi lítið tjá sig um málið, en staðfesti
að ekkert benti til þess að nokkuð
saknæmt hefði átt sér stað.
Tilkynning lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu vegna málsins er svo-
hljóðandi:
„Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum
um andlát barns í Garðabæ á þriðju-
dag vill Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu koma því á framfæri að um
er að ræða mikinn harmleik, en ekk-
ert bendir til þess að nokkuð sak-
næmt hafi átt sér stað.
Lögreglan mun ekki veita frekari
upplýsingar um málið og biður jafn-
framt fjölmiðla að veita aðstand-
endum svigrúm til að syrgja á þess-
um erfiðu tímum.“
Lést af
völdum
skotsárs
Ekkert saknæmt
talið hafa átt sér stað
Ljósmyndasýningin World Press Photo var opn-
uð í gær í Kringlunni og gátu gestir og gangandi
þar virt fyrir sér þær fréttaljósmyndir ársins
2019 sem unnu til verðlauna World Press Photo-
samtakanna. Kringlan stendur fyrir sýningunni í
samstarfi við Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Rýnt í bestu fréttaljósmyndir síðasta árs