Morgunblaðið - 15.09.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.09.2020, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 5. S E P T E M B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  217. tölublað  108. árgangur  RAFMAGNAÐIR BÍLAR TEKNIR TIL KOSTANNA ÓVISSA OG ERFIÐ ÁR HJÁ ÆÐARBÆNDUM VAR EIGINLEGA UPP Á LÍF OG DAUÐA LIGGJA MEÐ DÚN 10 HÓLMFRÍÐUR 26BÍLAR 16 SÍÐUR Omeprazol Actavis 20mg14 og 28 stk. Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fast- andi maga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar, varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi- seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi: Actavis Group PTC ehf. T e va 0 2 8 0 6 2 Eftir að hafa mætt reglulega í sjö ár og sjö mánuði til að sauma í Njálu- refilinn í Refilstofunni í Sögusetr- inu á Hvolsvelli er komið að verk- lokum. Í kvöld verða síðustu sporin saumuð í refilinn og glaðst yfir góðu verki. Refillinn er 90 metra langur hördúkur þar sem Njálssaga er saumuð með refilsaumi og er Kristín Ragna Gunnarsdóttir hönn- uður hans. Gunnhildur Edda Kristjánsdóttir, einn aðstandenda verkefnisins, seg- ir að kjarni um 20 kvenna, flestra úr Rangárþingi, eigi flest sporin í refl- inum. Hópurinn hafi hist reglulega á þriðjudagskvöldum og fimmtu- dögum síðustu ár og lagt fram vinnu sína og margar úr hópnum hafi komið miklu oftar. Vinnustund- ir og verkefni hverju sinni voru færð til bókar og núna hefur 12.500 sinnum verið skrifað í bókina. Fjölmargir hafa lagt verkefninu lið í lengri eða skemmri tíma frá því það hófst í febrúar 2013 og allt ver- ið unnið í sjáfboðavinnu. Refillinn verður formlega afhentur sveit- arstjórn Rangárþings eystra á næstunni og er verið að leita að hús- næði fyrir hann. aij@mbl.is Síðustu sporin í Njálurefil Verklok í vinnu við 90 metra langan refil sjö árum og sjö mánuðum frá upphafinu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Menningararfleifð Hannyrðakonurnar voru ánægðar á svip er þær hittust á Hvolsvelli í gær og í kvöld leggja þær lokahönd á Njálurefilinn. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Eiríkur S. Svavarsson, hrl. og lög- maður Fosshótels Reykjavík, segir bankana verða að koma til móts við fyrirtæki sem eru í skuldavanda vegna kórónuveirufaraldursins. „Það þurfa allir að taka á sig tjón og bankarnir verða að fella niður af- borganir á meðan kórónuveiran ríð- ur yfir. Þessi leið er ódýrust fyrir alla,“ segir Eiríkur sem telur lög- bannskröfu í máli Fosshótels Reykjavík gegn Íþöku fasteigna- félagi kunna að gefa fordæmi. Fleiri slík mál séu í dómskerfinu. Eftirgjöfin ekki gríðarleg Þar sem faraldurinn verði líklega tímabundinn þurfi eftirgjöf banka til handa leigusölum og leigutökum ekki að vera gríðarleg. „Það er mikilvægt að ekki verði gerð sömu mistökin og í hruninu þegar bankarnir komu allt of seint fram með úrræði og lausnir á skulda- vanda heimila og fyrirtækja. Það kostaði mikið tjón; gjaldþrot og nauðungarsölur,“ segir Eiríkur. Að hans mati styður álitsgerð Við- ars Más Matthíassonar, fv. hæsta- réttardómara, sem unnin var að beiðni Fyrirtækja í hótel- og gisti- þjónustu, málstað leigutaka. Bankar felli niður kröfur í faraldrinum  Lögbannskrafa sögð gefa fordæmi Miklir hagsmunir » Fram kom í Morgunblaðinu sl. laugardag að leigugreiðslur ferðaþjónustunnar árið 2018, án flugs, námu 25 milljörðum. » Nýrri tölur liggja ekki fyrir en að mati Samtaka ferðaþjón- ustunnar hafa þær lítið breyst. » Vandi leigutaka hefur því smitáhrif víða í hagkerfinu og gæti aukið afskriftir banka. MBankarnir komi að … »12 Tæplega 4.400 bílaleigubílar hafa verið teknir úr umferð það sem af er ári. Alls hafa um níu þúsund bílar verið teknir úr flotum bílaleiga, en samkvæmt tölum Hagstofunnar hef- ur um helmingur þeirra verið seldur en hinn helmingurinn mun vera án númera. Fyrstu sjö mánuði ársins seldust 5.673 nýir fólksbílar, eða um þriðj- ungi færri en á sama tímabili í fyrra. Samdrátturinn felst mest í mun færri bílaleigubílum, en fjöldi þeirra dróst saman um 60% fyrstu sjö mán- uði ársins. Liðlega 9.300 færri bíla- leigubílar voru í umferð nú í júlí en í sama mánuði á síðasta ári. Þá höfðu ríflega sexfalt fleiri bílar verið teknir úr umferð en árið áður. Alls voru rúmlega 15.600 bílaleigubílar í um- ferð í júlí, en leita þarf aftur til árs- ins 2014 til þess að finna færri bíla- leigubíla á götunum. Vextir bílalána einnig lækkað Sennilegt er að margir af þeim bílaleigubílum sem nú eru án núm- era verði settir á sölu á næstu mán- uðum. Rétti ferðaþjónustan ekki úr kútnum á næstunni má svo búast við að fleiri bílar bætist við þann fjölda. Kórónuveiran hefur haft meiri áhrif á bílamarkaðinn, sem birtast í sögulega lágum vöxtum. Vextir af lánum til bíla- og tækjakaupa hafa lækkað samhliða vaxtalækkunum Seðlabankans, en sú þróun hefur vafalaust örvað söluna. Vaxtakjör eru mismunandi eftir fjármögn- unarhlutfallinu, en gróft á litið má segja að vextir á bílalánum hafi al- mennt lækkað um tvö prósentustig á þessu ári. »Bílar Á fimmta þúsund bíla úr umferð Morgunblaðið/Árni Sæberg Lagt Bílaleigubílum á götunum hef- ur fækkað umtalsvert undanfarið.  Bílaleigur grynnka á flotanum  Lögmaður egypsku fjölskyld- unnar sem vísa á úr landi á morgun hefur sent velferðarnefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis bréf þar sem hann krefst þess að gripið sé inn í málið. Segir hann að brotið sé á stjórnarskrá og vísar til 76. greinar þar sem kemur fram að börnum skuli „tryggð í lög- um sú vernd og umönnun sem vel- ferð þeirra krefst“. Allsherjar- nefnd fjallar í dag um málið. »4 Krefst þess að gripið sé inn í brottvísun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.