Morgunblaðið - 15.09.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 2020
NÝJ
UNG
!
Hlæðu, hoppaðu,
hóstaðu og hnerraðu
áhyggjulaus!
Öruggar þvaglekavörur
Extra
rakadræg
100%
Lyktarvörn
Passa
frábærlega
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Forsvarsmenn Hótels B59 í Borgar-
nesi bíða þess nú að gert verði nýtt
fasteignamat á eign hótelsins. Upp-
haflegt mat Þjóðskrár Íslands var
kært til yfirfasteignamatsnefndar
sökum þess að verðmatið var ekki í
samræmi við mat sambærilegra
eigna.
Hjörleifur B. Kvaran, lögmaður
hótelsins, segir að fagmennsku hafi
skort við fasteignamatið. Það hafi
úrskurður yfirfasteignamatsnefndar
jafnframt endurspeglað. „Við kærð-
um matið en þeirri kæru var hafnað
og tiltekið að það skyldi standa. Við
kærðum það til yfirfasteignamats-
nefndar og hún felldi úrskurðinn úr
gildi. Í framhaldinu var farið fram á
að framkvæmt yrði nýtt mat auk
þess sem gerðar voru mjög alvarleg-
ar athugasemdir,“ segir Hjörleifur
sem tekur fram að nýtt fasteignamat
hafi enn ekki borist.
Að því er fram kemur í sérstökum
sjónarmiðum kærenda í úrskurði
yfirfasteignamatsnefndar er fast-
eignamat Hótels B59 langtum hærra
en mat keppinauta. Máli sínu til
stuðnings framkvæmdu forsvars-
menn hótelsins verðmat á eignum
hótela sem eru í sambærilegri fjar-
lægð frá höfuðborgarsvæðinu. Auk
þess voru hótel í næsta nágrenni
borin saman. Í ljós kom að fasteigna-
mat Hótels B59 var um 772 milljónir
króna, eða um 177.603 krónur á fer-
metra. Fasteignamat hótela á svæð-
inu, þar á meðal Hótels Húsafells og
Hótels Hamars, var til samanburðar
frá 55% til 75% af framangreindu
mati. „Við sýndum fram á að matið á
hótelinu var miklu hærra en á nokkr-
um öðrum stað. Að því er segir í úr-
skurðinum þurfa matsaðilar heldur
betur að taka til í sínum ranni,“ segir
Hjörleifur sem kveðst eiga von á því
að nýtt mat verði umtalsvert lægra.
Aðspurður segist hann jafnframt
eiga von á því að hluti fasteigna-
gjalda síðustu ára verði endur-
greiddur. Hægt er að óska eftir end-
urgreiðslu fjögur ár aftur í tímann
og því ljóst að endurgreiðslan gæti
hlaupið á milljónum króna.
Telja sig hafa ofgreitt fasteignagjöld
Fasteignamat Hótels B59 langtum hærra en mat sambærilegra fasteigna Endurgreiðsla
fasteignagjalda gæti hlaupið á milljónum króna Bíða eftir því að nýtt fasteignamat verði gert
Hótelið Fasteignamat Hótels B59 er talið hafa verið mjög hátt síðustu ár.
Starfsmenn Ístaks voru mættir á Kjalarnes til að undirbúa framkvæmdir
vegna breikkunar Vesturlandsvegar. Byrjað var á að setja niður skilti og
sjálf jarðvinnan hefst svo í dag. Breikka á 4,3 km kafla á þessum slóðum,
frá Varmhólum í Kollafirði að Vallá. Ístak bauð 2,3 milljarða í verkið.
Morgunblaðið/Eggert
Breikkun á Kjalarnesi undirbúin
Stór slippkrani fór á hliðina í slippn-
um á Akureyri í gær. Slökkvilið var
kallað út vegna atviksins, en tals-
verðar skemmdir urðu á krananum
og skúr og viðlegukanti við hann.
Að sögn varðstjóra slökkviliðsins
á Akureyri var stjórnandi kranans í
honum þegar hann fór á hliðina.
„Kraninn skemmdist en maðurinn
sem var í honum gekk ómeiddur frá,
hann hefur sloppið mjög vel,“ sagði
varðstjóri hjá slökkviliðinu í samtali
við mbl.is í gær.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins mun Vinnueftirlitið athuga
atvikið, en ekki liggur fyrir hvað olli
því að kraninn lagðist á hliðina.
„Hann var að hífa farg, við vitum
ekki nákvæmlega hvað gerðist,“
sagði varðstjórinn aðspurður í gær.
„Hann byrjaði að síga og þá
reyndi hann að bjarga því sem
bjargað varð, en kraninn bara vann
ekki hraðar,“ sagði hann að lokum.
Stór krani lagðist á hliðina
Stjórnandi kran-
ans slapp „mjög
vel“ og er ómeiddur
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Krani Vinnueftirlitið mun athuga nánar hvað olli því að kraninn féll.
Jón Atli Bene-
diktsson, rektor
Háskóla Íslands,
er kominn í
sóttkví ásamt
tveimur starfs-
mönnum að-
albyggingar há-
skólans eftir að
annar starfs-
maður þar
greindist með
kórónuveiruna um helgina. Fram
kom í pósti sem rektor sendi nem-
endum og starfsfólki í gær að grip-
ið hefði verið til allra nauðsynlegra
ráðstafana í samstarfi við smitrakn-
ingarteymi almannavarna og sótt-
varnalæknis til að hindra út-
breiðslu smitsins og gæta þannig
fyllsta öryggis starfsfólks og nem-
enda. Rektor hvetur starfsmenn og
nemendur til að nýta sér rafræna
kosti til fundahalda og kennslu.
Rektor og tveir
starfsmenn í sóttkví
Jón Atli
Benediktsson
Myllan hefur ákveðið með tilliti til
neytendaverndar og í samráði við
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að
innkalla Bónus kjarnabrauð vegna
lúpínu. Fram kemur í tilkynningu
að það brauð sem er innkallað sé
merkt best fyrir 15.09.2020. Við
innra eftirlit mun hafa uppgötvast
að hluti annarrar brauðframleiðslu
fór í poka merkta sem Bónus
kjarnabrauð. Brauðið inniheldur
ofnæmis- og óþolsvaldandi lúpínu
sem er ekki í Bónus kjarnabrauði.
Innkalla brauð
vegna lúpínu