Morgunblaðið - 15.09.2020, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 2020
Reginn hf. / 512 8900 / reginn@reginn.is / reginn.is
Helstu skilmálar útboðsins:
• Um er að ræða forgangsréttarútboð til hluthafa og
eiga hluthafar rétt á nýjum hlutum í hlutfalli við skráða
hlutafjáreign sína í hlutaskrá Regins hjá Nasdaq verð-
bréfamiðstöð í lok dags 24. september 2020 og mögulegt
framsal forgangsréttar til sín samkvæmt skilmálum
útboðsins.
• Útboðsgengi hinna nýju hluta er 15,0 kr. á hlut.
• Áskrifendurmunu fyrst fáúthlutaðhlutumbyggt áhlutfalls-
legum (pro-rata) forgangsrétti áskrifenda að nýjum hlutum
Regins hvort heldur áskrifendurnir njóta slíks réttar á
grundvelli hlutafjáreignar sinnar, ellegar þess að hafa fengið
forgangsréttinn framseldan til sín í samræmi við skilmála
útboðsins. Komi til þess að einhverjir forgangsréttarhafar
nýti ekki forgangsrétt sinn, þá verður þeim nýju hlutum
sem áskrift fæst þannig ekki fyrir úthlutað til annarra
forgangsréttarhafa sem lýst hafa sig reiðubúna til að skrifa
sig fyrir hinum nýju hlutum umfram forgangsrétt sinn.
Mun úthlutun til slíkra fjárfesta fara fram í réttu hlutfalli við
hlutafjáreign hvers og eins þeirra.
• Engin lágmarksfjárhæð er á áskriftum í forgangsréttar-
útboðinu.
• Tekið verður við áskriftum á vef Íslandsbanka hf. (www.
islandsbanki.is/reginn-utbod) frá kl. 9:00 (GMT) þann
25. september 2020 til kl 17:00 (GMT) þann 28. september
2020.
• Áætlað er að niðurstöður útboðsins verði tilkynntar
29. september 2020 og er áætlaður gjalddagi og eindagi
þann 1. október 2020.
• Stefnt er að afhendingu og töku nýrra hluta til viðskipta
á aðalmarkaði Nasdaq eins fljótt og auðið er eftir útgáfu
hlutabréfa hjá fyrirtækjaskrá Skattsins og er áætluð dag-
setning 2. október.
• Upplýsingar og tæknilega aðstoð má nálgast hjá
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. í síma 440-4000 milli
kl. 09:00 og 16:00 dagana 25. september til 28. september
2020 og tölvupóstfanginu reginn-utbod@islandsbanki.is.
Nánari upplýsingarmá finna í skilmálumútboðsins á vefsíðu
félagsinswww.reginn.is.
Kópavogur, 14. september 2020.
Stjórn Regins hf.
StjórnRegins hf. ákvaðþann 14. september að nýta heimild í 4. gr. samþykkta félagsins sem samþykkt
var á hluthafafundi Regins 9. september 2020oghækkahlutafé félagsins umallt að kr. 40.000.000
að nafnverði. Hlutirnir verða boðnir til sölu í forgangsréttarútboði og skulu hluthafar því njóta
forgangsréttar um hið nýja hlutafé miðað við hlutafjáreign sína („útboðið“). Heildarfjöldi útgefinna
hluta í Reginn fyrir útboðið er kr. 1.783.152.097 og nemur hækkun um2,2%miðað við núverandi hluti
ogaðáskriftir fáist fyrir allri hækkuninni.Andvirði útboðsinshyggstReginnnýta til að styrkja lausafjár-
ogeiginfjárstöðu félagsins.
HLUTAFJÁRÚTBOÐ
25.-28.SEPTEMBER
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Húsið verður rifið, það er ekkert
flóknara en það. Húsið er enda
ónýtt, það lekur og þetta er asbest-
bygging,“ segir Þórhallur Ólafsson,
framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar,
um fornfrægt hús sem kennt er við
Ríkisútvarpið og stendur á Vatns-
endahæð.
Neyðarlínan tók nýverið við
mannvirkjum á Vatnsendahæð eftir
að sendibúnaður RÚV þar var flutt-
ur á Úlfarsfell. Húsið er nú í eigu
ríkisins en óvissa hefur skapast um
framtíð þess eftir að hlutverki þess
lauk. Þórhallur segir aðspurður í
samtali við Morgunblaðið að GSM-
sendir verði áfram á svæðinu en
stefnt sé að því að stóru fjar-
skiptamöstrin verði tekin niður á
næsta ári. Ekki séu áform um nýt-
ingu hússins. Kópavogsbær áformar
íbúabyggð á svæðinu á næstu árum.
Hús með sögulegt gildi
Útvarpsstöð Íslands var reist á
árunum 1929-1930 eftir uppdráttum
Guðjóns Samúelssonar húsameist-
ara ríkisins og hefur alla tíð hýst
tæknibúnað útvarpsins, að því er
fram kemur í fundargerð húsafrið-
unarnefndar um stöðu mála þar sem
áhyggjum af stöðu mála er lýst.
„Húsið tengist stofnun og sögu
Ríkisútvarpsins auk þess að vera
áberandi kennileiti á höfuðborg-
arsvæðinu. Í kjölfar fyrirspurnar til
Neyðarlínunnar um framtíðarnot
hússins fóru fulltrúar Minjastofn-
unar í vettvangsskoðun þann 11.
ágúst sl. Unnið er að því að fjar-
lægja úr húsinu tæki og muni sem
eru í eigu RÚV og hafa verið
geymdir þar undanfarin ár. Er sú
vinna gerð í samráði við Þjóðminja-
safnið. Viðræður eru hafnar milli
ríkisins og Kópavogsbæjar um
framtíðarnýtingu Vatnsendahæðar
undir íbúðarbyggð. Húsafrið-
unarnefnd tekur undir sjónarmið
Minjastofnunar um sögulegt gildi
útvarpshússins á Vatnsendahæð og
mikilvægi þess að varðveita það og
ætla því verðugan stað í nýju skipu-
lagi,“ segir í fundargerð húsafrið-
unarnefndar.
Skipuleggja íbúðabyggð
Birgir Hlynur Sigurðsson, skipu-
lagsstjóri Kópavogsbæjar, staðfestir
við Morgunblaðið að bænum hafi
borist ábending frá Minjastofnun um
mikilvægi þess að varðveita húsið og
ætla því verðugan stað í nýju skipu-
lagi. „Hugmyndin er að þarna verði
íbúðabyggð og núna erum við að
reyna að átta okkur því hversu mikil
þessi byggð yrði,“ segir Birgir en um
þessar mundir stendur yfir vinna við
nýtt aðalskipulag bæjarins. Hann
segir að enn hafi engin afstaða verið
tekin til framtíðar Útvarpshússins á
Vatnsendahæð, enda sé það ekki
tímabært. Gott hafi verið að fá um-
rædda ábendingu frá Minjastofnun.
„Það ætti að vera lítið mál að fella
húsið inn í nýja byggð eða reyna að
koma því þannig fyrir að það fái að
standa. En ef það á að vera einhvers
konar safn þarna þá verður einhver
annar en bærinn að reka það,“ segir
Birgir.
Lýsa áhyggjum af
framtíð Útvarpshússins
Húsafriðunarnefnd og Minjastofnun vilja tryggja framtíð
sögufrægs húss á Vatnsendahæð Húsið sagt vera ónýtt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sögufrægt Útvarpsstöð Íslands var reist eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar. Sendar RÚV voru fluttir annað.
Umferð á götum höfuðborgarsvæð-
isins dróst mikið saman í ágústmán-
uði eða um rúmlega sjö prósent frá
sama mánuði í fyrra, sem er met-
samdráttur umferðar á höfuðborg-
arsvæðinu í ágúst að því er fram
kemur í greiningu Vegagerðarinnar
á niðurstöðum umferðarmælinga.
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu
hrundi sem kunnugt er í vor þegar
veirufaraldurinn var í hámarki en
tók svo óvænt við sér þegar leið á
sumarið og jókst umferðin í júní og
var meiri en í júnímánuði í fyrra.
Hún dróst svo saman í júlí á höfuð-
borgarsvæðinu eins og vant er um
hásumarið þótt samdrátturinn væri
öllu meiri en venja er til. Umferðin í
ágúst hefur aftur á móti ekki áður
dregist jafnmikið saman á svæðinu
og frá áramótum hefur umferðin
dregist saman um nærri níu prósent.
Er það met og er þrefalt meiri sam-
dráttur en áður hefur mælst að því
er segir á vefsíðu Vegagerðarinnar.
Ekki verið minni frá 2016
Mesti samdráttur sem áður hefur
mælst á umferðinni á höfuðborgar-
svæðinu ef litið er á þróunina frá ára-
mótum var á milli 2008 og 2009.
„Mest dróst umferðin saman um
snið á Hafnarfjarðarvegi eða um tæp
13% en minnst í sniði á Reykjanes-
braut eða um rúmlega 3%. Fara þarf
aftur til ársins 2016 til að finna minni
umferð í ágúst,“ segir í umfjöllun.
Umferðin er mjög breytileg eftir
vikudögum. Í seinasta mánuði dróst
umferð raunar saman á öllum viku-
dögum en hlutfallslega mest á laug-
ardögum eða um 8,6% en minnst á
mánudögum eða um 2,5%.
Talið er að nú stefni í að samdrátt-
ur umferðar á höfuðborgarsvæðinu á
þremur mælisniðum verði um 8,5%
yfir árið allt. „Gangi þessi spá eftir
yrði það langmesti samdráttur í um-
ferð um mælisniðin þrjú. Mestur
mældur samdráttur milli ára hingað
til varð milli áranna 2009 og 2010 eða
2,4% samdráttur.“
Metsamdráttur
umferðar í ágúst
Umferðin minnk-
aði um 7% eftir
óvæntan vöxt í sumar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Umferð Nú stefnir í 8,5% samdrátt
á höfuðborgarsvæðinu yfir allt árið.
Fjölmargir Bandaríkjamenn sem
búsettir eru hér á landi lögðu leið
sína í 12 tóna við Skólavörðustíg á
sunnudag en þar var þeim boðið upp
á aðstoð við skráningu fyrir forseta-
kosningarnar þar í landi í nóvember.
„Við ætluðum að vera þarna í
fjóra tíma en vorum í sex tíma. Það
kom fólk frá tólf ríkjum og þetta var
mjög vel heppnað,“ segir Ed Farm-
er sem skipulagði aðstoðina.
Viðburður þessi var haldinn undir
merkjum Democrats Abroad Ice-
land, en Íslandsdeild samtakanna
var nýverið stofnuð. Farmer segir í
samtali við Morgunblaðið að um stór
samtök á heimsvísu sé að ræða. Þau
sé að finna í um 190 löndum og eitt
af meginhlutverkum þeirra sé að
hjálpa fólki að skrá sig til þátttöku í
kosningum, fá kjörseðla og koma
þeim á réttan stað á réttum tíma.
Hann segir að hjálp þessi sé veitt öll-
um, óháð stjórnmálaskoðunum. Það
sé réttur og skylda hvers borgara að
kjósa.
„Það er enga hjálp að fá frá sendi-
ráðinu eftir því sem ég best veit. Ég
hef verið búsettur á Íslandi síðan ár-
ið 2000 og fram til þessa hefur slík
hjálp alltaf verið í boði. Árið 2016 var
til dæmis hægt að hringja inn með
spurningar í tvo klukkutíma á dag
en ég hef ekki séð neitt slíkt í boði
nú,“ segir Farmer.
Hann segir að lengi vel hafi ekki
tekið nema fimm daga fyrir póst að
berast á áfangastað í Bandaríkj-
unum. Sú sé ekki raunin lengur og
því hvetur hann Bandaríkjamenn
hér á landi til að vera tímanlega í því
að kjósa. Farmer segir að stefnt sé
að því að endurtaka leikinn í 12 tón-
um um næstu helgi. Hægt er að
fylgjast með því á facebooksíðu
Democrats Abroad Iceland.
Patrick Geraghty, nýr talsmaður
bandaríska sendiráðsins á Íslandi,
segir í svari við fyrirspurn Morg-
unblaðsins að sendiráðið taki á virk-
an hátt þátt í kosningaferlinu með
bandarískum ríkisborgurum hér.
Upplýsingar um það hvernig eigi að
kjósa sé að finna á FVAP.gov og
flest ríki bjóði upp á það að kjós-
endur geti skráð sig og fengið kjör-
seðla á netinu. Sum ríki bjóði einnig
upp á skráningu og skil á kjörseðlum
með tölvupósti eða faxi. Þá geti
bandarískir ríkisborgarar fundið
upplýsingar á heimasíðu sendiráðs-
ins. Þá upplýsir Geraghty að banda-
ríska sendiráðið hafi engin tengsl við
Democrats Abroad eða Republicans
Abroad. hdm@mbl.is
Aðstoð Ed Farmer var ánægður
með viðburðinn í 12 tónum.
Bjóða upp á
kosningaaðstoð
Forsetakosningar
» Kosið verður um forseta í
Bandaríkjunum 3. nóvember
næstkomandi.
» Núverandi forseti, Donald
Trump úr Repúblikanaflokkn-
um, býður sig fram til endur-
kjörs. Helsti keppinautur
Trumps er Joe Biden, forseta-
frambjóðandi Demókrata-
flokksins.
Mikill áhugi á forsetakosningum