Morgunblaðið - 15.09.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 2020
Benedikt Jóhannesson, stofnandiog fyrrverandi formaður Við-
reisnar, upplýsti í gær að hann
hygðist sækjast eftir oddvitasæti á
framboðslista flokksins á suðvest-
urhorninu, eins og
hann orðaði það.
Viðskiptablaðið upp-
lýsti í gær að það
hefði heimildir fyrir
því að Benedikt gæti
í framboði sínu rek-
ist á Daða Má Krist-
ófersson hagfræði-
prófessor, því að sá
hygðist einnig bjóða
sig fram og að líkur
stæðu til þess að þeir
tveir ásamt Hönnu
Katrínu Friðriksson
myndu bítast um
oddvitasætin í
Reykjavíkur-
kjördæmunum, en vegna fléttulista
ætti hún annað oddvitasætið í
Reykjavík víst.
Í frétt Viðskiptablaðsins var einnigsagt að samkvæmt heimildum
þess væri næsta víst að Benedikt
hygðist ekki fara í framboð í Suð-
vesturkjördæmi, kjördæmi núver-
andi formanns. Nú má vel vera að
Benedikt leggi ekki í þann slag, en
þó má ekki útiloka eftir það hvernig
formannsskiptin urðu þegar Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir tók við
af honum að hann teldi hana eiga
inni hjá sér svo sem eins og eitt mót-
framboð.
Annars verður að telja fréttir afframboðum í þessum flokki
fremur sérkennilegar. Eini sjáanlegi
tilgangur flokksins og ástæða stofn-
unar hans er áhugi þeirra sem að
honum standa að Ísland gangi í ESB.
Sú hugmynd er svo slæm að jafnvel
þessi flokkur og andlegi systurflokk-
urinn Samfylking þegja rækilega
um þennan ásetning um þessar
mundir. Það breytir því ekki að
vangaveltur um þetta furðulega
framboð eru jafnan furðulegar.
Benedikt
Jóhannesson
Framboð til
furðuframboðs
STAKSTEINAR
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Dr. Gunnar Mýrdal
Einarsson læknir, sér-
fræðingur í brjósthols-
skurðlækningum og yf-
irlæknir hjarta- og
lungnaskurðdeildar
Landspítala, lést 10.
september sl. eftir
harða baráttu við
krabbamein, 56 ára að
aldri.
Gunnar fæddist 11.
apríl 1964 á Akranesi,
sonur hjónanna Einars
S. Mýrdals Jónssonar
skipasmíðameistara og
Huldu Haraldsdóttur, fv. inn-
heimtustjóra. Gunnar varð stúdent
frá Fjölbrautaskóla Vesturlands
1984. Hann lauk prófi frá lækna-
deild HÍ vorið 1991, sérfræðinámi í
almennum skurðlækningum 1998
og í brjóstholsskurðlækningum frá
Uppsalaháskóla árið 2001. Gunnar
varði doktorsritgerð sína við Upp-
salaháskóla árið 2003 og lauk MBA-
námi í stjórnun við HR árið 2016.
Gunnar fór til sérnáms í Svíþjóð
árið 1996 þar sem
hann starfaði við
Centrallasarettet
Västerås fyrstu 2 árin.
Starfaði síðan við
hjarta- og lungna-
skurðdeild Uppsala
Akademiska Sjukhus
þar sem hann var yf-
irlæknir árin 2006-
2008.
Gunnar fluttist heim
til Íslands árið 2008
og starfaði sem sér-
fræðingur við brjóst-
holsskurðlækninga-
deild LSH frá þeim tíma og var
yfirlæknir við deildina frá 2016.
Gunnar sat í stjórn Læknafélags
Íslands 2018-2019 sem aðildar-
fulltrúi Félags sjúkrahúslækna.
Eftir Gunnar liggja margar fræði-
greinar og rannsóknaskýrslur.
Eiginkona Gunnars er Ingibjörg
Kristjánsdóttir, f. 1979, lyflæknir
og sérfræðingur í hjartalyflækn-
ingum. Gunnar lætur eftir sig sjö
börn og eina ófædda dóttur.
Andlát
Gunnar Mýrdal
Einarsson
Starfshópur ferðamálaráðherra hef-
ur skilað tillögum um hvernig
tryggja megi nægt framboð raforku
á almennum markaði. Er þar um að
ræða markað sem snýr að almenn-
ingi, en ekki sölu til stórnotenda og
stofnana.
Tilefnið er sú staðreynd að enginn
ber í dag ábyrgð á að tryggja nægi-
legt framboð á raforku inn á al-
menna markaðinn. Landsvirkjun
hafði áður þessa skyldu en hún var
afnumin með raforkulögum árið
2003.
Tillögurnar skiptast í tvo megin-
flokka. Annars vegar er lagt til að
raforkuöryggi verði betur skil-
greint í lögum. Hins vegar telur
starfshópurinn mikilvægt að jafn-
vægi milli framboðs og eftirspurnar
verði tryggt með beinum aðgerðum.
„Hér eru á ferðinni mikilvægar til-
lögur um stórt hagsmunamál al-
mennings. Við höfum vanist því að
líta á raforku sem sjálfsagðan hlut en
með aukinni eftirspurn eftir henni
hefur sá möguleiki teiknast upp á
undanförnum árum að heimili og
minni fyrirtæki gætu staðið frammi
fyrir skorti vegna þess að orkan
verði frekar seld stærri notendum,“
var haft eftir Þórdísi Kolbrúnu
Gylfadóttur Reykfjörð.
aronthordur@mbl.is
Tryggja verði framboð á raforku
Skiluðu tillögum um hvernig tryggja
má framboð á raforku til almennings
Ljósmynd/Stjórnarráð Íslands
Starfshópur Tillögum var skilað til
Þórdísar Kolbrúnar í gær.
FINNA.is