Morgunblaðið - 15.09.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 2020
PON er umboðsaðili
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður
Sími 580 0110 | pon.is
Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna!
GÆÐI OG ÞJÓNUSTA
Míla ehf. er að hefjast handa í haust
við lagningu ljósleiðara á alls 84 kíló-
metra leið frá Hveravöllum til
Skagafjarðar. Um er að ræða síðasta
áfanga framkvæmda við að tengja
Suðurland og Norðurland með ljós-
leiðara, sem á að ljúka í nóvember.
Í fyrra var lokið við lagningu ljós-
leiðara frá Bláfellshálsi að Hvera-
völlum en frá Hveravöllum verður
nú haldið áfram að Þórisvatni um
Eyvindarstaðaheiði og Mælifellsdal
og endað við Steinsstaði í Skagafirði,
að því er kemur fram í skýrslu
Skipulagsstofnunar, sem hefur kom-
ist að þeirri niðurstöðu að fram-
kvæmdin sé ekki háð mati á um-
hverfisáhrifum.
Ljósleiðarinn verður plægður
beint í jörðu á 50-60 cm dýpi. Á 15
km kafla fer strengurinn um frið-
landið í Guðlaugstungum. „Fram-
kvæmdaraðili áformar að leggja ljós-
leiðarann innan svæðis sem þegar er
raskað, s.s. í slóða og vegi. Þar fyrir
utan í svæði sem einkennist fyrst og
fremst af melum, sandlendi og mó-
lendi. Á um 100 m kafla fyrirhug-
aðrar lagnaleiðar innan friðlandsins í
Guðlaugstungum er að finna rústa-
mýrar. Farið yrði u.þ.b. 50 m austan
við rústirnar til að framkvæmdin
hafi ekki áhrif á þær,“ segir í grein-
argerðinni.
Lögnin þverar Blöndu
Lögnin mun þvera fjölmargar ár
og læki, þ.á m. Blöndu. Þar sem því
verður við komið mun ljósleiðarinn
þvera vatnsföll á brúm en á öðrum
stöðum verður hann plægður eða
grafinn í botn ánna þvert yfir þær.
„Farið verður eins djúpt í botn ánna
og mögulegt er eða um 70-100 cm
undir botn. Vinna í hverju vatnsfalli
ætti að taka að hámarki tvo tíma og
er bundin við sex metra breitt svæði
þvert yfir farveg,“ segir enn fremur.
Í umsögn bendir Hafrannsókna-
stofnun á að þverun vatsnfalla með
jarðstrengjum geti haft neikvæð
áhrif á fisk og annað lífríki en í þess-
um tilvikum er talið að framkvæmd-
irnar valdi tiltölulega litlum skaða.
Skipulagsstofnun telur að þrátt fyrir
nokkuð umfangsmikla framkvæmd
sem m.a. raski tímabundið gróður-
þekju verði það óverulegt og svæðið
eigi að ná sér í fyrra horf að loknum
frágangi. Helstu umhverfisáhrif
verði rask við þverun vatnsfalla, á
gróðri auk ásýndaráhrifa til
skemmri tíma litið. „Í ljósi þess er
mikilvægt að vanda framkvæmd og
frágang við lagningu ljósleiðarans
við þverun vatnsfalla og innan svæð-
is sem nýtur verndar […],“ segir í
niðurstöðum. omfr@mbl.is
Ljósleiðari lagður
84 km leið yfir Kjöl
Ljúka á tengingu milli Hveravalla og Skagafjarðar á árinu
Ljósleiðari yfi r Kjöl
Ko
rt
ag
ru
nn
ur
: O
pe
nS
tr
ee
tM
ap
Hofsjökull
Hveravellir
Steinsstaðir
í Skagafi rði
Fyrirhuguð lega
ljósleiðara frá
Hveravöllum til
Skagafjarðar
1
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Lagning Ljósleiðarar hafa verið lagðir víða í dreifbýlinu og landsátakið Ísland ljóstengt er í fullum gangi.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Síðustu ár hafa verið erfið hjá æðar-
bændum vegna minni eftirspurnar
og verðlækkunar á dúninum. Fyrir
vikið hefur minna verið flutt út og
margir bændur liggja með dún frá
síðustu árum. Nokkuð hefur þó verið
um að bændur selji sjálfir sængur
innanlands.
Æðarvarp er hringinn í kringum
landið að suðurströndinni undanskil-
inni. Einhverjar tekjur hafa verið af
dúntekju á um 400 jörðum og sums
staðar skipta þessi hlunnindi veru-
legu máli í búrekstrinum. Ekki er
óalgengt að bændur hafi bæði verið
með ferðaþjónustu og dúntekju, en
tekjur af báðum þessum atvinnu-
greinum hafa stórlega dregist sam-
an í ár.
Framboð og eftirspurn
Erla Friðriksdóttir í Stykkishólmi
er framkvæmdastjóri fyrirtækisins
Íslensks æðardúns ehf. sem fengist
hefur við hreinsun og sölu á dúni í
tæplega 30 ár. Hún segir að staðan
sé ekki góð og talsverð óvissa í þess-
ari atvinnugrein. Í góðu ári séu flutt
út um og yfir þrjú tonn af æðardúni
og dúnsængur hafi víða verið eftir-
sóttar, m.a. í Japan. Þar hafi verð
fyrir góða dúnsæng slagað upp í
tvær milljónir króna.
Útflutningurinn í fyrra var um
1.300 kíló fyrir 251 milljón króna,
sem er aðeins hluti af því sem gerist
í góðu ári. Í ár eru farin um 800 kíló
af dúni, en Erla segir að flestir haldi
að sér höndum. Hæst fór verð til
bænda árið 2016 þegar verð fyrir
kíló fór í 215 þúsund krónur og flutt
voru út 3,4 tonn fyrir tæplega 700
milljónir.
„Æðardúnn er takmörkuð nátt-
úruauðlind og sveiflur hafa einkennt
verðið í gegnum tíðina eins og marg-
ir þekkja,“ segir Erla. „Þú eykur
ekki framboðið þótt eftirspurn auk-
ist og verðið hækki. Þegar það hefur
hækkað of mikið hætta neytendur að
kaupa vöruna. Sölutregða myndast á
markaðnum og verð fer að lækka
eins og hefur verið að gerast síðustu
misseri.“
Erla er varaformaður í Æðar-
ræktarfélagi Íslands og segir hún að
eftir því sem hún viti best hafi dún-
tekja yfirleitt gengið vel í vor og
sumar og sums staðar verið mun
betri en í fyrra. Við Breiðafjörðinn
þar sem hún þekki best til hafi árið
verið í góðu meðallagi.
Minni aðsókn að Æðarsetrinu
Eftir velgengni undanfarin ár og
vaxandi fjölda gesta dró verulega úr
aðsókn að Æðarsetrinu í miðbæ
Stykkishólms í sumar, en í safninu
eru lifnaðarhættir æðarfuglsins
sýndir, ýmis búnaður, hvernig dúnn-
inn er hirtur og hreinsaður og hvað
gert er úr honum. Erla segir að
sáralítið hafi verið um erlenda gesti í
ár og engin skemmtiferðaskip hafi
komið til Stykkishólms í sumar.
Fleiri Íslendingar hafi komið í
safnið en áður, en það hafi hvergi
nærri dugað til að mæta fjarveru er-
lendra ferðamanna. Hún áætlar að
gestafjöldinn til þessa í ár sé um 400
manns, en alls komu um 2.000 gestir
þangað í fyrra.
Sölutregða og verðlækkun á dúni
Minna flutt út Margir bændur
liggja með dún Óvissa í greininni Útfl utningur á æðardúni 2008-2019
3,6
2,7
1,8
0,9
0
800
600
400
200
0
2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
Tonn M.kr.
2,0
1,6
3,7
3,1 3,1 3,1
2,4
3,1
3,4
2,0
1,9
1,3
Útfl utt tonn Útfl utningsverðmæti, milljónir kr.
251
359
392
694
600
474
600
508
375
392
157
217
Ljósmynd/Erla Friðriksdóttir
Í varpinu Fylgst með kollu á hreiðri
í Hvallátrum fyrir nokkrum árum.
Hafin er verkleg rannsókn á sjáv-
arbotni fyrir nýjan fjarskipta-
sæstreng (ÍRIS) frá Galway á Ír-
landi til Íslands á vegum Farice.
„Nýr strengur er til þess fallinn
að auka öryggi í fjarskipta-
samböndum við útlönd, bæði fyrir
fyrirtæki og heimili, auk þess sem
hann er forsenda fyrir áframhald-
andi kröftugri uppbyggingu
gagnaveraiðnaðar og annarrar
starfsemi í tengslum við m.a.
fjórðu iðnbyltinguna,“ segir m.a. í
tilkynningu Farice.
Fyrirtækið hefur frá ársbyrjun
2019 unnið að undirbúningi fyrir
fjarskiptasjóð fyrir lagningu á nýj-
um fjarskiptasæstreng milli Ís-
lands og Evrópu, á grundvelli
stefnu stjórnvalda í fjarskiptum.
Vinnan hefur skilað tillögu að
staðarvali fyrir landtöku í Evrópu
sem er í Galway á vesturströnd Ír-
lands. Lendingarstaður strengsins
á Íslandi er áformaður á Reykja-
nesi og er undirbúningsvinna við
val á endanlegum landtökustað í
gangi.
Farice með botn-
rannsókn við Írland
Leggja á nýjan
fjarskiptastreng
Ljósmynd/Farice
Sæstrengur Rannsóknaskipið sem
verður að störfum við Írland.