Morgunblaðið - 15.09.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 2020
HVER restaurant á Hótel Örk
er fyrsta flokks veitingastaður,
fullkominn fyrir notalegar
gæðastundir með vinum,
fjölskyldu eða vinnufélögum.
GIRNILEGUR
OG SPENNANDI
MATSEÐILL
Pantaðu borð í síma 483 4700 | www.hverrestaurant.is
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Áform um friðlýsingu menningar-
og búsetulandslags við Þern-
eyjarsund, í Þerney og á Álfsnesi
eiga ekki að hindra lagningu Sunda-
brautar. Þetta kemur fram í yfirlýs-
ingu á heimasíðu Minjastofnunar.
„Við gerð friðlýsingatillögunnar,
fyrr á árinu, var tekið tillit til þeirra
valkosta sem lágu fyrir varðandi
lagningu brautarinnar á þann hátt
að friðlýsingin útilokaði ekki gerð
hennar,“ segir þar.
Minjastofnun kveðst birta þessa
yfirlýsingu að gefnu tilefni.
Væntanlega er stofnunin hér að
vísa til bréfs sem Vegagerðin ritaði
Minjastofnun 1. september sl. Þar
kemur fram að Vegagerðin hefði
kosið að Minjastofnun hefði litið á
stofnunina sem hagsmunaaðila
varðandi friðlýsingaráformin og
óskað eftir formlegri umsögn áður
en ákvörðun yrði tekin.
„Vegagerðin gerir því athuga-
semdir við áformin og óskar eftir
fundi með fulltrúum Minjastofnunar
áður en lengra er haldið.“
Brautin lengi á teikniborðinu
Minnt er á í bréfinu að um langa
hríð hafi verið áform um lagningu
Sundabrautar af hálfu ríkis og
Reykjavíkurborgar. Sundabraut
hafi verið í aðalskipulagi Reykjavík-
ur frá árinu 1985 og hún hafi verið á
vegaskrá sem fyrirhugaður þjóð-
vegur frá 1995. Mat á umhverfis-
áhrifum framkvæmda sé langt kom-
ið og fjölmargar rannsóknir hafi
verið gerðar, þar með talið forn-
leifaskráningar.
„Gert er ráð fyrir að síðari áfangi
Sundabrautar liggi frá Gufunesi, um
Geldinganes, yfir Leirvog, Gunnu-
nes, Álfsnes og Kollafjörð. Skoðaðar
hafa verið ólíkar leiðir á fyllingum,
brúm og jarðgöngum á þessari leið
og voru fjórir valkostir lagðir fram í
í frummatsskýrslu í júlí 2009. Í því
ferli og síðar hefur veglínu Sunda-
brautar verið breytt og hliðrað til að
vernda fornleifar,“ segir í bréfi
Vegagerðarinnar.
Loks er minnt á að lagning
Sundabrautar sé í samgönguáætlun
2020-2034, sem Alþingi samþykkti í
júní sl. Framkvæmdin sé ekki fjár-
mögnuð á samgönguáætlun en Al-
þingi hafi jafnframt samþykkt lög
um samvinnuverkefni sem heimili
Vegagerðinni að gera samning við
einkaaðila um fjármögnun, fram-
kvæmd, viðhald og rekstur Sunda-
brautar.
Á kortinu sem fylgir þessari frétt
og Vegagerðin hefur útbúið er ekki
annað að sjá en Sundabraut sé inn-
an friðlýsingarsvæðisins. Minja-
stofnun telur svo hins vegar ekki
vera.
Í svarbréfi Minjastofnunar til
Vegagerðarinnar dagsett 3. sept-
ember er lýst undirbúningi friðlýs-
ingarinnar og rök færð fyrir henni.
Jafnframt er Vegagerðinni gefinn
kostur á að koma á framfæri form-
legum og efnislegum athugasemd-
um við áformin. Minjastofnun vænti
svars Vegagerðarinnar eigi síðar en
11. september. Vegagerðin fékk
frestinn framlengdan og vinnur nú
að svari.
Björgun fékk úthlutað lóð
Eins og fram hefur komið hér í
blaðinu hefur Reykjavíkurborg út-
hlutað Björgun athafnasvæði á Álfs-
nesi, við Þerneyjarsund. Minja-
stofnun setti sig strax upp á móti
því að þarna yrði skipulagt athafna-
svæði. Taldi stofnunin að það hefði
mjög neikvæð áhrif á einstakt
menningarlandslag. Svæðið segði
sögu búsetu og kauphafnar allt frá
miðöldum fram á 20. öld.
Minjastofnun hóf því undirbúning
tillögu til mennta- og menningar-
málaráðherra um friðlýsingu svæð-
isins í samræmi við svokölluð minja-
lög frá 2012.
Friðlýsing hindrar
ekki Sundabraut
Vegagerðin ritaði Minjastofnun bréf vegna áforma um
friðlýsingu á Álfsnesi Stofnunin andsnúin athafnasvæði
Kortagrunnur:
OpenStreetMap
Geldinganes
Þerney
Álfsnes
Sorpa
Leiruvogur
MOSFELLSBÆR
Fyrirhuguð friðlýsing
á Álfsnesi
Tillaga Minjastofnunar
að friðlýsingu
Lóð
Björgunar
Vegstæði Sundabrautar
Möguleg vegstæði
Sundabrautar
100 m veghelgunarsvæði
Þerneyjar-
sund
Ytri leið
Innri leið
Millileið
Framkvæmdir við endurgerð Hegn-
ingarhússins við Skólavörðustíg
hafa gengið vel í sumar. Að sögn
Þorsteins Bergssonar, fram-
kvæmdastjóra Minjaverndar, er bú-
ið að smíða þá glugga og hurðir sem
ljóst var að þyrfti að endurgera að
öllu leyti. „Svo munum við reyna að
halda þessu verki gangandi eins og
kostur er í vetur,“ segir hann.
Fyrsti áfangi endurgerðar húss-
ins snýr að ytra byrði þess og nán-
asta umhverfi. Þær framkvæmdir
eru fjármagnaðar af sérstöku fjár-
festingarátaki á vegum stjórnvalda
til að vinna gegn samdrætti í hag-
kerfinu. Alls eru 342 milljónir króna
eyrnamerktar fyrsta áfanga.
Þorsteinn segir að sperrur og
fleira í þaki hafi verið illa farið og fú-
ið. Slíkt kalli á mikla vinnu. Þá verð-
ur skipt um þakskífur. „Það hefur
verið lögð töluverð vinna í að finna
nákvæmlega eins skífur og þær upp-
runalegu. Þær fundust loks í Wales,“
segir Þorsteinn.
„Það kemur ýmislegt í ljós þegar
menn ráðast í verk sem þetta. Eins
og fyrri daginn þegar farið er í göm-
ul hús minnkar verkið ekki að um-
fangi,“ segir framkvæmdastjórinn.
Hann segir ekkert hafa breyst um
kostnaðaráætlun. „Það eru engar
líkur á því að kostnaðurinn verði
mikið minni en stefnt var að. En það
er svo sem heldur ekkert sem segir
að hann verði meiri.“ hdm@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Endurbætur Unnið hefur verið við Hegningarhúsið í sumar og haust.
Fundu réttu þak-
skífurnar í Wales
Endurbætur
» Alls eru 342 milljónir króna
eyrnamerktar fyrsta áfanga
endurgerðar Hegningarhússins
við Skólavörðustíg.
» Fangelsinu var lokað árið
2016. Ekki liggur fyrir hvaða
starfsemi verður þar í framtíð-
inni.
Framkvæmdir við Hegningarhúsið
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU
UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?