Morgunblaðið - 15.09.2020, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 2020
Sjáum um allar
merkingar
Höfðabakka 9, 110 Rvk | www.runehf.is
Gísli, sölu- og markaðsstjóri
vinnufatnaðar
Sími 766 5555 | gisli@run.is
ÖRYGGIS-
SKÓR
VANDAÐUR
VINNUFATNAÐUR
6424
6202
55505536
3307 3407
SAFE & SMART
monitor
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Kristjánsbakarí á Akureyri, sem
stofnað var árið 1912 og er eitt elsta
iðnfyrirtæki landsins, hefur nú snú-
ið vörn í sókn, að sögn Vilhjálms
Þorlákssonar, framkvæmdastjóra
Gæðabaksturs, sem á og rekur
Kristjánsbakarí. Hluti af því er að
nær öllu því starfsfólki sem sagt var
upp störfum vegna endurskipulagn-
ingar í júní sl., og Morgunblaðið
sagði frá á sínum tíma, var boðin
endurráðning og af þeim var stór
hluti starfsmanna endurráðinn.
Vilhjálmur segir að bæjarfulltrú-
ar Sjálfstæðisflokksins í bænum hafi
því verið heldur fljótir á sér að lýsa
sérstökum áhyggjum af starfsem-
inni, en á bæjarstjórnarfundi Ak-
ureyrarbæjar í síðustu viku var um-
ræða um atvinnumál á Akureyri þar
sem bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins lýstu yfir áhyggjum af
þeim störfum sem væru að hverfa
úr bænum, og nefndu bæði lokun
Kexsmiðjunnar og Kristjánsbakar-
ís.
„Við erum búin að endurráða
megnið af fólkinu auk þess að ráða
inn nýtt fólk. Við erum komin í sókn
núna. Þegar maður endurskipulegg-
ur reksturinn gefst færi á að skipta
úr varnarleik yfir í sóknarleik,“ seg-
ir Vilhjálmur í samtali við Morg-
unblaðið.
Tveir nýir bakarar
Spurður um reksturinn síðustu
mánuði, segir Vilhjálmur að hann
hafi sloppið, eins og hann orðar það.
„Við erum búin að ráða tvo nýja
bakara sem koma inn með nýjar
áherslur í bland við þetta gamla
góða. Þá hefur Hrafnhildur Karls-
dóttir gengið til liðs við okkur sem
rekstrarstjóri, en hún var áður hót-
elstjóri á Hótel Kea. Þá munum við
kynna nýjungar eins og nýtt sæta-
brauð og súrdeigsbrauð, á næstu
dögum.“
Vilhjálmur segir að ætlunin sé að
færa bakaríið inn í árið 2020. „Við
ætlum að innleiða nýjungar fyrir
norðan sem gengið hafa vel á höf-
uðborgarsvæðinu.“
Hann bætir við að bjartsýni ríki
nú hjá starfsfólki og stjórnendum.
„Ég væri ekki að ráða inn nýja bak-
ara og stjórnendur ef ég væri að
hætta rekstri.“
Aðspurður segir Vilhjálmur að
eftir endurskipulagninguna muni
starfsmönnum fækka um fjóra.
„Við stólum nú á það, í þeim sókn-
arbolta sem við ætlum að spila, að
Akureyringar versli í heimabyggð.
Við ætlum að sinna Akureyringum
vel.“
Kökur Akureyringar fá áfram að njóta þjónustu Kristjánsbakarís.
Kristjánsbakarí
snýr vörn í sókn
Endurráða nær allt starfsfólkið
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Eiríkur S. Svavarsson, hrl., og lög-
maður Fosshótels Reykjavík, segir
mikilvægt að fjármálastofnanir komi
til móts við leigusala og leigutaka í
hótelgeiranum sem hafi orðið fyrir
tekjufalli í kórónuveirufaraldrinum.
Eiríkur segir
ekki hægt að
gagnrýna stjórn-
málamennina.
Þeir hafi gripið til
aðgerða sem ollu
tjóni í ferðaþjón-
ustu vegna þess
æðri tilgangs að
verjast veirunni.
Meðal annars
með því að lækka
eiginfjárkröfu bankanna hafi stjórn-
völd greitt fyrir aðgengi bankanna
að lánsfé. Að mati Eiríks þurfi bank-
arnir að leggja sitt af mörkum.
Þar sem faraldurinn verði líklega
tímabundinn þurfi eftirgjöf banka til
handa leigusölum og leigutökum
ekki að vera gríðarleg.
„Meðan fjármálafyrirtækin lengja
aðeins í lánum og koma ekki að þessu
borði á annan hátt er enginn annar
til að taka á málinu en dómstólar.
Það er ekki skynsamlegasta leiðin að
láta dómstólana um þetta verkefni.
Það gengur jafnframt ekki að
bankar komi ekkert að því að skipta
sér af lausninni í þessari keðju. Það
er mikilvægt að ekki verði gerð sömu
mistökin og í hruninu þegar bank-
arnir komu alltof seint fram með úr-
ræði og lausnir á skuldavanda heim-
ila og fyrirtækja. Það kostaði mikið
tjón; gjaldþrot og nauðungarsölur.
Brýnt að lágmarka tjónið
Nú er glíman við allt annars konar
kreppu. Allir innviðir eru í lagi en
það þarf að bregðast hratt við til að
lágmarka tjónið. Það eru öll rök fyrir
því að lánveitendur komi strax að
borðinu en þeir verða að gefa sínum
lántökum svigrúm til að komast út úr
þessum aðstæðum. Það verður ekki
gert með því einu að fresta afborg-
unum heldur þurfa leigusalar, leigu-
takar og lánveitendur að deila
ábyrgðinni. Það þurfa allir að taka á
sig tjón og bankarnir verða að fella
niður afborganir á meðan kórónu-
veiran ríður yfir. Þessi leið er ódýr-
ust fyrir alla,“ segir Eiríkur sem tel-
ur það ágætis samlíkingu hjá Sigurði
G. Guðjónssyni hrl. í samtali við
Morgunblaðið 1. ágúst sl. að ræða
um sjótjón í þessu efni.
Á grafinu hér fyrir ofan má sjá
fjölda hótela sem voru opin á höfuð-
borgarsvæðinu og úti á landi í júlí-
mánuði 2015-2020. Alls 169 hótel
voru opin á landinu í júlí 2019 en að-
eins 138 í júlí í sumar. Hjá Hagstof-
unni fengust þær upplýsingar að
mismunurinn, 31 hótel, skýrðist af
tímabundunum lokunum. Þar af
voru 24 á höfuðborgarsvæðinu.
Lagði fram lögbannskröfu
Fosshótel Reykjavík er dóttur-
félag Íslandshótela, stærstu hótel-
keðju landsins sem er með 17 hótel í
rekstri. Í júníbyrjun lagði Fosshótel
Reykjavík fram beiðni til sýslu-
mannsins á höfuðborgarsvæðinu þar
sem krafist var lögbanns við þeirri
fyrirætlan Íslandsbanka að greiða út
bankaábyrgð samkvæmt kröfubréfi
Íþöku fasteigna til bankans en Íþaka
er leigusali hótelsins.
Eiríkur segir málið í raun miklu
stærra „en þetta dómsmál sem Foss-
hótel Reykjavík neyðist til að vera í
gagnvart sínum leigusala“. Líklegt
sé að þetta verði fordæmisgefandi
mál. Honum sé kunnugt um fleiri
mál í dómskerfinu af svipuðum toga.
Aðgerðir til að verjast veirunni
teljist ófyrirséður og óvæntur at-
burður og í tilviki Fosshótels
Reykjavík hafi ekki verið forsendur
til að halda því opnu. Því hafi öllum
starfsmönnum verið sagt upp og
engin starfsemi verið frá 1. apríl sl.
Reyndu að ná samningum
„Við sjáum ekki fram á að það
skapist forsendur til að opna hótelið
alveg á næstunni. Leitað var strax til
leigusala og reynt að ná samkomu-
lagi, sérstaklega í ljósi klásúlu í
leigusamningi um force majeure--
aðstæður. Það leiddi til þess að leigu-
sali hjólaði í bankaábyrgð. Það aftur
neyddi félagið til varnaraðgerða,
enda er bankaábyrgð afar rík kröfu-
réttindi,“ segir Eírkur en force maj-
eure-reglan varðar ófyrirséð og
óvænt ytri atvik sem koma í veg fyrir
efndir. Telur Eiríkur að álitsgerð
sem Viðar Már Matthíasson, fv.
hæstaréttardómari og rannsóknar-
prófessor við lagadeild HÍ, vann fyr-
ir Fyrirtæki í hótel- og gistiþjónustu
(FHG), styðji málstað leigutaka.
„Eftir efnahagshrunið brugðust
bankarnir seint og illa við sem að
lokum kostaði meira umfang leið-
réttinga og tjóns,“ segir Eiríkur.
Bankarnir komi að skuldavanda
Lögmaður Fosshótels Reykjavík segir mikilvægt að bankar komi til móts við leigutaka og leigusala
Ekki megi gera sömu mistök og eftir hrunið Óskynsamlegt sé að láta dómstóla um verkefnið
Eiríkur S.
Svavarsson
75
86 92
103 112
105
42 53 54 57 57 33
Fjöldi hótela á Íslandi
2015-2020, fjöldi í júlímánuði
Höfuðborgarsvæðið Utan höfuðborgarsv.
2015 2016 2017 2018 2019 2020
117
139 146
160 169
138
Heimild: Hagstofan
*Áætlun
*
15. september 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 136.49
Sterlingspund 175.06
Kanadadalur 103.56
Dönsk króna 21.747
Norsk króna 15.117
Sænsk króna 15.599
Svissn. franki 150.13
Japanskt jen 1.286
SDR 192.74
Evra 161.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 196.6763
Hrávöruverð
Gull 1944.5 ($/únsa)
Ál 1746.5 ($/tonn) LME
Hráolía 39.96 ($/fatið) Brent
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Avo
hefur aflað sem nemur 419 milljóna
króna í fjármögnun. Fjárfestar eru
þrír bandarískir vísisjóðir sem allir
hafa aðsetur í kísildalnum í Banda-
ríkjunum. Samkvæmt yfirlýsingu
er Avo leiðandi á markaði í næstu
kynslóð af gagnastjórnun og skiln-
ingi fyrirtækja á notendaupplifun,
sem að sögn er þungt á metunum
við öra þróun ýmissa stórra þjón-
ustuforrita.
Stofnendur Avo eru þau Sölvi
Logason og Stefanía Bjarney Ólafs-
dóttir, sem bæði störfuðu hjá Plain
Vanilla Games. Þau segja að fjár-
mögnunin geri þeim kleift að
stækka hraðar á næstu mánuðum
og gera ráð fyrir auknum starfs-
mannafjölda í fjarvinnu.
Meðbyr
með Avo
Gera ráð fyrir
hröðum vexti
Stefanía Bjarney
Ólafsdóttir
Sölvi
Logason