Morgunblaðið - 15.09.2020, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 2020
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - hitataekni.is
Sími 588 6070 - hitataekni@hitataekni.is
Sjálfvirk pottastýring
með snertiskjá og vefviðmóti
POTTASTÝRING
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Enn heldur COVID-19, sjúkdóm-
urinn sem kórónuveiran veldur,
áfram að breiðast út sem eldur í
sinu um mörg ríki heims. Staðfest
var í gær, samkvæmt tölum sem
bandaríski háskólinn Johns Hopk-
ins birtir, að rúmlega 29 milljónir
hafa smitast af kórónuveiru á
heimsvísu. Látnir eru rúmlega 925
þúsund, langflestir í Bandaríkjun-
um, og hafa nærri 20 milljónir náð
sér eftir veikindin.
Ástand innan ríkja er mjög ólíkt
og eins aðgerðir stjórnvalda. Í Asíu
eru sum ríki farin að huga mjög að
inflúensuvörnum í von um að
minnka líkur á því að heilbrigðis-
kerfið þurfi að eiga við mikinn
fjölda fólks með kórónuveiru- og
inflúensusmit á sama tíma.
Í Ástralíu hefur hægt mjög á
nýjum smitum, en ástand þar er
sagt vera það besta í um þrjá mán-
uði.
30 sentimetra regla
Á Filippseyjum hafa stjórnvöld
verið gagnrýnd fyrir að slaka á
skyldu um fjarlægðarmörk. Eru
þau nú komin í 30 sentimetra á
milli manna í almenningssamgöng-
um. Hefur þessi ákvörðun verið
sögð bæði „hættuleg og ótímabær“,
einkum í ljósi hækkandi dánartíðni
þar. Í Singapúr er svo verið að
glíma við tíð hópsmit.
Í suðvesturhluta Frakklands hef-
ur verið tilkynnt um hertar aðgerð-
ir í tengslum við fjöldasamkomur
og -viðburði auk þess sem gripið
verður til hertra sóttvarnaaðgerða
á dvalarheimilum fyrir aldraða.
Ástandið í Marokkó heldur
áfram að versna og hafa heilbrigð-
isstarfsmenn þar meðal annars
mótmælt slæmum aðbúnaði og
skorti á nauðsynjavörum til að tak-
ast á við útbreiðslu sjúkdómsins.
AFP
Hreinlæti Þessi maður vann að sótthreinsun lestarvagna á Indlandi.
Smitin yfir 29 milljónir
Samkvæmt tölum frá háskólanum Johns Hopkins hafa rúmlega 925 þúsund
manns látist af völdum COVID-19 Viðbrögð ríkja og ástand mjög misjafnt
Kórónuveiran
» Minnst 194.238 hafa látið
lífið í Bandaríkjunum vegna
COVID-19, flestir þeirra í ríkinu
New York.
» Tilfellum hefur fjölgað und-
anfarnar tvær vikur í 17 ríkjum
Bandaríkjanna. Eru þetta ríki á
borð við Missouri, Norður-
Dakóta og Wisconsin.
» Bandaríkin skima að með-
altali 741 þúsund manns fyrir
kórónuveiru.
Hópur viðgerðamanna er kominn
um borð í olíuflutningaskipið New
Diamond sem statt er undan
ströndum Srí Lanka. Skipið er afar
illa laskað eftir sprengingu sem
varð í vélarrúmi skipsins 3. sept-
ember síðastliðinn. Í kjölfarið
braust út mikill eldur og teygði
hann sig m.a. inn í brúna. Af ljós-
myndum að dæma er altjón á brú og
vistarverum áhafnar.
Fréttaveita Reuters greinir frá
því að olía hafi lekið frá skipinu, hún
sé sjáanleg á haffletinum. Slökkvi-
liðsmönnum tókst þó að koma í veg
fyrir að eldur næði til geymslutanka
skipsins, en hátt í 300 þúsund tonn
af hráolíu, eða um tvær milljónir ol-
íutunna, eru um borð auk nærri tvö
þúsund tonnum af dísilolíu. Búið er
að koma í veg fyrir frekari leka, að
sögn Reuters, en á þessari stundu
er ekki vitað hversu mikil olía lak í
hafið. Búast má við því að mál verði
höfðað á hendur eigendum skipsins.
Alls voru 23 skipverjar um borð í
olíuskipinu þegar óhappið varð og
er einn talinn af. khj@mbl.is
Komið í veg fyrir olíuleka
Hópur viðgerðamanna nú um borð í New Diamond
AFP
Altjón Mikill eldur kom upp í olíuskipinu eftir sprengingu í vélarrúmi.
Flugfélög heims glíma nú flestöll
við afar erfiðan rekstur sökum mik-
ils samdráttar í flugi vegna
COVID-19, sjúkdómsins sem
kórónuveiran veldur. Á sama tíma
hafa viðskipti stóraukist hjá þeim
fyrirtækjum sem stunda niðurrif á
farþegaþotum og sölu á notuðum
varahlutum til flugfélaga.
„Í okkar tilfelli hefur faraldurinn
aukið viðskipti og rekstrarmódelið
er komið á þann stað sem við sáum
fyrir okkur að ná árið 2022 eða
2023. Það er leiðinlegt að segja það,
en faraldurinn hefur skapað okkur
frábær viðskiptatækifæri,“ segir
Ron Haber, forstjóri Aero Cycle,
sem er kanadískt fyrirtæki sem sér-
hæfir sig í niðurrifi flugvéla og
partasölu, í samtali við Reuters.
Hann segist nú vilja kaupa kyrr-
settar flugvélar og fá þannig til sín
yngri vélar en áður í niðurrif og
partasölu. Bendir hann á að ýmsir
sérfræðingar hafi spáð því að mikil
þörf verði á varahlutum á næstunni
þegar flugfélög taka aftur í notkun
vélar sem staðið hafa lengi.
KANADA
AFP
Stopp Vélar British Airways í röðum.
Búist við spreng-
ingu í partasölu
Tvær sjálfstæðar
rannsóknastofur
í Frakklandi og
Svíþjóð hafa nú
staðfest að eitrað
var fyrir rúss-
neska stjórnar-
andstæðinginn
Alexei Navalní í
ágúst er hann
var á ferð frá
Síberíu til
Moskvu. Samkvæmt niðurstöðum
eiturefnaprófs á sýnum úr Navalní
var honum byrlað eitur úr hópi
Novichock-taugaeiturs, en eitrið
var þróað í Sovétríkjunum á 8. og 9.
áratug síðustu aldar. Eru þessar
niðurstöður í fullu samræmi við
fyrri rannsóknir sem unnar voru í
Þýskalandi nýverið.
Búið er að senda lífsýni úr
Navalní til Alþjóðlegu efnavopna-
stofnunarinnar (OPCW) og munu
sérfræðingar hennar senda frá sér
tilkynningu að rannsókn lokinni.
Stjórnvöld í Kreml segjast ekki
hafa séð neinar sannanir fyrir því
að eitrað hafi verið fyrir Navalní.
EVRÓPA
Nýjar rannsóknir
staðfesta eitrun
Alexei
Navalní
Þessi hæna sást á vappi innan um brunnin hús og
ökutæki í Oregonríki á dögunum, en miklir
gróðureldar geisa nú á vesturströnd Bandaríkj-
anna með tilheyrandi eyðileggingu og mann-
tjóni. Tugir þúsunda eru nú á flótta vegna
ástandsins og hafa nokkrir tugir manna fundist
látnir. Óttast er að tala látinna muni hækka
nokkuð á næstunni þegar leitað verður betur í
rústum húsa.
Eldarnir skilja eftir sig slóð eyðileggingar
AFP