Morgunblaðið - 15.09.2020, Page 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 2020
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur fyrir
veturinn, laga
ryðbletti á þökum
og tek að mér
ýmis smærri verk-
efni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Atvinnuauglýsingar
Blaðberar
Upplýsingar veitir í síma
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera
k
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 8:30-12:30, nóg pláss -
Stólaleikfimi í Hreyfisal kl. 9:30 - Boccia í Hreyfisal kl. 10:15 - Plokku-
nargönguferð kl.13:00, græjur á staðnum - Tálgað í tré kl.13:00 -
Postulínsmálun kl. 13:00 - Kaffi kl.14:30-15:20 - Nánari upplýsingar í
síma 411-2702 - Allir velkomnir
Árskógar Smíðar, útskurður með leiðb. kl. 9-16. Opin vinnustofa
kl. 9-12. Boccia með Guðmundi kl. 10. Leshringur kl. 11. Handa-
vinnuhópur kl. 12-16. Línudans með Ingu kl. 13:45. MS-fræðslu- og
félagsstarf kl. 14-16. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala
kl. 14:45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 411-2600.
Boðinn Miðvikudagur: Hádegismatur kl. 11:20-12:30. Handavinna kl.
13:00. Miðdagskaffi kl. 14:30-15:30. Heitt á könnunni allan daginn og
allir velkomnir.
Boðinn Þriðjudagur: Hádegismatur kl. 11:30-12:30.
Stafgöngunámskeið hefst kl. 10:30, kennari Sigríður Breiðfjörð Si-
gurðardóttir, fólk er beðið um að mæta með sína eigin stafi, ekkert
kostar á námskeiðið. Fuglatálgun kl. 13:00.
Fella og Hólakirkja Kyrrðarstund kl 12. léttur hádegisverður eftir
stundina á vægu verði. Opið hús frá kl. 13 - 16. Gestur okkar er
Þórunn Valdimarsdóttir rithöfundur. Kaffi borið fram kl. 15. Spil, hand-
avinna og góð samvera. Verið hjartanlega velkomin
Fella og Hólakirkja Kyrrðarstund kl 12. léttur hádegisverður eftir
stundina á vægu verði. Opið hús frá kl. 13 - 16. Gestur okkar er
Þórunn Valdimarsdóttir rithöfundur. Kaffi borið fram kl. 15. Spil
, handavinna og góð samvera. Verið hjartanlega velkomin
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi og spjall við hringborðið kl.
8.50-11:00. Skráning á þátttökulista fyrir vetrarstarfið er á skrifstofunni
kl 8:50-16. Myndlistarnámskeið Margrétar kl. 9:00-11:30. Thai Chi kl.
9:00-10:00. Hádegismatur kl. 11.30-12:30. Myndlistarhópurinn Kríur.
Bónusrútan kl. 13:10. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15:30. Bókabíll kl. 14:45.
Allir velkomnir óháð aldri og búsetu.
Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Garðabæ Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti
með síðdegisk er selt frá 13:45 -15:15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi
kl. 10:00. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14:45. Stólajóga Kirkjuhvol
salur kl. 11:00. Smíði í Smiðju kl. 09:00 og 13:00.
Gerðuberg 3-5 kl. 08:30-16:00-Opin handavinnustofa. kl. 09:00-
12:00-Keramik málun (grænagróf) kl. 10:00-10:20-Leikfimi
gönguhóps(Sólstofa) kl. 10:30 -Gönguhópur um hverfið kl. 13:00-
16:00-Glervinnustofa m/leiðb.(grænagróf)
Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, heitt á könnunni kl. 9.00 til 16.00
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Handavinna með leiðbeinanda kl. 9:00-12:00. Hádegismatur kl. 11:30.
Jóga kl. 14:30 – 15:30
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30.
Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Jóga með Kristrúnu kl. 9:50. Bridge í
handavinnustofu 13:00. Gönguferð kl. 13:30.
Korpúlfar Leikifmishópur Korpúlfa í Egilshöll kl. 09:00 Benni
leiðbeinir. Morgunleikfimi útvarpsins kl. 09:45 í dag í Borgum. Boccia
kl. 10 í Borgum og helgistund kl. 10:30 í Borgum. Spjallahópur í
Borgum kl. 13:00 í listasmiðju allir velkomnir í gleðilega samveru.
Sundleikfimi með Brynjólfi kl. 14:00 í dag .
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi kl. 07.10. Kvennakaffi í safnaðarh. kl. 10.
Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Pútt á Skólabraut kl. 10.30. Kvennaleik-
fimi í Hreyfilandi kl. 11.30. Bridge Eiðismýri 30 kl. 13.30. Karlakaffi í
safnaðarheimilinu kl. 14. Námskeið roð og leir kl. 15.30 - 18.30.
Skráning og uppl. í síma 7722408. Vatnsleikfimi kl. 18.30. Ath.
Bónusbíllinn fer frá Skólabr. kl. 9.45 í fyrramálið.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á
könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er
frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Leikfimi kl.
13.00. Bókabíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 13.00. Kaffi og
meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 – 15.30.
Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586.
Rað- og smáauglýsingar
mbl.is
alltaf - allstaðar
Magnús Axels-
son vinur minn er
lést 1. apríl sl. hefði orðið 75 ára í
dag, 15. september. Ég hefði tek-
ið upp símann og hringt í hann til
að óska honum til hamingju með
afmælið eins og undanfarin 40
ár. Nú verða þau símtöl ekki
fleiri.
Magnús Axelsson
✝ Magnús Ax-elsson fæddist
15. september
1945. Hann lést 1.
apríl 2020.
Magnús var jarð-
sunginn 8. apríl
2020. Minning-
arathöfn verður 15.
september 2020.
Við Maggi tókum
þátt í skátastarfi á
unglingsárum þeg-
ar miðpunktur
skátastarfsins í
Reykjavík var í
Skátaheimilinu við
Snorrabraut og
kynntumst þar fyrir
rúmum 60 árum.
Fljótt tókst með
okkur góð vinátta
sem óx með árun-
um. Áhugamál okkar og skoðanir
fóru ekki alltaf saman en við nut-
um að hittast, skiptast á skoð-
unum og spjalla saman um alla
heima og geyma. Samtölin voru
fjörug og skemmtileg, mikið
hlegið og þau urðu oft löng.
Maggi kom víða við á lífsleið-
inni, ljósahönnun, fasteignasala
og fararstjórn koma upp í hug-
ann. Hann lá ekki á skoðunum
sínum, var ófeiminn, spaugsamur
og glaðvær og lá hátt rómur.
Hann var vel máli farinn og naut
sín við veislu- og skemmtana-
stjórn og fórst það vel úr hendi.
Maggi var heiðarlegur, traustur
og hjálpsamur og gott að leita til
hans með aðstoð og ráð. Ég
þurfti nokkrum sinnum á aðstoð
hans að halda varðandi fast-
eignaviðskipti sem var auðsótt
og málin vel leyst.
Þó var eitt sem ég bað hann
bara einu sinni að aðstoða mig
við og aldrei oftar. Við skemmt-
um okkur mikið saman kringum
tvítugsaldurinn. Eina helgi var
ég einn heima og við Maggi hvísl-
uðum að nokkrum vinum okkar á
Borginni, sem var vinsæl á þess-
um árum, að við gætum komið
saman heima eftir lokun. Þetta
spurðist út og íbúðin fylltist af
fólki. Þegar við vöknuðum morg-
uninn eftir uppgötvaði ég bruna-
blett eftir sígarettu á tekkborði.
Ekkert mál sagði Maggi, fáum
okkur sandpappír og slípum þar
til bletturinn hverfur. Bletturinn
hvarf vissulega en þá vorum við
komnir gegnum spóninn í viðar-
plötuna þar undir. Ekkert mál
sagði Maggi, fáum okkur tekk-
bæs og þetta sést aldrei. Gerðum
það og skemmdin varð meira
áberandi en áður og foreldrum
mínum ekki skemmt þegar þau
komu heim.
Þegar ég var í Köben kom
Maggi tvívegis í heimsókn. Í
seinna skiptið kom hann út
ásamt Brynju Benediktsdóttur
og Jóni Þórissyni til að sjá Hárið
en þau voru að undirbúa upp-
setningu á Hárinu heima. Ég fór
með þeim á sýninguna sem var
hin besta skemmtun. Tveir ungir
piltar voru í aðalhlutverkum og
urðu þekktir skemmtikraftar.
Annar var Eddie Skoller og ný-
lega rann upp fyrir mér að hinn
var Jörgen Olsen, annar Olsen-
bræðranna sem unnu Söngva-
keppnina árið 2000 með laginu
„Fly on the wings of love“. Við
Maggi rifjuðum nýlega upp
þessa skemmtilegu minningu.
Ég náði að tala við Magga
nokkrum sinnum eftir að hann
veiktist og sagði mér frá veik-
indum sínum. Það voru ekki góð-
ar fréttir en hann var ekkert
veikur að eigin sögn. Fann ekk-
ert til og ætlaði sér ótrauður í
gegnum þennan skafl. Hlutirnir
gerðust hins vegar hratt og sím-
talið frá Auði um að Maggi væri
farinn var óvænt og erfitt.
Með þessum orðum kveð ég
vin minn með sorg og söknuð í
hjarta og þakkir í huga fyrir ára-
tuga vináttu, hjálpsemi, frábæra
tíma saman og bara allt. Auði og
fjölskyldu sendi ég innilegar
samúðarkveðjur.
Guðmundur Björnsson.
tengd á einhvern sérstakan hátt.
Þú varst berdreymin og tilfinn-
inganæm og fannst á þér ef ein-
hver var að hugsa til þín og þá
hringdirðu í viðkomandi.
Það var stutt í hláturinn hjá
þér og það var mikið hlegið á
heimilinu og á fjölskyldusam-
komum. Þú varst ótrúlegur
skipuleggjandi frá unga aldri,
skipulagðir heimilið, leiksýning-
ar, fundi og fjölskyldusamkomur,
og þær voru ekki fáar í svona
stórri fjölskyldu.
Þú elskaðir að lesa og last allt
sem vakti áhuga þinn. Þú hafðir
alltaf nokkrar bækur til taks og
deildir óspart með okkur börn-
unum. Þú kenndir okkur öllum að
lesa og skrifa og spurðir okkur út
úr fyrir próf. Þú sýndir sjaldan
vonbrigði yfir einkunnum því þú
vissir að það bjó meira í okkur en
einhverjar tölur á blaði, en þú
hvattir okkur til að gera okkar
besta.
Síðustu árin hefurðu ekki get-
að ferðast, verið fangi í líkama
sem var orðinn veikburða og þú
sem aldrei ætlaðir að verða svona
gömul og fannst þetta furðulegt.
Þú varst tilbúin til að fara í nýtt
ferðalag, ferðalagið til Sumar-
landsins eins og þú kallaðir það.
Við sem eftir sitjum eigum eftir
að tínast til þín eitt af öðru í fram-
tíðinni og við vitum að þú átt eftir
að taka á móti okkur opnum örm-
um. Þangað til áttu eftir að lifa í
hjörtum okkar.
Góða ferð, elsku mamma.
Ragnheiður Elfa.
Fallega amma mín kvaddi okk-
ur sunnudaginn 6. september.
Það eru engin orð sem geta lýst
því hversu mikils virði hún amma
var mér eða hversu mögnuð kona
hún var. Amma var leik- og söng-
kona þegar það var kannski ekki
það sem konur áttu að vera að
gera. Hún kom á legg stórum
hópi af sjálfstæðum og sterkum
konum og sínum einkasyni. Hún
hjálpaði líka til við uppeldið á
mörgum af barnabörnum sínum,
þar á meðal okkur systkinunum.
Amma var kletturinn í fjölskyld-
unni okkar og heimili þeirra afa á
Heiðargilinu var griðastaður fyr-
ir mörg okkar.
Það sem ég man eftir úr æsku
var að amma virtist vera með
óþrjótandi þolinmæði og jafnað-
argeð og að hún elskaði fólkið
sitt. Aldrei leið mér betur en þeg-
ar amma sagði við mig „elsku
hjartað mitt“. Amma kenndi mér
að lesa, hvernig á að sitja fallega
við matarborðið og hvernig á að
borða með prjónum. Hún eldaði
máltíðir sem hefðu sæmt sér vel á
fimm stjörnu veitingahúsum, en
hún gaf okkur líka stundum co-
coa puffs eða örbylgjusamlokur,
sem einhvern veginn voru alltaf
bestar hjá ömmu.
Amma var tengd fólkinu sínu á
einhvern óútskýranlegan hátt og
vissi oft hluti sem enginn hafði
sagt henni. Þegar ég varð ófrísk
að mínu fyrsta barni var ég að-
eins 16 ára gömul. Ég var hrædd
við hvernig amma og afi myndu
bregðast við, en þegar ég fann
kjarkinn til þess að segja þeim
þetta brostu þau bæði, föðmuðu
mig og sögðu að þetta myndi
blessast. Svo sagði amma mér að
sig hefði dreymt að hún væri í fal-
legum blómagarði þar sem rós-
irnar hefðu verið einstaklega fal-
legar og að ég ætti ekki að hafa
áhyggjur, það yrði allt í lagi með
mig og með hana. Það vissi eng-
inn að þetta væri stúlka, en
amma hafði rétt fyrir sér og heit-
ir þessi stúlka Sigurrós.
Þegar ég og maðurinn minn
höfðum ákveðið að gifta okkur
sagði ég við hann að fyrst yrði
hann að hitta ömmu. Ég sagði
ömmu ekki frá því að ég þyrfti
samþykki hennar. Við parið
mættum bara í fjölskylduboð og
ég kynnti hann fyrir ömmu. Hún
horfði á hann frá hvirfli til ilja og
tók í höndina á honum, horfði svo
á mig og tilkynnti mér að þetta
væri nú góður ungur maður. Ég
faðmaði ömmu og þegar við vor-
um að labba í burtu sagði ég hon-
um að við gætum gift okkur.
Ef hún amma var einhvern
tímann vonsvikin yfir einhverju
sem ég gerði, þá sýndi hún það
aldrei. Hún var alltaf til staðar
með uppörvandi orð og skilyrð-
islausa ást. Ég gæti skrifað heila
bók með öllum þeim góðu minn-
ingum sem ég á um hana ömmu
og hvernig orð hennar hafa verið
leiðarljós í mínu lífi. Hún var dug-
leg að segja mér hvað börnin mín
væru yndisleg og ég er þakklát
fyrir að þau skyldu fá að hitta
hana og eyða tíma með henni.
Mikill er söknuðurinn og tárin
þung yfir því að hún sé farin, en á
sama tíma veit ég að hún var
tilbúin. Elsku amma mín.
Kristín Ásta
Kristinsdóttir.
Fyrir 40 árum var ekki mjög
fjölbreytt úrval af grænmeti og
ávöxtum í Kaupfélagi Borgfirð-
inga, ekki eins og tíðkast í versl-
unum dag. Ég var mjög sólgin í
melónur og mínar sterkustu
minningar sem barn frá Fax-
abrautinni eru að um leið og ég
kom í heimsókn var farið út í búð
að kaupa rauðar melónur sem ég
sat svo og gæddi mér á þar til
magamál leyfði ekki meir. Eld-
húsið hennar ömmu var himna-
ríki og það var eins og maður
gæti ekki beðið um neitt sem
ekki væri hægt að elda eða út-
búa, það var alltaf allt til. Ef eitt-
hvað var ekki til þá hljómaði „Jó-
óóón, skrepptu og verslaðu
aðeins fyrir mig“ – og afi fór. Ör-
bylgjaðar samlokur með hvítu
brauði, skinku, osti og ananas
með súkkulaðimjólk og fleira var
í sérstöku uppáhaldi hjá mér litlu
gleypunni sem mætti og var eins
og sísvangur ungi í hreiðri – allt-
af tilbúin að taka við og amma
raðaði í mig.
Ég er heppin. Það eru ekki all-
ir sem búa að því að eiga sterkt
og sérstakt samband við ömmur
sínar en ég átti tvær sem voru
mér báðar óskaplega kærar; frú
Sigríði Guðmundsdóttur sem
lést í hárri elli og svo Sossu-
ömmu sem nú hefur kvatt jarð-
vistina 92 ára. Ég bjó hjá henni í
tvígang. Fyrst sem ungbarn í
hálft ár og svo í fjóra mánuði
þegar ég var í HÍ. Þess vegna
kallaði hún mig alltaf barnið sitt
og ég upplifði svo sterkt að við
áttum einhverja sérstaka þræði
á milli okkar sem voru ofnir úr
innilegri væntumþykju á báða
bóga.
Og ég er þakklát. Fyrir gjaf-
mildina, fyrir móttökurnar sem
hófust alltaf á kveðju þar sem
syngjandi rödd ömmu heyrðist
segja hæææææ einhvers staðar
innan úr eldhúsi þegar maður
gekk inn um ólæstar dyrnar, fyr-
ir dekrið og elskuna í gegnum ár-
in sem ég fékk að eiga hana að.
Einvers staðar í óravíddinni
hljómar núna fallegur söngur og
skær hlátur. Þar er amma.
Kristín Birna.
Soffía Karlsdóttir, ein eftir-
minnilegasta dóttir Akraness, er
horfin á braut 92 ára að aldri. Ég
átti þess kost að ræða við Soffíu
fyrir Útvarp Akranes árið 1992 á
50 ára afmæli staðarins sem fékk
kaupstaðarréttindi árið 1942.
Á þessum árum, um og upp úr
1942, voru uppgangstímar á
Akranesi, m.a. hafði verið byggt
stórt verslunarhús, Þórðarbúð,
sem bauð upp á fjölbreytta starf-
semi. Þar voru starfræktar
saumastofur á efri hæðinni, þar
sem saumaðir voru kjólar, blúss-
ur og pils á kvenfólk, auk hatta,
allt eftir nýjustu tísku, eins og
auglýst var. Þá voru nýmæli að í
stórum sýningargluggum á neðri
hæðinni voru gínur klæddar í
slíkan fatnað. Þarna á sauma-
stofunni störfuðu allt upp í átta
til tíu stúlkur um lengri eða
skemmri tíma undir verkstjórn
Siggu á Bakka og Öddu á Grund.
Á saumastofunni var oft glatt
á hjalla, jafnvel sungið og dansað
þegar frítímar gáfust frá saum-
unum. Í minnum er haft þegar
ein af starfsstúlkunum, Soffía
Karlsdóttir, þá 16-17 ára, söng
og dansaði uppi á saumaborðun-
um með miklum tilþrifum. Síðar
áttu sumar af þessum stúlkum,
m.a. Soffía, eftir að leika og
syngja í revíunni „Allt er fertug-
um fært“ eftir Theodór Einars-
son, sem sýnd var mörgum sinn-
um fyrir fullu húsi um
páskaleytið 1945. Sagt er að á
fjórða þúsund manns, eða allir
Akurnesingar, hafi séð sýn-
inguna sem fór fram í hinu þá
nýja íþróttahúsi við Laugar-
braut. Hagnaðinum af sýning-
unni var að mestu varið í bygg-
ingu hússins.
Soffía Karlsdóttir sló eftir-
minnilega í gegn í revíunni, en
hún lék, söng og dansaði, að
nokkru í stíl Carmen Miranda,
sem þá var ein helsta kvik-
myndastjarnan í Hollywood.
Þessi flutningur Soffíu var upp-
hafið að frægðarferli hennar sem
revíustjörnu í Reykjavík um
miðja öldina.
Í umræddu viðtali við Soffíu
árið 1992 lýsti hún æskuárunum
á Akranesi og söngferlinum, þar
sem m.a. Ingi T. Lárusson tón-
skáld kenndi henni um nokkurn
tíma í unglingaskólanum. Hún
lýsti hinum skemmtilegu tímum
á saumastofunni, uppákomum í
samkomuhúsinu Bárunni og
stríðsárunum á Akranesi.
Soffía Karlsdóttir var hlédræg
og hafði sig ekki í frammi og
veitti yfirleitt ekki viðtöl, en
vegna sinna góðu æskuminninga
frá Akranesi sagðist hún hafa
ánægju af að tjá sig um þessa
skemmtilegu tíma í lífi sínu.
Akurnesingar minnast Soffíu
Karlsdóttur með þakklæti og
virðingu og senda öllum aðstand-
endum samúðarkveðjur.
Ásmundur Ólafsson.
Soffía Karlsdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar