Morgunblaðið - 15.09.2020, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 2020
SMÁRALIND
www.skornir.is
Flottur götuskór úr mjúku leðri.
Reimaður að framan,
rennilás að innanverðu.
Grófur stamur gúmmísóli.
27.995
Stærðir 36-41
40 ára Katrín fæddist
í Reykjavík en ólst upp
fyrstu árin í Kópavogi
en býr núna í Reykja-
vík. Hún er með meist-
aragráðu í hugbún-
aðarverkfræði en
starfar nú sem borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Helstu
áhugamál hennar, fyrir utan stjórnmálin,
eru fjallahjólareiðar og útivera með fjöl-
skyldu og vinum.
Maki: Sveinn Friðrik Eydal Sveinsson, f.
1974, fjármálastjóri hjá Samtökum fyr-
irtækja í sjávarútvegi.
Börn: Atli, f. 2013, og Katla, f. 2016.
Foreldrar: Atli Arason, f. 1952, viðskipta-
fræðingur og Guðný Eiríksdóttir, f. 1950,
lífefnafræðingur. Þau búa í Reykjavík.
Katrín Atladóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Talaðu við aðra um ákafa þinn og
þær stóru hugmyndir sem þú hefur. Leggðu
þig fram við að búa til áætlun og ræddu
hana síðan við aðra til að fá viðbrögð þeirra.
20. apríl - 20. maí
Naut Loksins öðlast þú viðurkenningu fyrir
framlag þitt og mátt gjarnan skemmta þér
af því tilefni. Til þess að þú getir það, er dá-
lítillar skipulagningar þörf.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vinnusemi þín fer ekki fram hjá
öðrum og þú munt hljóta umbun erfiðis
þíns. Hættu að reyna að ganga í augun á
fólki – látta það koma til þín.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú finnur fyrir aukinni þörf til að
vera skapandi. Aðrir menningarheimar
vekja hjá þér forvitni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú er rétti tíminn til að gera breyt-
ingar, annaðhvort heima eða í vinnunni. Þér
tekst vel upp við að finna eitthvað aðdáun-
arvert í fari fólksins í kringum þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Mundu að það er ekki bara það sem
sagt er sem skiptir máli heldur líka hvernig
það er sagt. Reyndu að vera jákvæður.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gættu þess að gefa ekki loforð sem þú
getur ekki staðið við. Mundu að við erum öll
mannleg og reyndu að dæma ekki aðra
harðar en þú dæmir sjálfan þig.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er ótrúlegt hversu snögg-
ur þú getur verið að vinna þegar þú veist
hversu dásamlega mikið þú munt græða.
Hlustaðu á ábendingar um það hvernig þú
getur hagrætt í vinnunni.
22. nóv. - 21. des.
BogmaðurMeð hjálp góðs vinar muntu
finna réttu leiðina til að tjá skoðanir þínar.
Leitaðu uppi skemmtilegt fólk sem þú hefur
ekki heyrt frá lengi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú vilt ná árangri í því sem þú
ert að gera og dagurinn í dag ætti að skila
þér góðum árangri. Snúðu við blaðinu áður
en þú eyðileggur líf þitt með neikvæðni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hefur mikla þörf um þessar
mundir til að tala við fólk. Láttu eftir þér að
lyfta þér upp með vinum og fjölskyldu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur áhuga á að víkka sjóndeild-
arhring þinn með ferðalögum og frekara
námi. Mundu að mannorðið er meira virði
en efnahagslegur ávinningur.
Næsta skref Hjartar á ferlinum
var að sjá um hönnun og verkefna-
stjórn fyrir Skipatækni ehf. þar sem
hann var frá 1997-2003. Sem dæmi
dvaldist hann í Kína í samtals 12
mánuði á árunum 1998-2001 sem
verkefnastjóri og vegna eftirlits skipa
sem smíðuð voru fyrir Íslendinga í
Gungzhou. „Eftir að hafa verið í Kína
efast ég ekki um að það verður næsta
stórveldi heimsins. Fyrst þegar ég
kom þangað 1998 var svo mikil upp-
bygging að þá lá við að maður sæi ný
hverfi rísa bara út um hótelglugg-
ann.“ Hjörtur segir að árið 2001 hafi
fjölskyldan komið með honum út og
þau hafi kynnst miklu fleiru en vinnu
hans þar, m.a. heimsótt kínversk
heimili og ferðast um landið.
Þá ákvað Hjörtur að söðla um og
fara út í eigin rekstur og hann er einn
kvæmdastjóri rekstrarsviðs
Samskipa, sem hann sá um að móta.
Síðustu fjögur árin hjá Samskipum
var Hjörtur deildarstjóri skipa-
rekstrardeildar sem fól m.a. í sér yfir-
stjórn deildarinnar, áætlanagerð og
rekstur á skipum félagsins.
H
jörtur Emilsson fædd-
ist 15.9. 1950 á Seyð-
isfirði og ólst þar upp.
Hann gekk í Barna-
skóla Seyðisfjarðar og
tók tvo bekki í Gagnfræðaskóla Seyð-
isfjarðar en lauk svo gagnfræðaprófi
á Siglufirði 1968. Síðan tók við
Tækniskóli Íslands þar sem hann
lauk raungreinaprófi 1973 og þaðan
fór hann til Danmerkur þar sem hann
lauk B.Sc.-prófi í skipatæknifræði frá
Helsingör Teknikum árið 1977.
„Ég ólst upp á Seyðisfirði í stórum
systkinahópi og var alltaf á bryggj-
unni og í fjörunni í kringum fisk og
fiskveiðar. Svo fór ég að vinna 12 ára í
fiski, fyrst að dreifa fiski og síðan að
beita með mömmu. Síðan kom síldin
og allt það ævintýri, svo áhuginn
kviknaði snemma á sjávarútveg-
inum,“ segir Hjörtur en hann hafi
samt ekki viljað verða sjómaður því
þeir voru svo mikið fjarri fjölskyldum
sínum en allt annað tengt sjávar-
útveginum heillaði.
Hjörtur hóf starfsferilinn eftir
námið hjá Stálvík hf. sem skipatækni-
fræðingur og þar vann hann að hönn-
un nokkurra fiskiskipa, skuttogara,
þ.á m. Ottós N. Þorlákssonar, og
frystitogara ásamt hönnun á strand-
ferðaskipi fyrir Ríkisskip. Það verk-
efni varð til þess að Hjörtur var ráð-
inn til að sjá um allt ferlið fyrir
Ríkisskip, bæði undirbúning útboðs
og smíði og eftirlit með framkvæmd
verksins í Englandi. Hjörtur fluttist
til Englands með eiginkonu og dóttur
og bjuggu þau þar í 15 mánuði þar til
smíði skipsins M/S Esju lauk 1982.
Þegar heim var komið tók Hjörtur
við framkvæmdastjórastöðu Rík-
isskipa og 1989 varð hann aðstoð-
arforstjóri fyrirtækisins fram að 1992
þegar ríkisstjórnin ákvað að leggja
fyrirtækið niður. Þá réð Hjörtur sig
til Samskipa, þar sem hann var fyrst
forstöðumaður strandflutninga og
bar ábyrgð á stefnumótun og skipu-
lagningu strandsiglinga fyrir-
tækisins. Síðar varð hann fram-
stofnanda Navis ehf. og er fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins á sviði
skipahönnunar, ráðgjafar og eftirlits.
Fyrirtækið á í viðskiptum út um allan
heim, bæði í ráðgjöf og eftirliti og
tjónaskoðun, svo aðeins fátt eitt sé
nefnt.
Hjörtur segir það eftirminnilegt að
vera kallaður til vinnu til syðsta bóls í
heimi, sem er bærinn Ushuaia í Arg-
entínu. „Þar var ég á Jónsmessunni
einu sinni, en þá var ég með verkefni
fyrir útgerð í Argentínu og ég fór að
skoða skip. Það var mjög gaman að
koma á þetta svæði sem minnti svolít-
ið á Ísland, en þótt ég væri þar um
mitt sumar var mesta skammdegið
þar á þeim tíma.“
Nýjasta stóra verkefni Navis var
hönnun á línuskipinu Páli Jónssyni
fyrir Vísi hf. í Grindavík, en skipið
Hjörtur Emilsson framkvæmdastjóri Navis ehf. – 70 ára
Ljósmynd/Erling Ó. Aðalsteinsson - Ljósmyndastofa Erlings Eiðistorgi.
70 ára afmælið Hjörtur Emilsson í faðmi fjölskyldunnar. Frá vinstri talið: Magnús Þór, Sólveig Harpa, Emilíana
Birta, Hanna Marey, Aldís Vala, Hjörtur, Bjarni, Hjörtur Þór, Ágústa, Hrönn, Sigríður Birta, Birkir, Helga Lind.
Áhuginn kviknaði snemma
á bryggjunni á Seyðisfirði
Kína Fjölskyldan í Beijing 2001.
50 ára Hrund ólst
upp í Hafnarfirði og
hefur búið þar alla tíð
síðan. Hún er mennt-
aður hjúkrunarfræð-
ingur og starfar sem
hjúkrunardeildarstjóri
á kvenlækningadeild
Landspítalans. Hún hefur mestan áhuga
á útivist, íþróttum og samveru með fjöl-
skyldu og vinum.
Maki: Ingi Rafn Jónsson, f. 1970, við-
skiptafræðingur.
Börn: Daníel Þór, f. 1995, Daði Snær, f.
1998 og Anna Rut, f. 2006.
Foreldrar: Elísabet Karlsdóttir, f. 1952,
húsmóðir og Magnús Gunnarsson, f.
1950, framkvæmdastjóri knattspyrnu-
félagsins Hauka.
Hrund Magnúsdóttir
Til hamingju með daginn
Reykjavík Tryggvi Már Atlason
varð eins árs núna 9. september
sl. Hann fæddist í Reykjavík og
foreldrar hans eru Svava Ágústs-
dóttir verkfræðingur og Atli Már
Pálmason vélvirki.
Nýr borgari