Morgunblaðið - 15.09.2020, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 2020
Fullkomið fatbrauð f
yrir öll tækifæri
sem smíðað var í Póllandi kom nýtt til
landsins í janúar.
Þar að auki var Hjörtur í starfshópi
um smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju
og er ráðgjafi fyrir Vegagerðina í
tengslum við rekstur nýja Herjólfs.
Fjölskylda
Eiginkona Hjartar er Ágústa Unn-
ur Gunnarsdóttir, f. 16.9. 1955, kynn-
ingarstjóri FB. Foreldar hennar eru
Gunnar Kr. Gunnarsson, fv. banka-
starfsmaður í Reykjavk, f. 14.6. 1933,
og kona hans Hrönn Pétursdóttir
húsmóðir, f. 25.7. 1932, d. 21.12. 1979.
Börn Hjartar eru: 1) Helga Lind, f.
29.3. 1972, náms- og starfsráðgjafi,
móðir Sigríður Hermannsdóttir, f.
22.8. 1953. Eiginmaður Helgu Lindar
er Magnús Þór Jónsson, f. 14.4. 1971,
skólastjóri. Börn Helgu og Magnúsar
eru: Sigríður Birta, f. 6.4. 2004, og
Sólveig Harpa, f, 25.2. 2008. 2) Hrönn,
f. 13.4. 1979, grunnskólakennari, barn
Birkir Hrannar Hugrúnarson, f. 30.8.
2012, móðir Hugrún Ósk Bjarnadótt-
ir, f. 26.8. 1976. 3) Bjarni, f. 9.11. 1984,
farartækjahönnuður. Börn Hjörtur
Þór, f. 26.2. 2020, sambýliskona Aldís
Vala Marteinsdóttir förðunarfræð-
ingur, f. 14.5. 1989, og Hanna Marey,
f. 7.11. 2009, móðir Árný Heiða
Helgadóttir, f. 16.12. 1987. 4) Emil-
íana Birta, f. 5.3. 1997, nemandi í fata-
hönnun í LHÍ.
Systkini Hjartar eru Bjarney, f.
10.3. 1945, húsmóðir á Seyðisfirði,
Bára, f. 6.6. 1948, sjúkraliði í Reykja-
vík, og Einar, f. 16.8. 1952, d. 2.3.
2004, smiður og kennari á Dalvík.
Foreldrar Hjartar voru Emil Júl-
íus Bjarnason, f. 19.7. 1911, d. 24.5.
1968, sjómaður á Seyðisfirði, og eig-
inkona hans, Bergljót Kristinsdóttir,
f. 30.6. 1921, d. 31.12. 1996, húsmóðir
á Seyðisfirði.
Hjörtur Emilsson
Guðrún Sigurðardóttir
húsfreyja á Lýtingsstöðum í Vopnafi rði
Einar Aðalbjörn Björnsson
bóndi á Eyvindarstöðum í
Vopnafi rði
Björg Sigríður Einarsdóttir
húsfreyja á Ytrinípi og Eyvindarstöðum í Vopnafi rði
Bergljót Kristinsdóttir
húsfreyja á Seyðisfi rði
Kristinn Daníelsson
bóndi á Ytranípi og
Eyvindarstöðum í Vopnafi rði
Margrét Magnúsdóttir
léttastúlka á Hofi í Vopnafi rði
og víða á Langanesi
Daníel Illugason
vinnumaður á Hofi í Vopnafi rði
Þuríður Bjarnadóttir
verkakona í Vestmannaeyjum
Sveinn Sveinsson
bóndi og smiður á
Helgusöndum undir Eyjafjöllum
Eyvör Sveinsdóttir
húsfreyja á Seyðisfi rði
Bjarni Bjarnason
verkamaður á Seyðisfi rði
Rannveig Jónsdóttir
húsfreyja á Prestbakka
og í Þykkvabæ
Bjarni Bjarnason
bóndi á Prestbakka og í Þykkvabæ í Landbroti
Úr frændgarði Hjartar Emilssonar
Emil Júlíus Bjarnason
sjómaður á Seyðisfi rði
„„Það hjálpar allt,“ sagði karlinn,“
kvað Friðrik Steingrímsson:
Flóttamanna vandi vex
víða fer úr böndum,
ættleitt gætu eina sex
í Árneshrepp á Ströndum.
Ingólfur Ómar gaukaði að mér
þessari vísu þar sem nú eru réttir
víða hafnar um land allt - „Rétt-
arstemning“:
Dreypa þétt á dreggjum enn
drykkjar rétta föngin,
Kátir glettast gangnamenn
glatt við léttan sönginn.
Jón Atli Játvarðarson skrifar á
Boðnarmjöð: „Ef á að rétta, þá
skulu göngur haldnar fyrst með
viðeigandi stemningu. Veðurspáin
kemur mönnum sjaldnast á óvart ef
þeir treina sér smölun vel inn í
haustið“:
Á gönguskónum er gömul reim
um göturnar fýkur plast.
Nú skal ég rollurnar reka heim
þótt regnið mig berji fast.
Stöðugt í lækjunum vatnið vex
og vaða þarf upp í klof.
Ergelsi magnast við raus og rex
en rýrna vill skjall og lof.
Ég vona að hlíðin haldist auð,
þó helst ekki fyrir séð.
Legg því á herðar mér latan sauð
og líklegar kvíslar veð.
Undanfarið hafa verið haustrign-
ingar, en það getur líka verið fal-
legt eða eins og Guðmundur á
Sandi segir í „Haustfegurð“:
Glansar hlíð í gulum kjól,
glit er á himin-tjöldum.
Það er eins og sumarsól
sitji nú að völdum.
Og í ljóðinu „Haust“ yrkir Guð-
mundur:
Stráir út um lög og land
laufi vetrar fylgja.
Hvelfist yfir sjávarsand
svaðil-rödduð bylgja. –
Sóley stundar sinnar beið
sátt við jökulfrúna. –
Ég fer bráðum líka leið,
leggst til náða og fúna. –
Allt mitt ráð er æði-sleipt,
undan fæti hallar;
enga hef ég ábyrgð keypt,
á mig sinan kallar.
Gamall húsgangur í lokin:
Þrír eru hlutir, það ég veit,
sem þýða gleðja rekka:
kona feit og kaka heit
og kaldar áfir að drekka.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Réttarstemning
og haustfegurð
„LISTAMAÐURINN VAKTI FYRST ATHYGLI
OKKAR ÞEGAR HANN HENTI ÞESSU
VERKI Í GEGNUM RÚÐU Á GALLERÍINU.”
„ÉG HEYRI ENGAN SÖNG FRÁ
KOTBÆNDUNUM. VIRKJAÐU
VIÐBRAGÐSÁÆTLUNINA.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að finnast samt vera
vor.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
OOOOOOOOG …
BÍDDU HÆGUR … SPENNAN Í HÁMARKI
DJÖ!
TÖPUÐUM
AFTUR FYRIR
ÍTÖLUNUM!
MENNIRNIR
FENGU BARA
HNÚT Í MAGANN Í
MORGUN!
DÆS … OG
HVAÐ MÁ LÆRA
AF ÞVÍ?
VIÐ ÆTTUM KANNSKI AÐ
SLEPPA SPAGETTÍINU OG
KJÖTBOLLUNUM KVÖLDIÐ ÁÐUR?
VOFF!