Morgunblaðið - 15.09.2020, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 2020
Óttar Magnús Karlsson, sókn-
armaður knattspyrnuliðs Víkings í
Reykjavík, gæti verið á leið til Fen-
eyja á Ítalíu en eins og fram hefur
komið staðfesti Arnar Gunn-
laugsson þjálfari Víkings að tilboð
hefðu borist í hann.
Fótbolti.net skýrir frá því að
samkvæmt heimildum vilji B-
deildarlið Venezia, sem gengur
undir nafninu Feneyjar á íslensku,
fá hann í sínar raðir. Venezia samdi
fyrir skömmu við annan íslenskan
leikmann en Bjarki Steinn Bjarka-
son frá ÍA. sport@mbl.is
Á leið til sama
liðs og Bjarki
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Feneyjar Tilboð hefur verið gert í
Óttar Magnús Karlsson.
Rúnar Alex Rúnarsson, leikmaður
íslenska karlalandsliðsins í knatt-
spyrnu og Dijon í frönsku 1. deild-
inni, fór í læknisskoðun hjá enska
úrvalsdeildarfélaginu Arsenal í
gær samkvæmt vefmiðlinum 433.is.
Rúnar mun svo ganga til liðs við
enska félagið ef allt gengur að ósk-
um en Emiliano Martinez er á för-
um frá Arsenal til Aston Villa fyrir
20 milljónir punda.
Rúnar Alex er 25 ára gamall og
hefur leikið með KR, Nordsjælland
og Dijon þar sem hann gerði fjög-
urra ára samning árið 2018.
Rúnar Alex á
leið til Arsenal?
Morgunblaðið/Eggert
London Rúnar Alex gæti verið á
leið til Lundúnafélagsins Arsenal.
14. UMFERÐ
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Selfyssingar hrukku í gang á ný og
unnu 5:0-stórsigur á KR í Frosta-
skjólinu á laugardaginn í 14. umferð
Pepsí Max-deildar kvenna í knatt-
spyrnu. Blaðið varpar kastljósinu á
Hólmfríði Magnúsdóttur eftir um-
ferðina en hún fékk MM í einkunna-
gjöf blaðsins fyrir frammistöðuna.
Hólmfríður haltraði af velli síðasta
miðvikudagskvöld vegna ökkla-
meiðsla en ökklinn var teipaður kirfi-
lega og Hólmfríður átti stórleik gegn
KR. Átti þátt í öllum fimm mörkum
liðsins.
„Miðað við sársaukann sem ég fann
þegar ég fór út af á móti Val bjóst ég
alveg eins við því að ég yrði frá í
nokkrar vikur. Eigum við ekki bara að
segja að ég sé með vel teygjanleg lið-
bönd í ökklanum og sé fljót að ná
mér,“ segir Hólmfríður og hlær þegar
Morgunblaðið spyr hvort ekki hafi
staðið tæpt að hún gæti yfirleitt spilað
á móti KR. Á KR-vellinum þekkir
Hólmfríður hverja þúfu og hvern hól
(ef Magnús Böðvarsson vallarstjóri
leyfir manni að nota það orðatiltæki
um völlinn) því Hólmfríður skoraði 96
mörk fyrir KR í efstu deild. „Já, auð-
vitað. Mér finnst alltaf gaman að spila
á KR-vellinum enda gerði ég það í
mörg ár. Leikurinn var mjög
skemmtilegur og gott fyrir liðið að
fara inn í landsleikjahlé með sigur og
eftir að hafa skorað fimm mörk.“
Selfoss tapaði heimaleikjum gegn
Stjörnunni og Val áður en kom að
leiknum á móti KR. Hvað gerði það að
verkum að liðið small saman á laug-
ardaginn og vann 5:0 eftir tvo tap-
leiki? „Þessi leikur var eiginlega upp á
líf og dauða í deildinni. Ég sagði stelp-
unum að við þyrftum á sigri að halda.
Eftir þvílíka leikjatörn þar sem við
spiluðum fimm leiki á fjórtán dögum
vissum við að það kæmi gott frí eftir
þennan leik. Við gáfum allt í þetta, átt-
um fínan leik og gerðum þetta í sam-
einingu. Þegar út í leikinn var komið
fannst mér við vera í betra líkamlegu
standi en KR-ingarnir.“
Verða betri með tímanum
Lið Selfyssinga er mjög gott á góð-
um degi. Það hefur liðið sýnt af og til.
Sigrar gegn Breiðabliki í deildinni og
Val í bikarnum undirstrika það. Liðið
hefur hins vegar ekki verið stöðugt í
leik sínum í sumar og Hólmfríður
bendir á að miklar breytingar hafi
orðið á liðinu á milli tímabila og slíkt
geti tekið tíma.
„Já, stöðugleikann hefur vantað í
okkar lið. Við erum með fimm til sex
nýja leikmenn í byrjunarliðinu og ég
vissi að við þyrftum tíma til að spila
saman. Það þarf alltaf góðan tíma til
að ná svipuðum stöðugleika og
Breiðablik og Valur sýna. Þau eru
stöðug og það vantar hjá okkur. Það
mun koma með tímanum. Við höldum
áfram að safna stigum og munum
ljúka deildinni á eins góðan hátt og við
getum. Eftir það bíður okkar svo því-
líkur leikur 1. nóvember þegar við
spilum á móti Breiðabliki í undan-
úrslitum bikarsins. Það er alltaf
skemmtilegt að spila stóra leiki og við
vitum hvað þarf til að komast áfram í
bikarnum.“
Lítill áhugi á því að hvíla
Nú verður gert hlé á deildinni á
meðan landsliðið spilar og það verður
kærkomið fyrir leikmenn í deildinni.
„Þetta hefur verið erfiður tími fyrir öll
lið og leikmenn eru með hugann við
það hversu þétt dagskráin er. Auðvit-
að vill maður spila leiki en dagskráin
hefur verið óvenju þétt undanfarið.
Það sem skiptir mestu máli er að hvíl-
ast vel og nærast vel á milli leikja,“
bendir Hólmfríður á. Þegar undirrit-
aður færir í tal að þjálfararnir þurfi að
vera klókir í því að dreifa álaginu seg-
ir Hólmfríður það vera alveg skýrt að
hún vilji spila alla leiki. Alfreð Jó-
hannsson, þjálfari Selfoss, hefur feng-
ið þau skilaboð.
„Leikmenn kunna að hugsa um sig
og vilja spila alla leiki. Ef ég tala fyrir
sjálfa mig þá vil ég ekki vera hvíld
nema eitthvað sé að. Alfreð sagði fyrir
þessa fimm leikja törn að ég gæti ekki
spilað alla fimm leikina. Ég sagði að
það væri í hausnum á honum en ég
væri búin að stilla mig inn á að spila
fimm leiki á fjórtán dögum. Þrátt fyrir
aldurinn,“ segir Hólmfríður og hlær
en hún verður 36 ára á sunnudaginn
og árin í meistaraflokki eru orðin ansi
mörg.
Liðböndin í ökklanum
eru vel teygjanleg
Hólmfríður átti þátt í öllum mörkunum í stórsigri Selfoss gegn KR
Morgunblaðið/Íris
Skallaeinvígi Hólmfríður Magnúsdóttir stekkur hæst í vítateig KR á laugardaginn.
Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðsnýliðinn úr Breiðabliki, jók enn forystu
sína í M-einkunnagjöf Morgunblaðsins í 14. umferðinni sem var leikin á
sunnudaginn. Eins og fram kom í blaðinu í gær fékk hún þrjú M fyrir
frammistöðu sína í sigri Breiðabliks á Þór/KA. Hún er að sjálfsögðu í liði
umferðarinnar og er valin í það í sjöunda sinn.
Sveindís er komin með samtals 19 M í 13 leikjum Breiðabliks. Samherji
hennar Agla María Albertsdóttir fékk tvö M og er með 15 M í öðru sæti.
Síðan koma Hlín Eiríksdóttir og Elín Metta Jensen úr Val með 12 M hvor
og þær Berglind Rós Ágústsdóttir úr Fylki og Laura Hughes úr Þrótti með
11 M hvor.
14. umferð
í Pepsi Max-deild kvenna 2020
3-4-3 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
2
Sandra Sigurðardóttir
Val
Karlina Miksone
ÍBV
Hlín Eiríksdóttir
Val
Magdalena Anna
Reimus
Selfossi
Agla María
Albertsdóttir
Breiðabliki
Andrea Mist
Pálsdóttir
FH
Sveindís Jane
Jónsdóttir
Breiðabliki
Andrea Rut
Bjarnadóttir
Þrótti
Kristín Dís Árnadóttir
Breiðabliki
Hólmfríður Magnúsdóttir
Selfossi
Anna María
Friðgeirsdóttir
Selfossi
5 2
7
2
2
3
2
4 3
3
Fékk 3 M og jók forskotið
Pepsi Max-deild karla
Grótta – Fjölnir ........................................ 2:2
Staðan:
Valur 13 10 1 2 30:12 31
Stjarnan 12 6 6 0 20:10 24
Breiðablik 13 7 2 4 29:21 23
FH 12 7 2 3 25:17 23
Fylkir 14 7 1 6 21:20 22
KR 12 6 2 4 23:17 20
HK 14 5 2 7 24:30 17
Víkingur R. 12 3 5 4 19:20 14
ÍA 13 4 2 7 29:32 14
KA 13 2 8 3 11:14 14
Grótta 14 1 4 9 12:29 7
Fjölnir 14 0 5 9 13:34 5
Markahæstir:
Steven Lennon, FH................................... 13
Thomas Mikkelsen, Breiðabliki ............... 12
Patrick Pedersen, Val ................................. 9
Óttar Magnús Karlsson, Víkingi................ 9
Valdimar Þór Ingimundarson, Fylki......... 8
England
Sheffield United – Wolves ....................... 0:2
Brighton – Chelsea................................... 1:3
Svíþjóð
Kalmar – Norrköping ............................. 0:2
Ísak B. Jóhannesson lék allan leikinn
með Norrköping og skoraði.
Häcken – Sirius........................................ 1:1
Oskar Tor Sverrisson var ónotaður vara-
maður hjá Häcken.
Staðan:
Malmö 20 11 7 2 38:20 40
Häcken 19 9 7 3 32:18 34
Elfsborg 19 8 9 2 31:25 33
Norrköping 20 9 5 6 42:30 32
Djurgården 19 9 4 6 29:21 31
Sirius 19 7 8 4 33:30 29
Hammarby 20 7 8 5 30:28 29
Varberg 19 7 5 7 30:28 26
Östersund 20 6 8 6 19:21 26
Mjällby 19 6 6 7 27:30 24
Örebro 20 6 6 8 23:28 24
Gautaborg 20 3 11 6 24:32 20
AIK 19 4 6 9 16:25 18
Helsingborg 20 3 9 8 21:33 18
Kalmar 20 3 6 11 22:35 15
Falkenberg 19 2 7 10 20:33 13
Danmörk
AGF – Vejle .............................................. 4:2
Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 83.
mínúturnar með AGF og skoraði.
Kjartan Henry Finnbogason kom inn á
sem varamaður hjá Vejle á 69. mínútu.
Holland
B-deild:
Jong Ajax – Jong PSV............................. 1:2
Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á
sem varamaður hjá Jong PSV á 59. mínútu.
Tyrkland
B-deild:
Akhisarspor – Tuzlaspor........................ 0:0
Theódór Elmar Bjarnason lék fyrstu 87.
mínúturnar með Akhisarspor.
Ísak Bergmann
Jóhannesson var
á skotskónum
fyrir Norrköping
þegar liðið heim-
sótti Kalmar í
sænsku úrvals-
deildinni í knatt-
spyrnu í gær.
Ísak kom Norr-
köping yfir með
skalla af stuttu
færi á 28. mínútu áður en Chri-
stoffer Nyman tvöfaldaði forystu
Norrköping á 38. mínútu og þar við
sat. Ísak var í byrjunarliði Norr-
köping og lét allan leikinn en liðið
er í fjórða sæti deildarinnar með 32
stig eftir tuttugu leiki, 8 stigum
minna en topplið Malmö. Þá var
Oskar Sverrisson ónotaður vara-
maður hjá Häcken sem gerði 1:1-
jafntefli gegn Sirius.
Skagamaður-
inn skoraði
Ísak Bergmann
Jóhannesson
KNATTSPYRNA
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Vodafonevöllur: Völsungur – ÍA ......... 16.30
Ásvellir: Haukar – Afturelding ........... 19.15
2. deild kvenna:
Grindavíkurvöllur: Grindavík – HK ........ 17
1. deild karla, Lengjudeildin:
Hásteinsvöllur: ÍBV – Leiknir F......... 16.30
Olísvöllur: Vestri – Magni.................... 16.30
3. deild karla:
Sindravellir: Sindri – Höttur/Huginn. 16.30
Bessastaðav.: Álftanes – Vængir J. ......... 17
Þorlákshafnarv.: Ægir – Reynir S........... 17
Sauðárkróksv.: Tindastóll – Einherji ...... 18
KR-völlur: KV – Augnablik ...................... 20
Fylkisvöllur: Elliði – KFG........................ 20
Í KVÖLD!