Morgunblaðið - 15.09.2020, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 2020
Eftir að ég eignaðist mitt
fyrsta barn hef ég verið óvenju-
mikið utan við mig, og í raun al-
veg frá því hann fæddist. Nokk-
uð sem er mér ekki beint
eðlislægt enda verið með mín
mál nokkurn veginn á hreinu
undanfarna áratugi.
Ég hef verið að gleyma hlutum
sem eiga nokkurn veginn að vera
sjálfsagðir. Ég fór til að mynda í
bústaðarferð með fjölskyldunni í
janúar á þessu ári og gleymdi
sængum og koddum fyrir okkur.
Í maí fór ég svo í fjögurra daga
skíðaferð til Siglufjarðar og þeg-
ar kom að því að keyra í bæinn
tókst mér að gleyma töskunni
með öllu dótinu mínu.
Í matarboði um daginn
gleymdi ég því svo að sambýlis-
kona mín hatar hnetur. Hún hef-
ur sagt mér það tvisvar, svona
svo það komi sérstaklega fram,
en ég asnaðist til þess að kaupa
hnetutopp í eftirrétt. Ég fékk
minn skammt af svívirðingum
fyrir þessi kaup og ég held að ég
muni ekki gleyma því í bráð að
hnetur eru ekki ofarlega á óska-
lista sambýliskonunnar.
Maður þarf að fá að gera sín
mistök, annars lærir maður aldr-
ei. Ég mun til dæmis aldrei
gleyma því hvað EMBARGO þýðir
eftir að stjórnarmaður í körfu-
knattleiksdeild Vals sendi mér
einn svakalegasta hárblásara
sem ég hef fengið á ævinni.
Blásarann fékk ég í gegnum sím-
ann fyrir að setja fréttatilkynn-
ingu Valsmanna um ráðningu á
þjálfaranum Finni Frey Stef-
ánssyni inn á mbl.is nokkrum
klukkutímum áður en hún átti að
birtast.
Eftir þessa uppákomu er ég
reglulega kallaður Bjarni
EMBARGO af reyndustu starfs-
mönnum Morgunblaðsins, sem
er svo sem fín áminning, ég veit
alla vega hvað orðið þýðir í dag.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
FÓTBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Grótta og Fjölnir, slökustu lið úr-
valsdeildar karla í knattspyrnu,
skiptu með sér stigunum þegar liðin
mættust á Vivaldi-vellinum á Sel-
tjarnarnesi í gær.
Leiknum lauk með 2:2-jafntefli en
Daninn Tobias Sommer bjargaði
stigi fyrir Gróttumenn með skalla-
marki á 86. mínútu í sínum fyrsta
leik fyrir félagið.
Fjölnismenn komust tvívegis yfir í
leiknum en liðið fékk á sig tvö ódýr
mörk eftir hornspyrnur og tókst þar
af leiðandi ekki að landa sínum
fyrsta sigri í deildinni í sumar.
Jafntefli gerir afskaplega lítið
fyrir bæði lið sem hafa verið föst í
neðstu sætum deildarinnar í allt
sumar.
„Staðreyndin er einfaldlega sú að
hvorugt liðið er nægilega gott til að
halda sér uppi. Leikmannahóparnir
eru ekki nægilega sterkir og örfáir
leikmenn beggja liða sem kæmust í
önnur lið í efstu deild.
Fjölnir missti þrjá bestu leik-
mennina sína fyrir mót og Grótta
missti Óskar Hrafn þjálfarann sinn
til Breiðabliks.
Eftir að liðin misstu þessa mik-
ilvægu hlekki virðist verkefnið nán-
ast ómögulegt og geta þau farið að
undirbúa sig að kveðja deild þeirra
bestu,“ skrifaði Jóhann Ingi Haf-
þórsson m.a. í umfjöllun sinni um
leikinn á mbl.is.
Daninn Nicklas Halse spilaði
sinn fyrsta leik fyrir Fjölni eftir að
hafa komið til félagsins á lokadegi
félagaskiptagluggans.
Botnliðin geta farið að kveðja
Jafntefli á Seltjarnarnesi jók enn frekar á vandræði Fjölnis og Gróttu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skalli Pétur Theódór Árnason (t.v.) og Hans Viktor Guðmundsson (t.h.)
eigast við á Vivaldi-vellinum á Seltjarnarnesinu í gærkvöldi.
Hólmbert Aron Friðjónsson fór
meiddur af velli snemma leiks þeg-
ar Aalesund tók á móti Sarpsborg í
norsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í fyrradag. Eftir leik var
óttast að Hólmbert hefði jafnvel
ökklabrotnað en læknir liðsins stað-
festi við VG í gærmorgun að
myndatökur hefðu leitt í ljós að
meiðslin væru ekki alvarleg.Hólm-
bert hefur verið sterklega orðaður
við brottför frá Aalesund að und-
anförnu en allt bendir til þess að
hann sé á leið til ítalska B-
deildarfélagsins Brescia.
Framherjinn ekki
alvarlega meiddur
Ljósmynd/Aalesund
Framherji Hólmbert Aron gæti leik-
ið á Ítalíu á næstu leiktíð.
Knattspyrnukappinn Valdimar Þór
Ingimundarson hélt til Noregs í
gærmorgun en hann er á leið til
norska úrvalsdeildarfélagsins
Strømsgodset frá uppeldisfélagi
sínu Fylki.
Valdimar mun gangast undir
læknisskoðun hjá norska félaginu
og ef allt gengur eftir skrifa undir
samning við félagið á næstu dögum.
Fylkismenn tilkynntu í síðustu
viku að félagið hefði samþykkt til-
boð norska félagsins í Valdimar
Þór en hann er 21 árs gamall og
hefur skorað 8 mörk í sumar.
Fylkismenn sjá á
eftir lykilmanni
Morgunblaðið/Eggert
Noregur Valdimar er kominn til
Noregs og er á leið í læknisskoðun.
GRÓTTA – FJÖLNIR 2:2
0:1 Orri Þórhallsson 21.
1:1 Pétur Theódór Árnason 64.
1:2 Jóhann Árni Gunnarsson (víti) 66.
2:2 Tobias Sommer 86.
M
Pétur Theódór Árnason (Gróttu)
Kristófer Orri Pétursson (Gróttu)
Óskar Jónsson (Gróttu)
Ástbjörn Þórðarson (Gróttu)
Arnór Breki Ásþórsson (Fjölni)
Jón Gísli Ström (Fjölni)
Orri Þóhallsson (Fjölni)
Jóhann Árni Gunnarsson (Fjölni)
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastar-
son – 7.
Áhorfendur: Á að giska 300.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl
og grein um leikinn – sjá mbl.is/
sport/fotbolti.
Kvennalandsliðið í knattspyrnu
kom saman í gær í fyrsta skipti í
liðlega hálft ár. Liðið æfði þá á
Laugardalsvelli og hófst þar með
undirbúningurinn fyrir leikinn
gegn Lettlandi fyrir alvöru.
Ísland tekur á móti Lettlandi á
Laugardalsvellinum á fimmtudags-
kvöldið en leikurinn er liður í und-
ankeppni EM. Liðin eru í F-riðli og
hefur Ísland unnið fyrstu þrjá leiki
sína en Lettland hefur tapað
fyrstu fjórum. Þessar þjóðir mætt-
ust í fyrri leik liðanna í keppninni í
október í fyrra og þá vann Ísland
6:0-stórsigur.
Íslenska landsliðið lék síðast hér
heima fyrir rúmu ári. Þá vann lið-
ið heimaleiki gegn Ungverjalandi
og Slóvakíu 29. ágúst og 2. sept-
ember þegar undankeppnin fór af
stað. Fram undan er einnig leikur
gegn Svíum en hann verður í
Laugardalnum á þriðjudags-
kvöldið.
Ísland og Svíþjóð hafa unnið alla
sína leiki og ljóst að baráttan um
að vinna riðilinn og komast beint í
lokakeppni EM stendur á milli
þessara liða. Ísland freistar þess
að komast í lokakeppni EM í fjórða
skiptið í röð. Ísland komst á EM
2009 og 2013 eftir umspil en Ísland
komst beint inn á EM 2017 með því
að vinna sinn riðil. Til stóð að
lokakeppnin færi fram næsta sum-
ar en hefur verið frestað um eitt
ár og verður því sumarið 2022.
Englendingar verða gestgjafar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landsliðsæfing Fyrirliðinn Sara Björk heldur á lofti í gær. Þjálfarinn Jón Þór Hauksson brosir sínu breiðasta.
Landsliðið kom saman í gær
Þjóðverjarnir Timo Werner og Kai
Havertz léku sína fyrstu deild-
arleiki með Chelsea þegar liðið
vann góðan 3:1-útisigur gegn
Brighton í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu á Falmer-vellinum í
Brighton í gær.
Werner, sem gekk til liðs við
enska félagið frá RB Leipzig í sum-
ar fyrir tæplega 48 milljónir punda,
byrjaði í fremstu víglínu og lék all-
an leikinn fyrir Chelsea.
Framherjinn komst vel frá sínu
og fiskaði vítaspyrnuna sem Jorg-
inho skoraði úr og kom Chelsea yfir
í leiknum á 23. mínútu.
Havertz var einnig í byrjunarliði
Chelsea en hann kom í sumar frá
Bayer Leverkusen fyrir rúmlega 75
milljónir punda.
Havertz lék á hægri kantinum í
gær og sýndi lipra spretti.
Chelsea fór mikinn á leik-
mannamarkaðnum í sumar, eyddi
yfir 200 milljónum punda og fékk til
sín sex nýja leikmenn.
Félagið ætlar sér að berjast um
Englandsmeistaratitilinn við Liver-
pool og Manchester City en það mun
þó taka liðið tíma að stilla saman
strengi sína.
Varnarleikur liðsins virkaði óör-
uggur á stórum köflum í gær en
stóra spurningin er hvort tilkoma
þeirra Malang Sarr, Thiago Silva og
Ben Chilwell geti gert gæfumuninn.
Chelsea hefur nú fengið 2.000
stig í ensku úrvalsdeildinni frá
stofnun hennar árið 1992 en aðeins
Manchester United (2.234 stig) og
Arsenal (2.014 stig) hafa fengið
fleiri stig í deildinni. bjarnih@mbl.is
Nýju mennirnir litu
vel út hjá Chelsea
AFP
Snöggur Timo Werner skilaði sínu
og var afar duglegur fram á við.