Morgunblaðið - 15.09.2020, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
Magnaður nýr spennuþriller
með Russell Crowe í aðalhlutverki.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
AÐRAR MYNDIR Í
SÝNINGU:
* Harry Potter
* Tröll 2 (ísl. tal)
* Hvolpasveitin (ísl. tal)
* The Secret :
Dare to dream
FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS
Nýjasta Meistaraverk
Christopher Nolan
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Frábær ný teiknimynd fyrir
alla fjölskylduna.★★★★★
★★★★★
★★★★★
The Guardian
The Times
The Telegraph
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Íslenski myndlistarmaðurinn Reinar
Foreman er í góðum hópi listamanna,
bæði ungra og reynslumikilla, sem
eiga verk á opnunarsýningu metn-
aðarfulls nýs sýningarsalar sem var
opnaður í Berlín í liðinni viku en gall-
eríið nefnist ForA - Contemporary
Art Platform. Í texta sem fylgdi sýn-
ingunni úr höfn segir að á hana hafi
verið valdir ólíkir listmálarar þar sem
valið endurspegli í senn fjölbreyti-
leika og fegurð. Sýnd voru verk eftir
18 listamenn, þar á meðal þungavigt-
armenn á borð við Martin Kippen-
berger, Georg Dokoupil og Donald
Baechler. Reinar var við opnun sýn-
ingarinnar og situr nú í sóttkví heima
hjá sér.
„Ég er annars nýfluttur heim,“
segir Reinar þegar slegið er á þráð-
inn til hans. Hann segir að þau eig-
inkonan, Jenný Lárentsínusdóttir,
hafi flutt heim frá Brüssel hvar þau
hafi verið búsett síðustu þrjú árin og
hann verið með vinnustofu. „Það var
bara öruggara í stöðunni,“ bætir
hann við.
En hann ákvað að skella sér á opn-
unina í Berlín, annað hafi ekki verið
hægt. En hvernig kom til að Reinar,
þessi 27 ára gamli listamaður, átti
verk á þessari sýningu?
„ForA er nýtt gallerí og vildu eig-
endurnir vera með grand opnun sem
sýndi hvað þau hafa góð sambönd.
Þau völdu að sýna verk eftir eldri,
virta listamenn og líka eftir nokkra
yngri, til að sýna að þau fylgist vel
með. Þau hringdu í mig og spurðu
hvort ég vildi vera með. Mér þótti það
auðvitað skemmtilegt – en það var
líka stressandi því ég þurfti að mála
ný verk fyrir sýninguna án þess að ég
hefði til þess aðstöðu þar sem ég var
nýfluttur heim.“
Það eru því nýjustu myndir Rein-
ars sem sýndar eru í Berlín, tvö mál-
verk sem hann segir í „millistærð“.
Gaman á opnuninni
Listamannahópurinn á fyrstu sýn-
ingu ForA sýnir að eigendur virðast
stórhuga og Reinar staðfestir að svo
sé.
„Eigandinn er rússnesk kona, einn
listamaðurinn sem á verk á sýning-
unni er maðurinn hennar. Hún hefur
áður rekið gallerí í Berlín og vildi fara
aftur í listabransann.“ Opnunin í síð-
ustu viku var liður í eins konar gall-
eríhelgi í Berlín, með fjölda sýninga.
„Og það var mjög gaman þrátt fyrir
stífar fjöldatakmarkanir í öllum söl-
um og grímuskyldu. Fólk var greini-
lega spennt fyrir að mæta á sýn-
inguna og skoða verkin, sem var
gaman.“
Málaði verkin á 40 dögum
Undanfarin ár, meðan hann hefur
verið búsettur í Brüssel, hefur Reinar
verið að geta sér nafn í evrópsku
myndlistarlífi. Hann hefur til að
mynda áður sýnt í Berlín.
„Snemma í fyrrasumar var ég með
sólósýningu í Seven star-galleríinu
þar og svo var ég með sólósýningu í
galleríi í Moskvu í vetur,“ segir hann.
Blaðamaður hafði einmitt tekið eftir
því á netinu, að sýning Reinars var
opnuð þar í marsbyrjun, rétt áður en
kórónuveirufaraldurinn skall á.
„Það kom þannig til að rússnesk
kona sem kom á sýninguna mína í
Berlín fyrir tveimur árum var svo
ánægð með hana að galleríið hennar
bauð mér í helgarferð til Moskvu, að
skoða galleríið og vita hvort ég vildi
sýna þar. Þetta er afskaplega gjaf-
milt og gott fólk. Við sömdum um að
ég myndi sýna og þau vildu hafa opn-
unina á fjölsóttri sýningahelgi og fyr-
ir vikið fékk ég í raun minni fyrirvara
til að vinna verkin en ég hefði kosið.
Ég held ég hafi haft svona 40 daga til
að mála alla sýninguna – sem var
pínu stressandi,“ segir hann og hlær.
Reinar málaði verkin í Brüssel og
flaug svo með þau til Moskvu.
Ekki sýningar hér heima
Reinar segir að hann hafi náð að
vera í Moskvu við opnun sýning-
arinnar ásamt afa sínum helgina áður
en veirufaraldurinn lokaði öllu. Þeir
hafi rétt sloppið heim áður en reglur
um sóttkví voru settar á. Þegar slak-
að var á reglum í Moskvu í sumar var
sýningin opnuð að nýju. Moskvu-
ævintýrum Reinars er þó ekki lokið
því galleríið valdi að sýna verk eftir
Reinar á sýningarsvæði sínu á mynd-
listarkaupstefnunni í Moskvu í nóv-
ember. Skiljanlega segist hann vera
ánægður með það góða boð.
En stendur ekkert til að sýna á Ís-
landi?
„Ég væri alveg til í það,“ svarar
hann. „Ég hef ekki hingað til ekki
fundið fyrir neinum áhuga frá ís-
lenskum galleríum.“
Reinar segist ekki hafa hlotið
myndlistarmenntun en hafi farið að
taka það alvarlega að mála fyrir um
fimm árum, þegar hann var 22 ára.
Einu eða tveimur árum seinna helg-
aði hann sig listinni alfarið.
Þegar Reinar er spurður þeirrar
erfiðu spurningar hvernig hann lýsi
verkum sínum, hikar hann skilj-
anlega. „Með hverri sýningu hjá mér
hefur orðið ákveðin breyting á verk-
unum. Ég hef varað galleríin við því
að búast ekki við því að verkin verði
eins og á síðustu sýningu. En ég hef
lagt mikla áherslu á hreyfingu,
myndinar eru oft órólegar og ég vinn
þær hratt. Ég geri ekki skissur, nota
ekki varpa eða slíkt, og í raun er ég
sífellt að gera tilraunir og að sjá hvað
virkar. Ég mála mikið og hika ekki
við að eyðileggja myndir eða mála yf-
ir. Þetta er látlaust ferli enda fór ég
ekki í formlegt nám og er því oft að
brenna mig á hinu og þessu og læri af
reynslunni.
Nú er ég í fyrsta skipti að gera til-
raunir með landslag, nokkuð sem ég
hef aldrei gert áður. Á fyrri sýning-
unni í Berlín var ég líka mikið að vísa
í ljósmyndir og bíómyndir, og þá ým-
islegt sem er að gerast kringum bíó-
myndirnar.“
Þegar spurt er hvort það hafi verið
einhverskonar köllun sem olli því að
Reinar hellti sér út í myndlist, þá ját-
ar hann því. Foreldrar hans hafi leng-
ið haldið því fram að hann ætti að
sinna myndlist. „Ég var svo að steikja
hamborgara á veitingastað niðri í bæ
og var búinn að fá alveg nóg af því
þegar Jenný sagði að ég yrði bara að
fá mér eitthvað annað að gera. Ég
málaði mynd af henni, úr Suður-
Ameríkureisunni okkar og einhver
keypti myndina. Fyrir peningana
keypti ég meiri striga og málaði fleiri
verk sem seldust líka. Þá setti ég upp
sýningu sjálfur í atvinnuhúsnæði
niðri í bæ. Jenný sagði að ef mér tæk-
ist að selja helming verkanna þá gæti
ég hætt að vinna og farið bara að
mála. Og það tókst – síðan hef ég
bara málað,“ segir Reinar.
„Síðan hef ég bara málað“
Íslenski myndlistarmaðurinn Reinar Foreman á verk á sýningu sem hefur vakið athygli í Berlín
Var með einkasýningu í Moskvu þegar veirufaraldurinn skall á Fór úr hamborgurum í að mála
Listamaðurinn Reinar er fluttur aft-
ur heim frá Brüssel og sýnir næst á
myndlistarkaupstefnunni í Moskvu.
First contact Annað málverkanna sem Reinar á á sýningunni í ForA-
galleríinu í Berlín, sem var opnuð í liðinni viku.