Morgunblaðið - 15.09.2020, Side 32
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Söluskálinn Landvegamótum
skammt frá Hellu á Rangárvöllum
er einn af hornsteinunum við hring-
veginn. Hjónin Pálína S. Kristins-
dóttir og Bergur Sveinbjörnsson
keyptu gamla skálann, þegar Kaup-
félagið Þór á Hellu hætti að vera þar
með útibú fyrir rúmlega 33 árum,
breyttu fyrirkomulaginu og rýmri
afgreiðslutími ásamt meira vöruúr-
vali og þjónustu hefur skilað sér.
„Þó ég sé orðin áttræð erum við
ekkert að hætta, að minnsta kosti
ekki á meðan heilsan er góð,“ segir
Pálína, en rekstur þeirra hefur stað-
ið frá 1. júlí 1987.
Hjónin eiga sjö börn og þegar það
yngsta var á 12. ári hafði Pálína
skemmt liðamót í úlnlið, hafði beitt
sér rangt við sníðavinnu og varð að
hætta að starfa á saumastofu á Hellu
samkvæmt læknisráði. „Ég vildi
halda áfram að vinna úti og mað-
urinn minn ákvað að kaupa skálann,
sagði að ég gæti örugglega unnið við
verslunarstörf, þó ég hefði aldrei
gert það.“
Gert við á staðnum
Bergur er bifvélavirki og hann
hefur lagt sitt af mörkum á Vega-
mótum, bæði unnið með Pálínu í
versluninni undanfarin 15 ár og veitt
bifreiðaeigendum nauðsynlega þjón-
ustu auk þess sem hann lagði grunn-
inn að nýja skálanum, gömlum leik-
skóla í Reykjavík, sem var settur
niður fjær þjóðveginum eftir að
gamla húsið, sem var byggt 1947, fór
illa í Suðurlandsskjálftanum 2000.
„Margir ökumenn hafa verið heppn-
ir í óheppninni að ökutæki þeirra
hafa bilað hérna,“ segir Pálína og
vísar til viðgerðaþjónustunnar og
varahlutanna sem þau hafa til sölu.
Pálína segir að það hafi tekið við-
skiptavini nokkurn tíma að átta sig á
því að opið væri á kvöldin og um
helgar. „Þó dyrnar hafi verið gal-
opnar kíkti fólk inn og spurði hvort
það væri opið, því það var ekki vant
því, en nú vita það allir og skálinn er
fastur punktur í tilveru margra.“
Boðið er upp á fjölbreytt vöruúr-
val, skyndimat, matvörur, hreinlæt-
isvörur og gjafavörur. „Við erum
líka með nánast allt sem þarf í bíl-
inn,“ bætir Pálína við og leggur
áherslu á að hún kunni vel við starf-
ið. „Það gefur vinnunni mikið gildi
að vera innan um fólk og hitta fólk.
Það heldur mér gangandi og þó ég
sé orðin áttræð er ég nokkuð
spræk.“
Veðrið getur verið slæmt á svæð-
inu á veturna en það hefur ekki kom-
ið svo mikið að sök. Hjónin búa um
sex kílómetra austan við Vegamót
og hafa varla misst úr dag. „Vissu-
lega hefur komið fyrir að erfitt hefur
verið að komast hingað og í óveðrinu
í byrjun apríl fyrr á árinu fórum við
ekkert hingað en annars hefur þetta
gengið frekar áfallalaust,“ segir Pál-
ína. „Björgunarsveitin hefur reynd-
ar einu sinni þurft að keyra okkur
heim.“
Sigríður, dóttir hjónanna, tekur
nú morgunvaktina, en Pálína mætir
eftir hádegið og um helgar. Aukafólk
hefur unnið hjá þeim á sumrin.
Reksturinn hefur gengið vel frá
byrjun. Salan tók mikinn kipp í
stærra og betra húsnæði, en líðandi
ár er undantekning vegna kórónu-
veirufaraldursins. „Það er reyt-
ingur, var gott í júlí, en hefur verið
mjög rólegt að undanförnu,“ segir
Pálína.
Söluskálinn horn-
steinn við hringveginn
Á Vegamótum Sigríður með foreldrunum Pálínu og Bergi í söluskálanum.
Pálína með áttræðan puttann á púlsinum á Vegamótum
Ljósmynd/Ólafur Már Sigurðsson
Áning Söluskálinn á Landvegamótum skammt frá Hellu á Rangárvöllum.
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir arkitektar
sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi sem skapa
notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni klassískrar
hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem er
þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
Flex skrifstofuhúsgögn
Hönnuðir: Guðrún Margrét Ólafsdóttir
og Oddgeir Þórðarson
Dímon
Hönnuður:
Erla Sólveig Óskarsdóttir
Bæjarlind 8-10
201 Kópavogur
sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 259. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Tobias Sommer bjargaði stigi fyrir Gróttu þegar liðið
fékk Fjölni í heimsókn í botnslag úrvalsdeildar karla í
knattspyrnu, Pepsi Max-deildarinnar, á Vivaldi-völlinn á
Seltjarnarnesi í sextándu umferð deildarinnar í gær-
kvöldi. Leiknum lauk með 2:2-jafntefli en Sommer skor-
aði jöfnunarmark Gróttu með skalla eftir hornspyrnu á
86. mínútu. Jafntefli gerir lítið sem ekkert fyrir liðin
sem hafa verið í neðstu sætum deildarinnar í allt sum-
ar. Grótta hefur unnið einn leik í sumar og er með 7 stig
en Fjölnismenn eru án sigurs með 5 stig. »27
Botnliðin Fjölnir og Grótta geta
farið að kveðja deild þeirra bestu
ÍÞRÓTTIR MENNING
Hádegistónleikaröð Íslensku óperunnar, Kúnstpása,
hefur göngu sína í dag kl. 12.15 með tónleikum óp-
erusöngvarans Kristins Sigmundssonar og píanóleik-
arans Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Munu þau
flytja vel þekktar aríur og lög eftir Beethoven, Schu-
bert, Strauss, Jón Ásgeirsson og fleiri í Norðurljósum í
Hörpu. Frítt er inn á tónleikana og allir velkomnir á
meðan húsrúm leyfir en áhorfendur eru beðnir um að
festa sér miða á miðasöluvef Hörpu eða við innganginn
svo hægt sé að hafa yfirsýn yfir fjöldann. Verður fyllsta
öryggis gætt og fjarlægðartakmörk virt.
Kristinn og Anna í Kúnstpásu