Morgunblaðið - 24.09.2020, Side 1

Morgunblaðið - 24.09.2020, Side 1
Morgunblaðið/Stella Andrea Í smíðum Íslandshótel Lækjargötu. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði í tilefni af útgáfu Fjármála- stöðugleika að mikilvægt væri að bankarnir notuðu tækifærið og endurskipulegðu útlán. Spáir Seðlabankinn auknu atvinnuleysi í haust eftir því sem áhrif krepp- unnar magnast. Óumflýjanlegt er að styrkja þurfi ferðaþjónustuna svo hún lifi af faraldur kórónuveirunnar. Þetta segir Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, for- maður Mið- flokksins. Lík- lega sé ekki úr vegi að tala um leiðréttingu, og ferðaþjónustan þurfi leiðrétt- ingu á skuldum. Að öðrum kosti verði fyrirtæki tekin yfir á brunaútsölu. Það hafi verið ljóst frá upphafi að ráð- ast þyrfti í róttækar aðgerðir. Markmið stjórnvalda óljóst Hann segir óljóst hvert mark- mið stjórnvalda er með hertum aðgerðum gegn veirunni. Óvissan sé að aukast, ekki minnka. „Ef markmiðið er að loka landinu fyrir veirunni, þ.e. hafa veirufrítt land, til þess að við getum þá lifað sæmilega eðlilegu lífi innan lands- ins, þá þarf að segja það og gera ráðstafanir í samræmi við það,“ segir Sigmundur í samtali við blaðið í dag. „Þá gætu til dæmis ferðaþjón- ustufyrirtæki gert sínar ráðstaf- anir út frá því og stjórnvöld komið til móts við þau í samræmi við þá stöðu. En eins og þetta hefur þróast seinni part sumars og í haust þá eru menn í viðvarandi óvissu.“ » 10 og 30 Erfiðum vetri fylgir uppstokkun Sigmundur Davíð Gunnlaugsson F I M M T U D A G U R 2 4. S E P T E M B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  224. tölublað  108. árgangur  25% AFSLÁTTUR AF HEILSU- OG LÍFSSTÍLSVÖRU M ALLT AÐHEILSU- OG LÍFSSTÍLSDAGAR 24. SEPTEMBER - 4. OKTÓBER OFURTILBOÐá hverjum degi! Kynntu þér öll frábæru tilboðin í Heilsublaði Nettó! HRIFIN AF KLASSÍSKRI HÖNNUN LITRÍKT HAND- VERK FRÁ MAROKKÓ ÞRJÁR BÆKUR Á METSÖLULISTA Í ÞÝSKALANDI VERSLUN 14 RAGNAR JÓNASSON 51EDDA BJÖRG 42 Andrés Magnússon andres@mbl.is Rísi ný byggð í grennd við Keldur, líkt og gert er ráð fyrir, mun 1. áfangi Borgarlínu sáralitlu breyta um um- ferðarþungann í Ártúnsbrekku. Hún gæti fækkað ferðum um 400 bíla á sól- arhring, en gera má ráð fyrir að þar fari um 110.000 bílar á sólarhring árið 2025 að óbreyttu og umferðartafir verði svipaðar og 2019. Hins vegar myndi 1. áfangi Sundabrautar geta breytt þar töluverðu. Þetta kemur fram í greiningu sem Þórarinn Hjaltason umferðarverk- fræðingur hefur gert. Í greiningunni er stuðst við umferð- arspár sem gerðar hafa verið með um- ferðarlíkani fyrir höfuðborgarsvæðið og þess sérstaklega gætt að vanmeta ekki áhrif Borgarlínu. Miðað var við að 2.000 íbúðir væru fullbyggðar og 5.000 manns flutt inn í þær árið 2025, auk um 10.000 m² atvinnuhúsnæðis. Lauslega áætlað myndi umferðar- sköpun hverfisins nema um 20 þúsund bílum á sólarhring, en um þriðjungur hennar myndi fara um Ártúnsbrekku þar til Sundabrautar nýtur við. Þrátt fyrir að Borgarlínan kæmi fyrr til og ferðatíðni strætó ykist verulega myndi umferðarsköpun hverfisins minnka sáralítið, ef miðað er við nýtingu strætó í hverfum fjarri miðborginni. Jafnvel þótt fyrrverandi bílstjórar væru um 50% nýrra far- þega myndi umferðarsköpun hverfis- ins aðeins minnka um 600 bíla á sólar- hring, þar af um 400 bíla um Ártúnsbrekku. Umferð um hana vegna Keldnahverfis næmi því 6.600 bílum á sólarhring í stað 7.000 án Borgarlínunnar. Áhrif Sundabrautar á umferð um Ártúnsbrekku yrðu hins vegar veru- leg, bæði vegna Keldnahverfis og annarra hverfa, en þá myndi bílum á sólarhring fækka þar um 10 til 15 þús- und, eftir því hvort jarðgöng eða lágbrú yrði fyrir valinu. Borgarlína leysir ekki vanda  Umferðargreining bendir til að Borgarlínan ein minnki umferð um Ártúnsbrekku vegna Keldnahverfis sáralítið  Sundabraut hefði mun meiri áhrif á umferðarþunga Umferðargreining » Miðað við 5.000 manna byggð í Keldum árið 2025. » Án Sundabrautar og Borgar- línu fara um 110.000 bílar um Ártúnsbrekku á sólarhring. » Með Borgarlínu fækkaði um 400 bíla á dag. » Með Sundabraut en án Borgarlínu yrði umferðarmagn í Ártúnsbrekku um 95-100 þúsund bílar á dag. „Þetta er bæði ljótt og drungalegt. Svo er mik- il lykt sem leggur frá húsinu þegar rignir og manni þætti vænt um að þetta yrði tekið niður sem fyrst,“ segir Gréta S. Guðjónsdóttir sem býr nærri húsinu á Bræðraborgarstíg 1 sem varð eldsvoða að bráð í júní með þeim afleið- ingum að þrír létust og tveir slösuðust alvar- lega. Lögreglu hafa borist frumdrög að skýrslu frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun þar sem m.a. kemur fram hvort óleyfisframkvæmdir hafi farið fram í húsinu. Hún verður kynnt á næstu vikum. »4 Morgunblaðið/Eggert Brunarústir við Bræðraborgarstíg nágrönnum til ama

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.