Morgunblaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2020
ALVÖRU
VERKFÆRI
145
EITTRAFHLÖÐUKERFI
YFIR VERKFÆRI
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is
vfs.is
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Eftir um þrjá mánuði er nýtt og fullkomið upp-
sjávarskip væntanlegt til Samherja á Akur-
eyri. Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri
Samherja, segir skipið svara kröfum um mikla
kæligetu og stór lestarrými. Skipið er stórt
sem ekki veitir af í sókn á fjarlægð mið og m.a.
ein þau erfiðustu við kolmunnaveiðar langt
vestur af Írlandi, nánast úti á miðju Atlants-
hafinu að vetri til. Mikil endurnýjun hefur orð-
ið í uppsjávarflota Íslendinga á síðustu árum
og segir Kristján að nýsmíðin sé liður í þeirri
þróun.
Nýr Vilhelm Þorsteinsson leysir eldra skip
með sama nafni af hólmi, sem kom nýtt til
landsins fyrir 20 árum. Það er frystiskip sem
selt var til Rússlands fyrir tveimur árum og er
nú m.a. gert út til síldveiða við Austur-
Rússland. Til að brúa bilið hefur Margrét EA
veitt uppsjávarafla Sam-
herja, en Margrétin var
smíðuð 1996.
Samningar um smíði nýja
skipsins hjá Karstensens-
skipasmíðastöðinni í Skag-
en í Danmörku voru fullfrá-
gengnir 4. september 2018.
Þann dag hefðu tvíbura-
bræðurnir Baldvin og Vil-
helm Þorsteinsssynir orðið
90 ára gamlir. Báðir voru
þeir skipstjórar á skipum frá Akureyri í ára-
tugi. Nafn nýja skipsins er sótt til Vilhelms
föður Kristjáns útgerðarstjóra, en Baldvin er
faðir Þorsteins Más, forstjóra Samherja.
Dregnir frá Póllandi
Upphaflega stóð til að skipið kæmi til lands-
ins um mitt þetta ár, en vegna kórónuveikinnar
og fleiri þátta hefur smíðin tafist. Hjá Karst-
ensens er einnig verið að smíða nýjan Börk
fyrir Síldarvinnsluna í Neskaupstað og er hann
væntanlegur á vormánuðum. Um systurskip er
að ræða og var hönnun skipanna í höndum
Karstensens og útgerða skipanna. Skrokk-
arnir voru smíðaðir í skipasmíðastöð Kar-
stensens í Gdynia í Póllandi, en síðan dregnir
til Skagen þar sem lokið er við smíðina.
Nýr Vilhelm verður búinn til bæði nóta- og
flotvörpuveiða. Skipið verður rúmlega 88
metrar að lengd, 16,6 metrar að breidd og
dýptin 9,6 metrar. Burðargetan verður um
þrjú þúsund tonn af kældum afla og ber því
svipað eða heldur meira en Beitir NK, sem er
burðarmesta skip uppsjávarflotans. Skipið
verður vel búið í alla staði, bæði hvað varðar
vinnuaðstöðu og aðbúnað áhafnar, sem og
veiðar og meðferð á afla.
Alls verða 13 kælitankar í skipinu og segir
Kristján lykilatriði til að tryggja sem mest
gæði hráefnis að kæla aflann hratt niður. Sjór
sé kældur í tönkunum, jafnvel niður fyrir
frostmark, og aflanum síðan dælt í tankana.
Markmiðið sé að hitastigið á fiskinum sé í
kringum núllið þegar honum er dælt í land,
jafnvel eftir langa siglingu af miðunum. Burð-
argetan skipti miklu máli þegar siglt sé 4-5 sól-
arhringa á kolmunnaveiðum á fjarlæg mið og
eins þegar loðna sé veidd í bræðslu. Stærð
skipanna skipti einnig miklu máli þegar siglt
sé með fullfermi í misjöfnum veðrum. Á loðnu,
síld og makríl til manneldis sé kæligetan gífur-
lega mikilvæg, en þá er oft miðað við minni
farm.
Hefur trú á loðnuvertíð
Kristján segist gera sér vonir um að Vilhelm
Þorsteinsson fari til loðnuveiða fljótlega eftir
heimkomuna. Reyndar sé ekki kominn loðnu-
kvóti, en mælingar á loðnunni standa nú yfir.
Gefinn hefur verið út upphafskvóti upp á 170
þúsund tonn, en hann verður endurmetinn að
leiðangri Hafrannsóknastofnunar loknum.
„Ég hef fulla trú á því að það verði loðnu-
vertíð í vetur,“ segir Kristján. „Þrátt fyrir að
engar veiðar hafi verið leyfðar tvo síðustu vet-
ur hefur talsvert verið af loðnu víða við landið
og jafnvel við Færeyjar síðasta vetur. Loðnan
hefur breytt göngumynstri sínu og þörf er á
frekari rannsóknum.“
Kæli- og burðargeta lykilatriði
Nýtt uppsjávarskip Samherja kemur um áramót Stórt skip sem ekki veitir af í sókn á fjarlæg
mið Loðnuveiðar vonandi fyrsta verkefni nýs Vilhelms Þorsteinssonar EA Mikil endurnýjun
Ljósmyndir/Karstensens
Fullkomið skip Nýr Vilhelm Þorsteinsson EA við bryggju í Karstensens-skipasmíðastöðinni í Skagen í Danmörku. Skipið er vel búið í alla staði.
Allt á sinn stað Brúin hífð á Vilhelm í slippn-
um hjá Karstensens í Gdynia í Póllandi.
Kristján
Vilhelmsson
Afurðaverð á markaði
22. sept. 2020, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 452,15
Þorskur, slægður 517,83
Ýsa, óslægð 320,89
Ýsa, slægð 341,25
Ufsi, óslægður 160,36
Ufsi, slægður 172,17
Gullkarfi 290,82
Blálanga, óslægð 270,08
Blálanga, slægð 284,91
Langa, óslægð 250,33
Langa, slægð 209,81
Keila, óslægð 53,02
Keila, slægð 100,90
Steinbítur, óslægður 214,55
Steinbítur, slægður 358,51
Skötuselur, slægður 528,26
Grálúða, slægð 226,79
Skarkoli, óslægður 278,00
Skarkoli, slægður 364,55
Þykkvalúra, slægð 487,76
Langlúra, óslægð 251,00
Sandkoli, slægður 75,00
Bleikja, flök 1.442,86
Gellur 1.141,22
Hlýri, óslægður 319,00
Hlýri, slægður 365,36
Lúða, slægð 297,19
Lýsa, óslægð 79,64
Lýsa, slægð 14,00
Náskata, slægð 54,00
Undirmálsýsa, óslægð 205,93
Undirmálsýsa, slægð 192,00
Undirmálsþorskur, óslægður 261,24
Undirmálsþorskur, slægður 210,01