Morgunblaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 27
Viktorssyni hafi lagt mest af mörk-
um fyrir margt löngu. „Þetta hefur
óneitanlega verið mikil vinna og því
hafa menn gefist upp á þessu, en
þrjóskan í mér hefur ekki látið und-
an!“
Varanlegt rými mikilvægt
Til að byrja með var safnið heima
hjá Erni en þegar ekki var lengur
rými fyrir það þar flutti hann það í
Kaplakrika með aðstoð Bergþórs,
sem útvegaði skápinn góða. Tilurð
úrklippusafnsins hefur ekki verið í
hávegum höfð og fáir hafa kynnt sér
það til hlítar, en höfundar íþrótta-
bóka hafa þó notið góðs af því.
Örn segir að vegna plássleysis sé
skápurinn með úrklippubókunum
núna á ómögulegum stað. Þar séu
þær engum til gagns, því engin að-
staða sé til þess að fletta upp í þeim
og jafnvel hætta á að þær skemmist.
„Varanlegt pláss vantar fyrir safn-
ið,“ segir Örn og vísar til þess að úr-
klippubækurnar séu á einum stað og
önnur gögn í lokaðri geymslu á öðr-
um stað. „Gegnumstreymið er mikið
og ég er hræddur um að það bitni á
safninu,“ áréttar hann og bendir líka
á að margar úrklippurnar séu orðn-
ar gamlar og viðkvæmar. Hann hafi
ljósritað mörg blöð og fyrir nokkr-
um árum hafi hann gleymt frumriti í
gluggasyllunni heima. „Blaðið var í
sólinni í nokkra daga og þegar ég
tók eftir því var letrið horfið,“ segir
hann. Örn segir að úrklippur hafi
líka horfið úr safninu. „Þess eru
dæmi að menn hafi séð úrklippur um
sig og tekið þær ófrjálsri hendi. Ef
safnið er óvarið í alfaraleið er hætta
á að það hverfi hægt og sígandi.“
FH er með glæsilega aðstöðu í
Kaplakrika en Örn segir að alltaf
vanti húsnæði og úrklippusafnið og
aðrar sögulegar heimildir hafi ekki
verið í forgangi. „Ég hef áhyggjur af
því að enginn taki þessi gögn upp á
sína arma eftir að ég hætti, en bær-
inn á nú nær öll mannvirkin í Krik-
anum og með varðveislugildið í huga
vona ég að bæjaryfirvöld aðstoði fé-
lagið við að koma safninu og öðrum
mikilvægum sögulegum heimildum
fyrir í rými við hæfi. Meirihluti
safnsins hefur að geyma sögu FH og
það á því heima hér í Kaplakrika.
Verði það flutt annað óttast ég að
það skemmist og glatist. Deyi.“
Hættir um leið og fótboltinn
Örn verður áttræður næsta sum-
ar og segir að nú sé rétti tíminn til
að hætta þessari tómstundaiðju.
Hann segir að stundum hafi hvarflað
að sér að hætta en ekki hafi orðið af
því. „Ég hef oft sagt að nú væri
komið nóg en þá hefur enginn viljað
taka við keflinu. „Geturðu ekki hald-
ið aðeins áfram,“ var gjarnan við-
kvæðið, því enginn annar nennti að
standa í þessu og ég hélt því áfram.
Ég er með síðustu bókina, á eftir að
fylla um 100 síður, og þegar fót-
boltatímabilinu lýkur í vetur lími ég
inn síðustu fréttina. Þá verður von-
andi búið að finna varanlegt rými
fyrir safnið.“
Samviskusemi Örn hefur farið yfir öll blöð á hverjum degi í 64 ár og límt inn fréttir í úrkippubækur.
Afreksmenn Örn og Geir Hallsteinssynir skoða úrklippur í safninu.
Úrklippa Örn skoraði tíu mörk í sigri, 20:18, á móti Fram í janúar 1965.
MÚrklippusafn »Baksíða
FRÉTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2020
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Veitingastaðurinn Maika’i hefur ver-
ið opnaður í Classanum Sport við hlið
líkamsræktarstöðvarinnar World
Class Laugum. Þetta segir Ágúst
Freyr Hallsson, eigandi staðarins, í
samtali við Morg-
unblaðið. Áður
hafði samloku-
staðurinn Joe &
The Juice verið til
húsa í rýminu.
Ágúst hefur
rekið Maika’i
ásamt kærustu
sinni Elísabetu
Mettu Svan Ás-
geirsdóttur, en
staðurinn hefur fram til þessa verið
inni á veitingastaðnum Sætum snúð-
um í Mathöll Höfða og á Hafn-
artorgi. Síðarnefndi staðurinn var
opnaður fyrr í sumar. Að sögn
Ágústs hafa viðtökurnar allt frá upp-
hafi ekki látið á sér standa og því
ákvað parið að opna fleiri útibú, nú
síðast í Laugum.
„Við erum búin að gera samning
við World Class, en skálarnar komu í
sölu um helgina. Við ætlum að byrja
á að opna þarna og svo sjáum við
hvað setur. Það kemur vel til greina
að opna á fleiri stöðvum,“ segir
Ágúst og bætir við að spurn eftir
skálum Maika’i hafi aukist svo um
munar undanfarna mánuði. „Þetta
hefur alveg sprungið. Það er alveg
brjálað að gera alla daga og salan
eykst í hverjum mánuði.“
Handtínd ber frá Brasilíu
Á Maika’i er boðið upp á acai-
skálar sem í grunninn eru búnar til
úr handtíndum sambazon-acai-
berjum frá Brasilíu. Ofan á grunns-
kálarnar stendur viðskiptavinum til
boða að setja m.a. ber, banana og
granóla. Aðspurður segir Ágúst að
þau Elísabet eigi fullt í fangi með að
tryggja nægt hráefni fyrir staðina
þrjá.
„Við höfum þurft að auka mikið við
pantanir. Við höfum bara verið að
redda okkur, en þess utan er spurn
eftir acai í heiminum að aukast mjög
mikið,“ segir Ágúst sem kveðst
spenntur fyrir komandi mánuðum.
Parið muni jafnframt einbeita sér að
frekari vexti vörumerkisins Maika’i.
Spurður hvort gera megi ráð fyrir
nýjungum á matseðli staðarins segir
Ágúst að nýlega hafi ný skál verið
tekin í sölu. Ber hún heitið Líf með
vísan til Birgittu Lífar Björnsdóttur,
markaðsstjóra World Class.
„Þessi skál var að bætast við mat-
seðilinn og það verður gaman að sjá
hvernig viðtökurnar verða. Við erum
alltaf að skoða hvort bæta eigi við
nýjum skálum en við erum mjög
spennt að sjá hvort þessi fellur í
kramið hjá viðskiptavinum.“
Laugar Elísabet Metta og Birgitta
Líf við veitingastaðinn Maika’i.
Nýr veitinga-
staður í World
Class Laugum
Maika’i kemur í stað Joe & The Juice
Ágúst Freyr
Hallsson
VIÐ LEITUM AÐ
LISTAVERKUM
Áhugasamir geta haft samband í
síma 551-0400
ERUM AÐ TAKA Á MÓTI VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ