Morgunblaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 49
ÍÞRÓTTIR 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2020
Mér fannst mjög athyglisvert
að leikmenn í NBA skyldu leggja
niður störf á dögunum. Um það
var vel fjallað í fróðlegri grein
Gunnars Valgeirssonar hér í
blaðinu 29. ágúst. Þar hamrar á
lyklaborð maður sem búið hefur í
Bandaríkjunum í áratugi. Er með
puttann á púlsinum.
Þótt leikjum hafi ekki verið
frestað í langan tíma þá held ég
að þessi aðgerð hafi verið stærri
en margan grunar. Og töluverðan
kjark hafi þurft til að grípa til
hennar. Hagsmunirnir varðandi
NBA-deildina eru bara svo miklir
og snerta svo marga.
Leikmennirnir voru skyn-
samir og komu sér ekki í þá
stöðu að skaðabótaskylda mynd-
aðist eða eitthvað slíkt. Þeir
fengu deildina í lið með sér en
NBA-deildin er í raun bara fyrir-
tæki í eigu félaganna, fyrir þá
sem ekki vita.
Sennilega eru ekki mörg
dæmi um jafnviðamiklar aðgerð-
ir hjá íþróttafólki vegna þjóð-
félagsmála en vafalaust eru þau
einhver. Slíkt getur haft veruleg
áhrif á tekjumöguleika þeirra.
Fólk getur haft skoðanir á því
hvort blanda eigi saman íþrótt-
um og pólitík. Það er skiljanlegt.
Yfirleitt er líklega best að forðast
slíkt. En lögregluofbeldið vestan
hafs, sem ítrekað kemur upp á
yfirborðið, er heldur ekki pólitík í
hefðbundnum skilningi. Þar
sæta svartir í mörgum tilfellum
ofbeldi af hálfu þeirra sem eiga
að vernda borgarana.
Eins og Gunnar bendir á í grein-
inni þá eru leikmenn NBA svartir
í 75-80% tilfella. „Fyrir þessa
leikmenn er kynþáttamisrétti og
hatur ekki óhlutstætt – þeir hafa
ekki þann lúxus að hunsa dæmið
sem borgarar,“ eins og hann orð-
aði það í greininni.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslandsmeistarar Vals töpuðu fyrir
Breiðabliki í fyrstu umferð úrvals-
deildar kvenna í körfuknattleik,
Dominos-deildarinnar, í gærkvöld,
en bikarmeistarar Skallagríms
knúðu fram útisigur í spennuleik
gegn Haukum.
Breiðablik lagði Val í Smáranum,
71:67, eftir mikla spennu allan tím-
ann. Blikar voru yfir í hálfleik, 37:36,
og leikurinn var hnífjafn til enda en
Kópavogsliðið skoraði fimm síðustu
stigin og tryggði sér sigurinn.
Jessie Coera skoraði 25 stig fyrir
Breiðablik, Þórdís Jóna Kristjáns-
dóttir 13 og Isabella Ósk Sigurðar-
dóttir tók 18 fráköst auk þess að
skora 12 stig.
Á Ásvöllum var líka mikil spenna
allan tímann. Staðan var 23:22 fyrir
Hauka í hálfleik en lokatölur 54:51
fyrir Skallagrím.
Sanja Orozovic skoraði 21 stig fyr-
ir Skallagrím, Nikita Telesford var
með 15 stig og 13 fráköst og Keira
Robinson skoraði 8 stig og tók 13
fráköst. Hjá Haukum var Alyesha
Lovett með 21 stig og 15 fráköst og
Bríet Sif Hinriksdóttir skoraði 14
stig.
Keflvíkingar áttu ekki í vandræð-
um með KR-inga og unnu yfirburða-
sigur á heimavelli sínum, 114:72.
KR, sem varð í öðru sæti í deild og
bikar í fyrra, er með gjörbreytt lið
sem mun greinilega eiga erfitt upp-
dráttar í vetur.
Daniela Wallen skoraði 37 stig
fyrir Keflavík og tók 11 fráköst,
Anna Ingunn Svansdóttir skoraði 17
stig og Agnes María Svansdóttir 12.
Annika Holopainen var allt í öllu hjá
KR en hún skoraði 43 stig og tók 10
fráköst.
Óskabyrjun nýliðanna
Fjölnir er nýliði í deildinni í ár og
fékk óskabyrjun í gærkvöld en Graf-
arvogsliðið tók á móti þunnskipuðu
liði Snæfells og vann stórsigur,
91:60. Staðan í hálfleik var þó 41:39
fyrir Snæfell sem var aðeins með sjö
leikmenn á skýrslu.
Írska landsliðskonan Fiona
O’Dwyer var atkvæðamikil hjá
Fjölni en hún kom til félagsins í
sumar frá Ensino Lugo á Spáni.
Hún skoraði 20 stig og tók 16 frá-
köst. Emma Sóldís Svan Hjördís-
ardóttir skoraði 18 stig.
Iva Georgiova skoraði 18 stig fyrir
Snæfell og Anna Soffía Lárusdóttir
var með 14 stig og 14 fráköst.
vs@mbl.is
Meistararnir byrjuðu á ósigri
Breiðablik sigraði Val Skalla-
grímur vann Hauka í spennuleik
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Grafarvogur Anna Soffía Lárusdóttir úr Snæfelli og Lina Pikciuté úr Fjölni
í baráttu um boltann í leik liðanna í Dalhúsum í gærkvöld.
Tindastóll leikur í fyrsta skipti í úr-
valsdeild í knattspyrnu á næsta ári
en kvennalið félagsins gulltryggði
sér sæti þar í gær. Sauðkrækingar
sóttu þá botnlið Völsungs í 1. deild
kvenna heim til Húsavíkur og unnu
öruggan sigur, 4:0.
Þar með er ljóst að aðeins annað-
hvort Keflavík eða Haukar getur
komist uppfyrir Tindastól á loka-
sprettinum í deildinni en þau lið
eiga eftir báða innbyrðis leiki sína,
sá fyrri er í dag, og þeir ráða úrslit-
um um hvort þeirra fylgir Tinda-
stóli upp.
Bryndís Rut Haraldsdóttir kom
Tindastóli yfir eftir hálftíma og
Hugrún Pálsdóttir bætti öðru
marki við snemma í seinni hálfleik.
Rakel Sjöfn Stefánsdóttir og Mu-
rielle Tiernan skoruðu síðan tvö
mörk til viðbótar.
Tiernan hefur þar með skorað 22
mörk í 15 leikjum liðsins í deildinni
ár og þar með samtals hvorki meira
né minna en 70 mörk í 46 leikjum
með Sauðkrækingum í deilda-
keppninni á síðustu þremur tíma-
bilum.
Tindastólsliðið hefur unnið þrett-
án af fimmtán leikjum sínum í
deildinni í ár og markvörðruinn
Amber Kristin Michel hefur aðeins
þurft að sækja boltann fimm sinn-
um í netmöskvana á tímabilinu.
vs@mbl.is
Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson
Úrvalsdeildarlið Brosmildar Tindastólskonur eftir sigurinn á Húsavík í gær ásamt þjálfurum sínum, Guðna Þór Einarssyni og Jóni Stefáni Jónssyni.
Tindastóll er kominn í úrvalsdeildina
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Knattspyrnusamband Evrópu,
UEFA, birti í gær nöfn þeirra ein-
staklinga sem urðu í þremur efstu
sætum í kjörinu á knattspyrnu-
manni og knattspyrnukonu tíma-
bilsins 2019-20, í árlegri kosningu
UEFA í samvinnu við Samtök evr-
ópskra íþróttafjölmiða, ESM.
Þeir þrír karlar sem eru í efstu
sætunum, í stafrófsröð eftirnafna,
eru Kevin De Bruyne, belgíski
miðjumaðurinn hjá Manchester
City, Robert Lewandowski, pólski
framherjinn hjá Bayern München,
og Manuel Neuer, þýski markvörð-
urinn hjá Bayern München.
Konurnar eru þær Lucy Bronze,
enski bakvörðurinn hjá Manchester
City sem varð Evrópumeistari með
Lyon í sumar, danski framherjinn
Pernille Harder hjá Wolfsburg og
franski varnarmaðurinn Wendie
Renard hjá Lyon.
Kjörinu lýst 1. október
Opinberað verður þann 1. októ-
ber hverjir stóðu uppi sem sigur-
vegarar í kosningunni og hljóta
nafnbótina knattspyrnumaður árs-
ins og knattspyrnukona ársins í
Evrópu. Það eru þjálfarar liða úr
Meistaradeildum karla og kvenna
ásamt íþróttafréttamönnum víðs-
vegar að úr Evrópu sem greiða at-
kvæði í kjörinu.
Í kjörinu á þjálfara ársins í
karlaflokki fengu þrír Þjóðverjar
flest stig. Það eru þeir Hans-Dieter
Flick, þjálfari Evrópu- og Þýska-
landsmeistara Bayern München,
Jürgen Klopp, þjálfari Englands-
meistara Liverpool, og Julian Na-
gelsmann, þjálfari RB Leipzig í
Þýskalandi.
Hjá konunum er einn Þjóðverjinn
enn í hópi þriggja efstu en það er
Stephan Lerch, þjálfari Þýskalands-
meistara Wolfsburg. Hinir eru
Frakkinn Jean-Luc Vasseur, þjálf-
ari Evrópu- og Frakklandsmeistara
Lyon, og Spánverjinn Lluís Cortés,
þjálfari Barcelona.
Eins og áður hefur komið fram
er Sara Björk Gunnarsdóttir í hópi
þeirra þriggja sem fengu flest at-
kvæði í kjörinu á besta miðjumanni
Meistaradeildar Evrópu, sem er
hluti af sama kjöri hjá UEFA og
Samtökum evrópskra íþróttafjöl-
miðla, ESM. Niðurstaðan í því verð-
ur einnig birt 1. október en þá
verða útnefndir bestu markverðir,
varnarmenn, miðjumenn og sóknar-
mennirnir í Meistaradeildum karla
og kvenna.
Sex sem voru fremst í flokki 2019-20
Körfuknattleikskonan Ásta Júlía
Grímsdóttir er komin heim frá
Bandaríkjunum og mun leika á ný
með deildameisturum Vals. Valur
tilkynnti um heimkomu Ástu á
samfélagsmiðlum í gær og þar
kemur fram að hún hafi gert
tveggja ára samning við félagið.
Ásta lék með Val áður en hún
hélt til Bandaríkjanna til náms.
Lék hún í fyrra með Houston
Baptist-háskólanum. Fram kemur
að Ásta hafi ætlað að vera áfram
ytra en vegna breyttra aðstæðna
hafi hún kosið að koma heim til
Íslands.
Ásta komin
aftur til Vals
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Greifavöllur: KA – HK.............................. 16
Kaplakriki: FH – Valur........................ 16.15
Extra-völlur: Fjölnir – ÍA.................... 16.15
Meistaravellir: KR – Grótta ................ 16.15
Kópavogsv.: Breiðablik – Stjarnan..... 19.15
Würth-völlur: Fylkir – Víkingur R. .... 19.15
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Nettóvöllur: Keflavík – Haukar .......... 16.30
2. deild kvenna:
Framvöllur: Fram – HK...................... 19.15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Austurberg: ÍR – Þór........................... 19.30
Varmá: Afturelding – Selfoss .............. 19.30
Kaplakriki: FH – Fram........................ 19.45
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Dalhús: Vængir Júpíters – Valur U......... 20
Í KVÖLD!