Morgunblaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2020
24. september 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 138.03
Sterlingspund 176.6
Kanadadalur 103.66
Dönsk króna 21.769
Norsk króna 14.79
Sænsk króna 15.562
Svissn. franki 150.73
Japanskt jen 1.3201
SDR 194.67
Evra 162.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 197.6252
Hrávöruverð
Gull 1903.1 ($/únsa)
Ál 1752.5 ($/tonn) LME
Hráolía 41.79 ($/fatið) Brent
● Landsvirkjun
hefur skrifað
undir samning
við bandaríska
og breska fag-
fjárfesta um út-
gáfu grænna
skuldabréfa.
Bréfin eru gefin
út undir græn-
um fjármögn-
arramma fyrir-
tækisins og verða nýtt til að fjármagna
grænar eignir á efnahagsreikningi, sem
er ný nálgun í skilgreiningu á ráðstöfun
fjármuna. Í tilkynningu frá Lands-
virkjun segir að fyrirtækið sé meðal
þeirra fyrstu í heiminum sem beita
þessari nýju nálgun.
Um lokað útboð var að ræða að fjár-
hæð samtals 150 milljónir banda-
ríkjadala, jafnvirði um 21 milljarðs ís-
lenskra króna. Að sögn voru upphafleg
markmið 100 milljónir dala, en útgáf-
unni var mjög vel tekið og bárust tilboð
fyrir 545 milljónir.
Bréfin eru á gjalddaga eftir 9 ár og
bera 2,79% fasta vexti fyrir skuldabréf
gefin út í nóvember á þessu ári og
2,84% fyrir þau sem gefin verða út í
febrúar á næsta ári. Landsvirkjun segir
að útgáfan endurspegli áherslur á sjálf-
bæra þróun og tengist Heimsmark-
miðum Sameinuðu þjóðanna.
Landsvirkjun gefur út
græn skuldabréf
Útgáfa Grænar eignir
fjármagnaðar.
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
sagði á fundi í gærmorgun, sem hald-
inn var í tilefni af birtingu seinna rits
Fjármálastöðugleika á þessu ári, að
mikilvægt væri að fjármálafyrirtæki
ynnu markvisst að endurskipulagn-
ingu útlána og nýttu það svigrúm sem
aðgerðir Seðlabankans og stjórnvalda
hafa skapað til að styðja við heimili og
fyrirtæki. Eins og fram kemur í ritinu
hefur baráttan við kórónuveirufarald-
urinn reynst langdregnari en vonir
voru bundnar við, sem auki óvissu og
hafi neikvæð áhrif á útlánasöfn fjár-
málafyrirtækja.
Greiður aðgangur að fé
Í máli Ásgeirs kom fram að eigin-
fjár- og lausafjárstaða stóru bank-
anna þriggja væri sterk. Aðgerðir
Seðlabankans hefðu rýmkað verulega
aðgengi þeirra að lausu fé og vaxta-
álag á erlendum lánsfjármörkuðum
hefði lækkað. Bankarnir hefðu því
greiðan aðgang að lausu fé bæði í
krónum og erlendum gjaldmiðlum.
Þeir ættu því að búa yfir miklum við-
námsþrótti til að takast á við afleið-
ingar farsóttarinnar.
Í máli Hauks C. Benediktssonar,
framkvæmdastjóra fjármálastöðug-
leika hjá Seðlabanka Íslands, á fund-
inum kom fram að ferðaþjónustan
ætti áfram verulega undir högg að
sækja og ætti nú mikið undir kröfu-
höfum sínum.
Hann sagði að fjárhæðir útlána í
greiðsluhléum lækkuðu hratt þessa
dagana og núna væru um 9% útlána
fyrirtækja í greiðsluhléi, og þar af um
23% útlána til ferðaþjónustunnar.
Haukur sagði að þetta væri ekki
merki um að staðan væri að batna
heldur eingöngu að notkun úrræðis-
ins færi minnkandi. Hann sagði að út-
lánagæði bankanna hefðu minnkað
eftir því sem faraldurinn hefur dreg-
ist á langinn, en vandinn hefði ekki
raungerst ennþá.
Eins og fram kemur í Fjármála-
stöðugleika höfðu um 600 stuðnings-
lán verið veitt til fyrirtækja um miðj-
an september, upp á 4,7 ma.kr. og tvö
viðbótarlán. 998 fyrirtæki, sem stöðva
þurftu starfsemi vegna sóttvarnaað-
gerða, höfðu fengið lokunarstyrki upp
á samtals milljarð kr. Rúmlega 1.000
fyrirtæki voru með sérstakan
greiðslufrest á lánum um miðjan
september.
Á fundinum var vísað til síðustu yf-
irlýsingar fjármálastöðugleikanefnd-
ar þar sem sérstaklega var talað um
eignaverðshækkanir í tengslum við
slakara aðhald stjórntækja Seðla-
bankans og í framhaldi vísað til þess
að ekki væri fjallað um hækkandi
eignaverð nú, jafnvel þótt húsnæðis-
verð hefði hækkað milli funda, og út-
lán til bankakerfisins til heimilanna
stóraukist. Var bankastjóri spurður
að því hvort nefndin teldi að áhætta
tengd húsnæðismarkaði hefði minnk-
að, og hvort þróunin væri í takt við
væntingar.
Ásgeir játti því síðastnefnda, og
sagði að það hefði verið markmið pen-
ingastefnunefndar að styðja við bæði
fasteignamarkaðinn og líka einka-
neyslu með lækkun vaxta. Það hefði
gengið eftir. Hann sagði að þó að hús-
næðisverð hefði hækkað aðeins þá
benti ekkert til þess nú að hafa þyrfti
sérstakar áhyggjur af því.
Fjármálafyrirtæki endur-
skipuleggi útlán markvisst
Morgunblaðið/Ómar
Áhrif Langdregnari barátta við veiruna hefur neikvæð áhrif á heimili og fyrirtæki og þar með útlánagæði.
Fjármálastöðugleiki
» 9% útlána fyrirtækja í
greiðsluhléi.
» Heimilin hafa fengið beinar
greiðslur upp á 34,3 ma.
» Að auki hafa heimilin fengið
9,7 ma. í laun á uppsagnar-
fresti frá ríkissjóði.
» Í júlí nýttu 1.400 fyrirtæki
sér hlutastarfaleið stjórnvalda.
Eiginfjár- og lausafjárstaða stóru bankanna þriggja er sterk
Í kjölfar faraldursins hefur fjar-
vinna rutt sér til rúms hér á landi í
auknum mæli, líkt og fjallað var um
í blaðinu fyrr í mánuðinum. Ægir
Már Þórisson, forstjóri Advania,
lýsti þar þeim jákvæðu áhrifum sem
menn hafa greint þar á bæ og sagð-
ist telja fjarvinnu komna til að vera.
Nú hefur fyrirtækið markað sér
sérstaka fjarvinnustefnu og býður
starfsfólki að vinna heima hjá sér
40% vinnutímans.
Gerður er sérstakur fjarvinnu-
samningur sem m.a. tiltekur samráð
milli starfsmanns og yfirmanns um
nánari útfærslu fjarvinnunnar og að
starfsmaður veiti svigrúm í því að
eiga fasta starfsstöð á vinnustað.
Advania leggur fjarvinnufólki til
nettengingu og tölvubúnað á heim-
ilinu, sem starfsfólk mun eignast að
12 mánuðum liðnum. Einnig kemur
fram að fyrirtækið muni gera samn-
inga við birgja og tryggja starsfólki
afslátt vegna kaupa á skrifborðum
og stólum.
Í kynningu frá Advania segir að í
kjölfar reynslu af fjarvinnu hafi ver-
ið gerðar kannnir meðal starfsfólks
um upplifun þess af fjarvinnu, sem
hafi að langmestu leyti verið já-
kvæð.
Með þessu vill félagið m.a. leggja
sitt af mörkum við að draga úr áhrif-
um á umhverfi og kostnaði við að
ferðast til og frá vinnu: að gera
starfsfólki kleift að nýta tíma sinn
betur og auka samveru innan fjöl-
skyldna: og að auka framlegð starfs-
fólks sem hafi aukið næði til að sinna
sínum verkefnum. sighvaturb@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Fjarvinna Starfsólk Advania stend-
ur fyrir vali um að vinna heima.
Fjarvinna tekur á
sig skýrari mynd
Advania býður
starfsólki að vinna
40% heima við