Morgunblaðið - 24.09.2020, Side 4

Morgunblaðið - 24.09.2020, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2020 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Á næstu vikum mun Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skila skýrslu sinni um húsið sem brann á Bræðra- borgarstíg 1. Bruninn leiddi til dauða þriggja manna auk þess sem fjórir voru fluttir á spítala og þar af voru tveir alvarlega slasaðir. Í skýrslunni mun m.a. koma fram hvort ósamþykktar framkvæmdir hafi farið fram í húsinu. Í skriflegu svari við fyrirspurn Morgunblaðsins til Húsnæðis- og mannvirkjastofnun- ar segir að frumdrögum skýrslunnar hafi verið skilað til lögreglu 11. sept- ember síðastliðinn. „Við skrifum það sem við komumst að og bendum á það sem hefur ekki verið eftir teikn- ingum,“ segir m.a. í svarinu. Íbúar við Bræðraborgarstíg og Vesturgötu sem Morgunblaðið ræddi við eru orðnir langeygir eftir því að málið fái lausn þar sem það stendur neti þakið og þykir eins kon- ar áminning um þá hræðilegu at- burði sem þarna áttu sér stað. „Þetta er bæði ljótt og drungalegt. Svo er mikil lykt sem leggur frá húsinu þeg- ar rignir og manni þætti vænt um að þetta yrði tekið niður sem fyrst,“ segir Gréta S. Guðjónsdóttir, ljós- myndari á Vesturgötu 54 sem stend- ur nærri húsinu. „Netið kemur ekki í veg fyrir að krakkar fari þarna inn og ég sé ekki alveg tilganginn með því að hafa netið þarna svona. Við íbúar hér viljum ekki að þetta dagi uppi,“ segir Gréta Ekkert hægt að gera að sinni Nikulás Úlfar Másson, byggingar- fulltrui hjá Reykjavíkurborg, segir að ekki sé hægt að aðhafast neitt fyrr en Húsnæðis- og mannvirkja- stofnun og lögregla hafa lokið við sína vinnu. „Þá munum við sjá hvort þarna hafi farið fram óleyfisfram- kvæmdir,“ segir Nikulás. Hann seg- ir að ekki sé hægt að gera kröfur á eigendur um niðurrif eða hreinsun á húsinu fyrr en lögregla hefur lokið rannsókn sinni og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi lokið sinni vinnu. „En við erum alveg sammála því að þetta megi ekki vera svona mikið lengur í borgarlandinu,“ segir Nikulás. Skila brátt skýrslu um brunann  Mun skera úr um það hvort ósam- þykktar framkvæmdir hafi farið fram Morgunblaðið/Eggert Bræðraborgarstígur Húsið við Bræðraborgarstíg er neti þakið. Ekki er hægt að gera kröfu um niðurrif fyrr en yfirvöld hafa lokið vinnu sinni. Alls greindust 57 ný kórónuveiru- smit innanlands á þriðjudag, þar af 54 í einkennasýnatökum, tvö í sóttkvíar- og handahófsskimun og eitt hjá Íslenskri erfðagreiningu. Af þessum 57 voru 28 manns þegar í sóttkví við greiningu. Í einangrun eru 324 manns og fjölgaði um 43 á milli daga. Tveir eru á sjúkrahúsi og 2.410 eru í sóttkví. Nýgengi innanlandssmita á hverja 100 þúsund íbúa síðustu 14 daga fór á milli daga úr 68,4 í 83,2. Skimun á starfsfólki Landspítal- ans var að mestu lokið í gær, en á þriðjudag kom fram að alls væru 22 starfsmenn spítalans í einangrun vegna smits. Virða þurfi nálægðarregluna Hópsýking kom upp í Stykkis- hólmi og eru þar sjö skráðir í ein- angrun sökum smits. Hvatti lögregl- an í gær almenning til að huga að persónulegum smitvörnum nú þegar smitum kórónuveiru fjölgi á ný. „Vonandi tekst okkur að hefta út- breiðslu frekari smita með rakningu, raðgreiningu, einangrun og sóttkví. Virða þarf eins metra nándarregl- una. Mælt er með að nota andlits- grímur þegar ekki er hægt að virða nándarreglu og þar sem loftgæði eru ekki mikil,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi, sem mæl- ir einnig með því að vinnustaðir bjóði fólki upp á að vinna að heiman. 57 ný innanlandssmit og hópsýking í Stykkishólmi  Nýgengi smita á 100 þúsund íbúa úr 68,4 í 83,2 á milli daga Kórónuveirusmit á Íslandi Nýgengi smita frá 30. júní 2.476 staðfest smit Heimild: covid.is Nýgengi innanlands 22. sept. 83,2 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa 2 einstaklingar eru á sjúkrahúsi, enginn á gjörgæslu 263.180 sýni hafa verið tekin Þar af í landamæraskimun 146.297 sýni, samtals í skimun 1 og 2 1.951 einstaklingar eru í skimunarsóttkví 60 50 40 30 20 10 0 83,2 4,4 2.410 einstaklingar eru í sóttkví 324 eru með virkt smit og í einangrun Nýgengi innanlands Nýgengi, landamæri júlí ágúst september Maðurinn sem fannst látinn í Breiðholti, neðan Erluhóla, 21. ágúst síðastliðinn hét Örn Ing- ólfsson, 83 ára. Ekki er talið að andlátið hafi borið að með sak- næmum hætti, að því er kom fram í tilkynningu frá lögreglu í gær. Fram kom í fjölmiðlum að full- orðinn maður á gangi fann lík af manni þegar hann var á gangi í skógi fyrir hádegi hinn 21. ágúst. Var talið að líkið hefði verið þar um hríð. Síðan þá hefur kennsla- nefnd ríkislögreglustjóra haft málið til meðferðar. Báru kennsl á lík sem fannst í ágúst Lögreglunni á Vesturlandi barst til- kynning um vinnuslys á Hellissandi á Snæfellsnesi á ellefta tímanum í gærmorgun. Einn maður lést í slys- inu. Slysið varð um klukkan 10.30 og var þyrla Landhelgisgæslunnar send á vettvang. Ekki fengust frek- ari upplýsingar frá lögreglunni á Vesturlandi um málið í gær. Banaslys á Hellis- sandi í gærmorgun Atli Steinn Guðmundsson skrifar frá Vadsø Þrír sérfræðingar norsku rannsókn- arlögreglunnar Kripos komu fyrir Héraðsdóm Austur-Finnmerkur í Vadsø í gær og báru þar auk annars vitni um skotvopnið, sem Gunnari Jó- hanni Gunnarssyni er gefið að sök að hafa beitt þegar hálfbróðir hans, Gísli Þór Þórarinsson, varð fyrir haglaskoti sem dró hann til dauða snemma morguns 27. apríl í fyrra. Fyrir dóminn komu þeir Øivind Strand skotvopnasérfræðingur, Arvid Bjelkåsen blóðferlasérfræðingur og Tore Walstad fingrafarasérfræðing- ur, allir frá Kripos, en auk þess vitnaði læknir um áverkana á líkama Gísla Þórs heitins og fylgdu því myndir af Gísla örendum sem lögðust misjafn- lega í viðstadda. Galli á öryggislás Sú niðurstaða Kripos-manna, sem óumdeilanlega má telja þungamiðju framburðar þeirra, var að galli hefði reynst á öryggislás byssunnar sem gerði það að verkum að skot hefði, samkvæmt tugum skotvopnaprófana hjá Kripos, getað hlaupið af byssunni án þess að tekið væri í gikk hennar. Tókst skotvopnasérfræðingum Kri- pos að hleypa skoti af byssunni með því að láta hana falla á gólf úr um það bil tuttugu sentimetra hæð. Lenti byssan á gólfinu í láréttri stöðu, en ekki með hlaupið á undan, var unnt að hleypa af henni skoti án þess að komið væri við gikkinn. Bjørn Andre Gulstad, verjandi Gunnars Jóhanns, þráspurði þá Kri- pos-menn í réttarhléi út í niðurstöður þeirra og notaði súkkulaðistykki til að sýna afstöðu haglabyssunnar við fall á ímyndaðan gólfflöt. Snörp orðasenna Steig Torstein Lindquister sak- sóknari þá fram og sagði að verjanda væri óheimilt að spyrja vitni út í tæknileg atriði, sem snertu vitnisburð þeirra, í réttarhléi, það væri honum einungis heimilt fyrir settum rétti. Var Gulstad ekki sammála saksókn- ara og kom til snarprar orðasennu milli þeirra, ekki í fyrsta sinn síðan að- almeðferð málsins hófst á mánudag. Kripos steig í vitnastúkuna  Aðalmeðferð í Mehamn-málinu heldur áfram í Vadsø  Galli á öryggislás haglabyssunnar  Skot hljóp úr byssunni er hún var látin falla á gólf við prófanir Morgunblaðið/Atli Steinn Fyrir rétti Øivind Strand skotvopnasérfræðingur, Arvid Bjelkåsen blóð- ferlasérfræðingur og Tore Walstad fingrafarasérfræðingur, allir frá Kri- pos, ræða eiginleika haglabyssunnar við Bjørn Gulstad verjanda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.