Morgunblaðið - 24.09.2020, Síða 10

Morgunblaðið - 24.09.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2020 Andrés Magnússon andres@mbl.is Brotthvarf Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur úr þingflokki Vinstri grænna mun hafa einhver áhrif á nefndaskipan á Alþingi, en hún hefur fram að þessu setið í atvinnuveganefnd og utanríkismálanefnd. Það mun hún ekki gera lengur fyrir hönd Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Sem þingmaður utan flokka þarf Rósa Björk að eiga það við stjórnarandstöðuna í hvaða nefnd hún skuli starfa. Fari hins vegar svo að hún gangi til liðs við þingflokk Samfylking- arinnar, eins og margir virðast gera ráð fyrir, einfaldast málið, en það mun eftir sem áður hafa áhrif á nefndasetu stjórnarandstöðunnar. Þingsetning á Alþingi verður eftir viku, fimmtudaginn 1. október, en þá þarf að leysa úr þessum vanda. „Þetta er verkefni, ekki vanda- mál,“ sagði einn þingmaður sem Morgunblaðið ræddi við, en stjórnarþingmaður sagði að þetta væri kannski vandamál, en það væri vandamál stjórnarandstöðunnar. Í upphafi þessa kjörtímabils náðist sam- komulag stjórnarflokka og stjórnarandstöðu um að stjórnarandstöðuflokkar fengju for- mennsku í þremur fastanefndum þingsins, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, velferðar- nefnd, og umhverfis- og samgöngunefnd. Stjórnarandstaðan hefur lagt áherslu á að samkomulagið haldi út kjörtímabilið, en í stjórnarliðinu gætir meiri efasemda um það og menn ekki á eitt sáttir um hversu góð reynslan er af því. Þingflokksformenn hittust með óformlegum hætti í gær og munu áfram ræða saman næstu daga um það. Flókin nefndaskipan á þingi Á Alþingi eru átta fastanefndir: allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd, fjárlaganefnd, stjórnskip- unar- og eftirlitsnefnd, umhverfis- og samgöngu- nefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd. Níu þingmenn sitja í hverri fastanefnd, svo þar þarf að fylla 72 sæti. Á Alþingi sitja hins vegar 63 þingmenn, en þar af eru tíu ráðherrar og einn þingforseti, sem ekki sitja í nefnd- unum. Í þingsköpum er nú mælt fyrir að allir al- mennir þingmenn þurfi að sitja í a.m.k. einni þingnefnd, en enginn þó í fleiri en tveimur. 52 almennir þingmenn geta því setið í nefnd- unum, en svo hefur einnig gætt sjónarmiða um vinnuálag, þannig að formenn fastanefndanna og þingflokksformenn sitja yfirleitt ekki nema í einni nefnd, þó það geti vel breyst ef nauðsyn ber til. Skipan nefndanna tekur mið af þingstyrk flokkanna, svo þingmeirihlutinn sé örugglega endurspeglaður þar. Þannig mun ríkisstjórnin hafa meirihluta í þeim öllum, með fimm menn af níu. Til þess að það komi allt heim og saman þarf að semja talsvert um nefndasetu, en þar þurfa minnihlutaflokkarnir að koma sér saman, því ekki er rými fyrir þá alla í hverri nefnd, hvað þá þingmenn utan þingflokka, þó hver flokkur megi raunar eiga þar áheyrnarfulltrúa. Nefndaseta riðl- ast vegna Rósu  Stjórnarandstaðan þarf að rýma til í fastanefnd Morgunblaðið/Eggert Alþingi Þing kemur saman eftir viku, en meðal verkefna þess er að skipa fastanefndir að nýju eftir brotthvarf Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur úr þingflokki Vinstri grænna. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Endurskipuleggja þarf skuldir fyrir- tækja í ferðaþjónustu ef ekki á illa að fara og það er líklega ekki úr vegi að tala um leiðréttingu. Annars gæti saga eftirhrunsáranna endurtekið sig þegar fyrirtæki voru yfirtekin og fjöldi fólks skilinn eftir í sárum. Þetta er mat Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Mið- flokksins, sem telur óumflýjan- legt að styrkja ferðaþjónustuna svo hún lifi af far- aldurinn. Aðgerð- ir stjórnvalda til að halda aftur af veirunni skapi sterkan sam- félagslegan og siðferðislegan rétt ferðaþjónustu og annarra at- vinnugreina til að njóta aðstoðar. Fram undan sé erfiður vetur þar sem samdrátturinn mun færast meira yfir í önnur svið hagkerfisins en ferðaþjónustuna. Séreignarúrræði endurvakið Leiðrétting verðtryggðra íbúða- lána var helsta kosningamálið í al- þingiskosningunum 2013 en bæta átti heimilum upp tjón af umfram- verðbólgu vegna framgöngu bank- anna. Hún var framkvæmd 2015. Samhliða henni var heimilað að taka út séreignarsparnað til niður- greiðslu á höfuðstól og var úrræðið endurvakið í kórónuveirukreppunni. Sigmundur Davíð telur aðferða- fræði leiðréttingarinnar geta nýst við lausn á vanda ferðaþjónustunnar. „Ég tel að slík leiðrétting gæti vel verið viðeigandi leið og að reynslan af leiðréttingu íbúðalána geti komið að gagni. Það var alltaf lykilatriðið í leiðréttingunni að ekki væri verið að gefa einhverjum eitthvað sem hann ætti ekki tilkall til, heldur aðeins að bæta eins og kostur væri tjónið sem varð af þessum ástæðum.“ Hver verður þróunin ef þetta verður ekki gert? Hvernig verður fyrirtækjalandslagið og hvaða áhrif mun það hafa á endurreisnina? Gæti leitt til samþjöppunar „Ég hef miklar áhyggjur af því, ef fram heldur sem horfir, að þá verði ekki aðeins einhæfara fyrirtækja- landslag heldur samþjöppun þar sem menn nota tækifærið, ef svo má segja, og kaupa fyrirtæki af þeim sem hafa lent í miklum hremming- um, og þá á lágu verði, og njóti svo einir ágóðans þegar hlutirnir lagast. Að þeir njóti þess að hafa haft tæki- færi til að kaupa eignir á brunaút- sölu án þess að verða fyrir tjóninu, og að þetta leiði til samþjöppunar, ekki aðeins í þessari grein heldur jafnvel í öðrum greinum líka.“ Þannig að það getur leitt til sár- inda og klofnings í þjóðfélaginu? „Já, það getur leitt til mikilla sár- inda til langs tíma og getur leitt til málaferla. Þess vegna höfum við lagt áherslu á það í okkar tillögum að þetta mætti ekki fara þannig að bankarnir yfirtaki þau fyrirtæki sem ekki geta greitt vegna þessa force majeure-ástands, óvæntra og ófyrir- séðra aðstæðna, og selji þau síðan eins og gerðist í allmörgum tilvikum eftir bankahrunið. Að það þurfi jafn- vel að tryggja með lögum að ekki sé hægt að hirða öll fyrirtækin eftir að þau lentu í þessu ástandi til þess eins að skipta svo um eigendur í fram- haldinu.“ Nú starfa fyrirtækin á opnum markaði. Því ætti að liðsinna ferða- þjónustunni á þennan veg? Hagsmunir samfélagsins „Ég held að það sé óumflýjanlegt og fyrir því eru nokkrar ástæður. Í fyrsta lagi eru það sameiginlegir hagsmunir samfélagsins að þessi mikilvæga atvinnu- og útflutnings- grein komist í gegnum þetta tíma- bundna ástand, þótt það hafi varað lengur en menn gerðu ráð fyrir. Þannig að samfélagið hefur mikla hagsmuni af því að verja greinina svo hún verði í stakk búin til að veita atvinnu og skapa verðmæti, þegar við erum komin í gegnum þetta. Svo eru sanngirnissjónarmið sem lúta að því að stjórnvöld, ekki aðeins á Íslandi, hafa gert fyrirtækjunum nánast ókleift að starfa og fyrir því eru gild rök. Þetta eru ekki ákvarð- anir sem stjórnvöld vilja taka en þó hefur niðurstaða þeirra verið sú, hér og víðar, að til að verja heilsu fólks eigi og þurfi að skerða ferða- og at- vinnufrelsi fólks. Og þegar ríkið tek- ur ákvörðun um slíkt er eðlilegt að þá komi stuðningur á móti. Það sem ég hef haft mestar áhyggjur af varðandi stefnu stjórn- valda að undanförnu er að óvissan hefur aukist fremur en minnkað. Fyrst þegar þetta fór af stað ákváðu stjórnvöld að eftirláta heilbrigðis- yfirvöldum stjórnina. Og þá var út- skýrt fyrir okkur að það stæði til að fletja út þessa margumræddu kúrfu og sýndar myndir af því hvernig kúrfan yrði flött út til þess að gera heilbrigðisþjónustunni kleift að ráða við afleiðingarnar. En nú er að mínu mati mjög óljóst hvert markmiðið er hjá stjórnvöldum. Þurfa að skýra markmiðin Ef markmiðið er að loka landinu fyrir veirunni, þ.e. hafa veirufrítt land, til þess að við getum þá lifað sæmilega eðlilegu lífi innan landsins, þá þarf að segja það og gera ráðstaf- anir í samræmi við það. Þá gætu til dæmis ferðaþjónustufyrirtæki gert sínar ráðstafanir út frá því og stjórn- völd komið til móts við þau í sam- ræmi við þá stöðu. En eins og þetta hefur þróast seinni part sumars og í haust þá eru menn í viðvarandi óvissu.“ Þurfa að sýna sviðsmyndir Með hvaða hætti gætu stjórnvöld dregið úr óvissunni með því að gefa skýrari fyrirmæli? „Til að byrja með held ég að þau þurfi að kynna einhver markmið þannig að fólk hafi þá hugmynd um hvernig gengur að ná þeim mark- miðum og búa til sviðsmyndir, svo maður noti nú það ofnotaða orð.“ Ætti ríkisstjórnin hreinlega að segja að markmiðið sé að hafa engin smit á Íslandi og að því verði engin ferðaþjónusta fyrr en á nýju ári? „Já, ef það er markmiðið. Þá ættu þau að lýsa því yfir. Þá munu menn laga sig að því og þá verður aðstoð við t.d. ferðaþjónustufyrirtæki vænt- anlega háttað í samræmi við það.“ Kallar á róttækar aðgerðir Það má skilja á þér að stjórnvöld séu að gera of lítið og séu hikandi og úrræðalaus. Er verið að fægja silfrið á sökkvandi skipi með minniháttar aðgerðum á meðan heildarefnahags- kerfið horfir fram á mikið áfall? „Já. Ég tel þetta mjög vera að þróast í þá átt. Það hefur verið ljóst frá upphafi að það þarf mjög róttæk- ar aðgerðir og sem betur fer erum við betur í stakk búin, íslenska ríkið, en flest önnur lönd til að gera það sem dugar til þess að bregðast við þessu. Tvennt hefur að mínu mati einkennt viðbrögðin. Það er verið að reyna að bregðast við stöðunni dag frá degi. Það er með öðrum orðum brugðist við vandanum eftir á. Og aðgerðirnar snúast meira um umbúðir en innihald. Við fengum hverja glærukynninguna á fætur annarri frá stjórnvöldum en þegar maður fór að skoða innihaldið var það eitthvað rýrara. Til dæmis var rætt um að umfang fyrsta pakkans yrði um 230 milljarðar. Svo fór mað- ur að skoða það og reyndist megnið af því vera hugsanlegar frestanir á skattgreiðslum og lánveitingar. Stærsta aðgerðin og flaggskipið, brúarlánin, skilaði náttúrlega engu. Þá gleymist að huga þarf að því sem er þó enn til staðar,“ segir Sigmund- ur og bendir á að mörg fyrirtæki, ut- an ferðaþjónustu, hafi verið í vanda fyrir faraldurinn. Þá sérstaklega smærri fyrirtæki. Það sama eigi jafnvel við um heilu atvinnugrein- arnar, sérstaklega landbúnað. Fyrir- tækin þurfi að styrkja með því að draga úr álögum og regluverki. Ferðaþjónustan þarf leiðréttingu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson  Formaður Miðflokksins kallar eftir róttækum aðgerðum til að bregðast við vanda ferðaþjónustunnar  Hætta á gjaldþrotum og samþjöppun  Stjórnvöld þurfi að skýra markmið sóttvarnaaðgerða Morgunblaðið/Hanna Fáir á ferli Hótelin voru iðandi af lífi sumarið í fyrra en eftirspurnin hefur hrunið að undanförnu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.