Morgunblaðið - 24.09.2020, Síða 18
Þessa dagana er heimurinnað takast á við mikla aukn-ingu á tilfellum af Covid--19. Ýmsar skerðingar hafa
verið settar á hegðun fólks, bæði
hérlendis og erlendis, og virðast þær
stöðugt vera að breytast. Verkefni
okkar núna er að læra að lifa með
Covid-19 og reyna að vernda hvert
annað gegn smiti með sameigin-
legum sóttvörnum. Í því felst að þvo
hendur áður en við snertum munn
eða andlit, halda líkamlegri fjarlægð
við einstaklinga sem við erum ekki í
nánum samskiptum við, nota grímu
þegar ekki er hægt að viðhalda til-
settri fjarlægð og fara eftir reglum
varðandi sóttkví og einangrun. Fyrir
suma er þessi breyting auðveld en
fyrir aðra erfið. Margir finna fyrir
miklum ótta eða kvíða, annars vegar
vegna sjálfra sín og hins vegar
vegna annarra sem þeir telja vera í
áhættuhópi.
Birtingarmyndir ótta
Kvíði, reiði og pirringur eru birt-
ingarmyndir ótta. Þegar við finnum
fyrir ótta er okkur eðlislægt að
verða reið eða pirruð, allt eftir
hversu hrædd við verðum. Foreldri
sem horfir á barnið sitt hlaupa hugs-
unarlaust út á götu óttast að barnið
geti slasast eða dáið. Ef barnið
kemst áfallalaust til baka eru fyrstu
viðbrögð að skamma barnið. Ef
barnið hljóp í veg fyrir bíl en bíl-
stjórinn náði að nauðhemla eru
fyrstu viðbrögð bílstjórans að reið-
ast vegna ótta við að hafa getað vald-
ið barninu skaða. Bílstjórinn gæti
fengið útrás fyrir reiði sína með því
að skamma barnið eða rífast við
hvern þann sem er næstur. Ef barn-
ið hins vegar slasast færist reiði for-
eldrisins á bílstjórann og reiði bíl-
stjórans beinist líklega að honum
sjálfum. Hann getur hugsanlega
fengið útrás með því að skammast út
í yfirvöld, aðstæður á götu og með
sjálfsásökunum.
Skammir og harkaleg orð bæta
aldrei aðstæður og geta valdið miklu
meiri skaða en atburðurinn sjálfur.
Ógætileg orð sögð í reiði er erfitt að
draga til baka og ef þau falla í fjöl-
miðlum eða á samfélagsmiðlum lifa
þau að eilífu.
Það sama gildir um smitsjúkdóma
eins og Covid-19. Það ætlar sér eng-
inn að smitast og enginn vill smita
aðra. Á sama hátt og það er alltaf
hægt að verða fyrir og valda skaða í
umferðinni, sama hversu vel við
pössum okkur, getum við öll smitast
af inflúensu, kvefi eða Covid-19. Því
er eðlilegt að finna fyrir ótta sem við
getum túlkað sem reiði, kvíða eða
pirring. Það skiptir hins vegar miklu
máli hvernig við tjáum þessar nei-
kvæðu tilfinningar.
Sýnum þolinmæði
Skömm og sjálfsásakanir virðast
vera okkur eðlislægar tilfinningar
og því er óþarfi og beinlínis skaðlegt
að reyna að láta annarri manneskju
líða illa með hörðum orðum eða
ásökunum. Heilsugæsla höfuðborg-
arsvæðisins er með ýmis úrræði fyr-
ir fullorðna sem glíma við andlega
vanlíðan svo sem kvíða, þunglyndi,
sjálfsásakanir og reiði. Á heilsu-
gæslum starfa margar stéttir heil-
brigðisstarfsmanna sem eru tilbúnir
og færir um að veita aðstoð og ráð-
leggingar. Á netspjalli á heilsuvera-
.is er hægt að fá ráðleggingar hjá
hjúkrunarfræðingi frá kl. 9-12 og 13-
22 alla virka daga og 10-16 og 19-22
um helgar. Einnig bendum við á efn-
isflokkinn Líðan á heilsuvera.is. Þar
er að finna ýmsan fróðleik varðandi
andlega heilsu og líðan.
Aðgát í nærveru sálar
Við hvetjum alla til að hugsa sinn
gang, sýna hvert öðru þolinmæði og
muna að ekkert okkar er fullkomið.
Við gerum öll mistök og þá vonum
við að aðrir séu umburðarlyndir og
fyrirgefi okkur. Við getum ekki
stjórnað öllum aðstæðum en við get-
um reynt að stjórna viðbrögðum
okkar. Aðgát skal höfð í nærveru
sálar, verum góð hvert við annað.
Morgunblaðið/Eggert
Mannlíf Gengið með grímu á Laugaveginum. Útiveran er mikilvæg rétt eins og smitgát gagnvart veirunni.
Heilsuráð
Ingibjörg Guðmundsdóttir
og Nichole Katrín Salinas,
hjúkrunarfræðingar á
göngudeild sóttvarna hjá
Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins
Landspítali/Þorkell Þorkelsson
September Greining og grímur. Svona er veruleikinn núna á haustdögum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðsins
Umburðarlyndi og Covid-19
18 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2020
Losun gróðurhúsalofttegunda frá
vegasamgöngum á Íslandi dróst sam-
an um 2% á milli áranna 2018 og
2019. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu
2014 sem slíkt gerist. Þetta kemur
fram í bráðabirgðaniðurstöðum Um-
hverfisstofnunar.
Losun tegunda með gróðurhúsa-
lofti vegna urðunar dróst saman um
10% milli fyrrgreindra ára. Aftur á
móti jókst losun frá jarðvarmavirkj-
unum um 5%. Losun frá iðnaðar-
ferlum og efnanotkun jókst umtals-
vert. Sú losun er mest vegna kæli-
miðla sem hafa sjö ára líftíma og því
er losun þeirra í beinu samhengi við
innflutning á þeim sjö árum fyrr.
Hingað til hafa tölur þessar verið
gefnar út tveimur árum eftir að losun
á sér stað, þegar þeim er skilað inn til
þeirra sem sjá um rammasamning
Sameinuðu þjóðanna um breytingar
á loftslagi.
Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöð-
unum dróst losun á beinni ábyrgð Ís-
lands saman um 0,3% á milli áranna
2018 og 2019.
„Með Parísarsáttmálanum höfum
við skuldbundið okkur til að ná 29%
samdrætti í losun á beinni ábyrgð Ís-
lands árið 2030, miðað við losun árs-
ins 2005. Bráðabirgðaniðurstöð-
urnar benda til þess að við höfum nú
náð 6,7% af þeim 29%. Stefnt er að
að minnsta kosti 35% samdrætti árið
2030 samkvæmt aðgerðaáætlun
ríkisstjórnarinnar,“ segir í tilkynn-
ingu Umhverfisstofnunar.
Ísland grænna samkvæmt loftslagsbókhaldi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Umferð Aðgerðir í loftslagsmálum þykja eitt brýnasta viðfangsefni samtímans.
Minni mengun frá bílunum
Laugardaginn 26. september verður
fræsöfnun í Heiðmörk, undir leiðsögn
Aðalsteins Sigurgeirssonar, fagmála-
stjóra hjá Skógræktinni. Frjósemi
trjáa í Heiðmörk er mikil í ár og því
mikil fræmyndun. Aðalsteinn kennir
gestum hvernig á að tína og með-
höndla fræ. Fólk er hvatt til að koma
og taka þátt í að safna fræjum fyrir
skóga framtíðarinnar. Tekið verður á
móti gestum við Borgarstjóraplan
um kl. 13 og síðan verður gengið í
skóginn í söfnunina.
Heiðmörk á laugardag
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Heiðmörk Haustlitirnir heilla.
Safna fræjum
af birkitrjánum
Netuppboð óskilamuna hjá Lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu stendur
fram til 27. september. Fólk ætti því
að hafa nægan tíma til að skoða
munina og bjóða svo í, ef því líst á.
Lögreglan hefur samið við Vöku
um uppboðshaldið sem er á vefsvæð-
inu vaka.is/voruflokkur/uppbod/.
Hægt verður að skoða munina í hús-
næði Vöku á Héðinsgötu í Reykjavík í
dag, fimmtudaginn 24. september,
milli kl. 16 og 18 og nk. laugardag frá
12-14.
Óskilamunir eru falir
Uppboð á neti
Uppboð Skemmtun sem nú hefur
verið færð yfir í hinn stafræna heim.
BETRI SVEFN
Eykur súrefnisflæði í nefgöngum
ANDA er einföld lausn til að draga úr hrotum og getur jafnvel komið alveg í veg
fyrir þær með því að leiðrétta öndun um munn og stuðla
þannig að bættum svefni fyrir þig og rekkjunaut þinn.
ANDA opnar nefhol og auðveldar öndun um nef og hentar
því vel fyrir fólk sem stundar íþróttir og/eða jóga
og vill hámarka súrefnisflæði um nef.
ANDA kemur í nokkrum
stærðum og því geta allir
fundið sína stærð.
ANDA er úr FDA vottuðu sílikoni
og er óskaðlegt notendum.
ANDA er einfalt og öruggt í notkun.
Facebook: Anda Is Facebook: Lyfjabúrið
Katrínartúni 4, Höfðatorgi 105 Reykjavík
Sími 556 0600 lyfjaburid@lyfjaburid.is
4 stykki
í pakka
Verð aðeins
4.990.-