Morgunblaðið - 26.09.2020, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2020
Þó nokkur dæmi eru um það að fólk,
sem kemur til landsins, sé farið aftur
af landi brott þegar kemur að síðari
skimun þess fyrir kórónuveirunni.
Þetta segir Víðir Reynisson, yfirlög-
regluþjónn hjá almannavarnadeild
ríkislögreglustjóra, í samtali við
blaðamann.
Alls greindust 45 ný kórónuveiru-
smit innanlands á fimmtudag, þar af
36 í einkennasýnatökum og níu í
sóttkvíar- og handahófsskimun. Af
þeim sem greindust voru 28 í sóttkví.
Voru því sautján utan sóttkvíar.
Eftirliti með því fólki sem kemur
til landsins, og hvort það fari í sóttkví
á milli fyrri og seinni skimunar, er
þannig háttað að hringt er í viðkom-
andi einstakling mæti hann ekki í síð-
ari skimun, að sögn Víðis.
„Það eru þó nokkur dæmi um að
fólk sé þá þegar farið af landinu,“
segir Víðir og bætir við að í þeim hópi
séu meðal annarra Íslendingar sem
komi til landsins til að vera við jarð-
arför.
„Þeir mega fara í jarðarförina að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum, þótt
þeir séu í sóttkví.“
Hann segir ekki mörg dæmi þess
að ferðamenn komi til landsins, fari í
eina skimun og séu svo farnir af landi
brott þegar kemur að annarri skimun.
Þá segir Víðir að ábendingahnappur á
vefnum covid.is, sem settur var upp
um miðjan mánuðinn, hafi auðveldað
vinnu lögreglu talsvert. sh@mbl.is
Farin af landi brott
fyrir seinni skimun
Hringt í fólk ef
það mætir ekki
45 ný smit
Kórónuveirusmit á Íslandi
Fjöldi greindra smita
innanlands frá 28. febrúar
2.561 staðfest smit
Heimild: covid.is
Nýgengi innanlands 24. sept.
103,1 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa 2
einstaklingar
eru á sjúkrahúsi,
enginn á gjörgæslu
268.837 sýni hafa verið tekin
Þar af í landamæraskimun
147.651 sýni, samtals í skimun 1 og 2
1.685 einstaklingar eru í skimunarsóttkví1.750
1.500
1.250
1.000
750
500
250
0
400
2.362 eru í sóttkví400 einstaklingar eru með virkt smit og í einangrun
mars maí júlí ágúst sept.apríl júní
Með virk smit og í einangrun
Hafa lokið einangrun
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Gufa steig úr öðrum opna sigkatlinum í Bárðarbungu-
öskjunni þegar þyrla Landhelgisgæslunnar flaug þar yf-
ir í vikunni, og vatn og jakar sáust í hinum. Gufa hefur
ekki áður sést svo greinilega þar.
Bárðarbunga er ein af megineldstöðvunum í Vatna-
jökli og eitt virkasta svæði landsins. Ekki er langt síðan
hún lét til sín taka því það var eftir umbrot í Bárðar-
bungu, jarðskjálftahrinu og öskjusig, að gos varð í Holu-
hrauni, norðan við Vatnajökul. Gosefnin bárust eftir
sprungum út í Holuhraun. Harðir jarðskjálftar hafa
komið í Bárðarbungu annað slagið síðustu ár og jarðvís-
indamenn nefnt hana sem eina af þeim eldstöðvum sem
gætu framkallað eldsumbrot.
Gefa vísbendingar um hvað er að gerast
Hafa jarðvísindamenn fylgst sérstaklega með Bárðar-
bungu og notið við það aðstoðar Landhelgisgæslunnar.
Ingibjörg Jónsdóttir, dósent við Jarðvísindastofnun
Háskóla Íslands, segir að sigkatlarnir gefi vísbendingar
um hvað sé að gerast þarna undir. Fyrst hafi sést dældir
sem síðar náðu að opnast alveg í gegn. Fyrir nokkrum
árum hafi farið að sjást vatn í gegnum götin og katlarnir
hafi verið að stækka.
Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands
vann á sínum tíma þrívíddarmyndir af sigkötlunum í
Bárðarbungu út frá ljósmyndum sem Ragnar Axelsson
ljósmyndari tók í nóvember 2017 og birti í Morgun-
blaðinu. Út frá þessum myndum var dýpi katlanna mælt
og talið sýna að í þeim syðri væru um 100 metrar niður á
vatn. Til samanburðar skal þess getið að Hallgríms-
kirkja er tæpir 75 metrar á hæð. Hópurinn er að vinna
slíka þrívíddarmynd nú, eftir myndum Gæslunnar.
Það vakti athygli í eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar í
vikunni að gufa sást stíga upp úr minni katlinum. Ljóst
er því að jarðhiti er undir. Austari ketillinn er stærri og í
fyrrakvöld sást þar heilmikið vatn og jakar, að sögn Ingi-
bjargar.
Hún segir ekki hægt að fullyrða að þessar breytingar
séu merki um aukna virkni í eldstöðinni. Betur sjáanleg
gufa geti stafað af fleiri ástæðum en aukinni virkni.
Landhelgisgæslan/TF-SIF
Bárðarbunga Um 700 metrar eru á milli sigkatlanna í Bárðarbunguöskjunni. Gufa stígur upp úr þeim vestari.
Gufa stígur upp úr
sigkatli í Bárðarbungu
Ekki hægt að fullyrða að aukin virkni sé í eldstöðinni
Landhelgisgæslan/TF-SIF
Jakar Greinilega sést niður á vatn og ís í austari
sigkatlinum. Jarðvísindamenn eru að meta dýpt hans.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var
endurkjörin formaður Viðreisnar á
landsþingi flokksins í gær. Þá var
Daði Már Kristófersson, fráfarandi
forseti félagsvísindasviðs Háskóla Ís-
lands og prófessor í hagfræði, kjörinn
varaformaður flokksins.
Þorgerður sagði í ræðu sinni á
fundinum í gær að það væri ekki nátt-
úrulögmál að dýrt væri að búa á Ís-
landi. Sömuleiðis sagði hún að tvær
þjóðir byggju í landinu, „þjóðin, sem
kreppan bítur – og bítur fast – og
þjóðin sem kreppan lætur enn sem
komið er í friði“.
Þorgerður sagði sýn Viðreisnar
skýra: Það eigi ekki að vera svona
dýrt að vera Íslendingur. „Er það
óhjákvæmilegt að íslenskar fjölskyld-
ur þurfi að greiða mun meira fyrir
mat en fjölskyldur í öðrum löndum?
Nei, þetta er afleiðing pólitískrar
hugmyndafræði gömlu flokkanna –
vegna krónunnar og samkeppnis-
hindrana. Þessu getum við breytt.
Þessu munu íhaldsflokkar ekki
breyta. Lækkum matvælaverð, tök-
um upp evru og rífum niður tolla-
múrana,“ sagði Þorgerður og bætti
við:
„Og hvers vegna er það langtum
dýrara að eignast húsnæði á Íslandi
en í nágrannalöndunum? Þarf það að
vera þannig? Svarið við því er einfald-
lega nei. Hættum að láta íslenskar
fjölskyldur einar um það að marg-
borga húsnæði sitt, verjum þær gegn
sveiflum og leggjum krónunni. Það er
ekki náttúrulögmál að það sé dýrt að
búa á Íslandi. Það er pólitísk ákvörð-
un. Og um þessa sýn og þessi gildi
snúast næstu kosningar.“
Þorgerður sagði kjósendur geta
veitt Alþingi umboð til að mynda
tvenns konar ríkisstjórn. Annars veg-
ar að gefa þeim flokkum umboð sem
vilja framlengja ríkisstjórn kyrrstöðu
og sérhagsmuna, og hins vegar að
gefa þeim flokkum umboð sem þora
að taka stór skref til að brjóta núver-
andi stjórnarmynstur upp og mynda
ríkisstjórn fyrir fjöldann, þar sem
miðja stjórnmálanna verður kjölfest-
an og frjálslyndið þráðurinn.
Þá sagði Þorgerður að við gætum
ekki beðið lengur með að setja fullan
kraft í að bregðast við loftslagsbreyt-
ingum og að á Íslandi væru öll tæki-
færi til að verða framúrskarandi í
orkuskiptum. „Verða grænasta land í
heimi. Því loftslagsmálin/umhverfis-
málin eru efnahagsmál, velferðarmál,
atvinnumál, fjölskyldumál, framtíðar-
mál.“ thorgerdur@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Landsþing Þorgerður formaður á setningu stafræns landsþings Viðreisnar.
Þorgerður leiðir
ásamt Daða Má
Formaðurinn ræddi um misskiptingu