Morgunblaðið - 26.09.2020, Síða 22
FRÉTTASKÝRING
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Í útboðslýsingu fyrir hlutafjárútboð
Icelandair Group sem fram fór
dagana 16. og 17. september sl. er
skýrt kveðið á um að aðeins verði
haft samband við þá áskrifendur
sem samþykktir verði sem kaup-
endur. Við aðra verði ekki haft
samband. Páll Ágúst Ólafsson, lög-
maður athafnakonunnar banda-
rísku, Michele Rosevelt Edwards,
sem skráði sig fyrir sjö milljarða
króna hlut, segir í samtali við
Morgunblaðið að ekki hafi borist
tilkynning frá Icelandair þar sem
tilboðinu er hafnað. „Eðlilega er
umbjóðandi minn og hans bakland
ósátt við þá meðferð sem þau fengu
í þessu útboði og telja að gróflega
hafi verið á þeim brotið,“ segir Páll
Ágúst.
Páll undrast að nú þegar illa árar
í flugrekstri og sem aldrei fyrr sé
brýn þörf á nýjum og lausnamið-
uðum hugmyndum, ásamt hugsan-
lega annars konar aðferðafræði, þá
skuli stjórnendur Icelandair ekki
sjá sér hag í því að fá að borðinu
aðila eins og USAerospace Partn-
ers sem búi að langri reynslu af
fjölþættum flugrekstri og hafi víð-
tæk tengsl inn í fluggeirann, þar á
meðal við Boeing-verksmiðjurnar
og fleiri aðila.
Fjölmennasta frá hruni
Hlutafjárútboð Icelandair er
langfjölmennasta útboð á Íslandi
frá hruni. Yfir níu þúsund áskriftir
bárust fyrir samtals 37,3 milljarða
króna. Í boði voru 23 milljarðar
króna, sem skiptust þannig að 20
milljarðar voru í boði til fagfjár-
festa en þrír til almennings.
Morgunblaðið hafði samband við
sérfræðinga á markaði sem segja
blaðinu að fyrirkomulag útboðsins
sé þrautreynt, og skilmálar afar
skýrir. Því ætti ekkert að hafa
þurft að koma á óvart í fram-
kvæmdinni. Þar að auki sé útboðs-
lýsing birt tímanlega, þannig að all-
ir þátttakendur hafi haft rúman
tíma til að kynna sér reglurnar.
Íslensk kennitala nauðsynleg
Grunnskilyrði í útboði Icelandair
Group, eins og í öðrum íslenskum
útboðum, er að þátttakendur hafi
íslenska kennitölu. Hafi hún verið
til staðar gátu áskrifendur skráð
sig fyrir hlutum inni í sérstöku
áskriftarkerfi sem var opnað vegna
útboðsins.
Í þeim kafla er einnig upplýst að
útgefandinn, Icelandair Group, hafi
rétt á að taka eða hafna hvaða til-
boði sem er.
Páll Ágúst segir að tilboði Ed-
wards hafi verið skilað inn með
kennitölu íslenska hlutafélagsins
WOW Holding. Það sé í eigu
USAeorospace Partners, sem er í
eigu Edwards og viðskiptafélaga
hennar.
Í kafla 5.7 í lýsingunni er tíma-
lína útboðsins kynnt og kveðið á
um hvernig staðið er að kynningu á
niðurstöðu útboðsins, en hún var
kynnt strax að kvöldi 17. septem-
ber.
Upplýst var á mbl.is, hálftíma
áður en útboðinu lauk, að Michelle
Rosevelt Edwards hefði skráð sig
fyrir sjö milljarða hlut í útboðinu.
Um kvöldið upplýsti Icelandair að
tilboði að upphæð sjö milljarðar
hefði verið hafnað, enda hefðu ekki
borist fullnægjandi tryggingar fyrir
greiðslu fjárins.
Eins og kemur fram í kafla 5.8 í
útboðslýsingunni hafa umsjónar-
aðilar útboðsins, Landsbanki og Ís-
landsbanki, rétt á að óska eftir
staðfestingu frá áskrifendum ef
þörf er talin á, og afla þá upplýs-
inga eða gagna um greiðslugetu
eða greiðsluhæfi. Ef fjárfestir verð-
ur ekki við þeirri ósk innan áskrift-
artímabilsins eða einhvers annars
frests sem gefinn er í samskiptum
milli aðila er hægt að hafna áskrift-
inni, að hluta eða öllu leyti.
Tíminn skiptir máli
Morgunblaðið hafði samband við
sérfræðing á markaðnum, og fékk
að vita að því stærri fjárhæð sem
berst í útboði eins og þessu, því
mikilvægara sé að tryggja að menn
séu borgunarmenn fyrir upphæð-
inni. Enn ríkara tilefni er til að
tryggja þetta ef menn þekkja ekki
viðkomandi fjárfesti. Þarna skipti
tíminn öllu máli. Umsjónaraðilar
hafi skamman tíma til að ganga frá
málinu, því allt þurfi að vera á
hreinu áður en viðskipti með hluti í
fyrirtækinu hefjist í kauphöll dag-
inn eftir.
Ef ekki væri gengið eftir trygg-
ingum sem þessum, og síðar yrði
misbrestur á greiðslu, gæti það
ónýtt allt útboðið. Félagið fengi
ekki þann pening sem stefnt var
að, og einhverjir aðrir sem vildu
kaupa, og væru með greiðslugetu,
yrðu óánægðir með að fá ekki að
kaupa þann hlut sem þeir báðu um.
Þetta geti sett allt ferlið út af spor-
inu.
Í samtölum Morgunblaðsins við
sérfræðinga á markaðnum kom í
ljós að þar sem útboðslýsingin ligg-
ur fyrir tímanlega, þá ætti að gef-
ast rúmur tími til að undirbúa
tryggingu fyrir greiðslu, þannig að
hún yrði handbær þegar eftir því
yrði leitað. Þetta ætti enn betur við
þegar um háar fjárhæðir er að
ræða, eins og í tilviki Edwards,
sem hefði þurft að reiða fram sjö
milljarða króna einni viku eftir út-
boðið, en eindagi vegna greiðslu
fjárins var 23. september sl.
En hvernig tryggingu er óskað
eftir? Sérfræðingar segja að til
dæmis myndi nægja að sýna um-
boðsaðilum útboðs bankayfirlit, eða
staðfestingu frá banka eða eigna-
stýringaraðila, sem umboðsaðilar
þekktu. Þar þyrfti að koma fram
með óyggjandi hætti að pening-
arnir væru til inni á reikningi, og
þeir væru til reiðu.
Að sögn aðila sem Morgunblaðið
ræddi við er ekki nauðsynlegt að
kalla eftir slíkri staðfestingu frá
öllum þátttakendum í hlutafjár-
útboði, enda séu sumir vel þekktir
á íslenskum markaði, eins og til
dæmis íslensku lífeyrissjóðirnir.
Þeir hafi í áraraðir verið virkir í
viðskiptum við umboðsaðila útboðs-
ins.
Í kafla 5.8 er einnig skýrt kveðið
á um að útboðshaldarar hafi enga
sérstaka skyldu til að útskýra með
neinum hætti hvernig ákveðið var
að samþykkja eða hafna einstaka
áskrifendum.
Bankafulltrúi var til taks
Spurður hvernig staðfesting á
fjármögnun hafi verið lögð fram í
tilviki tilboðs Edwards segir Páll
Ágúst að send hafi verið inn stað-
festing frá bankafulltrúa Edwards í
bandaríska bankanum Navy Fed-
eral Credit Union. Þar stóð að
fulltrúinn hlakkaði til að hitta Ed-
wards kl. 11 að morgni mánudags-
ins 21. september, til að ganga frá
greiðslu fyrir hlutinn á eindaga,
hinn 23. september. „Í staðfesting-
unni kom fram netfang banka-
fulltrúans, þannig að ef Íslands-
banki eða Landsbanki hafa haft
einhverjar efasemdir var þeim í
lófa lagið að setja sig í samband við
viðkomandi.“
Aðspurður segir Páll Ágúst að
ekki hafi legið fyrir nákvæmlega
hvernig staðfestingu væri leitað
eftir. „Það gerir auðvitað enginn
svona stórt tilboð án þess að vera
full alvara. Michele Roosevelt Ed-
wards fór í flug kl. 14, strax og til-
boðið hafði verið lagt fram. Þá fæ
ég boð um að leggja fram staðfest-
ingu á fjármögnun. Þá er Edwards
á leið til Frankfurt, og þaðan til
Bandaríkjanna. Hún er því ekki í
þægilegri stöðu til að bregðast taf-
arlaust við. Í því einu er m.a. alvar-
leg mismunun þátttakenda fólgin.“
Páll Ágúst segir óskiljanlegt að
ekki hafi í það minnsta verið kallað
eftir eða komið til umræðu hvaða
hugmyndafræði stæði til grundvall-
ar tilboðinu eða hvort aðilar gætu
mögulega sammælst um einhverja
þætti í flugrekstrartengdum áform-
um til framtíðar til hagsbóta fyrir
félagið, hluthafa þess og almenn-
ing. „Sú staðreynd að þetta hafi
ekki verið gert staðfestir í mínum
huga að höfnun tilboðs umbjóðanda
míns með þögninni einni saman
kemur fjármunum eða fjármögnun
nákvæmlega ekkert við og er fyrir-
sláttur. Umbjóðandi minn og henn-
ar bakland, hugmyndafræði og
hagræðingartillögur virðast ein-
faldlega ekki hafa verið stjórnend-
um félagsins þóknanlegar.“
Ekki þörf á samskiptum við
áskrifendur sem er hafnað
Þegar fólk skráir sig fyrir stórum hlut er nauðsynlegt að hafa bankayfirlitið handbært Umsjón-
armenn útboðsins höfðu skamman tíma til að skera úr um niðurstöður útboðs Icelandair Group
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flug Töluverð umframeftirspurn varð eftir hlutum í
Icelandair Group í hlutafjárútboði félagsins á dögunum.
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2020
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Guðmundur Magnason, fram-
kvæmdastjóri Heimkaupa, segir
söluna hafa stóraukist eftir að
þriðja bylgja kórónuveirufaraldurs-
ins hófst. Fram kom í opnuviðtali
ViðskiptaMoggans við Guðmund 12.
ágúst sl. að sölumet hefðu fallið í
samkomubanninu sl. vor.
Að sögn Guðmundar var síðasta
vika stærsta söluvika ársins síðan í
viku 17, 20. til 26. apríl, en salan var
mest 14. viku ársins.
Vegna aukinn-
ar sölu og fjölda
nýrra viðskipta-
vina eigi fyrir-
tækið erfitt með
að anna eftir-
spurn.
„Þegar 12 smit
greindust þriðju-
daginn 15. sept-
ember sendi ég
allt fólkið á skrif-
stofunni heim. Síðan, um síðustu
helgi, skipti ég upp vöktum í húsinu
og aðgreindi bílastjóra. Við erum á
fullri ferð að ráða fólk til að anna
eftirspurn. Um leið og veiran fer af
stað eykst salan.“
Mikil áhersla á sóttvarnir
Guðmundur segir eftirspurnina hafa
verið svo mikla síðustu helgi að ein-
staka matvörur hafi klárast.
„Vélar panta inn vörur hjá okkur
– eðlilega, það er ekki hægt að vera
með fólk í svona verkefnum – og
þær eiga erfitt með að spá fyrir um
svona aukningu. Við getum því lent
í vandræðum þegar salan rýkur
svona upp. Þá þarf mannsaugað að
fylgjast betur með sölunni en við al-
mennt viljum,“ segir hann og vísar
til gervigreindar. Pantar hún vörur
út frá fyrri sölu og væntri sölu.
Þá fjölgar nýjum viðskiptavinum
hjá Heimkaupum um að jafnaði
nærri 200 á viku. Þegar mest var sl.
vor bættust við tæplega 180 nýir
viðskiptavinir á dag. Meðalaldur
viðskiptavina fer aftur hækkandi en
er enn talsvert lægri en þegar
samkomubannið stóð sem hæst. Það
kann aftur að vera vísbending um
að eldra fólk sé nú meira á ferðinni
en sl. vor.
Ruglaði gervigreind í ríminu
Guðmundur
Magnason
Salan í faraldrinum hjá Heimkaup kom gervigreind, sem pantar vörur, á óvart
26. september 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 138.94
Sterlingspund 177.5
Kanadadalur 103.73
Dönsk króna 21.74
Norsk króna 14.572
Sænsk króna 15.297
Svissn. franki 150.23
Japanskt jen 1.3189
SDR 195.15
Evra 161.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 195.3332
Hrávöruverð
Gull 1850.75 ($/únsa)
Ál 1718.5 ($/tonn) LME
Hráolía 41.36 ($/fatið) Brent