Morgunblaðið - 26.09.2020, Side 49
Í LITHÁEN
Sveinn Helgason
sveinnhelga@gmail.com
„Körfuboltinn í Litháen er mjög
góður. Ég var búinn að vera í við-
ræðum við nokkur lið og þegar mér
bauðst að fara hingað til Siauliai var
ég bara mjög spenntur fyrir því.
Þetta er sterk deild og getur verið
góður stökkpallur fyrir mig til að
taka næsta skref upp á við á ferl-
inum,“ segir Elvar Már Friðriksson,
körfuboltamaður úr Njarðvík, sem
leikur nú með liði BC Siauliai í lithá-
ísku úrvalsdeildinni. Borgin er sú
fjórða stærsta í landinu með um
130.000 íbúa.
„Í gegnum árin hefur Siauliai ver-
ið þriðja besta liðið í deildinni á eftir
risunum tveimur, Zalgiris og Rytas.
Í fyrra var liðið hinsvegar í 8. sæti
en við stefnum hærra í ár og vonandi
get ég hjálpað félaginu til að ná sín-
um markmiðum,“ segir Elvar og
bætir við að liðið sé ungt. Sjálfur er
hann 25 ára gamall og segist vera
með þeim eldri í hópnum. Með
Siauliai leika tveir Bandaríkjamenn
og einn Belgi þannig að í „útlend-
ingahersveitinni“ eru fjórir leik-
menn en Elvar segir að litháísku
strákarnir séu líka mjög öflugir.
„Það tekur smá tíma að slípa liðið
til og kannski blómstrum við ekki í
fyrstu leikjunum en ég held að eftir
tvo til þrjá mánuði fari þetta að
smella almennilega hjá okkur. Þjálf-
arinn heitir Antanas Sireika og hann
leggur mikla áherslu á smáatriðin í
leik okkar. Hann er gömul goðsögn
hér í Litháen og vann m.a. Evrópu-
meistaratitil með landsliðinu sem
þjálfari. Hann er héðan frá Siauliai
og nánast í guðatölu hjá íbúunum.
Þannig að það er gaman að fá að
spila fyrir hann.“
Þjóðaríþróttin og
geysileg ástríða
Elvar vissi það fyrir að í Litháen
er mikil ástríða fyrir körfubolta
enda hafa bæði félagslið og lands-
liðið náð góðum árangri á alþjóð-
legum vettvangi.
„Þetta er bara þjóðaríþróttin.
Áhuginn er alveg svakalegur, ég hef
aldrei upplifað annað eins og hér
hafa allir skoðun á körfubolta.“
Segja má að Siauliai hafi fengið
eldskírn í sínum fyrsta leik á tíma-
bilinu, á útivelli gegn Zalgiris-liðinu
frá Kaunas sem hefur orðið litháísk-
ur meistari undanfarin tíu keppnis-
tímabil og oft þar á undan. Lokatöl-
ur urðu 89:56 fyrir heimamenn.
Elvar segir að fyrri hálfleikurinn hjá
Siauliai hafi verið góður en svo hafi
Zalgiris sýnt styrk sinn.
„Í seinni hálfleik keyrðu þeir yfir
okkur, breiddin hjá þeim er mikil og
allir 12 leikmennirnir eru virkilega
góðir. En það var gaman að máta sig
við þá . Zalgiris er vinsælasta liðið
hér í Litháen, alveg sama hvert þú
ferð, þetta er nánast þjóðarliðið.“
Harður körfubolti en
skemmtileg barátta
Elvar er í stöðu leikstjórnanda hjá
Siauliai og segir það vera sitt hlut-
verk að stilla upp liðinu bæði í vörn
og sókn.
„Þegar þarf að taka af skarið þá
geri ég það. Mitt hlutverk er því
stórt og ég nýt þess að bera ábyrgð-
ina sem því fylgir. Ég vil vera leið-
toginn og ég held að það henti mér
bara vel.“
Körfuboltinn í Litháen er harður
og dómarar leyfa töluverða snert-
ingu. Elvar hefur ekki farið varhluta
af því, m.a. í fyrsta leik Siauliai á
heimavelli, gegn Pieno Zvaigzdes sl.
miðvikudagskvöld.
„Boltinn hér er mun harðari en ég
er vanur. Andstæðingarnir fá að
grípa í þig, halda þér og ýta. Mér
finnst það bara gaman og ég hef
undirbúið mig vel yfir sumartímann,
m.a. með styrktaræfingum,“ segir
Elvar.
Leikurinn gegn Pieno Zvaigzdes
tapaðist á grátlegan hátt á loka-
sekúndunum þegar gestirnir skor-
uðu þriggja stiga körfu og unnu
81:80.
„Þetta var grútfúlt. Við vorum
með yfirhöndina nánast allan leikinn
en lentum svo undir í þrjú sek-
úndubrot og úrslitin voru mjög
svekkjandi,“ sagði Elvar eftir leik-
inn. Hann lék í 35 mínútur af 40, var
stigahæstur í sínu liði með 19 stig,
með flestar stoðsendingar, 10 tals-
ins, og tók 6 fráköst.
„Ég barðist vel og fann liðsfélaga í
góðum færum, en skotin mín fóru
ekki öll ofan í körfuna því ég var orð-
inn þreyttur í lokin. Ég þarf bara að
koma mér í betra leikform og setja
þessi skot niður.“
Elvar segist vera ánægður í
Siauliai og hefur komið sér þar vel
fyrir unnustu sinni Ínu Maríu Ein-
arsdóttur, líka úr Njarðvík, og ellefu
mánaða syni, Erik Marel. Sá stutti
fylgdist með pabba sínum á mið-
vikudagskvöldið – fram að leikhléi
en þá var úthaldið á þrotum!
Alinn upp í körfuboltafjölskyldu
Elvar lék með Njarðvík í íslensku
úrvalsdeildinni áður en hann hélt út í
nám til Bandaríkjunna 2014 til 2018
þar sem hann spilaði með háskólalið-
um í New York og Miami. Hann seg-
ir Bandaríkjadvölina hafa verið góða
reynslu en síðast var Elvar hjá Bor-
ås í sænsku úrvalsdeildinni. Ræt-
urnar eru hinsvegar suður með sjó
og Elvar kemur úr mikilli körfu-
boltafjölskyldu. Faðir hans, Friðrik
Ragnarsson, var sigursæll sem leik-
maður og þjálfari Njarðvíkinga og
móðir Elvars, Svandís Gylfadóttir,
var einnig í fremstu röð með
kvennaliði Keflavíkur.
„Það er mikil körfuboltahefð í
Njarðvík og ég er alinn upp í algjörri
körfuboltafjölskyldu. Pabbi spilaði
lengi með Njarðvíkingum, þjálfaði
liðið og vann marga titla. Mamma
spilaði líka körfubolta og bróðir
pabba. Vinafólk okkar hefur sömu-
leiðis verið á kafi í þessari íþrótt
þannig að lífið hefur varla snúist um
annað körfubolta,“ segir Elvar og
hlær. Hann bætir við fjölskyldan
hafi stutt vel við bakið á sér á at-
vinnumannsferlinum – horfi á leiki í
sjónvarpinu og hafi líka komið í
heimsókn. „Pabbi spáir mikið í þetta
sem gamall þjálfari og leikmaður og
hefur gefið mér góð ráð. Stuðning-
urinn að heiman er góður.“
Elvar er jafnframt í íslenska
landsliðinu í körfubolta og segir að
þar séu spennandi tímar framundan.
Ungir leikmenn séu nú áberandi í
liðinu og ákveðin kynslóðaskipti að
eiga sér stað.
Snúið að vera íþróttamaður
vegna COVID-19
Íþróttahöllin í Siauliai rúmar um
7.000 áhorfendur en einungis tæp-
lega 500 manns voru á fyrsta heima-
leiknum. Ástæðan er að sjálfsögðu
takmarkanir á áhorfendafjölda sem
grípa hefur þurft til vegna út-
breiðslu kórónuveirunnar. Allir voru
hitamældir við innganginn og skylda
er að vera með andlitsgrímu.
„Það er snúið að vera íþróttamað-
ur við þessar aðstæður. Ég verð
bara að fara varlega og ekki vera
innan um margt fólk að óþörfu til að
forðast smit. Og svo þetta klassíska,
vera með grímu og huga að sótt-
hreinsun. Fyrir fjölskylduna er líka
aðeins erfiðara að komast inn í dag-
legt líf hérna í Litháen út af þessum
takmörkunum. En við tökum því
bara rólega og njótum til dæmis
góða veðursins meðan það varir.“
Elvar gerði tveggja ára samning
við Siauliai sem hann segir að hægt
sé að endurskoða milli keppnis-
tímabila. Hinsvegar líki líki honum
dvölin í Litháen vel það sem af er.
Hann segir að markmiðið sé þó alltaf
að spila í Evrópudeildunum í körfu-
bolta þar sem sterkustu liðin í álf-
unni taka þátt. „Það er klárlega
markmiðið að komast upp í þannig
bolta,“ segir Elvar Már Friðriksson,
leikmaður með BC Siauliai í lithá-
ísku úrvalsdeildinni í körfubolta.
Leiðtogahlutverkið hentar
vel og ég stefni hærra
Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson leikur fyrstur Íslendinga í Litháen
Ljósmynd/Sveinn Helgason
Siauliai Elvar Már Friðriksson fyrir utan hina glæsilegu höll BC Siauliai
þar sem Njarðvíkingurinn lék sinn fyrsta heimaleik á miðvikudaginn.
ÍÞRÓTTIR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2020
KR er enn í botnsæti Pepsi Max-
deildarinanr í fótbolta eftir að
Stjarnan kom í heimsókn í Vestur-
bæinn í gær og vann sanngjarnan
2:0-sigur. Angela Caloia og Aníta
Ýr Þorvaldsdóttir gerðu mörk
Stjörnunnar í fyrri hálfleik. KR hef-
ur átt erfitt sumar; þrisvar hefur
allt liðið þurft að fara í sóttkví, sigr-
arnir eru aðeins þrír í tólf leikjum
og þá er liðið í botnsætinu. KR á
enn tvo leiki til góða á liðin fyrir of-
an, en þeir koma að litlu gagni ef
liðið spilar ekki betur en í gær.
Stjarnan tapaði fyrir Val og Breiða-
bliki fyrir leikinn gegn KR en vann
þar á undan Selfoss og ÍBV. Hefur
Garðabæjarliðið því unnið síðustu
þrjá leiki sem eru ekki gegn efstu
liðunum og í fínum málum eftir erf-
iða byrjun.
„Spilamennska KR-inga í fyrri
hálfleik var í einu orði sagt sorgleg.
Liðið átti ekki þrjár sendingar á
milli manna, takturinn var enginn í
liðinu, leikmenn liðsins voru ósam-
stilltir og til að toppa allt þetta var
þvílíkt andleysi í liðinu sem er stór-
furðulegt enda hefði sigur komið
þeim af fallsvæðinu,“ skrifaði Bjarni
Helgason m.a. um leikinn á mbl.is.
johanningi@mbl.is
KR-ingum tókst ekki að rífa sig af botninum
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Markaskorari Betsy Hassett skor-
aði fyrra mark Stjörnunnar.
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Kópavogsvöllur: Breiðablik – ÍBV........ L14
Jáverksvöllur: Selfoss – Þróttur R ....... L14
Kaplakriki: FH – Þór/KA ...................... L15
Würth-völlur: Fylkir – Valur................. L17
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Norðurálsvöllur: ÍA – Víkingur R ......... S14
Meistaravellir: KR – Fylkir ................... S14
Kaplakriki: FH – Fjölnir........................ S14
Vivaldi-völlur: Grótta – KA............... S16.15
Origo-völlur: Valur – Breiðablik....... S19.15
Kórinn: HK – Stjarnan...................... S19.15
1. deild karla, Lengjudeildin:
Domusnovav.: Leiknir R. – Aftureld .... L14
Fjarðab.höll: Leiknir F. – Víkingur Ó .. L14
Eimskipsvöllur: Þróttur R. – ÍBV ........ L14
Þórsvöllur: Þór – Fram.......................... L14
Grindavíkurv.: Grindavík – Magni........ L15
2. deild karla:
Ásvellir: Haukar – Víðir ......................... S14
Vogar: Þróttur V. – Kórdrengir ............ S14
Vodafonevöllur: Völsungur – ÍR............ S14
Rafholtsvöllur: Njarðvík – Dalvík/Rey. S14
Jáverksvöllur: Selfoss – KF................... S15
Akraneshöll: Kári – Fjarðabyggð .... S19.15
3. deild karla:
Fjölnisv.: Vængir J. – Höttur/Hug .. L13.15
Bessastaðav.: Álftanes – Einherji......... L14
Samsung-völlur: KFG – Reynir S......... L14
Sindravellir: Sindri – Augnablik ...... L15.30
4. deild, fyrri úrslitaleikir:
Hásteinsvöllur: KFS – Hamar .............. L14
Blönduósvöllur: Kormákur/Hvöt – ÍH . L14
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Vivaldi-völlur: Grótta – Völsungur ....... L16
Sauðárkrókur: Tindastóll – Haukar...... S16
2. deild kvenna:
Grindavíkurv.: Grindavík – Hamar ....... S14
Bessastaðavöllur: Álftanes – ÍR............ S14
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
KA-heimilið: KA – Grótta ...................... L17
Vestmannaeyjar: ÍBV – Valur.......... L17.30
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Framhús: Fram – Haukar ................ L13.30
Vestmannaeyjar: ÍBV – Valur.......... L14.45
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Víkin: Víkingur – Haukar U ............. L14.30
Framhús: Fram U – Selfoss U.............. L16
Dalhús: Fjölnir – HK.............................. S19
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Hertz-höll: Grótta – Afturelding...... L13.30
Framhús: Fram U – Selfoss .................. S15
Dalhús: Fjölnir/Fylkir – HK U......... S16.15
Í KVÖLD!
Spánn
Real Madrid – Zaragoza................... 102:83
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 11 stig
og tók átta fráköst fyrir Zaragoza.
Valencia – Andorra............................. 91:76
Martin Hermannsson skoraði 14 stig,
gaf fjórar stoðsendingar og tók eitt frákast
á 20 mínútum hjá Valencia.
Haukur Helgi Pálsson skoraði sex stig,
tók eitt frákast og gaf eina stoðsendingu
hjá Andorra.
Úrslitakeppni NBA
Vesturdeild, úrslit:
Denver LA Lakers ........................... 108:114
Staðan er 3:1 fyrir Lakers og fimmti leik-
urinn fer fram í nótt.
Knattspyrnu-
deild FH hefur
fest kaup á hin-
um 33 ára gamla
Matthíasi Vil-
hjálmssyni frá
Vålerenga í Nor-
egi þar sem hann
hefur verið síð-
ustu tvö ár. Gerir
Matthías þriggja
ára samning við
FH og gengur formlega í raðir fé-
lagsins um áramótin. Matthías, sem
er Ísfirðingur, þekkir vel til hjá FH
en hann lék með liðinu frá 2005 til
2011, áður en hann hélt til Start í
Noregi og síðan Rosenborg áður en
leiðin lá til Vålerenga. Skoraði
hann 37 mörk í 115 deildarleikjum
með FH.
Hefur Matthías leikið sextán A-
landsleiki og skorað í þeim tvö
mörk, en síðasti landsleikurinn kom
árið 2016.
Varð Matthías Íslandsmeistari
með FH 2006, 2008 og 2009 og
norskur meistari með Rosenborg
2015, 2016, 2017 og 2018. Þá varð
hann bikarmeistari 2007 og 2010
með FH og 2015, 2016 og 2018 með
Rosenborg.
Matthías aft-
ur í raðir FH
Matthías
Vilhjálmsson
KR – Stjarnan 0:2
0:1 Betsy Hassett 31.
0:2 Aníta Ýr Þorvaldsdóttir 40.
M
Erin Mcleod (Stjörnunni)
Anna María Baldursdóttir (Stjörnunni)
Arna Dís Arnþórsdóttir (Stjörnunni)
Aníta Ýr Þorvaldsdóttir (Stjörnunni)
Shameeka Fishley (Stjörnunni)
Betsy Hassett (Stjörnunni)
Málfríður Erna Sigurðard. (Stjörnunni)
Ingibjörg Valgeirsdóttir (KR)
Ingunn Haraldsdóttir (KR)
Angela Beard (KR)
Dómari: Bríet Bragadóttir – 4.