Morgunblaðið - 26.09.2020, Side 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2020
Samfélagsmiðlastjarnan og
skemmtikrafturinn Eva Ruza færir
hlustendum K100 fréttir af fræga,
fallega, fína og ríka fólkinu á
hverjum degi.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Sagan segir að Egner hafi fengið
hugmyndina að Kardemommu-
bænum á ferðalagi sínu um lönd
Miðjarðarhafsins, en í teikningum
hans má sjá að hann hefur verið und-
ir sterkum sjónrænum áhrifum frá
meðal annars Marokkó og Sikil-
eyjum,“ segir Ágústa Skúladóttir
sem leikstýrir
Kardemommu-
bænum eftir
Thorbjørn Egner
sem frumsýndur
verður í Þjóðleik-
hússinu um
helgina. Litrík
leikmynd Högna
Sigurþórssonar
snýst á Stóra
sviðinu meðan
blaðamaður og
Ágústa ræðast við úti í sal og leik-
stjórinn notar reglulega tækifærið til
að benda á skemmtilegar sjónrænar
lausnir.
„Eins og þú sérð verður hljóm-
sveitin staðsett uppi á húsþökum,
sem er miklu skemmtilegra en að
hafa hana ofan í gryfjunni,“ segir
Ágústa, en fyrir hljómsveitinni fer
Karl Olgeir Olgeirsson, en hann hef-
ur gert nýjar útsetningar á allri tón-
list verksins sem eru undir sterkum
áhrifum frá New Orleans þar sem
djassinn hefur löngum dunað. „Við
leitum áhrifa víðar, jafnvel til Mexíkó
– enda teiknar Egner persónur með
sombrero í Kardemommubænum,“
segir Ágústa og viðurkennir fúslega
að útlit Soffíu frænku sé undir sterk-
um áhrifum frá Fridu Kahlo, en bún-
inga hannaði María Th. Ólafsdóttir.
Ólafur Ágúst Stefánsson lýsir og
Chantelle Carey er danshöfundur.
Dansandi og talandi dýr
„Það er því alveg ljóst að þetta er
ekki norskur bær heldur töfrabær
þar sem allt getur gerst. Í raun má
segja að töfraraunsæið svífi hér yfir
öllu, því Egner kynnir til sögunnar
bæði syngjandi úlfalda og páfagauk,“
segir Ágústa og tekur fram að hún
hafi bætt við fleiri skemmtilegum
dýrum í anda leikskáldsins, svo sem
dansandi skjaldböku en á móti valið
að sleppa hundaballettinum sem tal-
að er um í handriti.
„Allt er þetta því í boði Egners.
Við leyfum okkur að feta aðeins nýj-
ar slóðir þó við séum ávallt trú klass-
íkinni,“ segir Ágústa og nefnir sem
dæmi að íslenskir áhorfendur muni í
þessari sjöttu uppfærslu Þjóðleik-
hússins á Kardemommubænum frá
því verkið var frumflutt hérlendis ár-
ið 1960 kynnast Hagerup-fjölskyld-
unni ögn betur. „Í upprunalegu
handriti Egners kynnir hann ýmsa
íbúa bæjarins til sögunnar og nefnir
þar á meðal Hagerup trommuslagara
og Andersen sund- og söngkennara
sem ég held að hafi nú aldrei birst á
sviði. Í okkar útgáfu er Hagerup-
fjölskyldunni margt til lista lagt, en
það nýtist vel þegar Jesper er ráðinn
sirkusstjóri,“ segir Ágústa leyndar-
dómsfull og tekur fram að sjón sé
sögu ríkari.
Bitist um hlutverkin
Í hlutverkum ræningjanna þriggja
eru Hallgrímur Ólafsson sem er
Kasper, Sverrir Þór Sverrisson sem
er Jesper og Oddur Júlíusson sem er
Jónatan. Ólafía Hrönn Jónsdóttir og
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
skipta með sér hlutverki Soffíu
frænku og Örn Árnason er Bastían
bæjarfógeti. „Örn óskaði sérstaklega
eftir því að fá að leika þetta hlutverk
sem ég samþykkti auðvitað strax, en
hann hefur í gegnum árin farið með
hlutverk allra ræningjanna þriggja í
þremur mismunandi uppfærslum,“
segir Ágústa og bendir á að Örn sé
þaulvanur leikritum Egners þar sem
hann hafi líka leikið bakarameistar-
ann, bangsapabba og sjálfan Lilla
klifurmús í Dýrunum í Hálsaskógi.
„Það felst mikil skuldbinding í því að
leika í verkum Egners því sýnt er all-
ar helgar í hálft annað ár og því
mikilvægt að ástríðan sé fyrir hendi,“
segir Ágústa og bendir á að hlutverk
ræningjanna sem og Soffíu frænku
séu löngu orðin íkónísk. „Listamenn
bítast því um að fá að túlka þessi
sögufrægu hlutverk.“
Aðalatriði að þjóna sögunum
Ágústa leikstýrði rómaðri upp-
færlu á Dýrunum í Hálsaskógi sem
frumsýnd var í Þjóðleikhúsinu 2012.
„Það er gaman að vinna með Egner
og því þurfti ég ekki að hugsa mig
tvisvar um þegar mér bauðst að leik-
stýra Kardemommubænum,“ segir
Ágústa sem leikstýrði einnig barna-
sýningu ársins 2020 að mati dóm-
nefndar Grímuverðlaunanna, þ.e.
Gosa, ævintýri spýtustráks.
„Mér finnst ég hafa verið ótrúlega
heppin á ferlinum að fá tækifæri til
að vinna fullt af nýjum íslenskum
sýningum frá grunni, svo sem Klaufa
og kóngsdætur og Eldhús eftir máli, í
bland við klassíkina,“ segir Ágústa og
nefnir í því samhengi Kardemommu-
bæinn, Dýrin í Hálsaskógi og Línu
langsokk. „Það fylgir því mikil
ábyrgð að vinna vandaðar og
skemmtilegar sýningar fyrir börn,
því það skiptir öllu máli að vekja
áhuga þeirra á leikhúsinu þannig að
þau langi til að koma aftur og aftur,“
segir Ágústa og áréttar að leiksýn-
ingar fyrir börn séu í eðli sínu ávallt
fjölskyldusýningar þar sem börn
komi jú yfirleitt í fylgd með for-
eldrum, ömmum og öfum. „Leikhús
er leikhús og þarf ekki á flokkunum
að halda. Aðalatriðið er að að þjóna
sögunum og leyfa töfrunum að njóta
sín. Það er fallegt starf að vera leik-
stjóri og ég er mjög þakklát fyrir að
fá tækifæri til að miðla töfrum til
áhorfenda.“
Enginn rekinn úr landi
Æfingar á Kardemommubænum
voru hálfnaðar þegar kófið brast á í
vor og því liggur beint við að spyrja
hvort sýningin hafi notið góðs af því
að fá að meltast. „Ekki spurning.
Þetta er samt búið að vera mjög sér-
kennilegt ferli. Það er meira en ár
síðan undirbúningurinn hófst og þess
eru dæmi að börnin í leikhópnum hafi
vaxið upp úr skónum sínum og bún-
ingum á æfingatímanum,“ segir
Ágústa og nefnir sem dæmi að frum-
sýningardagurinn hafi breyst tvisvar
síðan 4. ágúst.
„Í vor var þegar orðið uppselt á um
30 sýningar og ef allt hefði verið eðli-
legt væri nú þegar búið að sýna verkið
50 sinnum. Þetta eru auðvitað skrýtn-
ir tímar sem auðveldlega gætu tekið á
taugarnar, en þá er ekkert betra en
heimsækja Kardemommubæinn þar
sem allt byggist á náungakærleika og
væntumþykju,“ segir Ágústa og
bendir á að bæði Dýrin í Hálsaskógi
og Kardemommubærinn beri ritunar-
tíma sínum merki. „Egner skrifaði
verkin stuttu eftir seinna stríð og var
upptekinn af hugmyndinni um að fólk
og dýr geti búið í friði, að við virðum
alla þá sem eru öðruvísi en við og að
allir séu velkomnir – enda er enginn
rekinn úr landi í þessum heimi.“
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Litadýrð „Í raun má segja að töfraraunsæið svífi hér yfir öllu,“ segir leikstjóri Kardemommubæjarins.
„Töfrabær þar sem allt getur gerst“
Kardemommubærinn frumsýndur í Þjóðleikhúsinu Verk sem byggist á náungakærleika og
væntumþykju „Við leyfum okkur að feta aðeins nýjar slóðir þó við séum ávallt trú klassíkinni“
Ágústa
Skúladóttir
Sýning er nefnist Prefab/Forsmíð
verður opnuð í Skaftfelli á Seyðis-
firði í dag, laugardag, klukkan 14. Í
kynningu á sýningunni segir: Ein-
ingahús, það er byggingar úr ein-
ingum sem eru forsmíðaðar í verk-
smiðju og svo fluttar og settar
saman á endanlegum stað, eru
grundvallandi fyrir þróun byggðar
í Seyðisfjarðarkaupstað. Á sýning-
unni verða tekin fyrir þrjú dæmi
um forsmíðuð einingahús með það
að markmiði að vekja athygli á
áhrifum byggingarlistar á líf okk-
ar, og þá sérstaklega hvaða hlut
einingahús geta átt í framtíð mann-
gerðs umhverfis. Einingahúsin sem
fjallað er um á sýningunni eru frá
seinni hluta 19. aldar til okkar
daga.
Áherslan á fagurfræðilegan þátt
viðfangsefnisins er undirstrikuð
með samspili þrívíðu innsetning-
anna við verk eftir þrjá samtíma-
listamenn, þau Maríu Sjöfn Dupuis
Davíðsdóttur, Ingunni Fjólu Ing-
þórsdóttur og Arnór Kára Egilsson.
Sýningarstjóri er Guja Dögg
Hauksdóttir.
Sýning um forsmíðuð hús í Skaftfelli
Skaftfell Á sýningunni eru einnig sett upp
verk þriggja samtímalistamanna.
Gunnar Helgason rithöfundur og
leikari og Töfrahurðarhljómsveitin
koma fram saman í Salnum í Kópa-
vogi í dag klukkan 13 og eru tón-
leikarnir í viðburðaröðinni „Fjöl-
skyldustund á laugardögum“. Um
er að ræða líflega djasstónleika fyr-
ir alla fjölskylduna.
Í tilkynningu segir að einkennis-
perlur djasssögunnar verði mat-
reiddar fyrir unga hlustendur.
Leifur Gunnarsson bassaleikari er
hljómsveitarstjóri og höfundur sýn-
ingarinnar og mun koma fram
ásamt Gunnari, Sólrúnu Mjöll
Kjartansdóttur,
Sunnu Gunn-
laugsdóttur og
Rósu Guðrúnu
Sveinsdóttur.
Verkefnið
Töfrahurð-
arhljómsveitin
var fyrst flutt ár-
ið 2018 og er
byggt á þeirri
trú hljómsveitar-
stjórans Leifs að tónlist fyrir
krakka megi gjarnan vera krefj-
andi og lærdómsrík.
Gunnar með Töfrahurðarhljómsveitinni
Gunnar
Helgason