Morgunblaðið - 26.09.2020, Side 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2020
Morgunblaðið/Einar Falur
Þrjú tröll og ein pen kona Kristinn, Bjarni Thor, Helga Bryndís og Viðar ætla að skemmta sér vel á tónleikunum.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Við erum aðallega að gera þetta af
því að okkur langar til þess. Við ætl-
um að skemmta okkur og vonandi
öðrum í leiðinni,“ segir Bjarni Thor
Kristinsson bassasöngvari en hann
ásamt tveimur öðrum djúprödduð-
um, þeim Kristni Sigmundssyni og
Viðari Gunnarssyni, ætlar að syngja
á bassatónleikum í Salnum í Kópa-
vogi á morgun, sunnudag, kl. 16.
Tónleikarnir hafa yfirskriftina
Tröllaslagur – Þrír hávaxnir söngv-
arar og penn píanóleikari. Þau fjög-
ur ætla að bjóða upp á ferðalag um
undraveröld bassabókmenntanna í
fjölbreyttri efnisskrá sem inniheldur
bæði íslenska og erlenda tónlist, en
Helga Bryndís Magnúsdóttir sér um
meðleikinn.
„Þetta er hugmynd sem hefur
verið í farvatninu í svolítinn tíma, að
við bassarnir þrír héldum tónleika
þar sem við leiddum saman hesta
okkar. Nú er lag, því við erum allir
staddir á landinu, vegna covid, sem
er þá lán í óláni. Við viljum með
þessum tónleikum sýna að þessi
gamla hefð, að þrír tenórar syngi
saman, sé ekki eina leiðin til að setja
saman þrjá söngvara af sömu sort.
Vissulega er fágætara að fólk fái að
heyra bassa syngja saman og tími til
kominn.“
Þegar Bjarni er spurður um laga-
valið á tónleikunum segir hann að
hver og einn þeirra velji lög úr sín-
um handraða, lög sem þeim finnist
sjálfum skemmtilegt að syngja.
„Auðvitað syngjum við líka saman
og bjóðum vonandi upp á fjölbreyti-
legt bassalagahlaðborð. Mörg lögin
eru hreinræktuð bassalög, það gefur
augaleið, en við ætlum líka að kíkja
aðeins á lög sem bassar hafa ekki
verið að syngja, til að sýna að bassar
geta sungið allt. Við getum auðvitað
allt,“ segir Bjarni og hlær svo dryn-
ur í. „Þetta verður sem sagt bland í
poka hjá okkur, við förum bæði hefð-
bundnar leiðir í lagavali og óhefð-
bundnar. Við höfum að leiðarljósi að
hafa sjálfir gaman af þessu og von-
andi að gestir okkar hafi það líka.“
Þegar Bjarni er spurður að því
hvort þeir bassarnir þrír ætli að
keppast við að komast sem dýpst,
rétt eins og tenórar reyni oft að
þenja sig hver yfir annan í hátóna-
keppni, svarar hann því neitandi.
„Við bassarnir erum af allt öðru
sauðahúsi en tenórar hvað það varð-
ar, við erum kurteisin uppmáluð og
njótum þess að hlusta hver á annan.
Engin samkeppni þar, enda erum
við allir einstakir,“ segir hann og
hlær. „Við ætlum reyndar að sam-
einast í nokkrum mjög djúpum tón-
um og hver veit nema Salurinn muni
þá titra.“ En hvernig líður hinni
penu Helgu Bryndísi undirleikara
með ykkur tröllunum þremur?
„Við gátum ekki fengið betri með-
leikara en hana á þessum tónleikum,
hún er með dimmrödduðustu píanó-
leikurum norðan Alpafjalla, svo hún
er alveg niðri á okkar plani. Að öllu
gríni slepptu er Helga alveg ótrú-
lega fjölhæfur píanisti, einmitt það
sem þarf í svona prógramm. Tón-
leikarnir í Salnum á morgun eru
bara þeir fyrstu af þrennum, næstu
helgi flytjum við þessa sömu dag-
skrá í Ísafjarðarkirkju og helgina
eftir það í Hofi á Akureyri. Fyrst við
erum að þessu á annað borð þá er til-
valið að fara í örlítið tónleikaferða-
lag.“
Dýpstu tónarnir munu
eflaust láta Salinn titra
Ætla að bjóða upp á fjölbreytilegt bassalagahlaðborð
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
Bókaforlagið
Salka gefur aðal-
lega út bækur
fyrir börn og
sjálfshjálpar-
bækur fyrir þessi
jól, en einnig
skáldskap.
Grísafjörður
heitir fyrsta
skáldsaga Lóu
Hlínar Hjálmtýs-
dóttur og segir
frá systkinunum
Ingu og Baldri.
Bókin er fyndin
saga fyrir les-
endur á aldrinum
7-12 ára. Lóa
Hlín mynd-
skreytir bókina
sjálf.
Lóa Hlín mynd-
skreytir líka bók-
ina Snuðra og
Tuðra fara í sund
eftir Iðunni
Steinsdóttir og
væntanleg er
endurbætt útgáfa
af Snuðru og
Tuðru í jólaskapi.
Í bókinni Vertu
þú! segja Ingileif
Friðriksdóttir og
María Rut Krist-
insdóttir sögur
margra ólíkra barna af fjölbreyti-
leikanum sem hvetja til fordóma-
leysis og víðsýni. Þær Ingileif og
María Rut halda úti fræðsluvett-
vanginum Hinseginleikinn.
Myndir gerir Alda Lilja
Hrannardóttir.
Erla Björnsdóttir segir frá
Sunnu og Bjarti vini hennar í
Svefnfiðrildunum og útskýrir
mikilvægi svefns og hvíldar fyrir
börnum. Myndir gerir Auður Óm-
arsdóttir.
Erla Björnsdóttir er sálfræð-
ingur og doktor í líf- og læknavís-
indinum. Hún hefur sérhæft sig í
rannsóknum á svefni og með-
ferðum gegn svefnleysi.
Í Íslandsdætrum segir Nína
Björk Jónsdóttir sögur merki-
legra og sterkra kvenna í Íslands-
sögunni, allt frá landnámi til nú-
tímans. Myndir gerir Auður Ýr
Elísabetardóttir.
Samskipti Pálmars Ragn-
arssonar er leiðarvísir að jákvæð-
um samskiptum á mörgum svið-
um, hvort sem er í einkalífinu, á
vinnustað eða í félagslífinu. Farið
er ítarlega yfir alls kyns sam-
skipti milli einstaklinga, sam-
skipti í hópum, hagnýtar aðferðir
í samskiptum við börn, samskipti
við ókunnuga og samskipti á net-
inu.
Í Lífsgæðabókinni eftir Ragn-
heiði Agnarsdóttur kemur fram
að grunnurinn að lífsgæðum okk-
ar byggist á því að við hlúum vel
að grunnstoðunum fjórum; nær-
ingu, hreyfingu, samskiptum og
svefni. Ragnheiður Agnarsdóttir
er stofnandi Heilsufélagsins.
Í Framkomu fer Edda
Hermannsdóttir yfir grundvall-
aratriði þess að koma sér á fram-
færi á fjölbreyttum vettvangi. Í
bókinni eru birt góð ráð frá
reynslumiklu fólki í fjölmiðlum og
atvinnulífinu. Edda hefur starfað í
fjölmiðlum og við upplýsingagjöf
um árabil og haldið námskeið um
framkomu.
Að lokum má svo nefna nýja
skáldsögu eftir Sólveigu Páls-
dóttur, Klettaborgina, sem sker
sig úr fyrri verkum Sólveigar með
því að vera ekki glæpasaga, því
Klettaborgin er minningabók úr
æsku hennar. arnim@mbl.is
Bækur fyrir börn
og fullorðna
Fyrsta skáldsaga Lóu Hlínar
Sögur barna af fjölbreytileikanum
Lóa Hlín
Hjálmtýsdóttir
Ingileif
Friðriksdóttir
María Rut
Kristinsdóttir
Sólveig
Pálsdóttir
Erla
Björnsdóttir
Ragnheiður
Agnarsdóttir
Edda
Hermannsdóttir
Pálmar
Ragnarsson
Nína Björk
Jónsdóttir
Bókaforlagið Una útgáfuhús gefur
út fjórar bækur í haust, ljóðabækur,
smásagnasafn og þýdd ljóð.
Þýddu ljóðin er að finna í annarri
bókinni þýðingaröð forlagsins sem
nefnist Sígild samtímaverk. Fyrsta
var Beðið eftir barbörunum eftir J.
M. Coetzee, en nú kemur ljóðaúrval
eftir argentínsku skáldkonuna Alej-
öndru Pizarnik, Brjálsemissteinninn
brottnuminn, í þýðingu Hermanns
Stefánssonar, sem jafnframt ritar
eftirmála.
Una gefur einnig út ljóðabók
Brynjólfs Þorsteinssonar, Son graf-
arans, sem er lýst sem einskonar
draugabók. Á síðasta ári sendi hann
frá sér ljóðabókina Þetta er ekki
bílastæði.
Fyrsta ljóðabók Arndísar Lóu
Magnúsdóttur, Taugaboð á há-
spennulínu, kemur einnig út en Arn-
dís hlaut nýræktarstyrk Miðstöðvar
íslenskra bókmennta. Í bókinni eru
tvær ljóðasögur sem fjalla meðal
annars um reynslu höfundar af fötl-
un og málleysi.
Fjórða bókin er smásagnasafnið
Herbergi í öðrum heimi eftir Maríu
Elísabetu Bragadóttur. Safnið
geymir sögur um að vera ungur í
Reykjavík, samskipti og sam-
skiptaleysi.
arnim@mbl.is
Ljóðabækur og
smásögur frá Unu
Gefur út argentínsk og íslensk ljóð
María Elísabet
Bragadóttir
Alejandra
Pizarnik
Arndís Lóa
Magnúsdóttir
Brynjólfur
Þorsteinsson
Michael Chapman, einn þekktasti
kvikmyndatökumaður Bandaríkj-
anna, er látinn 84 ára að aldri.
Chapmann var hvað þekktastur
fyrir samstarf þeirra Martins
Scorseses en hann kvikmyndaði til
að mynda Taxi Driver, Raging Bull
og The Last Waltz. Chapman var í
tvígang tilnefndur til Óskarsverð-
launa, fyrir áhrifaríka svarthvíta
myndatökuna í Raging Bull og fyrir
The Fugitive, en hreppti þau ekki.
Meðal annarra mynda þar sem taka
hans vakti eftirtekt má nefna In-
vasion of the Body Snatchers, Dead
Men Don’t Wear Plaid, Space Jam,
Kindergarten Cop, The Lost Boys
og Ghostbusters II.
Chapman leikstýrði tveimur
kvikmyndum, Clan of the Cave
Bear og All the Right Moves.
Tökumaðurinn Michael Chapman við
kvikmyndatökuvélina á tökustað.
Tökumaður Raging
Bull látinn