Morgunblaðið - 26.09.2020, Síða 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2020
Um helgina eru
síðustu dagar
sýningar Birgis
Sigurðssonar,
Fly Me to the
Moon, í Tank-
inum á Djúpa-
vogi.
Sýning Birgis
er ljósainnsetn-
ing úr bílpört-
um. Í dag, laug-
ardag, er opið kl. 14 til 17 en á
sunnudag kl. 14 til 16. Þá mun
Birgir vera með listamnansspjall
kl. 15.30 og fara yfir sögu Subaru
Justy-bílsins sem hann hefur nú
notað þrisvar sinnum í stór ljós-
listaverk. Á sunnudag verður einn-
ig flutt í Tankinum tónverk sem
Oddur Garðarsson samdi sérstak-
lega fyrir sýninguna.
Birgir hefur starfað í myndlist
með rafvirkjavinnu síðustu 20 árin
og hefur haldið fjölda sýninga en
er að mestu sjálfmenntaður í
myndlist. Fyrir tíu árum stofnaði
hann 002 Gallerí, sem er 63 fer-
metra íbúð í Hafnarfirði. Þar hafa
verið haldnar 33 myndlistasýn-
ingar.
Sýningu Birgis í
Tankinum lýkur
Hluti af sýningu
Birgis.
Útgáfu fjögurra
nýrra Pastel-rita
verður fagnað í
menningarhús-
inu Mengi við
Óðinsgötu í dag,
laugardag, kl.
16. Verkin eru
númer 20 til 23 í
ritröðinni og höf-
undar þeirra eru
Brák Jónsdóttir
og Þórir Hermann Óskarsson: Pre-
luding with fragmental elements;
Magnús Helgason: Regnbogar eru
ekki hundamatur; Hekla Björt
Helgadóttir: Stalín, ástin mín; og
Ármann Jakobsson: Goðsögur.
Pastelritröðin er vettvangur
mjög ólíkra listamanna að norðan
og sunnan, til listsköpunar og sam-
eiginlegs viðburðahalds. Pastelritin
eru bókverk sem listform og stuðla
að tengslamyndun nýgræðinga og
reynslubolta.
Fjögur ný Pastel-
rit koma út
Eldri rit í
Pastel-röðinni.
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
MÁLA
Í SUMAR?
VITRETEX á steininn.
HJÖRVI á járn og klæðningar.
Sweat er ein þeirra kvik-mynda sem valdar voru ákvikmyndahátíðina í Cann-es á þessu ári en hátíðin
var blásin af vegna kófsins. Engu að
síður fær Sweat hinn virðulega og
eftirsótta Cannes-stimpil. Í henni
segir af pólsku heilsuræktar-
gyðjunni og áhrifavaldinum Sylwiu
Zajac sem á yfirborðinu er full af
orku og síbrosandi framan í fylgj-
endur sína sem eru um 600 þúsund
talsins. Líkt og oft vill verða um
svokallaða áhrifavalda er líf Sylwiu
meira eða minna í beinni útsendingu
á samfélagsmiðlinum Instagram og
hún kallar fylgjendur sína „elsk-
urnar“, fólk sem hún þó aldrei sér
og kann engin deili á.
Sylwia er gullfalleg, bláeyg og
ljóshærð og líkaminn að því er virð-
ist lýtalaus, enda lifibrauð Sylwiu.
Hún boðar heilbrigðan lífsstíl, kenn-
ir fólki líkamsæfingar, segir því
hvað á að borða og drekka og mælir
með alls konar vörum sem hún fær
sendar heim til sín. Öllu er stýrt af
markaðsöflunum en Sylwia er þó
með eitthvert bein í nefinu sem sést
m.a. á því að hún neitar að kynna
mat sem hún fær sendan heim í ein-
nota plastbakka.
Myndin hefst á æsilegu atriði,
hóptíma Sylwiu í verslanamiðstöð.
Tugir gesta sprikla í takt við hana,
svitinn bogar af henni en hún virðist
vera í sæluvímu líkt og aðstoðar-
maður hennar. Viðburðurinn fer að
sjálfsögðu fram á Instagram og að
tíma loknum taka við myndatökur
með aðdáendum. Þegar öllu er lokið
og Sylwia fær loksins næði birtist
allt önnur og kuldalegri kona sem
borðar salatið sitt af skyldurækni.
Sylwia er óhamingjusöm, týnd í eig-
in spegilmynd líkt og Narsissus
forðum en hann er líklega fyrsti
sjúklegi egóistinn sem sögur fara,
þó að vísu skálduð persóna úr
grískri goðafræði. Narsissus gat
ekki slitið sig frá eigin spegilmynd í
kyrru vatninu og drukknaði á end-
anum, eins og frægt er. Spurningin
er hvort eins muni fara fyrir Sylwiu.
Allt virðist stefna að því svona
framan af mynd.
En það er vonarglæta því Sylwia
er sér meðvituð um eigin óham-
ingju. Í einu myndbanda sinna á
Instagram viðurkennir hún að hún
sé einmana og óhamingjusöm, að
hana langi í kærasta, einhvern til að
elska. Líf hennar er innantómt.
Þetta leggst illa í eitt þeirra fyrir-
tækja sem styrkja hana en Sylwia
lætur sér fátt um finnast. Sprungur
eru komnar í lýtalaust yfirborðið og
þegar hún hittir fyrrverandi skóla-
systur sína óvænt í verslanamiðstöð
virðist hún ekki kunna mannleg
samskipti. Vinkonan greinir henni
tárvot frá áfalli sem hún varð fyrir
en Sylwia brosir bara ráðalaus, líkt
og hún skilji ekki eigið tungumál,
pólsku. Enn syrtir í álinn þegar hún
kemst að því að skuggalegur mið-
aldra karlmaður situr öllum stund-
um í bíl fyrir utan heimili hennar og
dag einn kemur hún að honum við
ósiðlegt athæfi. Eftir misheppnaða
tilraun til þess að fara út á lífið og
sletta úr klaufunum tekur Sylwia
afdrifaríka ákvörðun sem leiðir til
þeirrar óvæntu uppgötvunar að hún
og eltihrellirinn eru kannski ekki
svo ólík þegar öllu er á botninn
hvolft.
Aðalleikkona myndarinnar,
Magdalena Kolesnik, stendur sig
frábærlega í erfiðu hlutverki áhrifa-
valdsins, svo vel að maður gleymir
því stóran hluta myndar að um
skáldaða persónu sé að ræða.
Myndatakan er þaulhugsuð og
magnar upp ólíka stemningu milli
atriða. Í upphafsatriðinu er líkt og
maður sé staddur í mannmergðinni,
myndavélin á mikilli hreyfingu og
klippingar örar. Ekki laust við að
púlsinn hækki töluvert. Myndin er
öll tekin handhelt, að því er virðist,
sem hæfir vel sögunni og þá sér-
staklega í upphafs- og lokaatriðum
myndarinnar. Athyglisverð tónlist
Pietro Kurek styður vel við það sem
fram fer.
Sweat vekur spurningar um fólk-
ið sem býr að baki glansmyndunum
og myndböndunum á samfélags-
miðlum, um áhrifavaldana. Hvaða
fólk er þetta? Hvað er satt og hvað
er logið? Er þetta ekki bara ósköp
venjulegt fólk í leit að viður-
kenningu? Aðgát skal höfð í nær-
veru sálar.
Þótt margt sé aðeins of fyrir-
sjáanlegt í þessari mynd og nánast
ljóst frá upphafi hvert stefnir er
hún athyglisverð og vel þess virði að
sjá, hvort heldur er á sjónvarpsskjá
eða á bíótjaldi. Skemmtilegra hefði
verið að láta koma sér á óvart, verð-
ur að segjast, en heillandi frammi-
staða Kolesnik sem og annarra leik-
ara og vönduð vinnubrögð von Horn
í alla staði hreyfa sannarlega við
manni.
Narsissus vorra daga
Myndataka Áhrifavaldurinn og heilsuræktargyðjan Sylwia myndar á sér rassinn fyrir fylgjendur sína á Instagram.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík – RIFF
Sviti/Sweat bbbmn
Leikstjórn og handrit: Magnus von
Horn. Aðalleikarar: Magdalena Kolesnik,
Julian Swiezewski, Aleksandra
Konieczna og Zbigniew Zamachowski.
Svíþjóð og Pólland, 2020. 105 mín.
Flokkur: Fyrir opnu hafi.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Herdís Anna Jónasdóttir sópran
og Bjarni Frímann Bjarnason pí-
anóleikari og hljómsveitarstjóri
halda tónleika í Ísafjarðarkirkju í
dag, laugardag, klukkan 17.
Á efnisskránni er fjölbreytt úr-
val íslesnkra sönglaga, meðal
annars eftir Ragnar H. Ragnar,
Sigvalda Kaldalóns, Emil Thor-
oddsen og Jónas Tómasson en
einnig verður frumflutt nýtt lag
eftir ísfirska tónskáldið Halldór
Smárason, sem hann samdi sér-
staklega fyrir Herdísi og Bjarna.
Tónleikarnir eru haldnir í
minningu hjónanna Sigríðar Jóns-
dóttur (1922-1993) og Ragnars H.
Ragnar (1898-1987) sem voru
móðurforeldrar Herdísar. Þau
voru brautryðjendur á sviði ís-
firsks tónlistarlífs og þekkt fyrir
störf sín í þágu vestfirskra
mennta og menningar. Ragnar H.
stýrði Tónlistarskóla Ísafjarðar í
36 ár meðfram því að stjórna
kórum, gegna organistastarfi og
annast tónleikahald auk fjölda
annarra verkefna. Sigríður var
geysivinsæll kennari við bæði
Grunnskólann og Tónlistarskól-
ann um margra áratuga skeið.
Herdís og Bjarni koma fram á Ísafirði
Listamennirnir Herdís Anna Jónasdóttir
og Bjarni Frímann Bjarnason koma fram.
Bandaríski djasspíanistinn Romain Collin býður
trompetleikaranum Ara Kárasyni til leiks á öðrum tón-
leikum sínum í Hannesarholti í kvöld, laugardagskvöld,
kl. 20. Þeir hyggjast leika saman djassstandarda, frum-
samda tónlist og spinna einnig eins og djassmönnum
sæmir.
Romain Collin hefur vakið umtalsverða athygli í djass-
lífinu vestanhafs. Til að mynda skrifaði rýnir NPR um
hann: „Romain Collin er framsýnt tónskáld, stórkostleg-
ur djasspíanisti og rísandi stjarna sem skín sannarlega
skært í djassheiminum.“ Collin fæddist í Frakklandi og
býr nú í New York en hann fluttist upphaflega til Bandaríkjanna til að
sækja sér menntun við Berklee College of Music í Boston undir handleiðslu
Daves Liebmans og Joes Lovanos meðal annarra en hefur síðan leikið með
ýmsum stjörnum.
Collin og Ari Bragi leika í Hannesarholti
Romain Collin