Morgunblaðið - 03.10.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.10.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 2020 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 Litur: Silver/ Dark walnut að innan. 2020 GMC Denali, magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleira. Samlitaðir brettakantar, gúmmimottur í húsi og palli. VERÐ 13.250.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ 2020 GMC Denali Ultimate Litur: Carbon Black/ Walnut að innan. 2020 GMC Denali , magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. Samlitaðir brettakantar, gúmmimottur í húsi og palli. VERÐ 13.250.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ 2020 GMC Denali Ultimate Litur: Silver/ Grár að innan. 6,7L Diesel, 450 Hö, 925 ft of torque, 4X4, 10-speed Automatic transmission, 6-manna. Heithúðaður pallur. VERÐ 11.290.000 m.vsk 2020 Ford F-350 XLT Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Unnið er að gerð varnargarða gegn ofanflóðum á Pat- reksfirði. Þeir beinast að því að verja hús við göturnar Hóla og Mýrar og Urðargötu. Þeir verða tengdir við varnargarð sem þegar hefur verið byggður ofan við Aðalstræti til að verja sjúkrahús og grunnskóla. Framkvæmdin er hluti af varnarvirkjum á Patreks- firði. Samkvæmt hættumati sem Veðurstofa Íslands gerði er stærsti hluti byggðarinnar innan hættusvæðis vegna ofanflóða. Þar hafa fallið aurflóð og snjóflóð. Í fjallinu Brellum sem rís ofan við þorpið er helsta upp- tökusvæði snjóflóða í skál ofan Vatnseyrar. Algengt er að snjóflóðahengjur myndist efst í klettum skálarinnar. Matið sýnir að Vatnseyrarsvæðið sem er vestasti hluti þorpsins, það er að segja höfnin og 36 íbúðarhús við Urð- argötu, Mýrar og Hóla, eru í töluverðri hættu að verða fyrir ofanflóðum. Með tilkomu varnargarðanna mun ör- yggi íbúa aukast umtalsvert. Nokkur hús næst megin- farvegi snjóflóða við Hóla og Mýrar verða þó enn í hættuflokki B. Til að auka virkni ofanflóðavarnanna verður snjósöfnunargrindum komið fyrir efst í fjallinu og vindkljúfum við fjallsbrúnir. Uppgræðsla, trjárækt og göngustígar Framkvæmdirnar felast í því að byggðir verða tveir varnargarðar. Mýrargarður myndar fleyg fyrir ofan Hóla og Mýrar en Urðargarður verður samtengdur þvergarður og leiðigarður. Suðurverk fékk verkið eftir útboð fyrir rúma 1,3 milljarða króna. Framkvæmdir hafa staðið yfir frá því í sumar og skal verkinu að fullu lokið 1. desember 2023. Vesturbyggð stendur fyrir framkvæmd- inni en Ofanflóðasjóður greiðir meginhluta kostnaðar. Miklir efnisflutningar eru nú í fjallinu enda verða garðarnir sjö metra háir þar sem þeir verða hæstir. Allt efni fæst úr skeringum ofan við garðana sjálfa. Síðan verður unnið mikið að uppgræðslu og trjárækt til að bæta ásýnd garðanna og stígar lagðir til að styrkja úti- vistargildi svæðisins. Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Ysti hluti þorpsins var- inn fyrir ofanflóðum Patreksfjörður Mýrargarður ver Mýrar og Hóla sem sjást næst á myndinni og aðrir sem eru fjær verja Urðargötu.  Miklar framkvæmdir í hlíðum Brellna á Patreksfirði Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum segir að Eyjamenn telji nauðsynlegt að hafa áætlunarflug til Vestmanna- eyja. Þá þurfi að tryggja rekstur flugvallarins til sjúkraflugs og vegna almannavarnahlutverks hans. Bæjarráð Vestmannaeyja fór á fund Sigurðar Inga Jóhannssonar samgönguráðherra í fyrradag til að ræða stöðu áætlunarflugs og flug- vallar. Flugfélagið Ernir hætti ný- lega áætlunarflugi þangað og Isavia sagði starfsmönnunum sínum á flug- vellinum upp störfum með það í huga að bjóða þeim lægra starfshlutfall. Geta ekki dregið úr þjónustu Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri seg- ir nauðsynlegt að hafa áætlunarflug og rekstur flugvallarins þurfi að tryggja. Telur hún að Isavia geti ekki einhliða dregið úr þjónustu á flug- völlum, án nokkurs samráðs eða samtals við heimafólk og ríkið sem falið hefur félaginu þennan rekstur. Þá liggi ekkert fyrir hvernig Isavia hafi hugsað sér að reka flugvöllinn. Hún segir að ráðherra hafi sýnt báðum þessum málum skilning. Seg- ist Íris binda vonir við að hægt verði að hefja áætlunarflug á ný. Áætlunarflug til Vestmannaeyja er ekki ríkisstyrkt og hefur ekki verið frá því Landeyjahöfn var opn- uð fyrir Vestmannaeyjaferjuna Herjólf. Þá hætti Flugfélag Íslands að fljúga til Eyja og Flugfélagið Ernir hefur annast flugið í allmörg ár. Samkeppni við ferjuna Hörður Guðmundsson, forstjóri Ernis, veit af áhyggjum Eyjamanna og vonar þeirra vegna að eitthvað gerist á næstu vikum. Hann segir að farþegum hafi fækkað svo í kórónu- veirufaraldrinum að ekki sé grund- völlur fyrir þessari flugleið. Nefnir hann að fólk hafi annan kost, mikið niðurgreidd fargjöld með Herjólfi. Á sama tíma sé flugið skattlagt í bak og fyrir. Segir Hörður að skattspor á hvern fluttan farþega til Eyja hafi á síðasta ári verið 8.300 krónur. Hann segir að tvær leiðir séu fær- ar. Annaðhvort að farþegum fjölgi svo mikið að flugið borgi sig eða að það verði niðurgreitt. Spurður um Loftbrúna, sem er niðurgreiðsla á flugfarmiðum landsbyggðarfólks, segir Hörður að hún ríði ekki bagga- muninn í flugi til Eyja en muni von- andi hjálpa til að halda uppi flug- samgöngum við landsbyggðina í framtíðinni. Áætlunarflug nauðsynlegt  Bæjarráð Vestmannaeyja ræddi málefni áætlunarflugs og flugvallar við samgönguráðherra  Mættu skilningi, að sögn bæjarstjórans  Forstjóri Ernis segir að farþegum þurfi að fjölga Morgunblaðið/Ófeigur Á Heimaey Um Vestmannaeyjaflugvöll liggur lífæð Eyjanna ásamt höfninni. Völlurinn nýtist nú fyrir sjúkraflug.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.