Morgunblaðið - 03.10.2020, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 03.10.2020, Blaðsíða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 2020 Fallinn er frá frækinn félagi, Jó- hann Guðjónsson eða Jói líf eins og við kölluðum hann í Flensborg- arskólanum. Jói starfaði við skól- ann frá fæðingarári mínu, 1974, í ýmsum hlutverkum en fyrst og síðast var hann líffræðingur og líffræðikennari. Þegar ég hóf störf við Flens- borgarskólann 2006 var dýrmætt að hitta þar fyrir reynslubolta eins og Jóa. Mér fannst hann alltaf vita allt, Jói var alltaf tilbú- inn að hjálpa og leiðbeina, stríddi mér passlega þegar við átti og hvatti mig til dáða. Húmor ein- kenndi tilsvör hans og samskipti okkar. Jói var líka tilbúinn að hlusta, breyta og ég fékk að hafa öll þau áhrif sem mig langaði. Alla sína starfstíð var hann op- inn fyrir nýjungum. Þegar ég var beðin að taka sæti í skólanefnd FF sagði ég Jóa að ég væri nú ekkert góð í svona löguðu. „Þá verður þú að æfa þig,“ sagði Jói og málið var útrætt. Ég æfði mig í nokkur ár. Það var einnig fyrir tilstilli hans að ég tók sæti í stjórn Samlífs, samtaka líffræðikennara. Þegar hann hætti í stjórninni tók ég sætið hans. Jói var alltaf virkur í félaginu og formaður þess frá 1992 til 2010, störf hans í þágu líffræði og líffræðikennslu á Ís- landi eru ómetanleg. Ég tel mig mjög gæfusama að hafa verið samhliða Jóa síðustu 10 starfsár hans og er sérlega þakklát fyrir samfylgdina. Margt í störfum mínum dags daglega byggist á arfleifð Jóa, ég vona Jóhann Guðjónsson ✝ Jóhann RúnarGuðjónsson fæddist 5. júlí 1950. Hann lést 14. sept- ember 2020. Útför Jóhanns fór fram 25. sept- ember 2020. innilega að ég miðli áfram af virðingu. Ég sendi fjöl- skyldu Jóhanns mínar innilegustu samúðarkveðjur. Hólmfríður Sigþórsdóttir. Þann 25. septem- ber var gamli líf- fræðikennarinn minn borinn til grafar. Jóhann Guðjónsson líffræði- kennari kenndi mér vistfræði á mínum menntaskólaárum. Nám- ið var verkefnamiðað og mikið til byggt á þremur rannsóknar- verkefnum. Fyrsta verkefnið fjallaði um vorflugur og voru sýni sótt í lækinn við vinnslu verkefnisins. Annað verkefnið fjallaði um sýrustig í jarðvegi og í þessu tilviki voru sýni sótt í hamarinn. Síðasta verkefnið fjallaði um líffræðilegan fjöl- breytileika fjörunnar og sýni voru sótt í fjöruna nálægt gamla athafnasvæði siglingaklúbbsins Þyts. Það er fátt sem situr eins fast í mér frá menntaskólaárun- um í Flensborg eins og þessi leiðbeining sem Jóhann veitti nemendum sínum. Síðar sem starfsmaður í Flensborgarskólanum í Hafnar- firði héldu kynni mín af Jóhanni áfram í gegnum félagsstörf sem venjulega falla til á starfsævi hvers manns. Hér má nefna starfsmannafélag skólans, kenn- arafélag skólans og stéttarfélag kennara við skólann. Í öllum til- vikum veitti Jóhann þá leiðsögn og fyrirmynd sem hann gaf nem- endum sínum. Um leið og ég votta aðstandendum Jóhanns samúð mína, þá gleðst ég yfir því að hafa fengið að njóta leiðsagn- ar hans sem nemandi og síðar sem starfsmaður Flensborgar- skólans í Hafnarfirði. Unnar Örn Þorsteinsson. ✝ Hermann Sig-urjónsson fæddist 9. október 1929 í Raftholti í Holtum. Hann lést á Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Kirkjuhvoli á Hvolsvelli þann 17. september 2020. Foreldrar hans voru Sigurjón Gísli Sigurðarson, f. 4.3. 1895 í Bjálmholti, d. 2.4. 1988, og Guðný Ágústa Ólafsdóttir, f. 26.5. 1896 í Austvaðsholti, d. 9.5. 1974. Systkini Hermanns eru Sigrún, f. 9.5. 1923, d. 10.2. 2011, Guðrún Ólafía, f. 18.6. 1924, d. 13.11. 2015, gift Ársæli Teitssyni, f. 25.1. 1930, d. 22.3. 2016, Hjalti Sigurjónsson, f. 29.4 1931, d. 11.1. 2020, kvæntur Jónu Heiðbjörtu Valdimars- dóttur, f. 11.10. 1943. Hermann ólst upp í Raftholti og gekk í barnaskóla í Hvammi í Holtum. Hann lauk landsprófi frá Laug- arvatni og lærði smíðar í Iðnskól- anum á Selfossi. Hermann vann við smíðar og sótti sjó í Grindavík og Vest- mannaeyjum á yngri árum. Einnig starfaði hann í fjölda ára hjá Slát- urfélagi Suðurlands á haustin. Hann tók við búi í Raftholti ásamt Hjalta og Jónu í lok árs 1966 og stundaði sauðfjárbúskap allt til ársloka 2019. Samhliða búskapnum starfaði Hermann í félagsmálum og gegndi störfum fyrir meðal annars Búnaðarsam- band Suðurlands, Stéttasamband bænda, UMFÍ, HSK og Sjálfstæð- isflokkinn. Hann var oddviti í Holtahreppi, síðar Holta- og Landsveit, um langt skeið. Útför Hermanns fer fram frá Marteinstungukirkju í dag, 3. október 2020, og hefst athöfnin kl. 14. Í dag kveðjum við Hermann Sigurjónsson, elsku frænda okk- ar og föðurbróður sem alltaf hef- ur verið til staðar fyrir okkur allt okkar líf. Hann var næstyngstur í systk- inahópnum sem var mjög sam- rýndur. Eftir að systurnar fluttu að heiman var taugin sterk í Raf- tholt og fjölskyldurnar héldu saman jól og áramót. Hermann og Hjalti tóku við búi foreldra sinna, Hermann við fénu, Hjalti við kúnum, og bjuggu þeir í fé- lagi með blandaðan búskap alla ævi. Hermann bjó í Raftholti alla tíð og vorum við sem þar bjugg- um ein stór og samhent fjöl- skylda. Hann var mjög barngóð- ur, gleymdi aldrei afmælisdögum og jólin gerði hann alltaf eftir- minnileg. Þær voru margar stundirnar sem við áttum með Hermanni og aldrei þreyttist hann á að taka okkur með í bú- störfin þótt lítil værum. Margt gott lærðum við af frænda t.d. að ræða málin en hann var einstak- lega vel inni í öllum málum og stóð fastur á sínu. Hermann vann mikið í fé- lagsmálum alla sína starfsævi, frí- tími hans fór mikið í símtöl, fund- arsetur o.fl. er því tengdist og sinnti hann því af mikilli sam- viskusemi. Þegar hann fór að draga sig út úr félagsstarfinu hafði hann enn meiri tíma fyrir bústofninn sinn sem hann sinnti alla tíð af alúð. Hann hafði unun af að spá og spekúlera, lá yfir fjárbókunum. Enda skilaði það sér í góðum ærstofni og verð- launahrútum. Hann hlakkaði mikið til að fá að sjá og heyra töl- urnar á vigtarseðlunum hjá Hjalta og Sigurjóni þetta haustið. Eftirminnilegar eru mörgu ferðirnar sem voru farnar í Hreiður að gefa fénu eða smala. Þá var okkur krökkunum hrúgað aftur í Land Roverinn og Her- mann sat blístrandi undir stýri. Við áttum í fullu fangi með að halda okkur í sætunum á holótt- um veginum og ef bílstjórinn þurfti að nota kíkinn til að gá að fénu þá var ekkert verið að stoppa, önnur höndin á stýrinu og hin á kíkinum og alltaf var bíllinn á veginum. Mikill hugur var í Hermanni þegar þurfti að smala fénu og lá honum oft svo mikið á að hann gleymdi að segja okkur til, var rokinn af stað og fór hratt yfir. Ósjaldan gaukaði hann gotter- íi að okkur krökkunum og niðri í „gamla bæ“ átti hann alltaf kex handa okkur í kökuboxinu henn- ar ömmu. Hann fylgdist líka vel með börnunum okkar og upp- vexti þeirra, þeim var hann sem annar afi. Hermann var mikill söngmað- ur með fallega tenórrödd og var í kirkjukór Marteinstungukirkju um árabil. Hann hélt m.a. mikið upp á Hauk Morthens og kveðj- um við hér með texta sem hann söng og frændi tók undir: Heimkynni bernskunnar Ég man þá björtu bernsku minnar daga í blómahvammi ég að leikjum var. Þar gyllir sólin engin, hlíð og haga og hvergi eru fjöllin blárri en þar. En svanir fljúga hátt í heiðið bláa og hverfa á bak við eldiroðin ský. Og sumarnóttin sveipar bæinn lága í sæla kyrrð uns dagur rís á ný. Það er svo rótt og unaðslegt að dreyma við elvar nið og glaðan fuglasöng. Mér finnst ég ætíð eiga þarna heima er einn ég vaki sumarkvöldin löng. (Þorsteinn Halldórsson) Takk fyrir allar góðu minning- arnar og stundirnar, elsku Her- mann okkar, Ágústa Kristín Hjaltadóttir Sigurjón Hjaltason Guðrún Margrét Hjaltadóttir Valdimar Hjaltason og fjölskyldur. Þegar maður hugsar til allra þeirra sem hafa horfið manni yfir móðuna miklu getur maður ekki annað en hneigt höfuð í söknuði yfir að missa frá sér ættingja og vini sem skipað hafa stóran sess í lífi manns. Nú hefur Hermann bæst í hópinn og þar fer sterkur per- sónuleiki sem skilur eftir sig stórt skarð í gárum tímans. Í minningunni sér maður Her- mann fyrir sér flautandi lagstúf við ýmis tækifæri sem mest var áberandi í smalamennsku eða þegar lömbin stóðust ekki gæða- kröfur augnabliksins en lögin urðu síðan að glaðlegum söng þegar búið var að dæma þau og útkoman betri en á horfðist. Hermann var mikill bílakall þar sem bíllinn þjónaði honum en ekki öfugt. Oft var reykspólað úr hlaði því hugurinn var mikill og margt eftir að gera. Hann var mjög barngóður og rausnarlegur var hann í afmælis- og jólagjöf- um sem kom sér oft vel. Nú kveðjum við hann hinstu kveðju og samgleðjumst honum að vera kominn heim þar sem verkir og vandamál hverfa en vinir og fjölskylda bíða með opna arma. Sigurjón Hjaltason, Guðríður Júlíusdóttir og fjölskylda. Raftholt var jörðin og alltaf þar bjó elskaði sauðfé og jafnan hann hló þegar fjárrag var nærri lömb urðu stærri að afloknu verki fann stóíska ró. Hann sveit sinni unni og helgaði störf á sauðburði svaf ei meðan enn var hans þörf æskunni kenndi skilaboð sendi að allt sé það hægt meðan hugsun er djörf. Hreiður hann keypti og vann þar sín verk viljinn og réttlætiskenndin var sterk hagur til handa leysti úr vanda frásagnarlistin var fumlaus og merk. Mörg voru verkin sem féllu í skaut er framfaramálum til sveita að laut sat símtöl og fundi tölur hann mundi virðingar sveitunga alltaf hann naut. Af dugnaði’ og elju að störfunum vann svo sviti á skarpleitu andliti rann nú ævin er öll hljóðnuð hans köll við þökkum þér fylgdina, Hermann. (JHS) Innilegar samúðar- og kær- leikskveðjur, Sesselja Ásgeirsdóttir, Guðrún og Ásmundur, Ásgeir og Gabriella, Magnús og Valborg, Ingunn og Þorkell, Helga og Jóhannes, börn og barnabörn. Hermann Sigurjónsson Við þökkum innilega samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, BJARNA SVERRISSONAR, fyrrverandi tollvarðar, Hnjúkaseli 4. Sérstakar þakkir fær líknardeild Landspítalans í Kópavogi fyrir alúð og góða umönnun. Hanna María Oddsteinsdóttir Linda Björk Bjarnadóttir Bragi Hilmarsson Guðný Sigríður Bjarnadóttir Kristinn Snær Agnarsson Lára Jóhannesdóttir Sverrir Geirdal Lilja Jóhannesdóttir Reynir Björnsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGURRÓS GÍSLADÓTTIR frá Hesteyri, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn 28. september. Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 9. október klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir en athöfninni verður streymt á netinu. Sjá nánar á vef Digraneskirkju. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á hjúkrunarheimilið Skjól. Lilja Guðmundsdóttir Stefán Þór Sigurðsson Halldóra Guðmundsdóttir Friðgeir Snæbjörnsson Björn Guðmundsson Natalía Jakobsdóttir Sóley Guðmundsdóttir Einar Unnsteinsson Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, ERLENAR JÓNSDÓTTUR. Matthías Gíslason Gísli Jón Matthíasson Astrid Prager Steinar Ingi Matthíasson Ragnhildur I. Guðbjartsdóttir Erlen Anna Steinarsdóttir Guðbjartur Ingi Steinarsson Matthildur Stella Steinarsdóttir Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÁSGEIRS GUÐMUNDSSONAR frá Ófeigsfirði, Lýsubergi 11, Þorlákshöfn. Inga Anna Waage Ásgeir Ingi Ásgeirsson Magnús Ásgeirsson Kolbrún Birna Pálsdóttir Sigrún Ásgeirsdóttir Kristján Þorvaldsson Jóhanna Ásgeirsdóttir Sigurður Jón Skúlason Helga Guðrún Ásgeirsdóttir Hávarður Jónsson Halldóra Björk Kristinn Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, mágur og afi, SIGURÐUR GRÉTAR MAGNÚSSON, lést á heimili sínu í Reykjavík mánudaginn 28. september eftir baráttu við krabbamein. Útförin verður auglýst síðar. Svanhildur Edda Sigurðard. Steven Albergs Bryndís Eva Sigurðardóttir Daníel Freyr Kristínarson Magnús Sigurðsson Guðlaugur Ragnar Magnúss. Sigríður Ólöf Björnsdóttir Nanna Kristín Magnúsdóttir Smári Emilsson Berglind Jófríður Magnúsd. Steinar Davíðsson og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, pabbi okkar og tengdapabbi, GUNNLAUGUR KRISTÓFER BJARNASON, Grund, Garðabæ, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 29. september. Útför hans verður frá Garðakirkju fimmtudaginn 8. október klukkan 13. Vegna aðstæðna verður að takmarka fjölda gesta í kirkjuna og verða því send boð í athöfnina. Streymt verður frá athöfninni á: www.cutt.ly/gulli Unnur Flygenring Ágúst Þór Gunnlaugsson Þórhildur Halla Jónsdóttir Sigrún Helga Gunnlaugsdóttir Flygenring Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRNI JÓNSSON bifreiðastjóri, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, miðvikudaginn 30. september. Börn og aðrir aðstandendur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.