Morgunblaðið - 03.10.2020, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 2020
Hægindastóll
model 7227
Leður – Verð 389.000,-
NJÓTTU
ÞESS AÐ SLAKA Á
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ljósmyndaáhugi minn hefurfylgt mér líklega frá þvíég var 9 ára. Fyrst varþetta fikt, af því mér
fannst þetta forvitnilegt og spenn-
andi, en ég er í eðli mínu forvitinn og
mikill grúskari. Þetta komst á
hærra stig hjá mér þegar ég var 14
ára og eignaðist alvörugræjur, 35
mm Konica -filmuvél með aukalins-
um og allskonar dóti. Við félagi minn
vorum með aðstöðu í gagnfræða-
skólanum í Ólafsfirði, þar sem ég er
fæddur og uppalinn, til að framkalla
og stækka myndir. Þá kviknaði
ljósmyndabakterían fyrir alvöru,“
segir Halldór Jónsson áhuga-
ljósmyndari en ljósmynd hans af
Aldeyjarfossi lenti nýlega í sérstöku
úrtaki ritstjórnar á ljósmynda-
síðunni Viewbug.com.
„Viewbug er í raun vettvangur
fyrir áhugaljósmyndara og lengra
komna til að setja inn myndir, bæði
til að sýna þær opinberlega og til að
selja. Ritstjórn síðunnar velur reglu-
lega myndir sem henni finnst skara
fram úr, gefur þeim sérstaka viður-
kenningu og ýtir þeim ofar í leitar-
vélum. Þá fær maður meira vægi á
síðunni, sem er auðvitað mjög gott
þegar maður er að reyna að koma
myndunum sínum á framfæri.“
Fuglarnir geta verið erfiðir
Halldór segir ljósmyndunina
hafa fylgt sér í gegnum tíðina þó hann
hafi sinnt henni mismikið, því hann
eigi mörg áhugamál.
„Þegar mikið er að gera hjá mér
og ég dett í eitthvað annað, þá set ég
ljósmyndunina til hliðar, stundum að
hluta og stundum alveg. Þegar hæg-
ist um fer ég svo aftur að taka mynd-
ir. Eftir dágott hlé, ef frá eru taldar
hefðbundnar fjölskyldumyndir, þá
tók ljósmyndunin aftur kipp 2008, en
þá keypti ég mér fyrstu stafrænu
DSL-myndavélina. Svo slaknaði aftur
á þegar ég fór í háskólanám 2010, því
þá gafst lítill tími til að taka myndir,
en síðustu tvö ár hef ég gefið þessu
meiri tíma,“ segir Halldór og bætir
við að hann hafi tekið grunnnámskeið
í ljósmyndatækni fyrir tíu árum og
lærði þá á stafræna myndavél, og að
hann hafi einnig farið á myndvinnslu-
námskeið.
„Annars hef ég lært allt annað
með því að horfa á Youtube og prófa
mig áfram. Tveir aðilar geta tekið
mynd af nákvæmlega sama myndefni
en fengið gjörólíkar útkomur, þetta
fer allt eftir því hvernig auga ljós-
myndarinn hefur fyrir myndefninu
og hvernig hann stillir vélina. Ég er
sífellt að þróa mínar aðferðir og læra,
og þá verða myndirnar betri,“ segir
Halldór sem tekur ekki aðeins lands-
lags- og náttúrumyndir, hann er líka
heillaður af eyðibýlum, sérstaklega í
drungalegu veðri, og hann tekur mik-
ið af fuglamyndum.
„Mér finnst virkilega ögrandi
verkefni að taka myndir af fuglum,
því það getur verið miserfitt að nálg-
ast þá. Lundinn í Látrabjargi er auð-
velt myndefni, því hann er afar spak-
ur, sérstaklega um varptímann.
Hann trítlar í kringum mig og kropp-
ar jafnvel í myndvélina ef ég ligg á
bjargbrún nálægt honum, en að ná
mynd af fugli á flugi er strembið. Í
ljósmyndun eru margar mismunandi
aðferðir og nálganir, fuglaljós-
myndun er alveg sérstakt afbrigði,
þar skiptir máli að taka á miklum
hraða og vera með góðar linsur.
Landslagsljósmyndun er allt annars
eðlis, þar notar maður þrífót og linsan
skiptir minna máli og hægt að nota
lægri hraða. Ljósmyndun úr flugvél
er svo enn ein og allt önnur kategoría.
Maður þarf að vera snöggur, nota háa
hraðastillingu og skarpa linsu, vegna
fjarlægðar og hreyfingar á vélinni,“
segir Halldór sem er með atvinnu-
flugmannsréttindi og notar öll tæki-
færi til að fljúga um hálendi Íslands.
Erlent tímarit keypti
Auk eigin síðu sem Halldór hef-
ur nýlega opnað, www.halldorjons-
sonphotography.com, þá setur hann
myndir sínar inn á tvo ljósmyndavefi,
Viewbug.com og Flickr.com og hefur
selt nokkrar myndir á ólíkum vett-
vangi. Ein mynda hans fór til dæmis
á púsluspil sem hugsað er fyrir ferða-
menn á Íslandi.
„Puzzle by Iceland gefur út þessi
púsluspil og þau völdu mynd frá mér
af Bláa lóninu og Þorbirni í baksýn.
Mér finnst gaman að hugsa til þess
að þetta púsl með myndinni minni
hafi farið um allan heim með ferða-
mönnum sem hingað hafa komið.
Tvær myndir frá mér af Eyjafjalla-
gosinu voru keyptar af erlendu tíma-
riti um flug, SP’s AirBuz, en þær tók
ég þegar ég flaug með félaga mínum
þar yfir í hamagangi eldsum-
brotanna. Þessi grein sem mynd-
irnar mínar voru notaðar við fjallaði
um það að fljúga í gegnum öskugos,
áhrif á hreyfla flugvéla og annað
slíkt. Þýskur maður sem skrifaði bók
um Ísland keypti líka af mér eina
mynd til að setja á bókarkápuna hjá
sér.“
Ég var skíthræddur
Þegar Halldór er spurður að
því hvaða myndataka hjá honum sé
eftirminnilegust, segir hann það
hafa verið þegar hann flaug yfir
Eyjafjallagosið.
„Það var svakalegt og ég var
skíthræddur. Þegar ég nálgaðist
gosið og sá grjótið hendast upp úr
gígnum, þá vildi ég auðvitað ná
mynd ofan í gíginn. Þegar ég kom
enn nær runnu á mig tvær grímur,
því þá sá ég að þetta var ekki grjót
heldur heilu björgin á stærð við
fólksbíla sem þeyttust þarna upp.
Höggbylgjurnar frá gosinu urðu til
þess að málmurinn í vélinni titraði
og skalf, það var frekar vond tilfinn-
ing,“ segir Halldór og tekur fram að
honum finnist líka frábært að fara
með bakpoka út í náttúruna og
ganga kannski heilan dag til að ná
einni mynd af einhverjum
ákveðnum fossi.
„Síðan þarf að stilla upp græj-
um og prófa, taka fullt af myndum
þangað til maður verður ánægður.
Ég fer ekki af svæðinu fyrr en ég er
búinn að prófa alla möguleika og öll
sjónarhorn því augnablikið og
stemningin þá stundina kemur
kannski ekki aftur. Þetta getur ver-
ið hellingsvinna og tímafrekt og
maður leggur oft mikið á sig, en þar
sem ég hef gaman af útivist og nýt
þess líka að keyra um og fljúga, þá
hentar ljósmyndun mér vel sem
áhugamál. Þetta styður allt hvað
annað. Ef myndin er góð þá gleym-
ist erfiðið fljótt.“
Halldór Hann er með atvinnuflugmannsréttindi og notar öll
tækifæri til að fljúga um hálendi Íslands og taka myndir.
Ef myndin er
góð þá gleym-
ist erfiðið fljótt
„Þetta getur verið hellingsvinna og tímafrekt og mað-
ur leggur oft mikið á sig, en þar sem ég hef gaman af
útivist og nýt þess líka að keyra um og fljúga, þá hent-
ar ljósmyndun mér vel sem áhugamál,“ segir Halldór
Jónsson áhugaljósmyndari.
Ljósmyndir/Halldór Jónsson
Eyðibýli Halldór segist vera heillaður af eyðibýlum, sérstaklega í drungalegu veðri. Hér er ein mynda hans.
Aldeyjarfoss Þessi mynd Halldórs lenti nýlega í sérstöku úr-
taki ritstjórnar á ljósmyndasíðunni Viewbug.com.
Eyjafjallajökull Halldór segir höggbylgjur hafa skollið á vél-
inni þegar hann flaug yfir og tók myndir af Eyjafjallagosi.