Morgunblaðið - 03.10.2020, Blaðsíða 49
ÍÞRÓTTIR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 2020
HANDBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Haukar máttu sætta sig við fyrsta
tapið á þessu keppnistímabili í Olís-
deild karla í handknattleik í gær-
kvöldi þegar liðið fékk Val í heim-
sókn og Stjarnan náði í fyrsta sig-
urinn þegar liðið tók á móti KA.
Selfoss vann FH 25:24 en allir þrír
leikirnir í gær buðu upp á spennu.
Valur vann Hauka 28:25 á Ásvöll-
um og þar lét markvörður Vals, Ein-
ar Baldvin Baldvinsson, til sín taka
en hann hafði verið fremur rólegur í
upphafi móts.
Valsmenn skoruðu þrjú fyrstu
mörkin og voru skrefi á undan nán-
ast allan fyrri hálfleikinn. Haukar
voru hins vegar ekki langt á eftir og
að loknum fyrri hálfleik var staðan
13:12 fyrir Val. Valsmenn héldu
frumkvæðinu í síðari hálfleik og
höfðu yfirleitt eitt til þriggja marka
forskot.
Agnar Smári Jónsson var marka-
hæstur með átta mörk hjá Val,
Magnús Óli Magnússon skoraði sjö
og Anton Rúnarsson sex. Orri Freyr
Þorkelsson, Heimir Óli Heimisson
og Brynjólfur Snær Brynjólfsson
skoruðu fimm mörk hver fyrir
Hauka.
Útlit er fyrir að þessi lið verði tvö
af allra bestu liðunum í deildinni í
vetur enda vel mönnuð. Þau hafa
bæði unnið þrjá af fyrstu fjórum
leikjunum sínum.
Spennuleikir
Mikil spenna var á lokamín-
útunum hjá Selfossi og FH en sigur-
mark leiksins skoraði Nökkvi Dan
Elliðason en þá voru enn rúmar
þrjár mínútur eftir.
„FH jafnaði 22:22 þegar átta mín-
útur voru eftir og lokakaflinn var
hrikalega spennandi. FH átti tvíveg-
is möguleika á því að jafna 25:25 en
tókst það ekki og liðin skiptust á að
missa boltann á lokamínútunni. FH
fékk aukakast eftir að lokaflautið
gall en það var viðeigandi að Rasi-
mas kórónaði góðan leik hjá sér með
því að klukka aukakastið frá Ás-
birni,“ skrifaði Guðmundur Karl
meðal annars í umfjöllun sinni um
leikinn á mbl.is.
Hergeir Grímsson og Guðmundur
Hólmar Helgason voru markahæstir
Selfyssinga með 6 mörk og Vilius
Rasimas átti stórleik í markinu með
18 skot varin, þar af þrjú vítaskot.
Hjá FH-ingum var Ásbjörn Frið-
riksson atkvæðamestur en hann
skoraði 8 mörk og næstur kom
Ágúst Birgisson með 4 mörk. Phil
Döhler átti góða kafla í markinu og
varði 12/1 skot.
Stjarnan vann nauman sigur á
KA, 25:24, í Garðabæ. Stjarnan er
nú með 3 stig eftir fjóra leiki en KA
tapaði sínum fyrsta leik og er með 4
stig. Tandri Már Konráðsson skor-
aði 7 mörk fyrir Stjörnuna en Ólafur
Gústafsson, sem lék með Stjörnunni
um tíma, var markahæstur KA-
manna með 6 mörk.
Fyrstu töpin hjá Haukum og KA
Valsmenn unnu Hauka á Ásvöllum
Hamagangur undir lokin á Selfossi
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Markahæstur Agnar Smári skoraði 8 mörk og sækir hér að vörninni í gær.
Elvar Örn Jónsson, landsliðsmaður
í handknattleik, átti góðan dag þeg-
ar Skjern tók á móti Århus í Dan-
mörku í gær. Skjern hafði betur
35:30 og var liðið yfir 19:17 að lokn-
um fyrri hálfleik. Elvar Örn skoraði
5 mörk í leiknum og var með ágæta
skotnýtingu. Skjern er með fimm
stig eftir fimm leiki.
GOG hafði betur gegn Holstebro
á útivelli 35:31. Óðinn Þór Rík-
harðsson náði ekki að skora hjá
Viktori Gísla Hallgrímssyni í marki
GOG en Viktor varði sex skot. GOG
er taplaust eftir fimm leiki.
Elvar lét að sér
kveða hjá Skjern
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Danmörk Elvar Örn Jónsson skor-
aði 5 mörk fyrir Skjern.
Bikarmeistarar Stjörnunnar náðu í
tvö stig gegn Val á Hlíðarenda í 1.
umferð Dominos-deildar karla í
körfuknattleik í gærkvöld. Stjarn-
an hafði betur 91:86.
Kristófer Acox fór mikinn í
fyrsta leik sínum fyrir Val en hann
skoraði 29 stig og tók 13 fráköst.
Sinisa Bilic var einnig góður og
skoraði 27 stig. Ægir Þór Stein-
arsson skoraði 28 stig fyrir Stjörn-
una og gaf 6 stoðsendingar. Mirza
Sarajlija skoraði 17 stig.
Leikurinn var vel spilaður og lið-
in virðast vera til alls líkleg.
Bikarmeistararnir
fóru vel af stað
Morgunblaðið/Hari
Drjúgur Ægir Þór Steinarsson fór
fyrir Garðbæingum í gær.
Þjálfari kvennaliðs Breiðabliks
í knattspyrnu, Þorsteinn Hall-
dórsson, sagði í samtali við net-
miðilinn 433 í vikunni að lands-
liðskonan Sveindís Jane
Jónsdóttir hefði þurft að komast
fyrr í „sterkara æfingaumhverfi“.
Svona vangaveltur eru að mér
finnst alltaf áhugaverðar. Örugg-
lega er rétt hjá Þorsteini að meiri
samkeppni og sterkari leik-
mannahópur hefði getað gert
Sveindísi mjög gott sem ung-
lingalandsliðskonu á uppleið. En
er málið alveg svo einfalt?
Ég er ekki alveg sammála þess-
ari fullyrðingu. Sveindís fékk
tækifæri til að spila í meist-
araflokki frá 15 ára aldri. Hversu
mikið hefur það gagnast henni?
Hún kynntist fyrr meiri alvöru og
meiri hörku sem fylgir meist-
araflokksleikjum en hún hefði
gert hjá stærra félagi.
Varðandi frammistöðu
Sveindísar í sumar. Hversu miklu
máli ætli skipti að hún hafi feng-
ið að vera lykilmaður í liði Kefla-
víkur í efstu deild í fyrra? Hún
fór á kostum í fyrra, ekki síður en
í sumar, enda varð hún efst í M-
gjöfinni hér í blaðinu fyrir tíma-
bilið 2019. Hversu mikið ætli það
hafi gert fyrir sjálfstraustið?
Hefði hún verið eins afgerandi
árið 2020 ef hún hefði farið til
Breiðabliks 2018? Hversu mikið
ætli það hafi gert fyrir hana að
þurfa að axla mikla ábyrgð í liði
þar sem samherjarnir horfa til
þess að hún geri gæfumuninn?
Aðalatriðið er kannski að það
er enginn einn sannleikur til um
það hvenær leikmenn eiga að
hleypa heimdraganum. Margir
efnilegir leikmenn hafa farið
mjög ungir til erlendra liða og lít-
ið orðið úr ferlinum. Hafa komið
brotnir heim aftur. En það hefur
einnig virkað vel fyrir suma af
okkar snjöllustu leikmönnum.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
141. sinni og hefur Breiðablik 61
sinni fagnað sigri en Valskonur hafa
60 sinnum fagnað sigri.
Þá hafa liðin 20 sinnum gert jafn-
tefli en síðast þegar liðin mættust á
knattspyrnuvellinum voru það Blik-
ar sem gjörsigruðu Íslandsmeist-
arana á Kópavogsvelli hinn 21. júlí
síðastliðinn, 4:0.
Þá var það besti leikmaður Ís-
landsmótsins til þessa, Sveindís
Jane Jónsdóttir, sem skoraði þrennu
á rúmum hálftíma í síðari hálfleik og
gerði þannig út um leikinn.
Valsliðið var án Elísu Viðars-
dóttur í þeim leik og eflaust saknaði
liðið hennar eitthvað, enda ein af
reynslumestu leikmönnum Vals, en
miðað við það hvernig leikurinn þró-
aðist í seinni hálfleik hefði nærvera
hennar eflaust skipt litlu máli.
Um leið og Blikaliðið keyrði upp
hraðann í seinni hálfleik áttu Vals-
konur enga möguleika og þar liggur
stærsti munurinn á liðunum.
Blikaliðið hefur á að skipa ungum,
sprækum og afar hröðum leik-
mönnum á meðan reynslumestu
konur Vals eru flestar komnar á
seinni hluta ferilsins.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir er
horfin á braut en Blikaliðið hefur
spilað vel eftir brotthvarf hennar.
Fremstu þrír leikmenn liðsins eru
alltaf ógnandi með hraða sínum og
krafti og miðjumenn liðsins eru
duglegir að fylla teiginn þegar það á
við.
Þá hefur varnarleikur liðsins nán-
ast verið óaðfinnanlegur í sumar,
sem og markvarslan, og liðið hefur
aðeins fengið á sig 3 mörk í fjórtán
leikjum, sem er magnað afrek.
Valsmenn eru með bestu fram-
herja deildarinnar innan sinnan
raða og kantmann sem getur búið til
eitthvað upp úr engu en liðinu hefur
samt sem áður gengið illa að finna
taktinn í sóknarleiknum, sér-
staklega framan af móti.
Varnarleikurinn hefur verið þétt-
ur, enda liðið aðeins fengið á sig 10
mörk, en á síðustu leiktíð dugði
Valsliðinu jafntefli gegn Breiðabliki
í báðum leikjum sínum til þess að
halda toppsætinu.
Valskonur þurfa á sigri að halda,
ef þær vilja halda Íslandsmeist-
aratitlinum á Hlíðarenda, og það
gæti reynst örlagavaldurinn enda
viltu ekki færa varnarlínuna þína of
framarlega gegn jafn fljótu og bein-
skeyttu liði eins og Breiðabliki.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þrenna Sveindís Jane fagnar öðru marki sínu gegn Valskonum í júlí.
Úrslitaleikur ársins í Hlíðunum
Valur tekur á móti Breiðabliki í toppslag Íslandsmótsins á Hlíðarenda í dag
TOPPSLAGUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Það er nánast hægt að fullyrða að úr-
slitin í úrvalsdeild kvenna í knatt-
spyrnu, Pepsi Max-deildinni, muni
ráðast þegar ríkjandi Íslandsmeist-
arar Vals taka á móti Breiðabliki á
Origo-vellinum á Hlíðarenda í 16.
umferð deildarinnar í dag.
Fyrir leik dagsins eru Valskonur á
toppi deildarinnar með 40 stig og
hafa eins stigs forskot á Breiðablik
sem á leik til góða á meistarana.
Bæði Valur og Breiðablik hafa
verið í algjörum í sérflokki í deildinni
í sumar en Selfoss, sem er í þriðja
sæti deildarinnar, er 18 stigum á eft-
ir toppliði Vals en Selfoss og Valur
hafa bæði leikið fimmtán leiki.
Þá hafa Valskonur tapað fjórum
stigum í deildinni í sumar á meðan
Breiðablik hefur tapað þremur stig-
um og því þurfa Valskonur á sigri að
halda til þess að setja alvöru pressu á
Blika en lokaleikir Vals í deildinni
eru gegn FH og Selfossi.
Kópavogsliðið getur verið nokkuð
sátt með stigið, fyrirfram í það
minnsta, svo framarlega sem liðið
vinnur þá leiki sem það á eftir gegn
Fylki, KR og Stjörnunni.
Frá árinu 1977 hafa liðin mæst
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Samsungv.: Stjarnan – Fylkir ............... L14
Origo-völlur: Valur – Breiðablik ........... L17
Eimskipsvöllur: Þróttur R. – KR .......... S13
Boginn: Þór/KA – Selfoss.................. S13.30
Hásteinsvöllur: ÍBV – FH...................... S14
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Víkingsvöllur: Víkingur R. – KA ........... S14
Norðurálsvöllur: ÍA – FH ...................... S14
Samsung-völlur: Stjarnan – Fjölnir...... S17
Kórinn: HK – KR.................................... S17
Origo-völlur: Valur – Grótta ............. S19.15
Kópavogsv.: Breiðablik – Fylkir....... S19.15
1. deild karla, Lengjudeildin:
Varmá: Afturelding – Grindavík ........... L14
Ólafsvík: Víkingur Ó. – Leiknir R ......... L14
Hásteinsvöllur: ÍBV – Vestri................. L14
Framvöllur: Fram – Þróttur R ............. L14
Grenivíkurvöllur: Magni – Þór.............. L14
Nettóvöllur: Keflavík – Leiknir F......... L15
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Egilshöll: Fjölnir – Afturelding ............ L14
Vodafonev.: Völsungur – Haukar .......... S12
Nettóvöllur: Keflavík – Grótta .............. S14
2. deild karla:
Fjarðab.höll: Fjarðabyggð – Kórdr...... L13
Hertz-völlur: ÍR – Selfoss...................... L14
Ólafsfjarðarvöllur: KF – Þróttur V ...... L14
Akraneshöll: Kári – Njarðvík................ L14
Dalvík: Dalvík/Reynir – Haukar ........... L15
Nesfiskvöllur: Víðir – Völsungur .......... L15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Höllin Ak.: Þór – ÍBV............................. L15
Framhús: Fram – ÍR.............................. L17
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
DHL-höllin: KR – Skallagrímur ...... L17.30
Dalhús: Fjölnir – Valur ..................... L18.30
Ásvellir: Haukar – Breiðablik .......... L19.15
1. deild kvenna
Dalhús: Fjölnir b – Vestri ................. L15.30
Mustad-höll: Grindavík – Tindastóll..... L16
Hertz-hellir: ÍR – Njarðvík ................... L16
Dalhús: Fjölnir b – Vestri ...................... S15
UM HELGINA!