Morgunblaðið - 03.10.2020, Blaðsíða 56
Píanóleikarinn Romain Collin býður tónlistarkonunni
GDRN til leiks á þriðju tónleikum sínum í Hannesarholti
sem haldnir verða í kvöld kl. 20 og er sætafjöldi tak-
markaður vegna sóttvarna og miðar aðeins seldir í for-
sölu. Guðrún Ýr Eyfjörð, sem gengur undir listamanns-
nafninu GDRN, er ein vinsælasta tónlistarkona landsins
og hlaut fern verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaun-
unum árið 2019. Romain er rísandi stjarna í djassheim-
inum. Samhliða því að þróa sinn eigin sólóferil leiðir
hann tríó ásamt munnhörpusnillingnum Gregoire Mar-
et og gítarleikaranum Bill Frisell.
Romain býður söngkonunni GDRN
til leiks í Hannesarholti í kvöld
LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 277. DAGUR ÁRSINS 2020
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.196 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Byrjunarlið Íslands í Evrópukeppninni sögufrægu í
Frakklandi sumarið eftirminnilega 2016 er allt mætt til
leiks á ný. Þeir Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson
stilltu upp sömu ellefu leikmönnunum í öllum fimm
leikjum Íslands á EM 2016 og þeir eru nú allir samein-
aðir aftur í 26 manna hópnum sem Erik Hamrén til-
kynnti í gær fyrir umspilsleikinn mikilvæga gegn Rúm-
enum næsta fimmtudag, sem og gegn Dönum og
Belgum í Þjóðadeildinni þar á eftir. »49
Byrjunarliðið frá EM mætt til leiks
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kristín Ingveldur Valdimarsdóttir
ætlar að líta upp úr bókinni og njóta
lífsins með vinum og vandamönnum
í tilefni 100 ára afmælis síns í dag.
„Ég er að lesa ævisögu Skúla á Ljót-
unnarstöðum við Hrútafjörð, þekkti
hann í gamla daga,“ segir afmælis-
barnið. „Áður dóu flestir svo ungir.
Það er ótrúlegt að vera 100 ára og ég
ætla að halda upp á það,“ heldur hún
áfram. Leggur áherslu á að fyllstu
öryggisráðstafana verði gætt í veisl-
unni. „Nóg verður af handsprittinu
og hanskar fyrir þá sem vilja.“
Ingveldur, eða Inga eins og hún er
gjarnan kölluð, er ánægð með lífs-
gönguna en segir að útlitið hafi ekki
verið bjart hjá fjölskyldunni, þegar
hún var á áttunda ári. „Ég hef átt
gott líf en missti mömmu mína þegar
ég var sjö ára, elst fimm systra, sem
allar eru dánar,“ rifjar hún upp. Sig-
urlína Jónsdóttir, móðir hennar, dó
1928 eftir að hafa fætt andvana dótt-
ur árið áður. Faðir hennar, Valdimar
Bjarnason, sjómaður og síðar verka-
maður í Reykjavík, sá því um upp-
eldi systranna fjögurra. „Hann hélt
okkur saman og við bjuggum í húsi
sem föðurbróðir minn átti.“
Eins og í paradís
Eftir að hafa verið í vist og passað
börn í Reykjavík í nokkur ár með
skóla var hún í sveit í Guðlaugsvík
við Hrútafjörð í tvö sumur, 11 og 12
ára. „Ég fór með Súðinni, annað
skiptið upp í Króksfjarðarnes og hitt
á Borðeyri. Síðan var farið á hestum
upp úr Gilsfirði yfir Steinadalsheiði,
Bitru og inn í Hrútafjörð. Á þeim
tíma lét maður hverjum degi nægja
sína þjáningu. Fátæktin var mikil.
Húsnæðisskortur. Erfitt líf fyrir
ekkil með fjórar ungar dætur. Ég
átti mér þá ósk að hafa það gott og
fannst ég vera komin í paradís þegar
við fluttum inn í íbúð okkar á Mel-
haga en pabbi lifði ekki að sjá mig í
nýju húsnæði, eins og draumur hans
var. En hann náði að sigla með salt-
fisk til Spánar.“
Eiginmaður Ingu var Jóhannes
Ingibjörn Ólafsson, forstjóri Dósa-
gerðarinnar, en hann féll frá 2004.
Dóttir þeirra er Sigurlína Jóhann-
esdóttir. „Við Jói ferðuðumst mikið,
bæði um Ísland og erlendis,“ segir
Inga. „Ánægjulegasta ferðin var
þegar við fórum Gæsavatnsleið með
skemmtilegu fólki á tveimur jeppum
1973, ári áður en hringvegurinn var
opnaður. Við vorum 12 daga í ferð-
inni, alltaf sólskin, og sendum svo
bílana sjóleiðis heim frá Hornafirði
en flugum sjálf.“ Ferð síðar um Kjöl
og Sprengisand sé líka eftir-
minnileg. Hjónin voru ásamt öðrum
með Bakká í Hrútafirði á leigu í
mörg ár og á Inga góðar minningar
frá þeim tíma. „Skemmtilegast var
að vera úti í náttúrunni en ég veiddi
líka lax. Það var fínn lax þarna.“
Inga og Jóhannes áttu alltaf
heima í Vesturbænum en hún hefur
búið í eigin íbúð á Aflagranda 40 síð-
an 2007 og notið þjónustunnar þar á
margan hátt. Meðal annars farið í
margar dagsferðir, spilað bingó og
tekið þátt í fjöldasöng. Auk þess
spilar hún félagvist, en félagsstarfið
hefur reyndar að mestu legið niðri í
kórónuveirufaraldrinum. „Við byrj-
uðum aftur í félagsvistinni á mánu-
daginn en það voru ekki margir,
bara spilað á tveimur borðum. Þeir
hraustustu!“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ung í anda Kristín Ingveldur Valdimarsdóttir er að lesa ævisögu Skúla á Ljótunnarstöðum.
Erfitt í æsku en birti til
Kristín Ingveldur Valdimarsdóttir er 100 ára og trúir því varla