Morgunblaðið - 03.10.2020, Side 10

Morgunblaðið - 03.10.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 2020 Boðið er upp á einkaskoðun og fólk vinsamlegast beðið um að hafa samband í síma 898-9396 eða á hakon@valfell.is og panta tíma til skoðunar. Kirkjubraut 2, 300 Akranesi | Sími 570 4824 | hakon@valfell.is | valfell.is Þingvangur ehf byggir 10 hæða lyftuhúsnæði á góðum stað miðsvæðis á Akranesi. Staðsett við verslunarkjarnann Dalbraut 1, Akranesi. STILLHOLT 21 - AKRANESI Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar og seljast fullbúnar án gólfefna nema forstofa, þvottahús og baðherbergi flísalagt. Öllum íbúðum fylgir kæliskápur og uppþvottavél í eldhúsinnréttingu. Innréttingar og fataskápar frá danska framleiðandanum HTH Innhurðir og flísar frá Parka Heimilistæki frá Ormsson Sýningaríbúð á 1. hæð Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga fer vaxandi samhliða auknu atvinnu- leysi og gæti hækkað um 60% á næsta ári í tíu stærstu sveitar- félögum landsins. Þetta kom fram í máli Sigurðar Á. Snævarr, sviðs- stjóra hag og upplýsingasviðs Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, á síð- ari degi fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í gær. Fram kom í er- indi Unnar Sverrisdóttur, forstjóra Vinnumálastofnunar, að stofnunin hefur hækkað spá sína um þróun atvinnuleysis, og spáir því nú að það geti orðið 11-12% um næstu áramót. Fjárvöntun upp á 50 milljarða „Það er högg upp á hundruð milljarða í okkar efnahagslífi sem við erum að horfa fram á,“ sagði Sigurður Á. Snævarr í erindi sínu. Nú væri útlit fyrir að menn hefðu 285 milljörðum minna úr að spila á næsta ári en áætlað hafði verið. ,,Þetta er samdráttur upp á um 750 þúsund krónur á mann. Getum við vaxið upp úr þessum vanda? Já en sá vöxtur sem nú er spáð næstu árin dugar ekki til að stoppa upp í það gat sem 7,6% samdráttur 2020 skilur eftir sig,“ sagði hann. Fam kom í máli Sigurðar að leggja þurfi fjárhagsáætlanir fyrir árin 2021-24 fyrir sveitarstjórnir í síðasta lagi 1. nóvember. Hann fjallaði um ýmsar sviðsmyndir sem uppi hafa verið um fjárhagslega stöðu sveitarfélaga í dag og bæru þær að sama brunni. Fjárvöntun sveitarfélaganna á árunum 2020 og 2021 væri talin nema um 50 millj- örðum króna og væri jafnvel meiri. Sex mánaða uppgjör fjögurra af fimm stærstu sveitarfélögunum leiddi í ljós gríðarleg umskipti til hins verra, tekjulækkunin væri 1,6 milljarðar og útgjöldin uxu á sama tíma um 4,5 milljarða. Rekstraraf- gangurinn í heild gæti verið nei- kvæður um 10 milljarða á fyrri hluta ársins og 20 milljarðar á heilu ári. Sigurður sagði staðgreiðslu út- svars í sveitarfélögunum segja þá sögu sem blóðþrýstingur segir um mannslíkamann. Staðgreiðsla út- svars í mánuðunum febrúar til loka ágústmánaðar sl. hækkaði um 1,2% frá sama tíma í fyrra en fjárhags- áætlanir gerðu ráð fyrir að útsvarið myndi hækka um allt að 6%. Benti Sigurður á að ýmsar ráðstafanir ríkisins hafi bætt í útsvarsstofn sveitarfélaganna sem auki tekjurn- ar, s.s. úttekt séreignasparnaðar, hlutabótaleiðin og greiðsla launa í uppsagnarfresti. Aðgerðirnar næmu líklega samtals um 60 millj- örðum króna sem hafi þá aukið út- svarið til sveitarfélaganna um 8-9 milljarða. Staðgreiðslan hækkaði í 49 sveitarfélögum en lækkaði í 23 Sigurður sagði stöðu sveitarfélag- anna vera mismunandi. Birti hann yfirlit yfir breytingar á staðgreiðslu útsvars sundurliðað eftir sveitar- félögum frá febrúar til loka ágúst- mánaðar sl. og atvinnuleysi á hverj- um stað á því tímabili. „Staðgreiðslan lækkaði milli ára í 23 sveitarfélögum og hækkaði í 49,“ Fjárhagsaðstoð talin aukast um 60% á næsta ári Morgunblaðið/Árni Sæberg Sveitarfélögin Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri, Sigurður Á. Snævarr og Unnur Sverrisdóttir á fjármálaráð- stefnunni, sem send var út með fjarfundabúnaði frá Hilton Nordica hótelinu í Reykjavík í gær og fyrradag.  VMST hækkar spá um atvinnuleysi sem geti orðið allt að 12% um áramót

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.