Morgunblaðið - 03.10.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 2020
sagði hann. „Hækkun staðgreiðslu
var minni en 5% í 59 sveitarfélög-
um. Atvinnuleysið er mjög misjafnt.
Það er mest í Mýrdalshreppi en þar
er það 25% á þessum tíma og það
lækkaði tekjur af staðgreiðslu á
milli ára um 13%. Það er almennt
þannig að þar sem atvinnuleysið er
mikið, þar lækka tekjur af stað-
greiðslunni hvað mest,“ sagði Sig-
urður.
Fram kemur á glærum sem lagð-
ar voru fram með erindinu að hall-
inn á rekstri sveitarfélaganna gæti
orðið um 200 milljarðar á yfirstand-
andi ári. Rekstrarafgangur gæti
orðið rúmir 6,7 milljarðar en út-
svarstekjurnar minnka um 11,1
milljarð.
Einnig kom fram í máli Sigurðar
að fjárhagsaðstoð sveitarfélaga fari
vaxandi. „Fjárhagsaðstoð er fylgi-
fiskur atvinnuleysis,“ sagði hann.
„Við munum sjá verulegan út-
gjaldavöxt til fjárhagsaðstoðar á
næstu árum,“ sagði Sigurður enn
fremur.
„Við erum að vakta fjárhagsað-
stoðina sérstaklega þessa mánuð-
ina. Könnun á útgjöldum tíu
stærstu sveitarfélaganna sýnir að
fjárhagsaðstoð er að hækka um
30% í ár og um 60% á því næsta,“
sagði hann. Alls fóru 3,2 milljarðar í
fjárhagsaðstoð þessara tíu sveitar-
félaga í fyrra, áætlað er að hún
muni kosta 4,2 milljarða í ár og á
næsta ári muni fara um 6,7 millj-
arðar til fjárhagsaðstoðar í þessum
sveitarfélögum.
Allar mánaðartölur um atvinnu-
leysi á árinu eru alltaf upp á við,
líka yfir sumarmánuðina. Þetta kom
fram í erindi Unnar Sverrisdóttir,
forstjóra VMST. „Horfurnar fyrir
komandi vetur eru eru því miður
mjög dökkar því auk alkuls í ferða-
þjónustunni, þá ríkir mikil óvissa í
öðrum rekstri, og tengist alls kyns
þjónustu, samkomuhaldi, skemmti-
stöðum, veitingahúsum o.s.frv.,“
sagði hún.
Unnur sagði að spár VMST hafi
versnað. „Við erum núna komin upp
í að spá 11 til 12% atvinnuleysi um
áramótin, að það fari hægt og síg-
andi upp á við fram að áramótum.
Þá verði kannski um 25 þúsund
manns í atvinnuleit um áramótin að
þeim meðtöldum sem verða í
minnkuðu starfshlutfalli,“ sagði
hún. Í tölum sem Unnur birti má
sjá af nánari útreikningum að stofn-
unin spáir því núna að atvinnuleysið
verði 10,5% í október, 11,3% í nóv-
ember og 11,8% í desember en þar
af verði 0,9% í skertu starfshlutfalli.
Ástandið er langverst á Suður-
nesjum sem kunnugt er en nú er
útlit fyrir að heildaratvinnuleysi þar
hafi verið 18,9% í september.
Unnur fór yfir skiptingu atvinnu-
lausra eftir starfsgreinum en lang-
flestir koma úr ferðaþjónustunni
eða um sjö þúsund manns nú um
stundir. Verulegt atvinnuleysi er
líka að finna í hefðbundnu atvinnu-
greinunum þegar þær eru teknar
saman s.s. í iðnaði, landbúnaði og
sjávarútvegi og sagði Unnur skýr-
ingun líklega þá að þar var atvinnu-
leysi fyrir áður en faraldurinn skall
á. Hún sagði að ef skoðuð væri
skipting og fjöldi atvinnulausra ein-
staklinga þar sem þeir eru annað
hvort yfir þúsund manns eða færri
en þúsund eftir atvinnugreinum
kæmi í ljós að ferðaþjónustan sig úr
en einnig megi sjá að að ruðningsá-
hrifin af hruni ferðaþjónustunar eru
alltaf að koma betur og betur í ljós í
öðrum atvinnugreinum.
500 milljónir til sveitarfélaga
sem standa höllum fæti
Atvinnuleysið hefur komið sér-
staklega illa niður á erlendum rík-
isborgurum. Um 50 þúsund erlendir
ríkisborgarar búa á Íslandi, þar af
eru 38 þúsund á vinnumarkaði og
atvinnuleysið er núna 23,1% meðal
þeirra. Verst er ástandið meðal Pól-
verja að sögn Unnar en í hópi
þeirra mælist nú tæplega 30% at-
vinnuleysi.
Samkomulagið sem ríkið og sveit-
arfélögin gerðu með sér fyrr í þess-
ari viku um aukinn stuðning við
sveitarfélagögin vegna kórónuvei-
rufaraldursins var í brennidepli á
fjármálaráðstefnunni. Eins og fram
hefur komið eru framlög ríkisins til
sveitarfélaganna aukin um 3,3 millj-
arða auk þess sem veitt er heimild
til lántöku úr Fasteignasjóði Jöfn-
unarsjóðs upp á um 1500 milljónir.
Hækkunin skiptist þannig að veitt
er 670 milljónum í málefni fatlaðs
fólks, 720 milljónir fara til fjárhags-
aðstoðar sveitarfélaga. Sveitarfélög
sem standa höllum fæti fá 500 millj-
óna framlag og 935 milljónum er
varið til stefnumörkunar um eflingu
sveitarfélaga. Þá njóta sveitarfélög-
in tímabundinnar lækkunar trygg-
ingagjalds upp á um 480 milljónir
kr.
Breyting útsvars og atvinnuleysi
frá 2019 til 2020 Heimild: SÍS
-15%
-10%
-5%
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
Sk
ag
ab
yg
gð
Sk
út
us
ta
ða
hr
ep
pu
r
Da
la
by
gg
ð
Ás
ah
re
pp
ur
Tá
lkn
af
ja
rð
ar
hr
ep
pu
r
St
ra
nd
ab
yg
gð
Re
yk
ja
ne
sb
æ
r
Ve
st
ur
by
gg
ð
Se
yð
isf
jö
rð
ur
Hv
al
fja
rð
ar
sv
ei
t
Su
ðu
rn
es
ja
bæ
r
Ey
ja
- o
g M
ikl
ah
ol
ts
hr
ep
pu
r
Bl
ön
du
ós
bæ
r
Fj
ar
ða
by
gg
ð
Da
lví
ku
rb
yg
gð
Sv
ei
ta
rfé
la
gi
ð Ö
lfu
s
Hr
un
am
an
na
hr
ep
pu
r
Ra
ng
ár
þi
ng
yt
ra
Sv
ei
ta
rfé
la
gi
ð H
or
na
fjö
rð
ur
Hú
na
va
tn
sh
re
pp
ur
Ísa
fja
rð
ar
bæ
r
Ak
ra
ne
s
Fl
óa
hr
ep
pu
r
Hö
rg
ár
sv
ei
t
Hú
na
þi
ng
ve
st
ra
Se
tja
rn
ar
ne
s
Ey
ja
fja
rð
ar
sv
ei
t
Ga
rð
ab
æ
r
Ve
st
m
an
na
ey
ja
r
Bo
lu
ng
ar
vík
Sv
ei
ta
rfé
la
gi
ð S
ka
ga
st
rö
nd
Sk
or
ra
da
lsh
re
pp
ur
Gr
ýt
ub
ak
ka
hr
ep
pu
r
Ár
ne
sh
re
pp
ur
Re
yk
hó
la
hr
ep
pu
r
He
lg
af
el
lss
ve
it
Atvinnuleysi
B
re
yt
in
g
út
sv
ar
s
Allt um
sjávarútveg
Skipholti 29b • S. 551 4422
Fylgdu okkur á facebook
SKOÐIÐNETVERSLUNLAXDAL.IS
TRAUST
Í 80 ÁR
YFIRHÖFNIN
FÆST Í LAXDAL
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Skoðið // www.hjahrafnhildi.is
HAUST 2020
GALLERÍ KÚNST
TIL SÖLU
Af sérstökum ástæðum, (veikindi) er til sölu frábært
tækifæri til eigin reksturs.
Gallerí Kúnst ehf. er til sölu ásamt öllum lager list-
muna, fasteignum, tólum og tækjum.
Meðal eigna er glæsilegt einbýlishús (330 m2) á
stórri lóð með mikla möguleika á einum besta stað
í Garðabæ. Skjólsælt og ,,prívat‘‘, hlaðið alls konar
listmunum og húsgögnum sem fylgja að mestu leiti.
Skemmtilegt tækifæri fyrir fagurkera. Mercedes
Bens jeppi ekinn 180 þ. km. Stór listmunalager, til-
búinn í jólasöluna.
Heildarverðmæti áætlað 285 milljónir.
Miklir möguleikar:
* Umboðssala fyrir hugvitsfólk og listamenn
Allar nánari upplýsingar í síma 861 6660, Jóhann
eða um netfangið j j j j@simnet.is
Það eru miklir peningar í listinni.
* Heildsala, smásala
* Inn- og útflutningur
* Vefverslun
* Uppboðshald
* Sölusýningar
* Kaffihús o.m.fl.
* Jólasalan framundan
Nú finnur þú það
sem þú leitar að
á FINNA.is