Morgunblaðið - 03.10.2020, Síða 19

Morgunblaðið - 03.10.2020, Síða 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 2020 www.agustav.is s. 8230014 VERSLUN VÖNDUÐ ÍSLENSK HÚSGÖGN Skólavörðustíg 22 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Framkvæmdir við endurnýjun Tryggvagötu hafa staðið yfir í sum- ar. Það er ekki aðeins gatan sjálf sem gengur í endurnýjun lífdaga heldur hafa Veitur notað tækifærið og endurnýjað lagnir neðanjarðar. Um er að ræða mikið lagnaverk eins og vegfarendur hafa tekið eftir að undanförnu. Verklok við Tryggvagötu eru áætluð í ágúst 2021. Þá verður lokið við gerð útivistarsvæðis, torgs, fyrir sunnan Tollhúsið, þar sem fólk getur sólað sig á sumardögum í skjóli fyrir norðanáttinni. Veitur vinna að því markvisst að aðgreina skólp og regnvatn í mið- borginni og hafa fundið og valið leið- ir til að koma regnvatni frá vatna- svæði Tjarnarinnar og Kvosar til sjávar, segir í frétt á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Við hönnun á nýju skólplögninni á þessu svæði var ekki hægt að tengja hana með góð- um hætti til framtíðar nema með því að fara inn í brunn við dreifistöðina við hlið Bæjarins beztu pylsna. Þegar kom að því að grafa við verkmörk við Tryggvagötu – Póst- hússtræti kom í ljós að stein- bryggjan, sem grafin var upp, náði of langt til suðurs. Núverandi lögn var þannig lögð að ómögulegt var að ná tengingu við hana Tryggvagötu- megin við vegginn og þar að auki hefði hún lent í árekstri við nýju regnvatnslögnina. Þar með var talið óhjákvæmilegt að fara í þessa að- gerð núna. Einnig var nauðsynlegt að taka tillit til neðanjarðarveggj- arins og fornleifa handan við hann og hanna lagnirnar í gegnum hann í fullu samráði við Minjastofnun. Framkvæmdir í götunni hófust fyrir skömmu og munu standa yfir í mánuð. Gönguleiðir verða greiðar á svæðinu á meðan framkvæmdum stendur en loka þarf fyrir bílaum- ferð frá Pósthússtræti að Tryggva- götu og lokað fyrir aðra akrein fyrir framan Hafnarhúsið, Tryggvagötu 17, nema fyrir vöruflutninga, neyð- arbíla og vinnuvélar. Akstursstefnu Hafnarstrætis og Naustanna var snúið við meðan á þessum aðgerðum stendur. Veitur hafa í sumar endurnýjað lagnir vatnsveitu, hitaveitu og raf- veitu í Tryggvagötunni. Margar þessara lagna eru komnar til ára sinna. Skólplögnin og kaldavatns- lögnin eru frá árinu 1925 og hafa því þjónað íbúum og fyrirtækjum í mið- bænum í tæpa öld. Lagnirnar frá 1925 voru úr steini og því ekki mögu- legt að varðveita þær. Því var þeim fargað. Ljósmynd/Reykjavíkurborg Gamli tíminn Lagnirnar frá árinu 1925 komu í ljós við uppgröftinn í sumar. Morgunblaðið/sisi Nýi tíminn Mikið og flókið lagnaverk verður sett undir Tryggvagötuna enda verður það í notkun næstu áratugina. Mikið lagnaverk undir yfirborðinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.