Morgunblaðið - 03.10.2020, Síða 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 2020
Heiðarholt 18, 230 Reykjanesbæ
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
OPIÐ HÚS mánudag frá kl.17.15-17.45
Töluvert endurnýjuð 4ra herbergja íbúð á 3. hæð
á eftirsóttum stað í Keflavík
Verð kr. 28.900.000Stærð 84,2 m2
Jóhannes Ellertsson
Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677
Júlíus M Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555
Hjörvar Steinn Grétarssonvar með ½ vinnings for-skot á Helga Áss Grét-arsson þegar síðasta
umferð Haustmóts Taflfélags
Reykjavíkur hófst í gærkvöldi. Svo
skemmtilega vildi að þeir mættust í
lokaumferðinni en úrslit þeirrar við-
ureignar lágu ekki fyrir þegar þessi
pistill var ritaður. Staðan í A-riðli
var þessi: 1. Hjörvar Steinn Grét-
arsson 7½ v. (af 8) 2. Helgi Áss Grét-
arsson 7 v. 3. Guðmundur Kjart-
ansson 6½ v. 4. Bragi Þorfinnsson 4
½ v. 5. Sigurður Daði Sigfússon 4 v.
6. – 7. Davíð Kjartansson og Vignir
Vatnar Stefánsson 3 v. 8. Símon Þór-
hallsson 2 v. 9. Sigurbjörn Björnsson
1 ½ v. 10. Halldór Grétar Einarsson
1 v.
Í B- riðli var Þorvarður Ólafsson
efstur með 6 vinninga af átta mögu-
legum, Lenka Ptacnikova var í 2.
sæti með 5½ vinning og Alexander
Oliver í 3. sæti með 5 vinninga.
Í C-riðli, þ.e. Opna flokknum, voru
efstir Benedikt Þórisson, Elvar Már
Sigurðsson og Jóhann Jónsson, allir
með 6½ vinning af átta mögulegum.
Þremenningarnir í efstu sætum
hafa verið í nokkrum sérflokki á
haustmótinu. Efsti maður, Hjörvar
Steinn, gæti verið með 100% vinn-
ingshlutfall hefði hann hitt á besta
leikinn í þessari stöðu:
Haustmót TR 2020; 7. umferð:
Guðmundur Kjartansson – Hjörv-
ar Steinn
Hvítur hafði valdað d-hrókinn
með c4-c5 og Hjörvar gat í tvígang
gripið til þeirra aðgerða sem hefðu
tryggt vinningsstöðu. Hjörvar lék
nú 31. … Hf8 en missti af bráð-
snjöllum leik, 31. … Dxd6! Eftir 32.
cxd6 Bxe4 á hvítur vart annað en 33.
Dc1, en þá kemur 33. … Bxg2+ 34.
Kg1 Hg3! – nákvæmast. Riddarinn á
c3 fellur og varnir hvíts hrynja.
Íslandsmeistarinn Guðmundur
Kjartansson hefur um nokkurt skeið
sótt að því marki að ná 2.500 elo-
stigum sem er skilyrði fyrir því að
hann hljóti útnefningu stórmeistara.
Hann er nálægt því marki og í átt-
undu umferð hefði sigur yfir Helga
Áss dugað til. Þessir tveir hafa átt
góða samvinnu undanfarið en henni
eru auðvitað ákveðin takmörk sett.
Mér sýnist að í skákum Guðmundar
við Hjörvar og Helga Áss hafi hann
sótt of fast fram þegar rólegri leiðir
hefðu tryggt betri færi:
Haustmót TR 2020; 7. umferð:
Guðmundur Kjartansson – Helgi
Áss Grétarsson
Drottningarbragð
1. d4 d5 2. c4 dxc4 3. Rf3 Rf6 4. e3
Bg4 5. Bxc4 e6 6. Db3 Bxf3 7. gxf3
Dc8 8. Rc3 a6 9. d5 b5 10. Be2 b4?!
Djarflega teflt. Helgi vildi með
þessu knýja fram mannsfórn sem er
óhjákvæmileg en lofar vissulega
góðu fyrir hvítan.
11. dxe6! bxc3 12. exf7+ Kd8 13.
e4 Rbd7 14. bxc3
Hvítur hefur þrjú peð fyrir mann-
inn og hættuleg færi.
14. … Rc5 15. Dc4 De6 16. Be3
Dxc4 17. bxc4 Rfd7 18. O-O-O Kc8
19. Hhg1 Kb7
20. Bd5+?
Það er á þessu augnabliki sem
hvítur missir þráðinn. Bein atlaga er
ekki tímabær og hvítur gat byggt
upp stöðu sína með 20. Kc2, sem
opnar fyrir hróksskák á b1, eða 20.
f4. Í báðum tilvikum er staða svarts
afar erfið viðfangs.
20. … c6 21. Be6?
Enn verri leikur. Hann átti hik-
laust að draga biskupinn til baka og
hefur þá enn ágæt færi.
21. … Rxe6 22. Hxd7+ Kc8 23.
Hgd1 Ba3+ 24. Kc2 Hd8!
Atlaga hvíts hefur siglt í strand og
svartur stendur með pálmann í
höndunum.
25. Hxd8+ Rxd8 26. e5 Hb8 27.
Bc1 Bf8 28. f4 Hb7 29. Hxd8+ Kxd8
30. e6 Hb5 31. Kd3 Hf5 32. Ke4 g6
33. c4 c5 35. Bb2 Ke7
- og hvítur gafst upp.
Hjörvar Steinn og
Helgi Áss berjast um
sigur á Haustmóti TR
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Efstur Hjörvar Steinn Grétarsson við taflið.
IOGT á Íslandi eru
almannaheillasamtök
sem hafa starfað í al-
mannaþágu frá stofn-
un 1884. Þriðji október
er alþjóðadagur IOGT
á Íslandi og verður
hann nýttur til að
vekja athygli á starf-
semi IOGT á al-
þjóðavísu. Al-
þjóðahreyfingin heitir
í dag Movendi sem þýðir í stuttu
máli félagahreyfing. Hreyfing fé-
laga sem láta sig varða mál sem
tengjast samfélögum og ein-
staklingum hvar sem er í heiminum.
Félagarnir eru undirstaða hreyfing-
arinnar þar sem grasrótin kemur
hreyfingu á hlutina á heimsvísu.
Okkar sýn er að allir hafi möguleika
á lífi, þar sem þeir geti upplifað sína
ýtrustu möguleika, lausir við skaða
af völdum áfengis eða annarra
vímuefna. Það er heimur friðar, lýð-
ræðis og réttlætis þar sem allir
heilbrigðir borgarar leggja sitt af
mörkum á öllum stigum samfélags-
ins. Við erum miklu meira en bara
bindindishreyfing, barnamenning-
arsamtök, friðarhreyfing, hjálp-
arsamtök, mannúðarsamtök, for-
varnasamtök eða
umhverfisverndarsamtök. Heims-
markmið Sameinuðu þjóðanna hafa
verið á dagskrá hjá okkur und-
anfarin 136 ár og hafa byggst á
samkennd félaganna. Samkennd fé-
laga IOGT hefur alltaf verið rík og
hafa þeir komið að því að lyfta und-
ir mörg verkefni sem koma þjóðinni
til góða. Það er hlutverk okkar að
skapa aðstæður fyrir börn til að
alast upp í vímulausu umhverfi.
Börnum líður ekki vel innan um
fólk undir áhrifum og eiga á engan
hátt að upplifa for-
eldra sína ófæra um að
sinna þeim. Það eru
mannréttindi okkar
allra að vera laus und-
an þeim gríðarlega
þrýstingi sem áfeng-
isiðnaðurinn beitir til
þess eins að hagnast
meira á sölu á vökva
sem svo sannarlega er
krabbameinsvaldandi,
veldur óráði, vanhæfni,
ofbeldi, slysum og
dauða. Við höfum haft almenning
með okkur þegar kemur að for-
vörnum enda notar meirihluti
heimsbúa ekki áfengi að staðaldri.
Við höfum sterka löggjöf sem má
herða þegar kemur að augljósum
brotum eins og áfengisauglýsingum
og sprúttsölu. Allt tal um að losa
um takmarkanir á dreifingu og sölu
áfengis er óábyrgt og verður kjána-
legra með hverjum degi þegar í ljós
kemur betur og betur að þeir sem
koma að áfengisiðnaðinum hafa
leynt upplýsingum um gríðarlega
skaðsemi áfengis í áratugi. Við
hvetjum almenning til að kynna sér
með auðveldum hætti á heimasíðu
IOGT á Íslandi, hvernig áfengi
hindrar að við náum Heimsmark-
miðum Sameinuðu þjóðanna.
Alþjóðadagur
IOGT á Íslandi
Eftir Aðalstein
Gunnarsson
» Okkar framtíðarsýn
er að allir ein-
staklingar hafi mögu-
leika á lífi, þar sem þeir
geti upplifað sína ýtr-
ustu möguleika, lausir
við skaða af áfengi.
Aðalsteinn Gunnarsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
IOGT á Íslandi.
Í dag eru liðin 80 ár frá fæð-
ingu Óttars Einarssonar, kenn-
ara og hagyrðings. Foreldrar
hans voru Guðrún Kristjáns-
dóttir frá Holti í Þistilfirði og
Einar Kristjánsson frá Her-
mundarfelli, rithöfundur og út-
varpsmaður.
Óttar tók kennarapróf frá
Kennaraskóla Íslands 1962.
Alls lagði hann stund á kennslu
og skólastjórnun í 45 ár og
skipta nemendur hans þús-
undum. Hann kenndi aðallega
íslensku og dönsku og þótti
einkar góður kennari. Hann
sinnti ýmsum félags- og fram-
faramálum, sat í mörgum
stjórnum og nefndum og var
forystumaður í Alþýðu-
bandalaginu á Akureyri árum
saman. Hann var oft fenginn til
að yrkja, skrifa og skemmta
enda mikill húmoristi og mann-
vinur.
Óttar lék á harmonikku, var
víðlesinn og hafði mikinn áhuga
á bókmenntum, íslenskri tungu
og þjóðlegum hefðum. Hann
var mikill jafnaðarmaður og
hafði ríka réttlætiskennd. Ótt-
ar var lipurt skáld og á sjötugs-
afmæli sínu 2010 gaf hann út
ljóðakverið Þorn og þistla sem
er sýnishorn af stökum hans
við ýmis tækifæri á lífsleiðinni.
Óttar lést á lungnadeild
Landspítalans í Fossvogi 7.
febrúar 2013.
Merkir Íslendingar
Óttar
Einarsson
Allt um sjávarútveg