Morgunblaðið - 03.10.2020, Page 40
Aðstoðarmaður dómara
í Landsrétti
Landsréttur auglýsir laust til umsóknar starf löglærðs
aðstoðarmanns dómara við Landsrétt.
Löglærðir aðstoðarmenn dómara sinna lögfræðilegum
verkefnum og aðstoða dómara réttarins í störfum þeirra
í samræmi við ákvörðun forseta réttarins, sbr. 3. mgr.
23. gr. laga nr. 50/2016. Meðal helstu verkefna er auk
aðstoðar við dómara, vinna við dómareifanir, úrvinnsla
kærumála sem og lögfræðileg greining mála sem til
úrlausnar eru fyrir réttinum.
Hæfniskröfur:
• Embættispróf í lögfræði eða grunnnám ásamt
meistaraprófi í lögum.
• Góð íslenskukunnátta og færni í rituðu máli er
nauðsynleg.
• Góðir skipulagshæfileikar, hæfni til að vinna sjálfstætt
og færni í mannlegum samskiptum.
• Þekking og/eða reynsla á sviði réttarfars er æskileg.
• Reynsla af greiningu og úrlausn lögfræðilegra
álitaefna er æskileg.
Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og
viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með
10. október 2020.
Áskilið er að umsóknir og fylgigögn berist með rafrænum
hætti á netfangið landsrettur@landsrettur.is.
Umsóknir gilda í allt að sex mánuði.
Nánari upplýsingar veitir Björn L. Bergsson skrifstofu-
stjóri Landsréttar, bjorn.l.bergsson@landsrettur.is.Helstu verkefni og ábyrgð
Auk sjálfstæðra rannsókna hefur forstöðumaður
umsjón með starfsemi setursins, fjármálum þess og
daglegum rekstri. Hann skipuleggur rannsóknir og
samstarfsverkefni, hefur með höndum áætlunargerð
og stýrir sókn í sjóði. Hann þarf að geta tekið að sér
leiðbeiningu háskólanema í framhaldsnámi og aðra
kennslu á háskólastigi.
Innan Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands eru
starfrækt 10 sjálfstæð rannsóknasetur víða um land.
Markmið stofnunarinnar er m.a. að skapa aðstöðu til
rannsókna á landsbyggðinni og vera vettvangur sam-
starfsverkefna háskólans við sveitarfélög, stofnanir,
fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga á landsbyggð-
inni. Rannsóknir eru meginviðfangsefni rannsókna-
setranna og eru viðfangsefnin fjölbreytt og tengjast
nærumhverfi setranna með einhverjum hætti. Lögð er
rík áhersla á árangur í starfi, áhrif og gæði rannsókna
og hagnýtingu rannsóknaniðurstaðna.
Hæfnikröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi á sviði
jarðvísinda og hafa stundað sjálfstæðar rannsóknir á
því sviði. Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum,
lipurð í mannlegum samskiptum, gott vald á ensku og
íslensku er nauðsyn. Reynsla af alþjóðasamstarfi sem
og reynsla af þverfræðilegu samstarfi er æskileg. Þá er
reynsla af sókn í innlenda sem erlenda rannsóknasjóði
kostur.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála-
og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa
gert.
Um fullt starf er að ræða og verður ráðið í starfið til
fimm ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu
að þeim tíma liðnum, sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir
Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og
ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um
Háskóla nr. 85/2008 og reglna um Háskóla Íslands nr.
569/2009. Sérstök nefnd sem rektor skipar annast
mat og forgangsröðun umsókna.
Umsækjendur skulu láta rannsóknaáætlun til fimm
ára fylgja umsókn sinni, þar sem koma skal fram
hvernig rannsóknir umsækjanda tengjast Breiðdalsvík
og nærumhverfi þess. Umsækjendur láti einnig fylgja
vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu
um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið.
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að
átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til
þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir ein-
göngu þessi ritverk sín með umsókn, eða vísar til þess
hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri
en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu
umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verk-
sins. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti
fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf
sín, eftir því sem við á. Umsókn og umsóknargögnum
sem ekki er skilað rafrænt skal skila í tvíriti til
Vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands,
Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt
um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun liggur fyrir.
Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknar-
frests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af
jafnréttisáætlun skólans, sjá hér: http://www.hi.is/
haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér:
https://www.hi.is/haskolinn/malstefna_haskola_is-
lands.
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 12.10.2020.
Nánari upplýsingar veitir Sæunn Stefánsdóttir,
saeunnst@hi.is.
Stofnun rannsóknasetra HÍ
Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns, sem jafnframt er starf
akademísks sérfræðings, við nýtt Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Breiðdalsvík.
Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands hyggst koma á fót Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Breiðdalsvík á
grunni starfsemi Breiðdalsseturs ses. Rannsóknasetrinu er einkum ætlað að sinna rannsóknum á sviði jarð-
fræði og málvísinda. Aðsetur þess verður í Gamla Kaupfélaginu.
Forstöðumaðurinn verður starfsmaður Háskóla Íslands en hefur starfsaðstöðu við Rannsóknasetur Háskóla
Íslands á Breiðdalsvík. Starfsstöð setursins er á Breiðdalsvík og er gert ráð fyrir að forstöðumaðurinn gegni
starfi sínu þaðan. Búseta á svæðinu er skilyrði. Miðað er við að tengsl verði við starfsemi og verkefni Jarð-
vísindadeildar Háskóla Íslands og Jarðvísindastofnunar Háskólans eftir því sem forstöðumaðurinn og starfs-
menn koma sér saman um.
FORSTÖÐUMAÐUR
við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Breiðdalsvík
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
hagvangur.is