Morgunblaðið - 03.10.2020, Blaðsíða 48
48 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 2020
Arna Sif Pálsdóttir, landsliðskona í
handknattleik, mun ekki leika með
Val fyrr en eftir áramót. Arna Sif
glímir við meiðsli í hné sem hafa
lengi gert henni erfitt fyrir og
framundan er hvíld frá æfingum og
keppni. Netmiðillinn handbolti.is
greinir frá þessu og þar er rætt við
Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfara
Vals.
Ragnheiður Sverrisdóttir sleit
krossband í hné nú síðsumars eins
og fram hefur komið og Valur er
því einnig án hennar. Báðar eru
þær línumenn.
Arna Sif þarf að
taka sér hvíld
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hnémeiðsli Arna Sif Pálsdóttir er
ekki leikfær á næstunni.
Zaragoza, lið Tryggva Snæs Hlina-
sonar, féll úr keppni í undan-
úrslitum Meistaradeildar Evrópu í
körfuknattleik í gær.
Liðið mætti gríska liðinu AEK
frá Aþenu og tapaði stórt 99:75 og
AEK fer því í úrslitaleikinn en um
er að ræða Meistaradeildina fyrir
tímabilið 2019-2020.
Tryggvi er kominn með stórt
hlutverk í spænska liðinu og stóð
sig vel. Tryggvi skoraði 11 stig, tók
8 fráköst og varði tvö skot frá and-
stæðingunum. Tryggvi tók níu skot
og hitti úr fimm þeirra.
Tryggvi fer ekki
í úrslitaleikinn
Ljósmynd/KKÍ/Jónas
Zaragoza Tryggvi Snær er með
stórt hlutverk hjá spænska liðinu.
FRÉTTASKÝRING
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Byrjunarlið Íslands í Evrópukeppn-
inni sögufrægu í Frakklandi sum-
arið eftirminnilega 2016 er allt mætt
til leiks á ný. Þeir Lars Lagerbäck
og Heimir Hallgrímsson stilltu upp
sömu ellefu leikmönnunum í öllum
fimm leikjum Íslands á EM 2016 og
þeir eru nú allir sameinaðir aftur í 26
manna hópnum sem Erik Hamrén
tilkynnti í gær fyrir umspilsleikinn
mikilvæga gegn Rúmenum næsta
fimmtudag, sem og gegn Dönum og
Belgum í Þjóðadeildinni þar á eftir.
Birkir Már Sævarsson er kallaður
aftur inn í hópinn eftir að hafa farið
á kostum með Valsliðinu í undan-
förnum leikjum og þeir Aron Einar
Gunnarsson, Gylfi Þór Sigurðsson,
Ragnar Sigurðsson, Jóhann Berg
Guðmundsson, Kolbeinn Sigþórsson
og Alfreð Finnbogason koma allir
aftur í hópinn, sem og þeir Rúnar
Már Sigurjónsson og Viðar Örn
Kjartansson.
Kolbeinn var reyndar valinn fyrir
leikina gegn Englandi og Belgíu en
þurfti að draga sig út rétt áður en
fyrri leikurinn hófst.
Þeir sem hófu alla leikina á EM
voru Hannes, Birkir Már, Kári,
Ragnar, Ari Freyr, Jóhann Berg,
Aron Einar, Gylfi, Birkir B., Jón
Daði og Kolbeinn, og þá komu þeir
Alfreð, Arnór Ingvi Traustason og
Sverrir Ingi Ingason allir nokkuð við
sögu í keppninni.
Sterkasta liðið gegn Rúmeníu
Til viðbótar voru þessir leikmenn
flestallir á HM í Rússlandi sumarið
2018 þannig að nú er ekkert til spar-
að hvað varðar reynslu fyrir Rúmen-
íuleikinn.
Þar mun Hamrén stilla upp því
sterkasta liði sem kostur verður á,
enda allt undir varðandi mögu-
leikann á að komast á EM næsta
sumar. Álaginu á hópinn verður síð-
an væntanlega dreift talsvert á Þjóð-
ardeildarleikina gegn Dönum og
Belgum. Þegar liggur fyrir að Aron
Einar mun í mesta lagi spila tvo
fyrri leikina, samkvæmt sam-
komulagi við félagslið hans, og ekki
kæmi á óvart þó þannig yrði um
fleiri.
Áhugavert verður að sjá hvort
Birkir Már Sævarsson fari beina leið
í byrjunarliðið en miðað við frammi-
stöðu hans með Val að undanförnu
og gríðarlega reynslu er það alls
ekki ólíklegt.
Þeir Arnór Sigurðsson og Jón
Dagur Þorsteinsson spila með 21-
árs landsliðinu gegn Ítalíu 9. októ-
ber og verða ekki í hópnum gegn
Rúmenum en koma inn fyrir seinni
leikina tvo.
Óvissa með þrjá leikmenn
Síðan er eftir að reyna á hvort all-
ir verði leikfærir þegar á hólminn
verður komið en þar er Jóhann Berg
stærsta spurningarmerkið, enda
hefur hann ekkert spilað síðan hann
meiddist í leik með Burnley fyrir
tæpum mánuði og óvíst hvort hann
leiki með liðinu nú um helgina.
Ari Freyr hefur heldur ekki spilað
þrjá síðustu leiki Oostende, Kári
Árnason hefur ekki leikið tvo síðustu
leiki Víkings og óvíst hvort hann
spili gegn KA á morgun, en hinir í
hópnum hafa allir verið meira og
minna á fullri ferð með sínum liðum
undanfarnar vikur.
Sjö leikmenn detta út úr hópnum
frá septemberleikjunum. Emil Hall-
freðsson er þeirra reyndastur og þá
nær Hólmbert Aron Friðjónsson
ekki að fylgja eftir góðri frammi-
stöðu og marki gegn Belgum en
hann glímir við ökklameiðsli. Þeir
Jón Guðni Fjóluson og Andri Fann-
ar Baldursson voru í byrjunarliðinu
gegn Belgum en eru ekki valdir í
þennan 26 manna hóp, sem og þeir
Samúel Kári Friðjónsson, Alfons
Sampsted og Patrik Sigurður Gunn-
arsson, en tveir þeir síðastnefndu
eru í 21-árs landsliðinu og voru kall-
aðir aukalega inn í hópinn fyrir
Belgaleikinn.
Um 1.500 áhorfendur?
Miðað við fyrirliggjandi upplýs-
ingar má búast við því að um 1.500
áhorfendur fái að vera á hverjum
landsleikjanna á Laugardalsvell-
inum og það verður mikill munur frá
leiknum við Englendinga 5. sept-
ember þegar engum áhorfendum
var hleypt inn á völlinn.
UEFA hefur gefið leyfi fyrir því
að nýta um 30 prósent af vallar-
stæðum undir áhorfendur í október-
mánuði en fram kom hjá Ómari
Smárasyni, fjölmiðlafulltrúa KSÍ, í
gær að mat sambandsins væri að um
1.500 áhorfendur gætu verið á vell-
inum þegar farið hefði verið eftir
mjög umfangsmiklum sóttvarna-
reglum.
Allt byrjunarliðið frá EM
2016 mætt til leiks á ný
Gríðarlega reyndur hópur fyrir leikina gegn Rúmeníu, Danmörku og Belgíu
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Reyndir Þessir ellefu hófu alla fimm leikina á EM 2016 í Frakklandi og þeir eru allir í landsliðshópnum núna.
MARKVERÐIR:
Hannes Þór Halldórsson, Val ................................................................... 70 0
Ögmundur Kristinsson, Olympiacos, Grikklandi .................................. 16 0
Rúnar Alex Rúnarsson, Arsenal, Englandi............................................... 5 0
VARNARMENN:
Ragnar Sigurðsson, FC København, Danmörku ................................... 94 5
Birkir Már Sævarsson, Val ....................................................................... 92 1
Kári Árnason, Víkingi R............................................................................ 84 6
Ari Freyr Skúlason, Oostende, Belgíu .................................................... 73 0
Sverrir Ingi Ingason, PAOK Saloniki, Grikklandi ................................ 30 3
Hörður Björgvin Magnússon, CSKA Moskva, Rússlandi...................... 29 2
Hjörtur Hermannsson, Brøndby, Danmörku ......................................... 16 1
Hólmar Örn Eyjólfsson, Rosenborg, Noregi .......................................... 15 2
MIÐJUMENN:
Aron Einar Gunnarsson, Al Arabi, Katar ............................................... 87 2
Birkir Bjarnason, Brescia, Ítalíu ............................................................. 86 13
Jóhann Berg Guðmundsson, Burnley, Englandi.................................... 75 8
Gylfi Þór Sigurðsson, Everton, Englandi ............................................... 74 22
Arnór Ingvi Traustason, Malmö, Svíþjóð................................................ 34 5
Rúnar Már Sigurjónsson, Astana, Kasakstan ........................................ 25 1
Guðlaugur Victor Pálsson, Darmstadt, Þýskalandi .............................. 17 0
Arnór Sigurðsson, CSKA Moskva, Rússlandi......................................... 10 1
Mikael Anderson, Midtjylland, Danmörku ............................................... 6 0
Jón Dagur Þorsteinsson, AGF, Danmörku ............................................... 4 1
SÓKNARMENN:
Kolbeinn Sigþórsson, AIK, Svíþjóð.......................................................... 58 26
Alfreð Finnbogason, Augsburg, Þýskalandi .......................................... 57 15
Jón Daði Böðvarsson, Millwall, Englandi ............................................... 50 3
Viðar Örn Kjartansson, Vålerenga, Noregi ........................................... 26 3
Albert Guðmundsson, AZ Alkmaar, Hollandi ........................................ 12 3
Landsliðshópur Íslands
Lengjudeild kvenna
ÍA – Tindastóll .......................................... 2:4
Staðan:
Tindastóll 17 15 1 1 50:7 46
Keflavík 16 12 3 1 42:15 39
Haukar 16 9 2 5 26:18 29
Afturelding 16 7 4 5 22:19 25
Augnablik 16 6 5 5 27:30 23
Grótta 16 5 5 6 23:30 20
Víkingur R. 16 5 3 8 22:31 18
ÍA 17 3 6 8 24:31 15
Fjölnir 16 2 1 13 7:31 7
Völsungur 16 1 2 13 12:43 5
2. deild kvenna
HK – Grindavík ........................................ 0:0
Staðan:
HK 16 11 2 3 49:14 35
Grindavík 14 9 3 2 33:11 30
FHL 13 8 2 3 33:21 26
Álftanes 13 6 2 5 22:31 20
Hamrarnir 13 5 3 5 18:20 18
Hamar 14 4 2 8 19:34 14
Sindri 13 3 2 8 18:31 11
ÍR 15 2 4 9 25:36 10
Fram 13 2 4 7 24:43 10
Frakkland
Fleury – Lyon........................................... 0:3
Sara Björk Gunnarsdóttir var ekki í leik-
mannahópi Lyon.
Le Havre – Soyaux .................................. 0:1
Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Anna
Björk Kristjánsdóttir léku allan leikinn
með Le Havre.
Holland
B-deild:
Jong PSV – Telstar ................................. 3:0
Kristófer Ingi Kristinsson lék í 62 mín-
útur fyrir Jong PSV og skoraði annað mark
liðsins.
Danmörk
Randers – Bröndby.................................. 1:2
Hjörtur Hermannsson var á varamanna-
bekk Bröndby.
Olísdeild karla
Selfoss – FH.......................................... 25:24
Haukar – Valur..................................... 25:28
Stjarnan – KA....................................... 25:24
Staðan:
Afturelding 4 3 1 0 97:90 7
Valur 4 3 0 1 128:107 6
Haukar 4 3 0 1 107:96 6
Selfoss 4 2 1 1 100:100 5
FH 4 2 0 2 106:99 4
ÍBV 3 2 0 1 89:85 4
KA 4 1 2 1 96:95 4
Stjarnan 4 1 1 2 102:108 3
Þór Ak. 3 1 0 2 67:69 2
Grótta 4 0 2 2 86:90 2
Fram 3 0 1 2 70:78 1
ÍR 3 0 0 3 76:107 0
Þýskaland
B-deild:
Lübeck-Schwartau – Gummersbach 25:27
Elliði Snær Viðarsson skoraði 3 mörk
fyrir Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðs-
son þjálfar liðið.
Danmörk
Skjern – Aarhus................................... 35:30
Elvar Örn Jónsson skoraði 5 mörk fyrir
Skjern.
Tvis Holstebro – GOG ......................... 31:35
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði ekki fyr-
ir Tvis Holstebro.
Viktor Gísli Hallgrímsson varði 6 skot í
marki GOG.
Frakkland
Aix – Montpellier.............................. frestað
Kristján Örn Kristjánsson leikur með
liði Aix.
B-deild:
Cherbourg – Nice ................................ 30:29
Grétar Ari Guðjónsson er markvörður
hjá Nice.
Svíþjóð
IFK Ystad – Kristianstad ................... 24:29
Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 1
mark fyrir Kristianstad og Teitur Örn Ein-
arsson 5.
Dominos-deild karla
Valur – Stjarnan ................................... 86:91
1. deild karla
Álftanes – Vestri............................... 121:104
Fjölnir – Skallagrímur....................... 91:110
Hamar – Sindri ................................... 101:92
Hrunamenn – Selfoss........................... 95:81
Meistaradeild Evrópu
Undanúrslit 2019-20:
Zaragoza – AEK Aþena...................... 75:99
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 11 stig,
tók 8 fráköst og varði 2 skot fyrir Zaragoza.